Morgunblaðið - 09.11.2006, Qupperneq 38
38 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
HÚSNÆÐISVERÐ hefur
hækkað mikið að undanförnu og
hefur náð nýjum hæðum. Þessi
þróun hefur gert mörgum erfiðara
um vik að fjárfesta í húsnæði, sér-
staklega ungu fólki
sem hyggst festa
kaup á sinni fyrstu
fasteign. Að hluta á
þessi hækkun rætur
að rekja til öflugrar
komu viðskiptabank-
anna inn á húsnæð-
islánamarkaðinn.
Betri vaxtakjör og
frjáls samkeppni á
þessum markaði eru
vitaskuld af hinu
góða. Hins vegar þarf
að huga að mik-
ilvægum úrbótum til
þess að stuðla að því að almenn-
ingur eigi kost á húsnæði á viðráð-
anlegum kjörum.
Nægt framboð
af lóðum
Mikilvægt er að sveitarfélögin á
höfuðborgarsvæðinu hafi alltaf
upp á að bjóða nægt framboð af
lóðum. Nóg framboð myndi slá á
þenslu á þessum markaði og
hamla gegn of miklum hækkunum.
Því miður hafa mörg sveitarfélög
ekki staðið sig sem skyldi í þess-
um efnum, sérstaklega Reykjavík
undir stjórn vinstri manna. Þing-
menn kjördæmisins taka ekki
ákvörðun um lóðaframboð, en geta
hins vegar verið öflugir málsvarar
umbjóðenda sinna í skipulags-
málum höfuðborgarsvæðisins.
Stimpilgjald á
að afnema
Stimpilgjöldin eru of þung byrði
á þá sem eru að reyna að stofna
heimili. Þau auka kostnaðinn sem
fylgir fasteignakaupum verulega,
og eru ranglát og óhagkvæm
skattheimta. Meðal annars hamla
þau gegn því að menn bæti kaup-
mátt sinn með því að endur-
fjármagna óhagstæð lán og draga
þannig úr samkeppni milli lánveit-
enda um að bjóða bestu kjörin.
Stimpilgjöld gera það að verkum,
að fólk veigri sér við að festa kaup
á húsnæði við hæfi.
Aukna skilvirkni
Ríkið á að hætta að
keppa við banka um
að veita lán til hús-
næðiskaupa. Það leið-
ir til mjög skakkrar
samkeppnisstöðu og
var kveikjan að þeirri
sprengju sem varð á
fasteignaverði. Hlut-
verk ríkisins ætti að
einskorðast við fé-
lagsleg úrræði á
þessu sviði.
Einkafyrirtækjum er best
treystandi til þess að reka lána-
starfsemi með hagkvæmum hætti,
eins og á öðrum sviðum atvinnu-
lífsins. Í nágrannalöndum okkar
gegna viðskiptabankar lykilhlut-
verki á húsnæðislánamarkaði, en
hér er þátttaka þeirra á frumstigi.
Viðskiptabönkunum hér landi
verður að gefa svigrúm til að þróa
þjónustu sína. Þeir hafa þegar
byrjað að nýta sér fjármögnunar-
aðferðir, eins og verðbréfum hús-
næðislána, sem eru viðteknar í
þróuðum fjármálakerfum ná-
grannalandanna, til þess að stuðla
að því að hægt verði að bjóða hús-
næðislán á sem allra bestum kjör-
um. Það er brýnt að ríkisvaldið
trufli ekki þessa þróun með óþarfa
afskiptum. Til lengri tíma litið
mun hinn frjálsi markaður tryggja
betri þjónustu og kjör fyrir fast-
eignakaupendur.
Heilbrigðan
fasteignamarkað
Brýnt er að okkur takist áfram
að búa svo um hnútana að flestir
geti búið í eigin húsnæði. Þrösk-
uldurinn fyrir ungt fólk hefur
óneitanlega hækkað með hækk-
andi fasteignaverði. Þess vegna er
afar brýnt að þannig verði á mál-
um haldið á næstu misserum að
fasteignamarkaðurinn þróist með
eðlilegum og skynsamlegum hætti.
Því miður kalla margir nú á af-
skipti og inngrip ríkisvaldsins,
sams konar úrræði og eru á hröðu
undanhaldi á öllum öðrum sviðum
efnahagslífsins. Lausnin er þvert á
móti sú að greiða fyrir skilvirkum
markaði með nægu framboði,
lægri álögum og samkeppn-
isumhverfi á fjármálamarkaði.
Allir þurfa þak yfir höfuðið
Pétur Árni Jónsson
skrifar um húsnæðismál »… er afar brýnt aðþannig verði á mál-
um haldið á næstu miss-
erum að fasteignamark-
aðurinn þróist með
eðlilegum og skyn-
samlegum hætti.
Pétur Árni Jónsson
Höfundur býður sig fram í 5. sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í SV-
kjördæmi.
ÞAÐ er ekki auðvelt að fylgja
hugsanagangi meiri-
hlutans í borgarstjórn
svo mikið er víst. Fyrir
borgarstjórnarkosn-
ingar í vor kepptust
frambjóðendur Sjálf-
stæðisflokksins við að
gefa yfirlýsingar um
allt það sem þeir ætluðu
að gera fyrir eldri borg-
ara ef þeir næðu meiri-
hluta í borginni og trúr
fylgifiskur þeirra,
Framsóknarflokkurinn,
tók undir í einu og öllu.
Í dag er meirihlutinn
samsettur af sjálfstæð-
ismönnum og einum framsókn-
armanni, sem sagt, nú mega borg-
arbúar búa við það sama og
landsmenn allir gera enn, sem er að
flokkurinn sem þeir höfnuðu, Fram-
sókn, fer með völdin í stjórn Reykja-
víkur ásamt sjálfstæðismönnum, sem
er sama samsetningin og á meirihlut-
anum í ríkisstjórn.
Svikin loforð
Fyrir kosningar var
meðal annars hamrað á
að auka þyrfti ýmiss
konar aðstoð við eldri
borgara, það væri
skömm að því hve
skarðan hlut þeir bæru
af allri velferðinni. Síð-
ustu fréttir eru að
hækka eigi þjón-
ustugjöld, sem aldraðir
þurfa að greiða fyrir þá
þjónustu sem þeir þurfa
um tæp 10%, en sam-
tímis koma fréttir af því
að borgarstjóri hafi selt
hlut borgarinnar í Landsvirkjun
langt undir matsverði. Er ekki eitt-
hvað athugavert við þetta? Er meiri-
hlutinn í borgarstjórn að sækja eitt-
hvað af því, sem upp á vantar af sölu
eignarhluta borgarinnar í Lands-
virkjun, í vasa eldri borgara? Hvar
eru nú öll kosningaloforðin til eldri
borgara? Lái mér hver sem vill en ég
hef á tilfinningunni að hér sé á ferð-
inni sami hrokinn gagnvart þeim
borgarbúum sem lagt hafa lífsstarf
sitt í að leggja grunninn að Reykjavík
og ríkisstjórnin sýnir þegar hún leyfir
sér að segja að allir hafi fengið sömu
kaupmáttarhækkun á undanförnum
góðærum og eru þá að tala um pró-
sentur en ekki krónur.
Sami rassinn í ríki og borg
En það er auðvitað sami rassinn
undir báðum, bæði þeim sem stjórna
landinu og þeim sem stjórna borg-
inni. Fyrrverandi forsætisráðherra,
sem er framsóknarmaður og nú ný-
orðinn framkvæmdastjóri Norð-
urlandaráðs, hefur engar áhyggjur,
segir hann, af því hver laun hans
verða fyrir nýja starfið enda enn á
biðlaunum ráðherra og sjálfsagt fljót-
lega á hinum alræmdu eftirlaunum
líka. Núverandi borgarstjóri er sjálf-
stæðismaður og hefur vafalaust 5–6
sinnum hærri laun en ellilífeyrisþegi
með fulla tekjutryggingu. Má ég
biðja um fólk sem er í tengslum við
manninn á götunni til að stjórna ríki
og borg en ekki fólk sem lítur niður á
og telur sig geta sagt og gert hvað
sem er á kostnað þeirra sem lögðu
grunninn að velsældinni.
Þjónustugjöld á eldri borgara eru
hækkuð um nær 10% í Reykjavík um
leið og Landsvirkjun er seld á und-
irverði.
Borgarstjóri sýnir
Landsvirkjun linkind
en eldri borgurum hörku
Ragnhildur Sigríður Eggerts-
dóttir skrifar um borgarstjórn-
arkosningarnar í vor
» Þjónustugjöld á eldriborgara eru hækkuð
um nær 10% í Reykja-
vík um leið og Lands-
virkjun er seld á und-
irverði.
Ragnhildur Sigríður
Eggertsdóttir
Höfundur er eldri borgari
og félagi í Samfylkingunni.
Maður sagði: Líttu við í kvöld.
Hann hugsaði: Líttu inn. Eða: Komdu við.
(Að líta við merkir að líta um öxl.)
Gætum tungunnar
HEGÐUN í umferðinni og akst-
urslag hefur verið í umræðunni und-
anfarið. Þetta eru mál
sem mér finnst fólk
velta töluvert fyrir sér
en lengra nær það svo
ekki. Það mætti kalla
þetta umferðarmenn-
ingu og -siðferði. Öku-
kennsla hefur líka ver-
ið tengd við
umræðuna.
Ég held, eins og
málin standa, að bætt
umferðarmenning og
siðferði í umferðinni
og breyttur umferð-
aráróður sé það sem
við viljum sjá í fram-
tíðinni.
Umferðarmenning
annarra þjóða
Ég bjó í Danmörku í
nær átta ár og mót-
aðist dálítið af umferð-
armenningu þar í landi
og umferðaráróðri
enda var það ekki
mörgum árum eftir að
ég tók bílprófið hér á landi. Það tók
mig hins vegar drjúgan tíma, eftir að
ég kom heim, að aðlagast umferðinni
hjá landanum „með fullri virðingu“.
Mér finnst að ég hafi ekki aðlagast
alveg og mun sennilega aldrei gera.
Ég hef ekki gert eins og þegar ég ók
í París einu sinni. Þar er maður
hreinlega neyddur til að aka eins og
innfæddur til þess að komast eitt-
hvað áfram. Næstum allir sem aka
bifreið eru með frekar brúnan og
veðraðan vinstri handlegg, vegna
þess að hann er alltaf hafður fyrir
utan bílinn í akstri og þannig stjórna
allir umferðinni af tilfinningu og
með tilþrifum. Veðurfarið hérlendis
er hins vegar of kalt fyrir tilburði af
þessu tagi.
Meiraprófið
Fyrir rúmu ári síðan tók ég
ákvörðun um að fara í ökuskóla og
taka meiraprófið, eins og það er kall-
að. Ég get ekki neitað því að eftir að
ég fór í gegnum öll námskeiðin og
prófin sé ég hlutina frá enn öðru
sjónarhorni en áður. Ég tel að margt
af því, sem farið var yfir þar, ætti
heima í almennu öku-
námi.
Mér finnst, að um-
ferðarfræðsla ætti að
vera stærri þáttur í
skólum, kannski ættu
ökukennarar að vera í
skólunum, ef það gæti
orðið til að bæta menn-
inguna og viðhalda
stöðugum áróðri.
Að mínu mati gerast
hlutirnir dálítið snöggt
þegar unglingar kom-
ast á bílprófsaldurinn
og fá prófið. Allt í einu
má maður aka tæki sem
vegur oftast milli eitt og
tvö tonn, á töluverðum
hraða innan um alla
hina þungu bílana. Að
maður tali ekki um ef
þessir nýju bílstjórar
eru með einhverja til-
raunastarfsemi í um-
ferðinni.
Kannski ætti að út-
búa einhvers konar fyr-
irbyggjandi námskeið og síðan próf,
sem gætu mælt væntanlega hegðun,
ábyrgð og samkennd. Og þeir sem
sækja tíma og sýna samvinnu fái
skírteinið á réttum tíma, en hinum
kannski seinkaði aðeins sem ekki
finna hjá sér ábyrgðina.
Við ættum einnig að kynna okkur
betur umferðaráróður annarra og
tileinka okkur það besta, ef það gæti
orðið til þess að fækka óþægilegum
og óvæntum uppákomum í umferð-
inni.
Ljóst er að það dregur ekki úr
sorg að missa ástvin eða náinn ætt-
ingja í umferðinni vegna óþarfa-
hegðunar annarra.
Umferðarmenning
og -siðferði
Árni Þór Helgason skrifar um
þörfina á að bæta umferð-
armenningu Íslendinga
Árni Þór Helgason
» Við ættumeinnig að
kynna okkur
betur umferð-
aráróður ann-
arra og tileinka
okkur það
besta ...
Höfundur er arkitekt og gefur kost á
sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í
Suðvesturkjördæmi.
Fréttir í tölvupósti
mbl.is
smáauglýsingar
WWW.BJARNIBEN.IS
Bjarni Benediktsson efnir til
opins fundar um samgöngumál
í Suðvesturkjördæmi á
kosningaskrifstofu sinni að
Garðatorgi 7 í kvöld kl. 20.
Gestur fundarins verður
Eysteinn Harldsson,
bæjarverkfræðingur
í Garðabæ.
OPINN FUNDUR UM
SAMGÖNGUMÁL Í KVÖLD
TRYGGJUM TRAUSTA FORYSTU
BJARNA BENEDIKTSSON Í 2. SÆTIÐ