Morgunblaðið - 07.11.2006, Qupperneq 23
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 23
Strandamenn fóru ekki varhluta af storm-
inum sem gekk yfir landið á sunnudaginn. Á
Ennishálsi fóru vindhviður í 37 metra á sek-
úndu á sunnudagsmorgun og voru hátt í 50
metrar í verstu hviðunum, samkvæmt sjálf-
virkum veðurathugunum á vef Vegagerð-
arinnar. Veðrið setur jafnan strik í reikning-
inn þegar mannfagnaðir eru annars vegar og
þurfti m.a. að fresta fundi Framsóknarflokks-
ins, þar sem til stóð að kynna kjósendum
helstu stefnumálin. Í gær var orðið vetrarlegt
um að litast á Hólmavík, hvítt yfir og fremur
þungbúið. Skólabörnin kunnu þó vel að meta
snjóinn og nýttu sér hann í þá leiki sem slíkt
veðurfar býður upp á.
Þessa dagana er unnið að mikilvægum sam-
göngubótum í Skeljavíkurklifi, rétt sunnan
Hólmavíkur, þar sem verið er að taka af vara-
sama blindhæð. Mikil umferð akandi jafnt
sem gangandi og hjólandi vegfarenda hefur
verið um þessa blindhæð enda margir sem
stunda reglulega útivist á þessum slóðum.
Bæði golfvöllur og fótboltagrasvöllur stað-
arins eru í Skeljavík og því mikið um að úti-
vistariðkendur á staðnum eigi leið þarna um.
Það er verktakafyrirtækið Fylling á Hólmavík
sem sér um verkið og hefur það gengið greið-
lega fram til þessa.
Á síðasta fundi sveitarstjórnar Stranda-
byggðar var ákveðið að rífa tvö mannvirki
sem lengi hafa sett svip sinn á Hólmavík og
óskað hefur verið eftir tilboðum í niðurrif
þeirra. Er þar annars vegar um að ræða
gamla barnaskólahúsið sem einnig hefur
gegnt hlutverki slökkvistöðvar og var byggt
árið 1913. Í húsinu var skóli fram til 1948.
Húsið var einnig notað fyrir ýmiss konar sam-
komuhald. Áform þessi hafa skapað töluverða
umræðu meðal brottfluttra jafnt sem heima-
manna, enda kemur fram í húsakönnun sem
gerð var á árunum 1997–2000 að Gamli barna-
skólinn hafi mest varðveislugildi allra húsa á
Hólmavík. Húsið er hins vegar í afar bágu
ásigkomulagi og mun hafa verið ákveðið að
rífa það þar sem það hefur ekki verið notað
um árabil. Vatnstankurinn sem rífa á er rúm-
lega hálfrar aldar gamall og eru um fimmtán
ár síðan nýr miðlunartankur leysti hann af
hólmi. Tankurinn stendur hátt uppi og er
áberandi og eflaust þykir bágt útlit hans orðið
lýti á bænum í dag.
HÓLMAVÍK
Eftir Kristínu Sigurrós Einarsdóttur fréttaritara
Kristján Bersi Ólafsson sá ekki fullt
tunglið fyrir skýjabakka:
Haustmyrkrið kalda kvelur mig
og knýr mig í skjól að flýja.
Tunglið er fullt, en felur sig
feimið á milli skýja.
Hann hafði ekki fyrr lokið við að
yrkja en honum varð litið út og sá
tunglið í allri sinni dýrð:
Tunglið hefur töframátt
og trekkir upp marga, sé það fullt.
Margir ósjálfrátt hafa hátt
sem horfa á það ljóma skært og gult.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir stóð
í trjágarði, fullt tungl skein milli
greina á laufhrúgurnar, en músíkin
kom úr næsta húsi. Hún orti:
Laufið fallið, fullt er tungl,
fegurð hrífur rekka.
Á svona kvöldum elska ungl-
ingar helst að drekka.
Og hún bætti við vegna vondrar
veðurspár:
Yfir heiði, fjöll og fjörð
fullur máninn gengur.
Veðrið ágætt, auð er jörð
en ekki miklu lengur.
Davíð Hjálmar lagði orð í belg:
Gaman er að glápa á tungl
en góði farð’ekki yfir strikið
og þú verður eflaust þungl-
yndur horfirðu of mikið.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af fullu
tungli
vaxtaauki!
10%
Fréttir á SMS
Gjafahandbók
Flugstöðvarinnar er komin út
Dagana 12. október – 21. nóvember geta farþegar
nálgast Gjafahandbók Flugstöðvarinnar í öllum verslunum
Flugstöðvarinnar og á heimasíðunni www.airport.is.
Gjafahandbókin er jafnframt happadrættismiði og geta
heppnir farþegar unnið til glæsilegra vinninga. Dregið er út
vikulega og eru vinningsnúmer auglýst á heimasíðu Flug-
stöðvarinnar www.airport.is
Góðir farþegar
Vegna framkvæmda í flugstöðinni og aukinna öryggisráðstafanna
hvetjum við fólk til þess að gefa sér góðan tíma fyrir flug.
Mætið tímanlega og njótið ferðarinnar. Innritun hefst kl. 5.00 eða
2 tímum fyrir brottför. FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR