Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 25
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 25
Hreiðrið, nýleg verslun í gamla turninum á
horni Norðurgötu og Gránufélagsgötu, vekur
athygli ekki síst fyrir lágt verð. Þar selja hjón-
in Zlatko Novak, sem er króatískur, og Anna
Guðrún Kristjánsdóttir ýmsa nýlenduvöru.
Mest flytja þau sjálf beint inn frá Póllandi.
Dýrleif Skjóldal, sundþjálfari og varabæj-
arfulltrúi Vinstri grænna, ekur um á bíl með
forláta númeri; DILLA, enda gælunafn henn-
ar. Það var fyrir þremur árum, þegar Dilla
varð fertug, að hún tilkynnti fjölskyldunni að
hún vildi enga gjöf enda hefði hún ekki pláss
heima hjá sér fyrir neitt dót. Á afmælisdaginn
hringdi einn ættingjanna og spurði hvernig
henni líkaði afmælisgjöfin, hún svaraði engu
enda hafði hún ekki séð neina gjöf.
Það var ekki fyrr en þremur dögum seinna
að afmælisbarnið áttaði sig á gjöfinni þegar
einhver nefndi það við hana hvað nýja bílnúm-
erið væri flott...
Allt er þá þrennt er, hugsar kona nokkur á Ak-
ureyri þessa dagana og veltir því fyrir sér
hvers hún eigi að gjalda þegar Kaupmanna-
höfn sé annars vegar.
Konan ætlaði í beinu flugi til borgarinnar við
sundið frá Akureyri um síðustu helgi en ekki
var flogið; vél Iceland Express komst ekki
norður vegna veðurs í Keflavík.
Í fyrra fór sama kona með saumaklúbbi sín-
um til Kaupmannahafnar en þegar átti að
halda heim þurfti hún að bíða í níu klukku-
stundir á Kastrup vegna bilunar í flugvél og í
sumar, þegar hún brá sér utan með fjölskyld-
unni var ekki hægt að lenda á Akureyri vegna
þoku, og vélin lenti á Egilsstöðum.
Barátta fyrir prófkjör sjálfstæðismanna í
kjördæminu er hafin. Þrjú stefna á 1. sætið;
Arnbjörg Sveinsdóttir alþingismaður, Kristján
Þór Júlíusson bæjarstjóri og Þorvaldur Ingv-
arsson lækningaforstjóri FSA. Öll eru með
heimasíðu; arnbjorgsveins.is, stjaniblai.is og
valdi.is. Á síðu Kristjáns eru birtar matarupp-
skriftir, en Stjáni blái hefur ekki enn gefið
uppskrift að spínatrétti. Ég bíð spenntur...
Súpufundir íþróttafélagsins Þórs og Greifans
eru orðnir fastir liður í starfsemi félagsheim-
ilisins Hamars. Þeir hafa verið vel sóttir enda
gjarnan spennandi mál rædd. Í dag verður
gestur fundarins Geir Þorsteinsson fram-
kvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands
og gera má ráð fyrir fjölmenni því mjög brenn-
ur á Akureyringum dómur í máli kvennaliðs
KA/Þórs gegn ÍR á dögunum.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Nýtt líf Gamli turninn kominn aftur í notkun.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Aðalfundur Kveðanda,vísnafélags Þingeyinga, verður
haldinn í Lions-húsinu á Húsavík í
kvöld kl. 20.30. „Við fáum okkur
kaffi og höfum góða skapið í
farteskinu,“ segir Þorfinnur Jónsson
frá Ingveldarstöðum. Þrjár
spurningar fylgdu fundarboðinu og
munu eflaust margir svara þeim í
bundnu máli um kvöldið. Ein
spurningin er „Ertu kominn í
kosningaskap?“ og svaraði
Þorfinnur:
Pólitík yfirleitt eintómt tap
þó eigi hún gullið að mala
en hvernig er þetta kosningaskap
sem Kveðandi var um að tala?
Guðmundur G. Halldórsson á
Húsavík er við sama heygarðshornið
og yrkir um Framsóknarflokkinn.
Hann segir ekki mikið hrópað húrra
yfir nýja leiðtoganum og yrkir:
Eðalbankann yfirgaf
erfðaprinsinn, – trú og vonar,
senn mun fuglinn fljúga af
fúleggjum Halldórs Ásgrímssonar.
Í framhaldi af jarðskjálftanum
fyrir norðan orti Guðmundur um
örlög SÍS og Framsóknar:
Leynir sér ei að landið skjálfi
lýðurinn er að missa trúna,
íhaldið slátraði alikálfi
eftir að hafa skorið kúna.
Fleiri hafa ort um Framsókn, þar
á meðal Stefán Stefánsson, Bökkum
í Skagafirði:
Framsókn enginn leggur lið
lítið mun um veiðina.
Ekki fer hún uppá við
en eflaust hina leiðina.
Og Bjarni frá Gröf:
Framsókn er eins og fínleg mey,
feimin og siðuð mönnum hjá.
Þegar hún segir nei, nei, nei,
hún náttúrlega meinar já.
VÍSNAHORNIÐ
Af Framsókn
og Kveðanda
pebl@mbl.is
Fréttir á SMS