Morgunblaðið - 17.11.2006, Side 6

Morgunblaðið - 17.11.2006, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is „NÆSTU dagar verða fremur kaldir en svo ætti að draga aðeins úr frostinu þegar líður á næstu viku. Það sér alla vega fyrir end- ann á þessu kuldakasti þótt ekki verði það um sinn,“ segir Þor- steinn V. Jónsson, veðurfræð- ingur hjá Veðurstofu Íslands, um kuldann sem hrjáð hefur íbúa landsins að undanförnu. Hvass- viðri og úrkoma hafa fylgt kröpp- um lægðum en nú er útlit fyrir að vind lægi og bjart veður og stillt verði um helgina. Þorsteinn segir ekki óalgengt að krappar lægðir gangi yfir landið í nóvember og aðallega komi það flatt upp á fólk vegna þess hversu hlýtt og stillt veður hefur verið undanfarna mánuði. „Lægðirnar koma frekar fyrr þannig að það má kannski segja að þær séu fyrr á ferðinni núna en oft áður,“ segir Þorsteinn sem bætir því við að nóvember í ár sé heldur kaldari en verið hefur á undanförnum árum og svona miklir kuldar komi venjulega ekki fyrr en eftir áramót. Hann á allt eins von á því að hiti í mán- uðinum verði undir meðallagi en segir að ekki þurfi að túlka það sem óvanalegt þrátt fyrir að hiti hafi verið yfir meðallagi und- anfarna mánuði. „Síðustu mán- uðir hafa verið hlýir en það koma alltaf inn á milli einhverjir mán- uðir þar sem hitinn fer niður fyrir meðaltal.“ Ekki flogið til Austurlands Flug til og frá Egilsstöðum lá niðri mestan hluta gærdags enda mikil ofankoma og raunar blind- bylur fyrir austan. Um 200 far- þegar biðu þar eftir flugi til Reykjavíkur en aftur á að reyna að fljúga í dag. Flug til Akureyr- ar gekk hins vegar vel og var á áætlun. Samkvæmt upplýsingum frá vaktstöð siglinga voru um eitt hundrað íslensk skip á miðunum í gær og höfðu nokkur lent í vand- ræðum vegna veðurs. Ekkert tjón varð þó en vaktstöðin fylgd- ist sérstaklega vel með ferðum þeirra. Að meðaltali væru um 300 skip úti ef veður væri skaplegt. Ekkert lát á kuldakasti þótt vind lægi yfir helgina Ljósmynd/Atli Vigfússon Rúningur Sigurður Þórarinsson bóndi klippir mest sjálfur og er þá oft mikill handagangur í öskjunni. Tvö hundruð biðu eftir flugi frá Egilsstöðum og skip lentu í vandræðum Eftir Atla Vigfússon Reykjahverfi | Kuldakastið í vikunni varð til þess að allt sauðfé í Þingeyjarsýslu er komið á fulla gjöf enda veður mjög slæm og varhugavert að hafa skepnur úti þegar svo viðrar. Lömb voru víða komin á hús áður, en margir hefðu kosið að hafa ærnar lengur úti þar sem ennþá var beit á sumum bæjum. Ekki er þó hægt að segja að féð komi snemma inn, því í mörgum árum koma allar kindur á gjöf um mánaðamótin október, nóvember í héraðinu og illviðri hafa ekki hamlað útvist búpenings und- anfarna haustmánuði. Margir bændur hafa hraðan á þegar féð kemur snöggt inn, eins og núna, og fara að rýja af fullum krafti til þess að ná ullinni hreinni þannig að hún flokkist sem best. Sigurður Ágúst Þórarinsson, bóndi í Skarðaborg í Reykjahverfi, sem er með 788 kindur á fóðrum í vetur klippir mest sjálfur en stundum klippir sonur hans með honum. Þá er oft handagangur í öskjunni og sá þriðji sem leggur ærnar þarf að hafa sig allan við. Rúningurinn hefur gengið vel að sögn Sigurðar og er hann búinn með töluvert stóran hluta af án- um og búinn að klippa lömbin. Hann reiknar ekki með að ærnar fari út aftur úr þessu þar sem spáin er svipuð langt fram í næstu viku. Ullina metur hann sjálfur sem er töluvert verk og flokkar í ullarpokana eftir því. Afklippur og kleprar fara ekki með sjálfum reifunum og dökka ullin er höfð sér. Hann segir ekki líða nema hálfan mánuð þangað til ærnar fara að loðnast aftur og ef geri einstaka tíð sé e.t.v. mögulegt að hleypa þeim aðeins út en þá þurfi að vera mjög gott. Mikilvægt sé að hafa hlýtt og þurrt á fénu nýrúnu og hefur hann hita- blásara í fjárhúsunum til þess að hækka hitastigið og minnka raka. Þannig er einnig hægt að spara fóður en féð hefur mikla lyst þegar það er nýrúið. Rúningsnámskeið verður haldið í Reykjahverfi um aðra helgi en það er liður í því að kenna mönn- um réttu handtökin og líka til þess að fleiri gefi sig í það að rýja fyrir bændur. Margir kaupa rúning í verktöku sem ekki rýja sjálfir, en mjög fáir stunda þessa atvinnu og því er skortur á rúningsmönnum. Starfið er slítandi og reynir mikið á bakið þegar þetta er unnið í akkorði. Allt sauðfé komið á fulla gjöf EKKI hafði verið tilkynnt að lend- ingarstaður á Selfossflugvelli væri lokaður þegar flugvél lenti þar á gamlársdag í fyrra, en búið var að koma fyrir flugeldaskotpalli á flug- brautinni. Þetta kemur fram í skýrslu Rannsóknanefndar flugslysa um umrætt atvik, en flugmaður vél- arinnar varð að sveigja fram hjá skotpallinum til þess að forðast árekstur. Fram kemur í skýrslunni að flug- vélinni hafi verið flogið frá Vest- mannaeyjaflugvelli til Selfossflug- vallar. Undirbúningur fyrir það fór fram í Vestmannaeyjum, en hann var með hefðbundnum hætti. Engin NOTAM voru gefin út fyrir Selfoss- flugvöll á vefsíðu Flugmálastjórnar áður en flugið hófst, en það eru upp- lýsingar er varða sérstakar reglur og aðvaranir á flugleið. Gekk flugtak og farflug til Selfossflugvallar vel og lét flugmaðurinn fjórum sinnum vita af komu sinni í aðflugi að Selfoss- flugvelli. Sveigði vélinni fram hjá til að koma í veg fyrir árekstur Í lendingarbruninu varð flugmað- urinn var við flugeldaskotpallinn austan megin við miðlínu brautar- innar. Sveigði hann vélinni framhjá til að koma í veg fyrir árekstur, en tveimur bílum hafði einnig verið lagt á braut á vellinum. Samkvæmt mæl- ingum lögreglunnar á Selfossi mun skotpallurinn hafa verið um fimm metra inni á flugbrautinni austan megin og um það bil fjóra metra frá mótum flugbrautarinnar við austur- vesturbraut vallarins. Hjólfar eftir flugvélina mældist vera 9 metrum vestan við skotpall- inn. Eftir lendinguna hringdi flug- stjórinn í Flugstjórnarmiðstöðina í Reykjavík og spurði hvort Flug- málastjórn vissi af lokun Selfossflug- vallar og í ljós kom að vaktstjóri í Flugstjórnarmiðstöðinni hafði ekki upplýsingar um lokun flugvallarins. Í niðurstöðu Rannsóknanefndarinn- ar segir að upplýsingaþjónusta flug- mála hjá Flugmálastjórn Íslands hafi meðal annars það hlutverk að safna og dreifa upplýsingum fyrir ís- lenska flugstjórnarsvæðið og fyrir flugumferð. Hluti af upplýsingagjöf þjónustunnar felist í útgáfu NOT- AM-tilkynninga. Segir að umráðendur Selfossflug- vallar hafi ekki tilkynnt um lokun lendingarstaðarins og vafasamt ástand flugbrauta til upplýsinga- þjónustu flugmála, líkt og kveðið sé á um í reglugerð um flugvelli. Sveigði hjá flugeldaskotpall- inum til að forðast árekstur Ekki tilkynnt að lendingarstaður flugvélar væri lokaður FLUTNINGASKIPIÐ Wilke sem lenti í vand- ræðum í hafinu suðaustur af landinu fyrr í vik- unni lónaði út af Höfn í Hornafirði í gær og beið þess að norðanáttina lægði svo að það gæti haldið áfram til Reyðarfjarðar þangað sem för- inni er heitið. Var gert ráð fyrir að það myndi halda þangað í gærkveldi eða nótt, eftir því hvenær veður gengi niður, og að varðskip myndi fylgja því eftir. Landhelgisgæslan hefur farið fram á það við lögregluyfirvöld að skýrsla verði tekin af skip- stjóra skipsins þegar það kemur til hafnar á Reyðarfirði, en skipið lenti í vandræðum í óveðrinu aðfaranótt þriðjudags, djúpt suðaust- ur af landinu, og missti timbur á dekki í sjóinn og gáma með vélasamstæðu, sem talið er að hafi sokkið strax. Skipið hafði samband við Landhelgisgæsluna og Vaktstöð siglinga og voru þyrlur Gæslunnar í viðbragðsstöðu á Höfn í Hornafirði, en ekki þurfti að koma til kasta þeirra. Skipið komst af eigin rammleik upp að suðurausturlandinu á þriðjudag og hélt þá vestur með landi og alveg vestur fyrir Skarðsfjöru. Það hefur síðan lónað austur á bóginn. Fóru varðskipsmenn um borð í fyrra- dag og amaði þá ekkert að um borð. Seinni- partinn í gær var skipið suður af Hornafirði. Skýrsla tekin af skipstjóra Wilke var væntanlegur til Reyðarfjarðar í nótt             !"#" #"     $% $$ & "" '$($)*$+$# $,$" "$   " #!"-"$."  / $0" #! Í vandræðum Wilke er rúmlega 90 metra langt skip og um þrjú þúsund tonn að stærð. edda.is „Sagan er fjörug og skemmtileg en stærsti kosturinn við hana er stíllinn, djarfur og myndrænn, og frjór leikurinn með tungumálið ...Persónur bókar- innar eru vel skapaðar og fullar af lífi, en eiginlega verður sögu- maðurinn með sinn litríka frásagnarstíl skemmtilegasta persóna hennar!“ Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.