Morgunblaðið - 09.11.2006, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 51
Sigtryggur og Hrólfur
Íslandsmeistarar
Sigtryggur Sigurðsson og Hrólf-
ur Hjaltason sigruðu af öryggi á
Íslandsmóti eldri spilara sem fram
fór sl. laugardag. Þeir hlutu 59%
skor. Keppnin um næstu sæti var
annars spennandi en annað sætið
hlutu Guðmundur Pálsson og Júl-
íus Snorrason með 56,8% skor.
Unnar A. Guðmundsson og Jó-
hannes Guðmannsson urðu þriðju
með 56,6% og Hrafnhildur Skúla-
dóttir og Jörundur Þórðarson
fjórðu með 56,2%. Sautján pör tóku
þátt í mótinu.
Óttar og Atli Már
unnu yngri flokkinn
Samhliða móti eldri spilara var
spilað í flokki ungra spilara. Þar
sigruðu Óttar Ingi Oddsson og Ari
Már Arason með miklum yfirburð-
um, hlutu 65 yfir meðalskor eða
69,3% skor. Guðjón Hauksson og
Jóhann Sigurðarson urðu í öðru
sæti með 28 og Grímur Kristinsson
og Inda Hrönn Björnsdóttir urðu
þriðju með 13 yfir meðalskor. Átta
pör kepptu í þessum flokki.
Miðvikudagsklúbburinn
Miðvikudaginn 1. nóvember var
spilaður eins kvölds
Barometer-tvímenningur með
þátttöku 20 para.
Staða efstu para var:
Halldór Ú. Halldórss.- Rúnar Gunnarss.71
Páll Þórsson - Ómar Olgeirsson 62
Anna G. Nielsen - Guðlaugur Nielsen 41
Hrafnhildur Skúlad.- Jörundur Þórðars.
33
Arngunnur Jónsd.- Guðrún Jóhannesd. 32
Í Bronsstigakeppni Sævars
Karls standa Guðlaugur Sveinsson
og Guðjón Sigurjónsson best að
vígi hjá karlspilurum, en Hrafn-
hildur Skúladóttir leiðir kvenspil-
ara. Stigahæstu karl- og kvenspil-
arar í lok tímabilsins fá
gjafaúttekt.
Miðvikudagsklúbburinn spilar
öll miðvikudagskvöld í húsnæði
BSÍ, Síðumúla 37, 3. hæð. Spila-
mennska byrjar kl. 19:00 og eru
alltaf spilaðir eins kvölds tvímenn-
ingur með forgefnum spilum.
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, mánud. 06.11.
Spilað var á 13 borðum. Með-
alskor 312 stig og besti árangur
N-S:
Júlíus Guðm.s. - Rafn Kristjánsson 421
Sæmundur Björns. - Magnús Halldórss.
385
Oliver Kristóferss. - Gísli Víglundss. 361
Árangur A-V
Ragnar Björnss. - Guðjón Kristjánss. 431
Jóhannes Guðmannss. - Unnar Guðm.s.
421
Friðrik Jónsson - Tómas Sigurjónss. 372
Hörkukeppni í sveitakeppn-
inni í Gullsmáranum
Eftir fjórar umferðir í átta sveita
keppni Bridsdeildar FEBK í Gull-
smára eru þessar sveitir efstar:
Sveit Þorsteins Laufdal 80
Sveit Eysteins Einarssonar 79
Sveit Ara Þórðarsonar 73
Sveit Kristins Guðmundss, 68
Sveitakeppninni verður fram
haldið 9. og 13. nóvember.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði.
Þriðjudaginn 7. nóv. Var spilað á
13 borðum.
Úrslit urðu þessi í N/S
Sigurður Herlufs. – Steinmóður Einars.
369
Magnús Oddsson – Oddur Jónsson 367
Oddur Jónsson – Oddur Halldórsson 362
Rafn Kristjánss. – Oliver Kristóferss. 360
A/V
Ragnar Björnss. – Eysteinn Einarsson 405
Sigurður Hallgrímss. – Anton Jónss. 373
Sverrir Gunnarss. – Kristrún Stefánsd.
366
Hera Guðjónsd. – Þorvaldur Þorgrímss.
323
Þá stendur yfir stigakeppni á
þriðjudögum og eru eftirtaldir spil-
arar efstir:
Björn Björnsson 99
Ragnar Björnsson 94
Oliver Kristófersson 82
Haukur Guðmundsson 77
Bridsdeild Hreyfils
Lokið er fjögurra kvölda
hausttvímenningi og var keppnin
afar jöfn og spennandi allan tím-
ann.
Síðasta spilakvöld:
Birgir Kjartanss. - Árni Kristjánss. 95
Daníel Halldórss. - Ágúst Benediktss. 87
Björn Stefánss. - Þórir Jóhanness. 87
Guðjón Jónsson - Einar Gunnarss. 86
Lokastaðan:
Jón Sigtryggss. - Skafti Björnss. 312
Daníel Halldórss - Ágúst Benediktss. 303
Gunnar Bíldal - Jóhanna Einarsd. 298
Birgir Sigurðss. - Sigurður Ólafsson 297
Árangur Gunnars og Jóhönnu er
athyglisverður en þau eru nánast
nýliðar hjá félaginu.
Næst verður spilað nk. mánu-
dagskvöld og ræðst fyrirkomulagið
af fjölda þátttakenda. Spilað er í
Hreyfilshúsinu og hefst spila-
mennskan kl. 19.30.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
FRÉTTIR
Toyota LC 120 LX 2003, 38" Toyota
LC120 LX, dísel, sjsk. Nýskr. 06.2003,
38" breyttur hjá AT. Ekinn 62.000 km.
Einn eigandi. Loftdæla, prófílbeisli,
þjónustubók. V. 4.990. S. 860 0604.
Útsala - Renault Megane árg.
2000. Ekinn 77.000 km. Ný tímareim,
vel með farinn, lítur vel út. Ásett 700
þús. Tilboð 480 þús. stgr. Símar 898
1007 og 697 9798 í Rvík.
MMC Pajero árg. 1998 til sölu, 2.8
dísel, sjálfskiptur, topplúga, raf-
magnsrúður o.fl. 35" jeppaupphækk-
un. Toppbíll. Upplýsingar í síma
544 4333 og 820 1070.
Árg. '95, ek. 136 þús. km. Golf til
sölu, vel með farinn. Algjör spari-
baukur. Skoðaður 2006. Sími 865
0599 eftir kl. 17.
Subaru Impreza 2WD árg. 1997,
ek. 180 þ., 5 gíra, 4 dyra, álf., spoiler,
vetrardekk, ný skoðaður, ný tímareim.
Verð 250 þús. Uppl. 692 3820.
Hyundai árg. '05, ek. 15.000 km. Til
sölu Getz, 4 dyra, lítur mjög vel út.
Fæst gegn yfirtöku á láni.Upplýsingar
í síma 565 9574, 895 6274, Erna.
Smáauglýsingar
„FÉLAG múslima á Íslandi fagnar
því að allir stjórnmálaflokkar skuli
vera sammála um að tekið verði á
málum innflytjenda með mannrétt-
indi að leiðarljósi,“ segir í ályktun frá
félaginu.
„Félag múslima vill ítreka, að leiðin
til aðlögunar innflytjenda í okkar
samfélagi byggist á því að gera þeim
kleift að læra tungumálið sem fyrst
og gera ráðstafanir til að auðvelda
innflytjendum að stunda nám í ís-
lensku. Jafnframt er aðlögun Íslend-
inga að breyttu samfélagi brýn, þar
sem íslenskt samfélag hefur breyst
mikið. Framlag innflytjenda, bæði
efnahagslegt og menningarlegt, er
ómetanlegt.
En félagið vill vara við því að þetta
verðuga verkefni verði notað til að
breiða út hræðslu, tortryggni og kyn-
þáttahatur í samfélaginu. Við höfum
séð mörg dæmi frá útlöndum þar sem
rasistar hafa notfært sér verðugan
málstað eða málefni, til þess að
krækja sér í nokkur atkvæði. Öll nei-
kvæð umræða um trúflokk eða kyn-
þátt hefur þær afleiðingar að skaða
samfélagið og auka sundrung innan
þess.
Félagið harmar, að nokkrir framá-
menn Frjálslynda flokksins hafa ver-
ið með ógeðfelldar, óréttlátar og
óréttmætar yfirlýsingar um múslima
í samband við innflytjendamálið. Við
sjáum ekki samhengið milli íslams og
innflytjenda frá Rúmeníu, Póllandi
eða hvað landi sem er.
Múslimar koma frá ólíkum löndum,
og oft virðist gleymast í umræðunni,
að það eru til Íslendingar sem hafa
tekið trúna.
Félag Múslima hvetur til málefna-
legrar umræðu um málefni innflytj-
enda hér á landi, auk þess að hvetja
stjórnvöld til að taka harðar á öllum
brotum á mannréttindum fólks vegna
uppruna, litarháttar eða trúar.“
Hvetja til málefnalegrar um-
ræðu um málefni innflytjenda
Rétt slóð heimasíðu
Í VIÐTALI við fatahönnuðinn
Helgu Lilju Magnúsdóttur í Dag-
legu lífi var ranglega farið með slóð
á heimasíðu hennar. Rétt slóð er:
www.helicopter-design.com.
LEIÐRÉTT
KVENFÉLAGIÐ Hringurinn er nú
enn einu sinni að hefja sína árlegu
jólakortasölu. Allur ágóði af söl-
unni rennur til styrktar veikum
börnum á Íslandi.
Myndin á jólakortinu 2006 er eft-
ir Kolbrúnu Sigurðardóttur og ber
heitið „Í skýjunum“.
Kortin eru seld í 5 eða 10 stk.
pökkum með hvítum umslögum á
kr. 500 eða kr. 1000 pakkinn. Sölu-
staðir: Lyf og heilsa, Hagkaup,
Landspítali, Barnaspítali Hringsins
og fleiri staðir.
Fyrirtæki og aðrir, sem þurfa
mikinn fjölda af kortum, geta sent
pöntun í tölvupósti á póstfangið:
hringurinn@simnet.is. Kortin er þá
hægt að fá ýmist með eða án texta.
Prentsmiðjan Oddi tekur einnig að
sér að prenta merki (logo) fyr-
irtækja í kortin. Einnig má lesa inn
pöntun á símsvara félagsins.
Jólakort
Hringsins
NÝLEGA var opnuð L’Occitane-verslun í Kringlunni 4–12. Þetta er önnur L’Occitane
verslunin sem opnuð er í Reykjavík en hin var opnuð að Laugavegi 76 árið 2001.
Í fréttatilkynningu frá nýju L’Occitane-versluninni kemur fram að þar er boðið upp
á úrval af vörum fyrir húð og hár, bæði fyrir dömur og herra. Má meðal annars má
nefna úrval af baðvörum, sápum, líkamskremum, handáburðum og fótakremi auk
fjölbreyttra andlitslína.
Í hverjum mánuði leggur fyrirtækið áherslu á eina vörutegund. Í dag eru starf-
ræktar um 800 L’Occitane-verslanir um heim allan.
L’Occitane-verslanir á Ísandi eru í eigu RS snyrtivara ehf.
Ný L’Occitane-verslun í Kringlunni
HIN ÁRLEGA haustráðstefna Mið-
stöðvar heilsuverndar barna verður
haldin föstudaginn 10. nóvember á
Grand hóteli í Reykjavík.
Yfirskrift ráðstefnunnar er Lengi
býr að fyrstu gerð, en meginþemað
er næring, vöxtur og forvarnir. Ráð-
stefnan er ætluð starfsfólki heilsu-
gæslunnar á landinu öllu, læknum,
hjúkrunarfræðingum og ljósmæðr-
um sem sinna ung- og smábarna-
vernd og skólaheilsugæslu. Tilgang-
ur hennar er að viðhalda og auka
þekkingu fagfólksins á heilsuvernd
barna frá fæðingu til 17 ára aldurs,
en ekki síður að styrkja tengsl
starfsfólksins persónulega og fag-
lega og skiptast á reynslu og hug-
myndum um fagleg málefni.
Ráðstefnan hefst klukkan 9 með
ávarpi Sivjar Friðleifsdóttur heil-
brigðisráðherra. Síðan taka við fyr-
irlestrar en ráðstefnunni lýkur um
kl. 16.
Haustráðstefna
Miðstöðvar heilsu-
verndar barna
MÁLÞING um lagalegan grundvöll
hvalveiða verður haldið í Háskóla Ís-
lands, Lögbergi, stofu 101, á morg-
un, föstudag, kl. 12.15-14.
Í málstofunni mun Tómas H.
Heiðar fjalla um Ísland og Alþjóða-
hvalveiðiráðið, Stefán Ásmundsson
fjalla um lagalegar hliðar hvalveiða
frá íslenskum sjónarhóli og Richard
Caddell, prófessor við Háskólann í
Wales, lýsa öndverðum sjónarmið-
um. Loks verða fyrirspurnir og um-
ræður. Allir eru velkomnir.
Málstofa um laga-
legan grundvöll
hvalveiða
FYRIRTÆKIÐ A.H. Lindsay ehf.,
sem rekur Litlu jólabúðina hefur
ákveðið að flytja verslunina á Lauga-
veg 8.
Síðastliðin 5 ár hefur Litla jóla-
búðin verið starfrækt í bakhúsi að
Grundarstíg 7 í Reykjavík.
„Á Laugaveginn bjóðum við við-
skiptavinum okkar, og þeim sem
hafa áhuga á að gleðja augað, að
koma til okkar og skoða það sem við
höfum upp á að bjóða,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Litla jólabúðin
flytur á Laugaveg
HÓPUR nemenda í Menntaskólan-
um í Kópavogi heldur fatamarkað
laugardaginn 11. nóvember kl. 11–16
í sjálfboðamiðstöð Kópavogsdeildar
Rauða kross Íslands að Hamraborg
11. Notuð föt verða seld á vægu
verði, allt á 300 eða 500 krónur.
Allur ágóði rennur í útskriftarsjóð
fyrir munaðarlausa unglinga í Mós-
ambík sem Rauði kross Íslands hef-
ur stutt við bakið á og veitt náms-
aðstoð. Úrvalið á fatamarkaðnum er
verulegt. Meðal þess sem verður á
boðstólum er föt á konur og karla á
öllum aldri, barnaföt, skór, hand-
töskur, leðurjakkar og lopapeysur
ásamt fjölmörgu öðru.
Fatamarkaðurinn er lokaverkefni
nemendanna í áfanga um sjálfboðið
Rauða kross starf.
Nemendurnir vonast til að sjá sem
flesta á markaðnum þar sem hægt er
að gera góð kaup og styrkja um leið
gott málefni, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Fatamarkaður MK-
nema fyrir ung-
linga í Mósambík
FRÆÐSLUFUNDUR hjá Félagi
stjúpfjölskyldna verður haldinn
laugardaginn 11. nóvember nk. kl. 12
í Hringsjá, Hátúni 10d, Reykjavík.
Fundarstjóri er Valgerður Halldórs-
dóttir, félagsráðgjafi, MA og for-
maður félagsins.
„Margvíslegar spurningar vakna
þegar einstaklingar sem eiga barn
eða börn af fyrri samböndum ganga í
hjónaband. Gildir t.d. reglan um setu
í óskiptu búi um stjúpfjölskyldur?
Hver erfir hvern og af hverju? Ingi-
björg Bjarnardóttir, lögmaður hjá
Lögsátt mun halda erindi um erfða-
mál í stjúpfjölskyldum og svara síð-
an fyrirspurnum,“ segir í fréttatil-
kynningu.
Allir eru velkomnir á fundinn og
kostar kr. 500 fyrir aðra en fé-
lagsmenn. Kaffiveitingar eru í boði
félagsins og eru félagsmenn hvattir
til að taka með sér gesti. Nánari upp-
lýsingar er að finna á: www.stjup-
tengsl.is
Að loknum fræðslufundinum kl. 14
verður haldinn aðalfundur Félags
stjúpfjölskyldna með venjulegum
aðalfundarstörfum. Stjórnin.
Erfðamál í
stjúpfjölskyldum