Morgunblaðið - 17.11.2006, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 17.11.2006, Qupperneq 22
22 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SIR George Martin, sem gjarnan hefur verið kallaður „fimmti bítillinn“, var meðal þeirra sem teknir voru inn í Frægðarhöll tónlistarinnar í Bretlandi fyrr í vikunni. Aðrir sem hlutu inngöngu þetta sinnið voru Led Zeppelin, Rod Stuart og Dusty Springfield. Martin gekk til samstarfs við Bítlana árið 1962 og var upptökustjóri á að næstum öll- um plötum fjórmenninganna. Það var Gordon Brown sem af- henti verðlaunin og var púað á hann úr áhorfendahópnum þegar hann steig á sviðið. Brown hélt lofræðu um Martin og sagði m.a. að Martin hefði gert Bítlana að farsælustu sveit sögunnar. Lofið stórlega ýkt Þegar hinn áttræði Martin veitti verðlaununum viðtöku sagði hann hins vegar við áhorfendur að í sann- leika sagt væri lofið sem á hann væri hlaðið stórlega ýkt. „Ég held að ástæðan fyrir því að ég er hér í dag sé sú að ég hafi verið lánsamur mað- ur sem hefur unnið með færasta fólkinu í skemmtanaiðnaðinum,“ sagði Martin hógvær. „Það skiptir öllu máli að fá tækifæri til að vinna með þannig fólki.“ Frægðarhöll tónlistarinnar í Bret- landi var stofnuð árið 2004. Er fyr- irmyndin Frægðarhöll rokksins í Bandaríkjunum, en um er að ræða stofnun sem er ætlað að minnast helstu áhrifavalda í popp- og rokk- tónlist. Meðal þeirra listamanna sem þegar hefur hlotnast heiðurinn eru Rolling Stones, Madonna, Bob Dyl- an og að sjálfsögðu Bítlarnir. Martin heiðraður Nýir þegnar teknir inn í Frægðarhöllina George Martin HÖFUNDI Da Vinci-lykilsins Dan Brown og út- gáfufyrirtæki hans, Random House, var dæmt í hag fyrir rétti í vikunni í máli gegn rithöfundi sem sagði hluta bókar Browns stolið úr hans eigin verki. Lewis Perdue er höfundur bók- arinnar Daughter of God sem var gefin út árið 2000, hann hélt því fram í bréfi sem hann sendi útgáfu- félagi Brown árið 2003 að það væri margt líkt með bókunum tveimur. Útgáfufélagið fór þá af stað með mál gegn Perdue til að fá það staðfest fyrir rétti að ekkert lagabrot hefði átt sér stað. Sem mótsvar sóttist Perdue eftir 150 milljónum dollara í skaðabætur. Hæstiréttur í Wash- ington hafnaði kröfu hans án at- hugasemda og Perdue þarf ekki að borga neitt af lögfræðikostnaði Random House. Perdue heldur því fram að sögu- þráður og bygging bókanna tveggja sé mjög lík. En lögmenn Random House segja bækurnar tvær í grundvallaratriðum mjög ólíkar. Á vefsíðu Guardian kemur fram að Perdue sé vonsvikinn með nið- urstöðuna en samt feginn að mála- ferlunum sé lokið. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem Brown var sakaður um ritstuld í sambandi við Da Vinci-lykilinn. Fyrr á þessu ári hafnaði Hæstiréttur Bretlands kröfum Michael Baigent og Richard Leigh um að Da Vinci- lykillinn væri eftiröpun á bók þeirra The Blood and The Holy Grail. Enginn ritstuldur Dan Brown MARGIR hafa beðið útgáfu bókarinnar Öldungurinn, eftir hinn kornunga höfund Christo- pher Paolini, með óþreyju hér á landi. Um er að ræða fram- hald bókarinnar Eragon sem hefur slegið í gegn víða um heim. Bókin kemur í verslanir í dag og fyrir þá sem ekki geta beðið með að næla sér í eintak verður Eymundsson í Smára- lind með miðnæturopnun, þar sem lofað er miklu fjöri. Gerð hefur verið kvikmynd eftir Eragon sem skartar meðal annars John Malkovich. Verður hún frumsýnd hérlendis á næstu misserum. Bókmenntir Miðnæturopnun í Eymundsson Christopher Paolini DAGUR rauða nefsins verður haldinn hátíðlegur í fyrsta sinn hér á landi á fullveldisdaginn, 1. desember. Af því tilefni hef- ur Baggalútur samið lagið „Brostu“ og gefið út á plötu. Barnahjálp Sameinuðu þjóð- anna nýtur góðs af sölunni og fær allan ágóða. Það eru hvorki smástirni né aukvisar sem ljá Baggalúti lið við sönginn: Unnur Birna feg- urðardrottning, Íþróttaálfurinn, Steingrímur Joð, Magni rokkstjarna, biskupinn, snigillinn Siv, Páll Magnússon útvarpsstjóri og Bubbi Morthens, og platan kostar ekki nema þúsundkall. Plötuútgáfa Biskupinn syngur með Baggalúti Karl Sigurbjörnsson ANNA Jónsdóttir sópran held- ur debut-tónleika í Hafnarborg í kvöld kl. 20. Anna er menntuð í Austur- Evrópu. Hún lærði fyrst hér heima hjá Alinu Dubik í Nýja tónlistarskólanum og lauk burtfararprófi 2003, en fór í framhaldsnám til Búkarest í Rúmeníu áður en hún lauk ein- söngvaraprófi hér heima. Á efnisskrá tónleikanna í kvöld eru sönglög eftir Haydn, Poulenc og Chop- in, Wesendonk-Lieder eftir Wagner og aríur eftir Wagner og Giordano. Meðleikari Önnu á píanó er Jónas Sen. Debut-tónleikar Söngkonan mennt- uð í Austur-Evrópu Anna Jónsdóttir FINNUR Friðriksson aðjúnkt við kennaradeild Háskólans á Akureyri telur hversdagsmál hér á landi standa vel. Sleggjudómar virðist innistæðulitlir og byggist meira á ótta við erlend áhrif og þeirri við- teknu skoðun að íslenska eigi að vera hrein og óbreytanleg, sem verði til þess að fólk hnjóti um minnstu frávik. Þetta kom fram í erindi Finns í Háskólanum á Akureyri í gær, í tilefni Dags íslenskrar tungu. Finnur hefur rannsakað talmáls- upptökur, alls 20 klukkustundir af 30 sem hann tók upp; samtöl fólks, tveggja til fjögurra í senn, við eðli- legar aðstæður. Tekið var upp heima hjá fólki en hann var ekki við- staddur; skildi upptökutækið eftir til þess að trufla ekki samtölin. Um er að ræða 72 Íslendinga í þremur ald- urshópum úr ýmsum þjóðfélags- hópum, á sex stöðum á landinu. Hann tók upp samtöl alls 108 manna á níu stöðum, en hefur ekki hlustað á allt saman ennþá. Finnur segir að þó staðan sé í sjálfu sér góð hræðslan þar með innistæðulítil megi færa rök fyrir því að hræðslan sé engu að síður nauð- synlegur liður í því að halda ástand- inu góðu „og kannski ætti bara að gefa veiðileyfi á mig fyrir að halda því fram að allt sé í lagi. Ef við förum að trúa því snaraukast líkurnar trú- lega á því að við förum að slaka á klónni og vöknum ekki til meðvit- undar fyrr en of seint er að bregðast við.“ Hann sagði á þessu stigi málsins aðallega hægt að greina aldursmun, að magn slettna og slangurs væri ívíð meira hjá unglingum en hjá bæði fullorðnum og eldri borgurum. „Enska er svo til einráð hjá ungling- um og hún ræður einnig ríkjum hjá fullorðnum. Hjá þeim eldri eimir hins vegar enn af dönskum áhrif- um,“ sagði Finnur og velti því fyrir sér hvort notkun hinna eldri á slett- um eða slangri væri jafnvel hættu- legri að því leytinu til að hún ætti auðveldara með að falla inn í málið án þess að vekja sérstaka eftirtekt. Nokkur munur er líka á notkun: „Sletturnar eru meira „merktar“ sem slíkar hjá unglingum, notaðar sem einhvers konar upphrópun í byrjun svars, viðbragðs við orðum viðmælenda.“ Hann sagði lítinn kynjamun sjá- anlegan hvað varðar tíðni en svolítill munur væri á orðaforða, í það minnsta hjá unglingum. Lítill munur er einnig greinanlegur milli svæða að öðru leyti en því að Reykjavík sker sig nokkuð úr bæði hvað varðar hreina tíðni og stærð orðaforða.“ Finnur telur að auka þurfi víðsýni og umburðarlyndi, ekki síst gagn- vart unglingum og nýjungagirni þeirra. „Föstustu skotin á slettur og slangur þeirra koma gjarnan úr mennta- og menningargeiranum, enda þótt mér sé ekki grunlaust um að hlutfall slettna í daglegu máli t.d. okkar akademikeranna sé síst lægra en hjá unglingum. Það skal þó tekið fram að að þessi grunsemd mín fell- ur í þann sleggjudómaflokk sem ég hef sjálfur verið að gagnrýna þar sem ég byggi hér á tilfinningu frekar en staðreyndum. Hvað sem því líður held ég að nauðsynlegt sé að við verðum samkvæmari sjálfum í við- horfum okkar til og skilgreiningu okkar á slettum og slangri.“ Aðjúnkt á Akureyri fjallaði um slettur, slangur og stöðu íslensks hversdagsmáls Hversdagsmálið stendur vel Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Slettur og slangur Finnur Friðriksson, aðjúnkt við Háskólann á Akureyri. FINNUR Friðriksson segir að vissulega megi líta á slettur og slangur sem eðlilegan hluta hvers- dagslegs talmáls, „en þetta er þó líklega ekki eins algengt og flestir halda“, sagði hann í gær. Á þeim upptökum sem hann ræddi um í gær voru sjö manns (af 72) alveg slettulausir og 56 með 10 slettur eða færri, sem hann sagði ekki mikið miðað við að upptök- urnar eru 30–60 mínútur. Mest sletti einn 53 sinnum á þeim tíma. Einkennismerki Algengustu sletturnar/slangrið, að sögn Finns er eftirfarandi: ókei, bæ, djísöss (eða djísöss kræst), my god (eða ó my god), sjitt, djamma, fokk, höstla eða höstler, tékka, nice, heavy, bömmer, díll eða að díla og kúl. Finnur segir þessi orð virðast mynda hinn virka slangur- eða slettuorðaforða og séu þau einu sem komi fyrir reglulega. „Sumir virðast jafnvel nota ákveðnar slett- ur sem eins konar einkennismerki, samanber einstakling sem notar heavy fimm sinnum, og nota þá gjarnan aðrar slettur minna.“ Tækifærisslettur Önnur orð koma aðeins fyrir einu sinni og Finnur segir að kannski megi kalla þær tækifærisslettur, eða sviðsbundnar, þ.e. verið sé að fjalla um eitthvert tiltekið atriði sem kallar á slettuna. Dæmi um orð af þessum toga sagði hann nick- name, unplugged, tattú, garantera, singull, gimmik, mæk, hardcore og „interrogeitum hann, setjum hann í crossexamination“ eins og hann sagði í fyrirlestrinum. Kúl díll, sjitt og bömmer FORSAGA fyrirlestursins er sú að upp kom hugmynd hjá íslenskukenn- urum í HA að halda slettulausan dag, sbr. reyklausan eða bíllausan. Við- brögð voru ekki góð en þeim fannst samt slettur verðugt umræðuefni enda oftar en ekki taldar í hópi helstu ógna við íslensku, eins og Finnur sagði. Slettulaus dagur? Í TILEFNI þess að 16. nóvember að ári verða lið- in 200 ár frá fæðingu Jónasar Hallgrímssonar hef- ur tímabilið frá 16. nóvember 2006 til 16. nóv- ember 2007 verið útnefnt sem Jónasarár. Á þessu tímabili hyggjast samstarfsaðilar sendiráðs Ís- lands í Kaupmannahöfn minnast Jónasar á ýmsan hátt og efna til menningarviðburða af fjölbreyttu tagi. Hefst afmælisdagskráin formlega með bók- mennta- og tónlistarkvöldi í Jónshúsi í Kaup- mannahöfn 23. nóvember nk. kl. 19.30 þegar sung- in verða lög við ljóð Jónasar og lesið úr verkum hans. Á vordögum 2007 verður m.a. boðið upp á hóp- ferðir undir leiðsögn fararstjóra um þá staði sem tengjast Jónasi á einn eða annan hátt. Fyrst verð- ur farið til Sorø, þar sem Jónas bjó sín síðustu ár, og síðar í gönguferð um Kaupmannahöfn. Erik Skyum-Nielsen, núverandi garðprófastur á stúd- entagarðinum Regesen, þar sem Jónas bjó á námsárum sínum, mun svo ganga með gestum um staðinn og segja sögu hans 19. maí. Ráðstefna um Jónas Hallgrímsson Um haustið verður svo efnt til ráðstefnu um Jónas Hallgrímsson og verk hans, en Jónasarári lýkur með sama hætti og það hófst; með dagskrá í Jónshúsi 16. nóvember 2007, degi íslenskrar tungu. Þar ber hæst kynningu á bók sem nú er í burðarliðnum og kemur til með að geyma úrval ljóða Jónasar í danskri þýðingu ljóðskáldsins Søren Sørensen. Inngang bókarinnar skrifar Matthías Johannessen. Samstarfsaðilar sendiráðsins vegna Jónasar- ársins eru Bókmenntaklúbburinn Thor, Hús Jóns Sigurðssonar, Íslenski kvennakórinn í Kaup- mannahöfn, kórinn Staka, Dansk-Islandsk Sam- fund, auk fyrirtækjanna Phil og søn og Kaup- þings. Jónasarár í Danmörku Morgunblaðið/Brynjar Gauti Jónasarár Í Danmörku verður 200 ára fæðing- arafmælis Jónasar minnst með ýmsum hætti. ♦♦♦
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.