Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 22

Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 22
22 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Morgunblaðið/Eyþór Styttur Borgarstjórastytturnar eru í Ráðhúsinu við Tjörnina. Lengst til hægri er Gunnar Thoroddsen og við hans hlið er Bjarni Benediktsson. Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is BRJÓSTMYNDIR eru gerðar af öllu því fólki sem gegnt hefur embætti borgarstjóra Reykjavíkur og gildir þá einu hversu lengi viðkomandi borgarstjórar hafa gegnt embætti. Verkin er að finna í Ráðhúsi Reykja- víkur og segir Gunnar Eydal, skrif- stofustjóri borgarstjórnar, að engar sérstakar reglur gildi um það hversu langur tími líður frá því borgarstjóri lætur af embætti þar til brjóstmynd af honum er afhjúpuð. Í fyrradag af- hjúpaði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri brjóstmynd af Davíð Oddssyni, sem var borgarstjóri í Reykjavík á árunum 1982–1991. Gunnar segir að brjóstmyndirnar af borgarstjórunum í Ráðhúsi Reykjavíkur séu í tímaröð, en sú sem í fyrradag var afjúpuð af Davíð Odds- syni er sú nýjasta í röð þeirra. Vinna hafin við gerð brjóst- myndar af Markúsi Erni „Það eru engar reglur um hvenær þetta er gert, en árið 1992 var gerð brjóstmynd af Birgi Ísleifi Gunnars- syni og þá hafði liðið langur tími á milli,“ segir Gunnar. Birgir Ísleifur var borgarstjóri í Reykjavík á árun- um 1972–1978 á eftir Geir Hallgríms- syni. „Svo var það ekki fyrr en 2004 að hafist var handa við að gera mynd af Agli Skúla Ingibergssyni, sem var næstur í röðinni [á eftir Birgi Ísleifi]“ segir Gunnar. Egill Skúli gegndi embætti borgarstjóra frá 1978 til 1982. Það er myndhöggvarinn Helgi Gíslason sem gert hefur síðustu brjóstmyndir af fyrrverandi borgar- stjórum. Helgi hefur þegar hafist handa við gerð næstu brjóstmyndar, en hún verður af Markúsi Erni Ant- onssyni, sem var borgarstjóri árin 1991–1994. Gunnar segir ekki hægt að segja til um hvenær sú brjóst- mynd verður afhjúpuð, en það verði vonandi á næsta ári. Næstur í röðinni verður svo Árni Sigfússon, sem staldraði stutt við í embætti borgar- stjóra, eða frá mars 1994 og fram í júní sama ár. Frá þeim tíma hafa fjór- ir gegnt embætti borgarstjóra, þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, frá 1994–2003, Þórólfur Árnason, frá 2003–2004, Steinunn Valdís Óskars- dóttir, frá 2004–2006, og núverandi borgarstjóri, Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, sem tók við embætti í vor. Um ein milljón króna á ári Undanfarin ár hafi sérstök upp- hæð verið lögð til á fjárhagsáætlun vegna gerðar brjóstmyndanna. Kostnaðurinn sé breytilegur milli ára „eftir því hvernig verkin falla“. Um ein milljón króna sé ætluð til verk- anna á ári, en í ár sé kostnaður vegna verkanna kominn upp í tæpa hálfa milljón króna. Brjóstmyndir gerðar af öllum borgarstjórum Í HNOTSKURN » Brjóstmynd er gerð afhverjum þeim sem haft hefur embætti borgarstjóra Reykjavíkur með höndum. »Engin regla er í gildi umhvenær þetta skuli gert og var þannig gerð brjóstmynd af Birgi Ísleifi Gunnarssyni 14 árum eftir að hann lét af emb- ætti borgarstjóra. »Sérstök upphæð er á árihverju lögð til á fjárhags- áætlun vegna þessa verkefnis. Um ein milljón króna rennur til þessa á ári. NÝLEGA voru gerðar lagfæringar á litlu hringtorgi sem stendur á mótum Nóatúns og Hátúns og var miðja torgsins færð upp, að sögn Höskuldar Tryggvasonar, deild- arstjóra hjá mannvirkjaskrifstofu framkvæmdasviðs Reykjavík- urborgar. Höskuldur segir að til lagfæring- anna hafi verið gripið vegna þess að fólk hafi ekki áttað sig á því á að um hringtorg væri að ræða og ekið yfir það eins og þarna væru venju- leg krossgatnamót. Gatnamótin við Hátún og Nóatún séu mjög þröng og því ekki hægt að koma fyrir hringtorgi með stærri radíus á þessum stað. Töluvert hafi verið kvartað yfir því að fólk virti ekki hringtorgið og því hafi verið ákveðið að taka upp miðju torgsins. „Torgið er eftir sem áður steinlagt en nú er miðja torgsins upphleypt,“ segir Höskuldur. Eftir lagfæringarnar eigi öku- menn erfiðara með að aka yfir hringtorgið og breytingarnar eigi að hjálpa þeim að átta sig á aksturs- stefnunni í gegnum það. Talið að hringtorg væri heppilegra en umferðarljós Höskuldur segir að lagfæring- arnar hafi verið gerðar í haust og enn eigi eftir að koma reynsla á þær og meta áhrif breytinganna sem nú hafa verið gerðar. Menn hafi þó metið það svo að hringtorg á umræddum gatnamótum væri heppilegra en að koma þar upp um- ferðarljósum, sem hafi verið hinn kosturinn. „Það var ákveðið að endurgera miðju torgsins þannig að hún væri sýnilegri,“ segir Höskuldur Tryggvason. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ekið yfir torgið Gatnamótin við Hátún og Nóatún eru mjög þröng. Hringtorg við Nóatún lagfært Kárahnjúkar | Vatnsborð Hálslóns Kárahnjúkavirkjunar var um miðja vikuna rúmlega 556 m.y.s. en fullt verður það 625 m.y.s. Lónið, sem nú er ísi lagt, hækkar hægar en í októ- ber, eða um 30 sentimetra á sólar- hring að jafnaði. Vatnsfylling er mánuði á undan áætlun. Dýptin næst Kárahnjúkastíflu er nú rúmir 100 metrar. Búið er að taka TBM1 risaborinn í sundur og verður hon- um skipað út á næstunni. TBM3 á eftir um 400 metra í aðrennsl- isgöngunum. Hann lýkur því vænt- anlega í nóvember og fer eftir það úr landi. TMB2 borar á næsta ári 8.700 metra göng í átt að vænt- anlegu Ufsarlóni Kárahnjúkavirkj- unar. Ísi lagt Hálslón hækkar um 30 cm á dag að jafnaði FRÉTTIR Reyðarfjörður | BM Vallá hefur lokið við að steypa allar gólfplötur í kerskála Fjarðaáls og eru það tæp- lega 700 plötur. Stærstu gólfplöt- urnar sem mynda vinnugólf ker- skálanna eru um 25 fermetrar að umfangi og tæplega 30 tonn að þyngd hver. BM Vallá hefur steypt á níunda þúsund forsteyptra ein- inga af ýmsu tagi sem notaðar eru við Fjarðaálsverkefnið. Einn stærsta þáttinn í framleiðslu BM Vallár skipuðu gólfplötur í kerskál- ana. Bechtel hefur nú lokið 91% jarðvinnu, 83% uppsteypu, 82% stáls, 56% bygginga og búið er að setja upp 31% vélbúnaðar og 15% annars búnaðar í álverinu. BM Vallá hefur lokið við að steypa gólf í kerskálum Neskaupstaður | Norðfirska hljóm- sveitin Súellen er farin í spila- mennsku til Færeyja. Hljómsveitin spilar í Þórshöfn á föstudagskvöld og í Sandavogi laugardagskvöld, þar sem haldið verður upp á 100 ára afmæli Sandavogs íþrótta- félags. Þróttur Neskaupstað og Sandavogs íþróttafélag hafa verið í góðum samskiptum í mörg ár og munu Þróttarar heimsækja Sanda- vog af þessu tilefni. Súellen fór til Dallas fyrir tveimur árum þar sem hljómsveitin hljóðritaði tvö lög og gerði sjónvarpsþátt. Guðmundur R. Gíslason segir sjónvarpsmyndina um Dallasferðina vera á lokastigi en ákveðið hafi verið að bíða með lokaklippingu á þættinum þar til eftir Færeyjaferðina þar sem myndavél verður með í för. „Hver veit nema myndin verði bara lengri og heiti ef til vill Dallas-Sanda- vogur,“ segir Guðmundur. Ljósmynd/Súellen Vandfýsnir Síðast spilaði Súellen á hátíðinni Frönskum dögum á Fáskrúðs- firði, en þeir félagar segjast ekki spila hvar sem er. Súellen og Þróttarar í Færeyjum Egilsstaðir| Leikfélag Fljótsdalshér- aðs frumsýnir á laugardag leikverkið Listin að lifa eftir Sigríði Láru Sig- urjónsdóttur. Leikritið er sérstaklega samið fyrir leikfélagið í tilefni af 40 ára afmæli þess. Í leikritinu er fylgst með ævi þeirra Didda, Duddu og Dúu frá því að þau eru kornabörn og allt þar til þau eru komin á elliheimili og samböndum þeirra gerð skil á fyndinn og skemmtilegan hátt. Bjarni Þorkelsson, leikstjóri verks- ins, hefur sett upp fjölda verka á Hér- aði. Leikarar í sýningunni eru þau Eygló Daníelsdóttir, Oddný Ólafía Sævarsdóttir og Þráinn Sigvaldason. Einnig koma fjölmargir félagar að út- litshönnun og umgjörð sýningarinn- ar. Höfundur verksins er Sigríður Lára Sigurjónsdóttir, innfæddur Héraðsbúi og uppalin í Leikfélagi Fljótsdalshéraðs. Hún hefur undan- farin ár æft sig fyrir þetta verkefni með því að nema bókmenntafræði og skrifa verk fyrir Leikfélagið Hugleik í Reykjavík og Stúdentaleikhúsið. Frumsýnt verður á Iðavöllum laug- ardagskvöld 11. nóvember nk. kl. 20.30 en alls verða sýningarnar fimm. Miðapantanir eru í síma 846 2121 eða á Bókasafni Héraðsbúa. Lífsins list frá kornabarni til karar Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Egilsstaðir | Uppsetning vélbúnað- ar í nýjum hluta Lagarfossvirkjunar gengur vel. M.a. er búið að koma fyr- ir vatnshjóli nýrrar túrbínu í virkj- uninni en það eitt er næstum fimm metrar í þvermál og því engin smá- smíði. Verið er að stækka Lagarfoss- virkjun til að nýta það viðbótarvatns- magn sem til fellur vegna Kára- hnjúkavirkjunar, þ.e. flutnings Jöklu í farveg Lagarfljóts. Virkjunin var fyrir breytingar um 7,5 MW en gert er ráð fyrir um 20 MW afli frá nýja hlutanum, þannig að afköst virkjunarinnar aukast 3–4- falt við þessa stækkun. Klapparhaft skammt ofan við Lagarfossvirkjun hefur verið sprengt í burtu til að auðvelda fram- rennsli Lagarfljóts, en þess utan er ekki gert ráð fyrir frekari rýmkun farvegarins. Vélbúnaði komið fyrir í LagarfossvirkjunEgilsstaðir | Bæjarstjórn Fljóts-dalshéraðs ætlar að kaupa gamalt sláturhús á Egilsstöðum af Kaup- félagi Héraðsbúa. Nemur fjárfest- ing sveitarfélagsins tæpum 29 millj- ónum og tilgangur kaupanna að hafa áhrif á framtíðarnýtingu lóð- arinnar, sem skipti máli í skipulagi nýs miðbæjar, að sögn meirihlut- ans. Minnihlutinn var á móti kaup- unum þar sem þeim fylgi miklar fjárskuldbindingar og rekstr- arkostnaður. Áhugi er á að húsið verði nýtt undir menningarstarf. Húsakaup Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Umdeilt Gamla sláturhúsið mun hýsa menningu á Egilsstöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.