Morgunblaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 11
FRÉTTIR
Jólabasar Iðjuþjálfunar verður haldinn
laugardaginn 18. nóvember kl. 13-17 og
mánudaginn 20. nóvember kl. 9-15:30.
Mikið af fallegum handgerðum munum og hægt er að gera góð
kaup fyrir jólin. Endilega mætið og sjáið/kaupið handavinnu
heimilismanna Hrafnistu, Reykjavík.
Stjórn Ættingjabandsins, sem er félag aðstandenda heimilisfólksins,
mun selja nýbakaðar vöfflur og kaffi á laugardaginn í samkomu-
salnum Helgafelli C-4.
Jólakveðjur,
starfsfólk Iðjuþjálfunar Hrafnistu, Reykjavík.
4thfloorhotel
Laugarvegur 101 • 4thfloorhotel.is
Vetrartilboð
1. nóvember - 1. maí
Útvegum miða á leiksýningar og jólahlaðborð
1 manns herbergi
2ja manna herbergi
Hópar 10+
Helgarferð
kr. 5.900
kr. 7.900
kr. 5.000 á mann
kr. 14.000 2 nætur í hjónaherbergi
INGIBJÖRG Sólrún
Gísladóttir fundaði í
vikunni með Myriam
Shomrat, sendiherra
Ísraels. Á fundinum
var sendiherranum
meðal annars gerð
grein fyrir ályktun sem
þingflokkur Samfylk-
ingarinnar samþykkti,
en þar er mótmælt at-
burðum sem áttu sér
stað í Beit Hanun 8.
nóvember sl., þegar
stórskotaárás Ísraela
kostaði 18 óbreytta pal-
estínska borgara lífið.
„Þegar við ákváðum
fundinn höfðu ekki þeir
atburðir gerst sem síðan áttu sér
stað [í Beit Hanun]. Mér fannst að
eftir þá atburði væri alveg ófært að
sitja á skrafi við sendiherrann og
hlusta á réttlætingar á þeim atburð-
um,“ segir Ingibjörg Sólrún. Hún
segir að ekki sé hægt að taka það
sem góð og gild rök að um slysni eða
mistök hafi verið að ræða. Margir
slíkir atburðir hafi átt sér stað, þar
sem óbreyttir borgarar séu skot-
mörk.
„Létum fundinum lokið“
Ingibjörg afhenti Shomrat yfirlýs-
inguna og tjáði henni svo að þannig
vildi hún ljúka fundinum. „Hún var
ekki sátt við þetta en þannig létum
við fundinum lokið,“ segir Ingibjörg
og bætir við að Samfylkingin hafi
ekki séð ástæðu til þess að sækja
fund fulltrúa flokkanna í utanríkis-
málanefnd með sendiherra Ísraels,
sem haldinn var í fyrradag.
Samfylking mót-
mælti árás Ísraela
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir átti
fund með sendiherra Ísraelsstjórnar
Miryam
Shomrat
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
og Sunnu Ósk Logadóttur
„ÉG var ekki fyrr kominn fram á
stafn en þrír menn birtust út úr
myrkrinu, þeir komu róandi hljóð-
laust upp að [skútunni] Lady Ann
og fyrr en varði horfði ég ofan í þrjú
byssuhlaup. Tveir mannanna stukku
um borð í einni andrá og settu
byssuhlaupin undir hökuna á mér.
Ég vissi að Áslaug var steinsof-
andi inni í rúmi og það kom ekki
annað til greina en að reyna að
vekja hana áður en þeir fyndu hana
þar.
Ég kallaði því á hana og sagði
henni hvernig ástatt var. Mennirnir
heyrðu mig kalla á íslensku sem
þeir skildu ekki og þeir vissu ekki
hvaða skipanir ég væri að gefa. Því
urðu þeir öllu ákveðnari og hrein-
lega boruðu byssuhlaupunum í mig
þegar þeir stýrðu mér aftur eftir
bátnum.“
Þannig lýsir Kári Jón Halldórs-
son sem hefur ásamt konu sinni Ás-
laugu Ösp Aðalsteinsdóttur og tík-
inni Kötu verið á siglingu um
heimsins höf undanfarin tvö ár, upp-
hafi hrikalegrar atburðarásar er
skúta þeirra var rænd þar sem hún
lá við akkeri utan við smáþorp á eyj-
unni Isla Maragrita við Venesúela
aðfaranótt sl. laugardags.
Bundin í tvo tíma
Hjónin höfðu ákveðið að ganga
snemma til náða en Kári festi ekki
svefn og fór um miðnættið að reyna
að breyta akkerisfestingunum. Þá
birtust allt í einu þrír vopnaðir
menn. Áslaug var enn sofandi en
var fljótt vakin af værum svefni.
„Það eru komnir þrír gestir sem
allir beina að mér byssum,“ lýsir
Áslaug atburðarásinni á vefsíðu
þeirra hjóna. „Mér brá alveg rosa-
lega þegar ég fann hvergi bóndann í
bælinu og hentist fram allsnakin því
hér er alltof heitt til að sofa í nátt-
fötum. Ég var komin fram í eldhús
þegar ég sá út og að þar voru í raun-
inni menn með nef og munn falin
sem héldu byssum að Kára. Ég
endasentist inn í svefnherbergi þar
sem ég reif lak af rúminu til að vefja
mig í og hljóp síðan að VHF-stöð-
inni til að kalla á hjálp. Ég náði að
kalla tvisvar til þrisvar á hjálp áður
en ég fékk byssuhlaup undir hökuna
og var skipað á spænsku að hypja
mig út til bónda míns.“
Næstu tvo tímana sátu hjónin
bundin saman bak í bak á meðan
maður stóð yfir þeim og potaði í þau
með byssu á meðan félagar hans
stálu öllu steini léttara. „Þeir komu
um borð nálægt miðnætti og um
hálfþrjúleytið henti einn þeirra út
laki sem var sett yfir höfuð okkar,“
segir Áslaug.
Þegar ræningjarnir höfðu stolið
öllu sem hönd á festi reru þeir á
brott. Er Áslaug og Kári höfðu los-
að sig sigldu þau til Porlamar, sem
er stærsta borgin á Isla Margarita,
þar sem þau gáfu lögreglu skýrslu
og er málið nú í rannsókn.
Á góðri siglingu í tvö ár
„Við ákváðum fyrir tæpum tveim-
ur árum að skipta um lífstíl, og fara
í skútuferðalag í tvö ár í það
minnsta,“ segir Kári Jón í samtali
við Morgunblaðið. Þau seldu allt sitt
á Íslandi og lögðu af stað. „Á þess-
um tveimur árum erum við búin að
sigla meðfram austurströnd Banda-
ríkjanna, þar sem við hófum ferða-
lagið, um Bahama-eyjar, Puerto
Rico, Dóminíkanska lýðveldið og
eyjarnar í Karíbahafinu.“
Kári Jón segir þau hjónin þurfa
að endurnýja allan sinn búnað en
það sé erfitt á þeim slóðum þar sem
þau eru núna. „Það sem er til hérna
er mjög dýrt þannig að við kaupum
hér það allra nauðsynlegasta og för-
um svo á aðrar slóðir til að kaupa af-
ganginn.“
Árás vopnaðra sjóræningja
Íslensk hjón urðu fyrir
barðinu á sjóræningjum í
Karíbahafinu um helgina.
Þrír vopnaðir menn
komu um borð, bundu
þau og hótuðu með
byssum áður en þeir
hurfu á brott með ráns-
fenginn.
Ævintýri Áslaug Ösp Aðalsteinsdóttir og Kári Jón Halldórsson hafa verið á
ferðalagi í tvö ár. Þar til um helgina hefur ferðin gengið eins og í sögu.
1
2
3'
4&'
565
7
„BÁTASAMFÉLAGIÐ hérna er mjög samheldið og
hefur aðstoðað okkur eins og mögulegt er og veitt
okkur mikinn stuðning,“ segir Kári Jón Halldórsson,
er hann er spurður hvernig þeim hjónum gangi að
komast yfir áfallið.
„Andlega líðanin er þannig að maður er pínulítið
reiður og pínulítið leiður. Það er mjög óþægilegt að
lenda með byssu beint ofan í andlitið.“
Kári Jón segist ekki beint hafa verið hræddur um
líf sitt meðan á sjóráninu stóð, frekar hafi hann haft
áhyggjur. „Það var eiginlega ekki fyrr en þeir settu
teppi yfir hausinn á okkur að mér fannst þetta vera
orðið mjög skuggalegt. Þeir voru að fara og við viss-
um ekki hvernig þeir ætluðu að halda okkur góðum,
hvort þeir myndu skjóta okkur eða rota okkur.“
Kári telur að við Venesúela séu framin 4–5 vopnuð
sjórán á ári. Kári og Áslaug eru ekki tryggð fyrir
sjóránum og þurfa því að greiða tjónið úr eigin vasa.
Telur Kári að það nemi um 1,5 milljónum króna.
Hann segir óákveðið hvað taki nú við, enda hafi
þau hingað til „siglt eftir því hvernig vindurinn
blæs.“
Allan tímann hafa þau sofið í bátnum og stoppað á
athyglisverðum stöðum í lengri eða skemmri tíma.
Ekkert langtíma ferðaplan er haft að leiðarljósi.
„Maður veit ekki alveg hvernig viðbrögðin við
þessu verða eftir viku eða mánuð. En eins og okkur
líður núna þá ætlum við að halda ferðalaginu áfram.“
Var orðið mjög skuggalegt
LENKA Ptácník-
ová fékk fullt hús
á Íslandsmóti
kvenna í skák og
varð Íslands-
meistari í fyrsta
sinn sem íslensk-
ur ríkisborgari.
Lenka sigraði
alla sjö mótherja
sína og fékk 7
vinninga. Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir, forseti Skáksambands Ís-
lands, varð í öðru sæti með 5,5 vinn-
inga en hún hefur orðið
Íslandsmeistari 11 sinnum. Hin 14
ára Hallgerður Helga Þorsteinsdótt-
ir varð í þriðja sæti með 5 vinninga
en næstu keppendur voru með 2,5
vinninga.
Lenka Íslands-
meistari í skák
Lenka Ptácníková
♦♦♦
MAÐURINN sem slasaðist alvar-
lega í eldsvoðanum í Ferjubakka
12 þann 7. nóvember, liggur enn
þungt haldinn á gjörgæsludeild
Landspítalans. Hann er tengdur
við öndunarvél og hefur líðan
hans verið óbreytt frá innlögn.
Honum var bjargað út úr íbúðinni
ásamt konu sinni, en hún lést á
gjörgæsludeild eftir tveggja daga
legu.
Óbreytt líðan
eftir brunaslys