Morgunblaðið - 09.11.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 29
Sími: 50 50 600 • www.hertz.is
Bókaðu
bílinn heima
- og fáðu 500
Vildarpunkta
Vika í
Evrópu
16.600
Ítalía
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
13.200
Spánn
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
19.400
Holland
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
17.900
Bretland
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
24.200
Danmörk
kr. - ótakmarkaður akstur,
kaskó, þjófavörn, flugvallargjald
og skattar.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
E
R
31
58
3
11
/0
6
Við eigum næsta leik
Reykvíkingar – munið prófkjör Samfylkingarinnar.
Veljum vel á S-listann!
Mörður Árnason
4.–6. sæti
www.mordur.is
Opið öllum stuðningsmönnum – kosið 11. nóvember í Þróttarheimilinu, Laugardal, kl. 10–18
CAJ P’S HELGARSTEIK
upp í þúsund metra hæð í Supro-
monte-fjöllunum og landið sem geng-
ið var um var einna líkast skriðjökli,
sprungið og hrjúft. Þetta var erfiður
dagur því gangan niður var ansi brött
og löng og hitinn þann daginn mikill,
eða um þrjátíu gráður. Heill göngu-
dagur fór í að fara um eitt dýpsta gil
Evrópu sem heitir Gorrupu og annan
dag var gengið niður fjallshlíð, um gil
og endað á dásamlegri hvítri sand-
strönd þangað sem ekki er hægt að
komast nema gangandi eða á bát.“
Virki líkust kransakökum
„Náttúrufegurðin á Sardiníu er
einstök og á norðurhlutanum er mik-
ið um hvít fjöll sem eru 200–300 millj-
ón ára gömul kóralrif, þannig að við
gátum skoðað kóraljarðlög þar sem
voru steingerðar skeljar og sjáv-
ardýr. Jarðfræðin á Sardiníu er
merkileg, þar finnast margar teg-
undir af bergi og mikið er um mjög
sérstaka hella. Á þessari eyju finnast
margar fornminjar, allt frá seinni
tímum járnaldar og meðal annars
grafir frá því um 3.500 árum fyrir
Krist. Einnig eru þar rústir af þorpi
frá tímum Rómverja þar sem sjá má
hvernig þeir gerðu böðin og vatns-
veitur úr steini, sem þeir eru frægir
fyrir. Mikið af Nurage finnst á Sard-
iníu en það eru varnarvirki sem eru í
kringum þorpin og þangað flúði fólkið
með húsdýrin þegar hætta steðjaði
að. Þessi virki eru frá því 1700 fyrir
Krist og eru byggð úr grjóti, hlaðin
upp eins og kransakaka gerð úr syk-
urmolum.“
Göngugarparnir voru aðallega í
mið- og austurhluta Sardiníu, en þar
er mjög strjálbýlt. „Meirihluti þeirra
sem búa þarna er bændur og búsmal-
inn samanstendur af kindum, geitum
og kúm en Sardiníubúar eru einkum
frægir fyrir kindaostinn sinn. Okkur
fannst skemmtilegt að á göngu okkar
heyrðum við oft í bjöllunum sem
hanga um hálsinn á skepnunum,
löngu áður en við sáum þær. Við
skoðuðum líka selin þar sem húsdýrin
eru mjólkuð og ostarnir búnir til, en
þau voru hlaðin með grjóti og þakið
gert úr trjágreinum.“
Þau gistu á tveimur hótelum og
Helga segir að fyrra hótelið hafi verið
falið uppi í fjalli. „Þetta var mjög æv-
intýralegt, þar var til dæmis ekki
mikið um ljós heldur var þjónn sem
lýsti okkur með vasaljósi ef við þurft-
um að fara um eftir myrkur. Seinna
hótelið var í litlu þorpi niðri við strönd
og þar fengum við æðislega sjáv-
arrétti í hvert mál. Þessi ferð var al-
gjör sæla frá upphafi til enda.“
Ljósmynd/Brynja Guðmundsdóttir
The Giant Thumb Helga og Ágúst maður hennar við gröf frá því um 3.500
árum fyrir Krist, en þó nokkuð er um slíkar fornminjar á Sardiníu.
www.kailas.it
www.palmaseravillage.com
www.sugologone.it
www.hivenet.is/landrover
khk@mbl.is
Öðruvísi María drekkur kókosmjólk í sínu náttúrulegasta formi. Kókos-
hnetuna hjó hún sjálf niður úr tré sem er í garðinum.