Morgunblaðið - 09.11.2006, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 27
HÚSEIGENDAFÉLAGIÐ ber
blæ af neytendafélagi á sínu sviði
enda er það í fyrsta lagi hags-
munafélag húseigenda og hefur
m.a. barist fyrir réttarbótum á
lögum um fasteignir. Í annan stað
veitir félagið félagsmönnum sínum
lögfræðiþjónustu er við kemur
fasteignum. Félagið er 83 ára
gamalt og eru félagsmenn nú ná-
lægt tíu þúsundum talsins. Félagið
býr yfir ýmsum þekkingar- og
reynslubrunnum, m.a. húsaleigu-
heilræðum, sem vert er að hafa í
huga þegar fasteignir eru leigðar
út.
Sýnið frá upphafi aðgát, var-
kárni og fyrirhyggju.
Gerið skriflegan leigusamning
og fáið sérfræðiaðstoð.
Munnlegir samningar eru ekki
virði pappírsins sem þeir eru
ritaðir á.
Heiðursmannasamningar og
munnleg loforð eru einskis virði
þegar viðsemjandinn er ekki
heiðursmaður.
Treystið ekki ókunnugum í
blindni.
Kallið eftir meðmælum frá
fyrri leigusala og e.t.v. fleirum
Krefjist trygginga fyrir efnd-
um og skemmdum.
Aflið sem gleggstra upplýsinga
um leigjanda og ábyrgðarmenn.
Fáið Húseigendafélagið til að
kanna fjárhagslegan feril og
skilvísi leigjanda og ábyrgð-
armanna.
Fallið ekki fyrir fögrum fjöðr-
um, smjaðri og fagurgala. „Eins
og hann kom nú vel fyrir“ er al-
gengt viðkvæði vonsvikinna
leigusala í vandræðum.
Varist úlfa í sauðagærum. Bláu
augun blekkja. Flestir sýna
góðu hliðina í upphafi þar til
umráð og lyklar eru í höfn og
spara hina til betri tíma.
Það er enginn vandi að vekja
traust, brosa blítt, tala stórt og
lofa miklu og fögru ef ekki er
ætlunin að standa við neitt.
Hafið allt klárt og á hreinu fyr-
ir afhendingu. Samningurinn,
ábyrgðir og allt annað und-
irritað. Látið ekki undan pressu
um að slaka á því.
Standið klár á réttindum ykkar
og skyldum samkvæmt húsa-
leigulögum og leitið strax ráða
ef út af bregður.
Morgunblaðið/RAX
Heilræði til
húsaleigusala
ÞEGAR velja á umhverfisvæn vetr-
ardekk undir bílinn skiptir fleira
máli en naglar, en flestir vita að þeir
raspa upp malbikið. Til að mynda
innihalda margar tegundir bíl-
dekkja HA-olíur en í þeim eru
heilsu- og umhverfisspillandi efni
sem kallast PAH. Við akstur losna
litlar gúmmíagnir sem innihalda
þetta efni sé það í dekkjunum.
Í Svíþjóð fást dekk sem eru merkt
norræna umhverfismerkinu Svan-
inum en samkvæmt heimasíðu Land-
verndar fást svansmerkt dekk ekki
hér á landi. Hins vegar má kaupa
dekk á Íslandi sem eru Svansmerkt í
Svíþjóð en ómerkt hér. Á heimasíð-
unni www.svanen.nu má finna yfirlit
yfir svansmerktar dekkjategundir
þar í landi og ein þeirra, Kuhmo
fæst hér hjá söluaðilum um allt land.
Einna stærstur þeirra er Hjólbarða-
höllin í Fellsmúla. Athugið þó að
sjaldan eru allar tegundir vöru frá
fyrirtæki svansmerktar þó ein-
hverjar beri merkið og því er mik-
ilvægt að kanna undirtegundirnar.
Að öðrum kosti má velja dekk sem
ekki innihalda PAH-efni, enlisti yfir
slík dekk sem fást í Noregi er á
www.gronnhverdag.no. Þá má ekki
gleyma að velja naglalaus dekk sé
þess kostur en loftbóludekk og harð-
kornadekk geta verið góður val-
kostur. Naglalaus dekk valda ekki
aðeins minni svifryksmengun heldur
endast þau betur og valda minni há-
vaða við akstur. Loks má nefna að
sóluð dekk spara hráefni og orku og
eru oft ódýrari en ný dekk.
Umhverfisvænni dekk
Valkostir Það eru ekki bara nagl-
arnir sem þarf að huga að vilji mað-
ur aka á umhverfisvænni dekkjum.
Unnið upp úr grein á www.land-
vernd.is
vistvænt