Morgunblaðið - 07.11.2006, Page 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 7. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
Bílstjórar
Vegna aukinna verkefna vantar okkur mikið
af bílstjórum til starfa á Norðurlöndunum.
Um er að ræða keyrslu á nýjum trukkum frá
verksmiðju til kaupenda, einnig býðst annars
konar keyrsla ásamt starfi í planingu.
Við leitum að áreiðanlegum mönnum og kon-
um með fagmannlega framkomu og góða
kunnáttu í ensku og/eða skandinavísku.
Við erum stærsta fyrirtæki í Evrópu í okkar
geira og bjóðum góð laun og húsnæði ásamt
flugfari fram og til baka.
Áhugasamir hringi eða sendi sms á íslensku
í +49 171 955 2811, eða sendið póst á
info@miracas.net
Verðum með viðtöl 10.-14. nóvember í Reykja-
vík og á Akureyri.
Næturvörður
í gestamóttöku – Nordica hotel
Áhugasamir hafi samband við Hjört í síma
444 5005.
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Hluthafafundur
verður haldinn hjá Internet á Íslandi hf. þriðju-
daginn 14. nóvember 2006 í Tæknigarði, Dun-
haga 5, 107 Reykjavík, kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Kosning nýrrar stjórnar.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins í Hafnar-
stræti 107, Akureyri, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
Aðalgata 5, Setberg, Dalvíkurbyggð (215-6718), þingl. eig. Olgeir
Þorvaldsson og Sigríður Óskarsdóttir, gerðarbeiðendur Dalvíkur-
byggð og Íbúðalánasjóður, föstudaginn 10. nóvember 2006 kl. 10:00.
Bjarkarbraut 3, 01-0201, Dalvíkurbyggð (215-4688), þingl. eig. Dóra
Rut Kristinsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
10. nóvember 2006 kl. 10:00.
Frostagata 3b, iðnaðarhús 01-0102, Akureyri (214-6465), þingl. eig.
Bílréttingar og sprautun ehf., gerðarbeiðendur Húsasmiðjan hf. og
Kaupþing banki hf, föstudaginn 10. nóvember 2006 kl. 10:00.
Grænagata 4, 01-0101, Akureyri (223-0948), þingl. eig. Arnrún
Magnúsdóttir og Friðrik Valur Karlsson, gerðarbeiðandi Glitnir banki
hf., föstudaginn 10. nóvember 2006 kl. 10:00.
Karlsrauðatorg 4, Dalvíkurbyggð (215-5014), þingl. eig. Þuríður Svava
Sigurjónsdóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
10. nóvember 2006 kl. 10:00.
Klapparstígur 15, Dalvíkurbyggð (215-6628), þingl. eig. Samúel
Jónsson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, föstudaginn 10. nóvem-
ber 2006 kl. 10:00.
Skíðabraut 3, 01-0301, Dalvíkurbyggð, (215-5173), þingl. eig. Þorbjörn
Helgi Þorsteinsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
10. nóvember 2006 kl. 10:00.
Skíðabraut 3, 01-0302, Dalvíkurbyggð (215-5174), þingl. eig. Þorbjörn
Helgi Þorsteinsson, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, föstudaginn
10. nóvember 2006 kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
6. nóvember 2006.
Eyþór Þorbergsson, ftr.
Tilboð/Útboð
Óskað er eftir tilboðum í verkið:
Kjalarnes, aðfærsla að
Melavöllum
Verkið felst í lagningu 4,5 km stofnlagnar hitaveitu og
vatnsveitu frá Grundarfirði á Kjalarnesi að Melavöllum.
Helstu magntölur eru:
Skurðlengd 4.500 m
Hitaveitulagnir 4.410 m
Kaldavatnslagnir 4.170 m
Verkinu skal lokið fyrir 1. febrúar 2007.
Útboðsgögn verða seld frá og með þriðjudeginum 7. nóv-
ember, hjá þjónustufulltrúum á 1. hæð í húsi Orkuveitu
Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík.
Verð útboðsgagna er 5.000 kr.
Tilboð verða opnuð á sama stað, í fundarsal á 3.hæð,
vesturhúsi, miðvikudaginn 15. nóvember 2006 kl. 11:00.
OR 2006/53
Útboð
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • Fax 516 7000
www.or.is/utbod Félagslíf
Félagsfundur í kvöld!
Félagsfundur Lífssýnar verður
haldinn í Bolholti 4 (4. hæð) í
kvöld, þriðjudaginn 7. nóvember
kl. 20.30. Ólafur Pétursson verð-
ur með fyrirlestur um möguleika
rúnanna. Kaffiveitingar. Að-
gangseyrir 500 kr.
Allir velkomnir.
Stjórnin.
EDDA 6006110719 II
FJÖLNIR 6006110719 III
HLÍN 6006110719 VI
I.O.O.F. Rb. 4 1551178-8½ O*
Raðauglýsingar
sími 569 1100
MINNINGAR
ÍSLANDSMÓT kvenna í skák
hófst um síðustu helgi. Keppni í B-
flokki lauk sl. sunnudag þar sem sex
stúlkur tóku þátt og þær yngstu
voru sex og átta ára gamlar. Tefldar
voru 20 mínútna skákir og bar-
áttuandinn var í fyrirrúmi. Hrund
Hauksdóttir úr Skákdeild Fjölnis
bar sigur úr býtum með fullt hús
vinninga en í öðru sæti varð norð-
lenska mærin Ulker Gasanov og
Birta Össurardóttir hreppti bronsið.
Keppni í A-flokki hófst einnig um
helgina þar sem átta keppendur bí-
tast um Íslandsmeistaratitilinn.
Lenka Ptácníková (2.262) lagði Jó-
hönnu Björgu Jóhannsdóttur (1.699)
að velli í fyrstu umferð og Íslands-
meistari stúlkna 15 ára og yngri,
Tinna Kristín Finnbogadóttir (1.370)
gerði sér lítið fyrir og skellti hinni
margreyndu landsliðskonu Sig-
urlaugu R. Friðþjófsdóttur (1.866).
Tveimur viðureignum var frestað í
fyrstu umferð en nánari upplýsingar
um mótið er að finna á www.skak.is.
Skákmót KB banka og
Sparisjóðs Bolungarvíkur –
Hraðskákmót Íslands
Það verður brotið blað í sögu
Hraðskákmóts Íslands þegar það
verður haldið í Bolungarvík um
næstu helgi en þar hefur mótið aldr-
ei farið fram áður. Fyrr í haust var
Atskákmót Íslands haldið í Vest-
mannaeyjum og eru þessi mótahöld
liður í stefnu Skáksambands Íslands
að halda skákmót á landsbyggðinni.
Í Bolungarvík er gert ráð fyrir 20
umferðum þar sem umhugsunartím-
inn verður fimm mínútur á hvorn
keppanda í hverri skák. Á meðan á
mótinu stendur verður mikið um að
vera í bænum og lofa heimamenn að
taka höfðinglega á móti aðkomu-
mönnum. Vegleg verðlaun eru í boði
og enn geta skákþyrstir áhugamenn
skráð sig til leiks og tekið þátt í sögu-
legu móti sem hefst kl. 13 næstkom-
andi laugardag. Nánari upplýsingar
um keppnina er að finna á
www.skak.is.
Henrik að tafli í Færeyjum
Stórmeistarinn Henrik Danielsen
(2.524) situr þessa dagana að tafli í
Færeyjum, á alþjóðlegu móti sem
haldið er í Klakksvík. Henrik tapaði í
fyrstu umferð fyrir sænska alþjóð-
lega meistaranum Emil Her-
mannsson (2.454) en vann næstu
tvær viðureignir sínar gegn heima-
mönnum. Alls taka sex skákmenn
þátt og verður tefld tvöföld umferð.
Að loknum þrem umferðum er Hen-
rik í 2.–3. sæti en nánari upplýsingar
um keppnina er að finna á heimasíðu
hennar, www.faroechess.com.
Bobby Fischer og Capablanca
Hin virta skáksíða Chessbase á
Netinu, www.chessbase.com, fjallaði
nýlega um 43 mínútna samtal Bobby
Fischers og þáttastjórnanda á Út-
varpi Sögu. Fyrir áhugamenn um
skák er fróðlegt að lesa um málefna-
lega umfjöllun Fischers um þá
heimsmeistara sem voru uppi fyrir
miðja síðustu öld. Svo virðist sem
Fischer hafi mikið álit á kúbverska
heimsmeistaranum José Raoul
Capablanca sem bar tignina á árun-
um 1921–1927. Stíll Capablanca var
stílhreinn og rökréttur þannig að
iðulega voru stöðurnar sem komu
upp hjá honum einfaldar. Í þeim var
hann bestur og frægt er hversu fáum
skákum hann tapaði.
Það er einnig merkilegt að í ann-
arri grein hjá Chessbase er fjallað
um rannsóknir vísindamanna í Slóv-
eníu sem hafa borið saman allar
þekktar skákir heimsmeistaranna í
skák og hvernig sterk tölvuforrit
hefðu teflt sömu stöður. Niðurstaðan
var sú að mest samræmi var milli
leikja forritanna og Capablanca. Það
gæti hugsanlega skýrst af því hversu
algengt var að stöðurnar sem hann
tefldi væru einfaldar en gæti einnig
verið vísbending um að hann hefði
verið mesti meistari skáksögunnar.
Eins og við mátti búast hafa aðrir
vísindamenn bent á að aðferðafræði
Slóvenanna sé mjög vafasöm og
gangi ekki upp.
Íslandsmót kvenna er hafið
Forsíðumynd Time af Capablanca
7. desember 1925.
SKÁK
Skáksamband Íslands
4.–14. nóvember 2006
ÍSLANDSMÓT KVENNA 2006
Helgi Áss Grétarsson
daggi@internet.is
Í TILEFNI af prófkjöri Samfylk-
ingarinnar í Reykjavík næstkomandi
laugardag hefur Helgi Hjörvar al-
þingismaður tekið í notkun nýja
heimasíðu á slóðinni helgi.is.
Helgi hefur haldið úti heimasíðu
sinni allt þetta kjörtímabil og fært
þar inn reglulega pistla og greinar
en í tilefni prófkjörsbaráttunnar hef-
ur viðmót síðunnar verið endurhann-
að af Hux-hugbúnaðarhúsi.
„Áherslur Helga í prófkjörsbar-
áttunni eru þar settar fram í texta og
á myndböndum. Þar er einnig að
finna daglega pistla hans í texta og
hljóðbloggi, auk upplýsinga um próf-
kjörið og þingstörf Helga.
Einnig eru á heimasíðunni stuðn-
ingsyfirlýsingar, áherslur Helga á
nokkrum erlendum tungumálum og
fleira. Athugasemdakerfi er á síð-
unni þar sem lesendur geta skipst á
skoðunum við Helga,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Ný heimasíða á helgi.is
DAVÍÐ Logi Sigurðsson blaðamaður
heldur erindi í dag, þriðjudag kl. 17, í
Miðstöð Sameinuðu þjóðanna að
Laugavegi 42.
Fyrirlesturinn nefnist „Borgara-
legi páfinn stígur af sviðinu“: Kofi
Annan, arfleifð hans og arftaki.
Kofi Annan lætur af störfum sem
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna um næstu áramót og við tekur
Ban Ki-Moo. Á þessum tímamótum
verður spurt hver sé arfleið Kofi Ann-
an og hvaða breytingar séu fyrirsjá-
anlegar þegar nýr maður tekur við.
Davíð Logi Sigurðsson hefur ritað
mikið um alþjóðamál í Morgunblaðið.
Að loknu erindi hans verða fyrir-
spurnir og umræður.
Fundurinn er öllum opinn og að-
gangur er ókeypis.
Fyrirlestur um
arfleifð Kofi Annan
FLUGMÁLASTJÓRN hefur nú með
viku millibili afhent tveimur aðilum
flugrekstrarleyfi (JAR-OPS 3). Þess-
ir aðilar eru Þyrluþjónustan, sem
fékk sitt leyfi 29. september sl. og
Landhelgisgæslan, sem fékk flug-
rekstrarleyfið afhent sl. föstudag eða
6. október.
Áður hafði Þyrluþjónustan verk-
flugsleyfi frá Flugmálastjórn Íslands
en nú bættist JAR-OPS 3 við og því
má Þyrluþjónustan bæði flytja fólk og
vörur. Landhelgisgæslan hefur feng-
ið sama flugrekstrarleyfi og má því
líkt og Þyrluþjónustan flytja fólk og
vörur. Þyrluþjónustan var þar með
fyrsti aðilinn sem fékk JAR-OPS 3
flugrekstrarleyfi á Íslandi en Land-
helgisgæslan var fyrsta ríkisrekna
fyrirtækið. Það má því segja að brotið
hafi verið blað í flugsögu Íslands í síð-
ustu viku því JAR-OPS 3 flugrekstr-
arleyfi hefur ekki verið gefið áður út á
Íslandi, segir í fréttatilkynningu.
Fengu flugrekstrarleyfi