Morgunblaðið - 07.11.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 27
Margt bendir til þess aðtímamót séu fram-undan í málefnuminnflytjenda. Magnús
Þór Hafsteinsson formaður þing-
flokks Frjálslynda flokksins hefur
lýst því yfir að flokk-
urinn muni taka það
á stefnuskrá sína fyr-
ir kosningarnar í vor
að takmarka aðflutn-
ing útlendinga til Ís-
lands og aðgang
þeirra að íslensku
samfélagi. Með slíkri
stefnumörkun tekur
Frjálslyndi flokk-
urinn upp merki
danska Þjóðarflokks-
ins og norska Fram-
faraflokksins – hina
nýju aðskiln-
aðarstefnu sem varpað hefur
dimmum skugga á danskt og
norskt þjóðlíf undanfarin ár.
Þessi nýja stefna Frjálslyndra
byggist á tvennu að sögn Magn-
úsar Þórs og nýs liðsmanns
þeirra, Jóns Magnússonar, for-
manns Nýs afls: Annars vegar sé
straumur útlendinga til landsins
nú svo stríður að yfirvöld viti
hvorki um fjöldann né hverjir eig-
inlega séu að koma til landsins,
skólar fyllist og atvinna sé tekin
af Íslendingum og svo hinu að ís-
lenskt samfélag eigi að vera fyrir
Íslendinga eina, – kannski aðra
Norðurlandabúa í hófi og bara
kristna: „Bræður Múhameðs spá-
manns“ eru ekki velkomnir enda
séu þeir „til vandræða alls staðar
í Evrópu,“ þekki ekki menningu,
tungu eða sögu þjóðarinnar
o.s.frv. Og hvað rekur Frjáls-
lynda nú til að taka upp aðskiln-
aðarstefnu? Jú, aðrir flokkar á al-
þingi vildu ekki óska undanþágu
frá lögum ESB um frjálsan at-
vinnu- og búseturétt launafólks
innan Evrópska efnahagssvæð-
isins en þau tóku gildi hér á landi
tóku gildi 1. maí sl.
Það sest eitthvað til í hálsinum
á manni við að hlusta á og lesa
þessar yfirlýsingar. Það er í
sjálfu sér ekki óeðlilegt að Frjáls-
lyndir sjái það ekki sem vænlega
leið til árangurs að bjóða fram út
á kvótakerfið einar kosningar í
viðbót. Flokkurinn sem var klofn-
ingsframboð úr Sjálfstæð-
isflokknum hefur verið að feta sig
nær miðju íslenskra stjórnmála
með aukinni áherslu á velferð-
armál og umhverfismál, einkum
þó í borgarstjórn Reykjavíkur.
Og þeim mun dapurlegra er það
ef Frjálslyndir hyggjast í kom-
andi kosningum lengja lífdaga
sína með því að róa á gruggug
mið fordóma og haturs gagnvart
útlendingum og mús-
limum sérstaklega.
Þessi stefnubreyting
markar tímamót í
fleiri en einum skiln-
ingi: Það er ekki að-
eins að umræðan um
innflytjendur og
réttindi þeirra muni
taka mið af þessum
nýja aðskiln-
aðarflokki, heldur
hljóta hinir stjórn-
arandstöðuflokkarnir
tveir, Vinstri græn
og Samfylking, að
svara því hvort þeir stefna áfram
að samvinnu með Frjálslyndum
eftir kosningar, falli ríkisstjórn
Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks.
Í nágrannalöndum okkar hafa
verið stofnaðir flokkar beinlínis
gegn útlendingum, sem í þeim
herbúðum eru taldir ógn við eigin
kynþátt, menningu, atvinnumögu-
leika og gott ef ekki eiginkonur
og dætur. Þess eru líka dæmi að
einsmáls flokkar hafi farið þá leið
sem Jón Magnússon og Magnús
Þór Hafsteinsson boða: að laga
stefnu sína að vaxandi fordómum
í garð útlendinga með því að hella
olíu á eldinn, magna upp hræðslu
og hatur til náungans. Aðskiln-
aðarstefna þessara flokka eitrar
samfélögin innanfrá, eykur á kyn-
þáttahatur og magnar upp of-
beldi. Ég tel að við þurfum ekki á
slíkum stjórnmálaflokki að halda
á Íslandi. Formaður þingflokks
Frjálslyndra fullyrti í sjónvarps-
þætti í dag, sunnudag, að um
þessa stefnu væri samstaða í
flokknum. Er það svo? Guðjón
Arnar Kristjánsson, formaður
flokksins, þarf að svara því og
Frjálslyndir hljóta að gera sér
ljóst að samstarf við flokk með
slíka stefnu er ekki eftirsókn-
arvert fyrir aðra flokka, hvorki
fyrir né eftir kosningar.
Leið Vinstri grænna
Við Vinstri græn viljum að inn-
flytjendur verði með í að móta
framtíðarlandið Ísland. Til að
gera þeim það kleift þurfum við
að bæta móttökurnar, ekki skella
í lás eða ástunda einangr-
unarstefnu og aðskilnað. Okkar
stefna byggist á því að virða
mannréttindi allra, óháð uppruna,
kynþætti, litarhætti, trú eða kyn-
ferði.
Þeir Frjálslyndu hrylla sig yfir
því að í ágúst og september sl.
fluttust hingað 250 börn af er-
lendum uppruna, yngri en 18 ára.
Við í VG spyrjum hins vegar:
Hvernig getum við tryggt þeim
jafn góða menntun og okkar
börnum? Hvernig getum við best
sýnt þeim og foreldrum þeirra
virðingu og áhuga, stuðning og
aðstoð við að fóta sig í nýju
landi? Til þess þarf breytta
stjórnarstefnu. Stefnu sem bygg-
ist á þeirri staðreynd að mann-
félag sem byggist á jafnræði og
gagnkvæmri virðingu fyrir menn-
ingu og trú er styrkara en sund-
urlaust samfélag hópa sem bygg-
ist á tortryggni og misrétti. Til
að koma í veg fyrir slíka þróun í
framtíðarlandinu Íslandi þarf
e.t.v. að stofna til opinberrar
gestamóttöku þar sem innflytj-
endur geta fengið bæði formlega
aðstoð hins opinbera og upplýs-
ingar um t.d. ellilífeyrisréttindi
og fæðingarorlof, túlkaþjónustu
og vaxtabætur. Toshiki Toma,
prestur innflytjenda, hefur lagt
fram tillögu um embætti umboðs-
manns innflytjenda. Það er góð
tillaga sem myndi tryggja að í
gestamóttökunni yrði ekki aðeins
leiðsögn heldur einnig trygging
fyrir því að ekki væri brotið á
mönnum vegna uppruna, kyn-
þáttar, litarháttar eða trúar-
bragða.
Á Íslandi býr þjóð sem er með-
al þeirra ríkustu í heimi. Sem slík
þjóð eigum við að taka mynd-
arlega á móti innflytjendum, af
rausn, víðsýni og kjarki. Slík þjóð
er sjálfri sér til sóma og Vinstri
græn munu standa fyrir slíka
pólitík hér eftir sem hingað til.
Frjálslyndir boða aðskilnaðar-
stefnu í málefnum innflytjenda
Eftir Álfheiði Ingadóttur » Við Vinstri grænviljum að innflytj-
endur verði með í að
móta framtíðarlandið
Ísland.
Álfheiður Ingadóttir
Höfundur er líffræðingur og
varaþingmaður VG í Reykjavík.
m frá
lega 7.000
til lands-
Einnig
ð um
sem
arkaði
l Vinnu-
kveða á
hvaða
erlendu
þeir fá
mningum
enskt
ndir það
íðarlega
að á við
kerfið, fé-
ðiskerfið.
Reykjavíkurborg hefur á ýmsan
hátt brugðist við auknum fjölda inn-
flytjenda, s.s. með rekstri Alþjóða-
hússins og ýmsum aðgerðum innan
skólakerfisins, en tómlæti ríkisins
er algjört.
Við höfum ekki einu sinni haft
undan við að úthluta börnum kenni-
tölum svo þau komist í skóla, hvað
þá að skólar séu í stakk búnir að
sinna þeim nemendum sérstaklega
sem ekki tala íslensku.
Það vakna margar spurningar:
Hvað gerist þegar dregur úr þensl-
unni? Þá hljóta þeir sem fengið hafa
dvalarleyfi hér á landi að eiga rétt á
atvinnuleysisbótum. Má vísa fólki úr
landi þegar ástandið breytist? Og
eiga aðfluttir feður rétt á fæðing-
arorlofi hafi þeir haft dvalarleyfi hér
um hríð?
Stendur kerfið okkar undir öllum
fjöldanum þegar þar að kemur?
Sama kerfið og hefur verið að
bregðast íslenskum öryrkjum og
eldri borgurum?
Bregðumst við vandanum
Það verður að bregðast við þess-
um vanda nú þegar og það þarf að
gerast með málefnalegri umræðu,
án upphrópana um kynþátta-
fordóma. Við getum t.a.m. mætt
þenslunni og aukinni eftirspurn eft-
ir vinnuafli að einhverju leyti með
því að nýta betur þann mannauð
sem við höfum í landinu. Margt fólk
sem komið er á efri ár eða býr við
skerta starfsorku af einhverjum or-
sökum, á erfitt með að fá vinnu. Þeir
sem búa við örorku og fá bætur eiga
sérlega erfitt með að fara út á
vinnumarkaðinn þó þeir gjarnan
vildu, vegna þess að um leið og þeir
afla sér tekna verða þeir fyrir veru-
legum bótaskerðingum. Rétt er að
benda á að stjórnarandstaðan hefur
nýlega sameinast um þingmál sem
felur í sér að lögin verði lagfærð að
þessu leyti, svo skerðingar bitni
ekki eins harkalega á þessum hóp-
um og verið hefur hingað til.
Umburðarlyndir menntamenn?
Það hefur verið til þess tekið í
umræðunni um málefni innflytjenda
að menntafólk sé mun umburð-
arlyndara gangvart innflytjendum
en verkafólk. Það helgast af því, að
mínu mati, að menntastéttir hafa
reist varnarmúra um sig. Læknar
frá Austur-Evrópu fá ekki að starfa
hér á landi nema taka læknaprófið
aftur og sama á við um hjúkr-
unarfræðinga og fleiri stéttir. Ann-
að gildir t.d. um iðnaðarmenn. Það
er ekki fylgst nógu vel með því að
erlendir iðnaðarmenn hafi fagleg
réttindi. Enginn er að fylgjast með
þeim 2.000 verkamönnum sem ekki
hafa verið tilkynntir til Vinnu-
málastofnunar og getið var um hér
að framan.
Í umræðum á Alþingi um starfs-
mannaleigur kom fram hjá félags-
málaráðherra að hann hefði ekki
undir höndum tölur yfir fjölda
þeirra sem komnir væru inn í landið
á vegum starfsmannaleigna. Fé-
lagsmálaráðherra hefur líka upplýst
á þingi að Vinnumálastofnun athugi
ekki prófskírteini þeirra sem hingað
koma til að athuga hvort þeir hafi í
raun réttindi til að sinna þeim störf-
um sem þeir eru komnir til að vinna:
,,Því er til að svara að Vinnu-
málastofnun hefur hingað til ekki
gengið eftir því að fá prófskírteini
þeirra einstaklinga sem starfs-
mannaleigur skrá hjá stofnuninni en
einbeitt sér að því að leiðbeina
starfsmannaleigum almennt um
ráðningarkjör á íslenskum vinnu-
markaði“.
Stefna Frjálslynda flokksins
Í Málefnahandbók Frjálslynda
flokksins segir: Kjarni frjálslyndrar
stjórnmálastefnu er að hver ein-
staklingur viðurkenni rétt annarra
einstaklinga til frjálsrar hugsunar,
trúar, tjáningar og frelsis til að
kjósa sér eigin lífsstíl.
Í kaflanum ,,Menning og trú“
segir: Íslenskt samfélag er að breyt-
ast í fjölmenningarþjóðfélag enda
fjölgar ört Íslendingum af erlendum
uppruna. Um leið og unnið er vel að
því að aðfluttir finni sér hlutverk,
aðlagist og kynnist menningu þjóð-
arinnar og hefðum, ber að fagna öllu
því sem auðgað getur samfélagið.
Undir yfirskriftinni ,,Réttur ein-
staklingsins til frelsis“ segir m.a.:
Fólk hefur rétt til að lifa sínu lífi
án afskipta annarra, að því tilskildu
að lífsmáti þess skerði ekki rétt ann-
arra, eða brjóti gegn lögum og
reglum þjóðarinnar.
Sömu réttindi skulu gilda fyrir
alla, óháð stjórnmálaskoðunum, trú,
litarhætti, kynferði eða kynhneigð.
Ekki andúð í garð útlendinga
eða tiltekinna trúarhópa
Ég birti þessar klausur úr stefnu-
skránni til að undirstrika að Frjáls-
lyndi flokkurinn stendur fyrir frjáls-
lyndi og umburðarlyndi. Frjálslyndi
flokkurinn fagnar nýjum Íslend-
ingum sem eiga rætur að rekja til
ólíkra menningarheima. Hingað til
hefur aðlögun útlendinga gengið
vel, m.a. af því að hingað hefur að-
allega komið fjölskyldufólk og ekki
fleiri en svo að kerfið hefur getað
stutt það nokkuð vel í félagslegri að-
lögun. Frjálslyndi flokkurinn varaði
hins vegar við frjálsu flæði vinnuafls
og barðist gegn lagasetningunni á
þingi í vor vegna þess að við erum
ekki í stakk búin til að bregðast við
þeim fjölda sem hingað vill koma.
Ég ítreka ennfremur að Frjáls-
lyndi flokkurinn fellst ekki á að fólki
verði mismunað vegna trúarskoð-
ana. Þess vegna eiga þeir ekki sam-
leið með okkar flokki sem tala um að
einungis kristið fólk eigi að fá land-
vistarleyfi hér á landi en ekki fólk
sem tilheyrir öðrum trúarhópum.
Það er fráleitt að Frjálslyndi flokk-
urinn styðji slíka mismunum fólks
eftir trúarskoðunum þess.
En ábyrgir stjórnmálamenn
hljóta að horfast í augu við þjóð-
félagsleg vandamál og leitast við að
leysa þau. Þegar kemur að því að
leita lausna á málefnum innflytj-
enda skiptir öllu máli að hafa um-
burðarlyndi og mannvirðingu að
leiðarljósi.
r sú
m-
hátt
taka
ega
nuafli.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins.
dur New
ð umtals-
n sagði að
dið því að
hefðu vik-
errys.
nnir stoð-
n í henni
rðra hafi
g að 18%
hugsa sig
ættu að
na. Þetta
all Street
man oltið
um.
ðadómur
rrverandi
og hefur
vað hann
inn í nyt
da til að
það hafa
Írak.
r
ns vegar
að snúa
sins upp í
ngalistar
helsta ráðgjafa hans, Karls Rove.
Til að ná meirihluta í fulltrúa-
deildinni þurfa demókratar að vinna
15 sæti af repúblikönum, sem eiga
m.a. á hættu að missa sæti sín í Kali-
forníu, Colorado, þar sem málefni
fólks sem málefni innflytjenda eru í
brennidepli, Illinois, Indiana, Iowa,
Ohio og Pennsylvaníu.
Þegar kemur að öldungadeildinni
þurfa demókratar að vinna að
minnsta kosti sex sæti, en skv. könn-
un Mason/Dixon hafa þeir allöruggt
forskot í Pennsylvaníu og Ohio en
eru nánast jafnir andstæðingum sín-
um í Rhode Island, Missouri, Mont-
ana, Virginíu og Maryland.
Snúast evangelistar til vinstri?
Hneykslismál í tengslum við
þingmanninn Mark Foley, sem
sagði af sér þingmennsku eftir að
upp komst um ósiðleg samskipti
hans við vikapilta, og evangelista-
leiðtogann og ráðgjafa Hvíta húss-
ins, Ted Haggard, sem hefur játað
að hafa gerst sekur um ósiðlegt at-
hæfi, hafa verið áföll fyrir kristna
íhaldsmenn, sem flestir hverjir
styðja George W. Bush forseta.
Repúblikanar hafa hins vegar öflugt
kosninganet og margt bendir til að
þeim muni takast að smala þessum
kjósendum á kjörstað í dag.
Hins vegar bendir ný könnun
tímaritsins TIME á að 52% skráðra
demókrata séu spenntari vegna
kosninganna en að öllu jöfnu sam-
anborið við aðeins 39% repúblikana.
Þá kemur fram í könnuninni að 54%
hvítra evangelista, trúbræðra
Haggards, hyggist kjósa repúblik-
ana en 38% demókrata.
Þetta er mikil breyting frá for-
setakosningunum 2004, þegar 78%
kjósenda í þessum hóp kusu að
greiða Bush atkvæði sitt, ef marka
má útgönguspár. Þá bendir könnun-
in til að forskot repúblikana hjá
körlum hafi minnkað og að 59%
kvenna hyggist kjósa demókrata en
aðeins 33% þingmenn repúblikana.
Umfjöllun tímaritsins Newsweek
um trúarafstöðu og kosningarnar er
á sömu lund en þar kemur fram að
brestir séu að koma í einingu evan-
gelista um stuðning við repúblikana.
Sé tilfinning þessara tímarita rétt er
um söguleg umskipti að ræða en allt
frá því að evangelistar tóku að fjar-
lægjast demókrata í forsetatíð Jim-
mys Carters hafa repúblikanar
hægt og bítandi byggt upp öflugt
stuðningsnet meðal þeirra kjósenda
sem setja trúmál í öndvegi og eng-
inn betur en evangelistinn Bush sem
hefur ekki farið í launkofa með trú-
arafstöðu sína.
kasprettinum
AP
inn Jim Ryun og Bush forseti veifa til eldheitra
gafundi í Topeka, Kansasríki, á sunnudag.
REPÚBLIKANAR hafa haft
meirihluta í báðum þingdeildum
allt frá þingkosningunum 1994.
Þar eru 435 sæti og verður kosið
um öll þeirra sem og 33 sæti í
öldungadeildinni af hundrað. Til
að ná meirihluta þurfa demó-
kratar að bæta við sig 15 sætum
í neðri deildinni og sex í þeirri
efri.
Repúblikanar eru með 232
sæti í fulltrúadeildinni og demó-
kratar 202. Einn óháður situr í
deildinni. Repúblikanar eru með
55 sæti í öldungadeildinni,
demókratar 44 og óháðir eitt
sæti.
Verður kosið um 17 sæti sem
demókratar eru með, óháð sæti
og 15 sæti repúblikana. Þá verða
kosnir 36 ríkisstjórar og eiga
demókratar 14 sæti að verja en
repúblikanar 22.
Þurfa 15
þingsæti