Morgunblaðið - 09.11.2006, Page 28
ferðalög
28 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Góð gisting í Kaupmannahöfn
Hótel í miðbænum. Snyrtileg herbergi. 295 danskar kr.
fyrir manninn í 2ja manna herb. með wc og sturtu.
Tökum einnig á móti hópum.
Løven Hotel, Vesterbrogade 30, DK-1620 Cph. V.
Sími +45 33 79 67 20.
www.loeven.dk • loeven_bb@hotmail.com
Ný skurðarbretti
Margar gerðir
Kr. 1.995
Klapparstig 44 • sími 562 3614
V
illisvínaveiðar er mik-
ilvægar fyrir þá Sardin-
íubúa sem eru fátækir
og þeir sem veiða skipta
með sér kjötinu og borða
yfir veturinn. Þegar þeir fara á villi-
svínaveiðar þá fara tuttugu menn
saman, tíu stugga svínunum niður úr
fjöllunum en hinir tíu bíða fyrir neðan
og skjóta þau. Við gæddum okkur
einmitt á grilluðu villisvíni og geit,
sem bæði voru eldsteikt á mjög
löngum tíma í eldstæði sem var eins
og risastór arinn og var utandyra á
sérkennilegu veitingahúsi sem stóð
uppi í fjalli og þangað var ekki hægt
að komast á rútu, svo við vorum ferj-
uð þangað á Land Rover-jeppum.
Geitaostur var líka glóðaður í eld-
stæðinu og þessi máltíð var alveg
dásamleg. Marco vinur okkar og far-
arstjórinn í ferðinni er mikill sælkeri
og áhugamaður um matargerð og
hann sá til þess að við fengjum alltaf
sérlega gómsætan mat. Hann valdi
veitingahúsin og þegar við komum
þreytt úr göngu vissum við að við átt-
um von á góðu,“ segir Helga Sigrún
Sigurjónsdóttir sem kom fyrir mán-
uði heim úr fimm daga gönguferð um
eyjuna Sardiníu í Miðjarðarhafinu.
„Við vorum þrjátíu og tvö í hópn-
um, flestir vinnufélagar mínir og
meðlimir í gönguhópnum Aðskildir
fætur sem hafa verið að ganga saman
í fimmtán ár, bæði hér heima og er-
lendis. En við hjónin höfum aldrei áð-
ur farið í svona gönguferð til útlanda
svo þetta var jómfrúarferð fyrir okk-
ur. Allt kom þetta til af því að Að-
skilda fætur langaði svo til að ganga
um hina fögru Sardiníu og höfðu pata
af því að ég ætti góða ítalska vini sem
koma árlega hingað til Íslands í fjalla-
ferðir og leigja Land Rover-jeppa hjá
fyrirtæki mínu og mannsins míns. Og
það vill svo vel til að þessir Ítalir fara
alltaf í sumarfrí til Sardiníu. Auk þess
eiga þeir ferðaskrifstofuna Kailas í
Mílanó sem gerir út á náttúruferðir.
Það lá því beinast við að láta þá um að
skipuleggja gönguferð á Sardiníu,
sem þeir og gerðu með miklum stæl.“
Helga segir að gönguleiðirnar hafi
verið mjög fjölbreyttar og miserfiðar.
„Einn daginn keyrðum við á jeppum
Aðskildir
fætur stika
um Sardiníu
Glóðuð villisvín og kindaostur fara vel í maga eftir
göngu um kóralfjöll og eitt dýpsta gil Evrópu. Svo
segir Helga Sigurjónsdóttir sem lýsti dásemdum
Sardiníu fyrir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur.
Fjallafegurð Göngugarparnir feta sig eftir fjallshrygg og útsýnið er ekki amalegt.
17.10. 2006 Það eru allir rosalega
spenntir yfir því að ég sé Íslend-
ingur. Ég er búin að kynnast ótrú-
lega mörgum skemmtilegum hérna
og það eru allir viljugir til að sýna
mér allt hérna. Nema kannski
mamma mín hérna því hún ofvernd-
ar mig svolítið. Ég á sko endalaust
af systkinum sem eru öll eldri en
ég. Það kynna sig allir nefnilega
sem systkini mín. Það er gaman.
Í dag eignaðist ég nýja frænku í
Venesúela. Hún fæddist í morgun
og er barnabarn foreldra minna
hérna. Ég hlakka mikið til að sjá
hana.
Ég hef upplifað alveg ótrúlega
marga nýja hluti. Ég er sko ekkert
að ýkja þetta með umferðina.
Mamma mín hérna er sko með
verstu ökumönnunum hérna. Í gær
lentum við í umferðarteppu og hún
klessti tvisvar á sama bílinn. Ég hef
aldrei heyrt um svoleiðis tilfelli áð-
ur. Reyndar rétt snertust bílarnir
bara í bæði skiptin, þannig að ég er
sko alveg á lífi og allt, en þetta var
samt sko alveg árekstur.
Ég hef þetta ekki lengra. Ég þori
því varla. Ef það verður aftur raf-
magnslaust þá eyðileggst allt
bloggið mitt. En ég er búin að setja
inn örfáar myndir. Linkurinn er til
vinstri undir Venezuela. Njótið!
ferðablogg | María Arnardóttir
bloggar frá Venesúela
Umferðaröng-
þveiti og holur
María Arnardóttir er skiptinemi í
Venesúela, fór þangað á vegum
AFS. Hún stundar nám við
Menntaskólann við Hamrahlíð, er
þó í fríi frá náminu á meðan hún
dvelst í Venesúela.
Slóðin á bloggið hennar er http://
www.blog.central.is/ohmy.