Morgunblaðið - 17.11.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 23
menning
BARNABÓKAVEISLA!
Búkolla
Glæsilegar myndir
Kristins G. Jóhannssonar prýða
Búkollu og gera hana að sannkallaðri
listaverkabókfyrir börnin.
Ævintýri Nonna
Æsispennandi Nonnaævintýri
prýtt fallegum myndum
Kristins G. Jóhannssonar.
Bestu
barnabrandararnir
Bestu barnabrandararnir - að
sjálfsögðu bók fyrir börn á öllum
aldri, enda hafa allir gott af því að
skellihlæja.
Spurningabókin 2006
Er hægt að hnerra með opin augu?
Ómissandi bók við öll tækifæri.
Kr. 10.000 stgr.
Eikarrúm
Stærð: 142 sm x 203 sm
með springdýnu
HELGARTILBOÐ
OPIÐ: Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. 12-18 12-18 12-18 12-21 10-18 10-18 12-18
Komið og gerið góð kaup
Varnarliðssala Geymslusvæðisins - Sigtúni 40
VEGUR Dags íslenskrar tungu hef-
ur vaxið jafnt og þétt frá því hann
var fyrst haldinn árið 1996. Sífellt
fleiri stofnanir og einstaklingar
helga þennan dag rækt við hið ást-
kæra og ylhýra með ýmsum hætti
og er skólastarf landsins til að
mynda að stórum hluta tileinkað
deginum og afmælisbarninu, Jónasi
Hallgrímssyni.
Á bókasöfnunum hefur einnig
skapast sú hefð að gera deginum
hátt undir höfði, bæði með hefð-
bundnum hætti og óvenjulegum
uppákomum, eins og ljóðalestur
starfsmanna Ársafns í kallkerfi
Bónuss er dæmi um. Þá er mennta-
málaráðherra jafnan á þönum.
Dagurinn í gær var engin undan-
tekning en Þorgerður Katrín opn-
aði m.a. tvö vefsvæði tileinkuð ís-
lenskri tungu með ýmsum hætti,
heimsótti börn í Kópavogi og veitti
að endingu Nirði P. Njarðvík verð-
laun Jónasar Hallgrímssonar.
Menning | Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur um land allt í gær
Dagur helgaður hinu
ástkæra og ylhýra
Morgunblaðið/Eyþór
Bókagjöf Börn af leikskólanum Dvergasteini tóku á móti bókagjöf á Aðal-
safni Borgarbókasafnsins í Grófarhúsi í tilefni dagsins.
Morgunblaðið/Sverrir
Klippt á borða Menntamálaráðherra opnar formlega Tölvuorðasafn
Skýrslutæknifélags Íslands á vefnum. Með henni á myndinni eru Sigrún
Helgadóttir (t.v.) og Hólmfríður Arnardóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Þjóðleg Unnur Guðjónsdóttir var þjóðleg í Alþjóðahúsinu þar sem hún las nokkur ljóð eftir Jónas Hallgrímsson.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Tónmál Ungt fólk lék á hljóðfæri í Héraðs-
bókasafninu á Hvammstanga í gær.
Morgunblaðið/Karl Sigurgeirsson
Upplestur Eldri borgarar lásu upp ljóð fyrir gesti Héraðs-
bókasafnsins á Hvammstanga í tilefni dagsins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ljóðabónus Starfsmenn bókasafnsins Ársafns lásu upp ljóð eftir ýmsa höfunda í kallkerfi Bónuss í Árbæ.
Fréttir á SMS