Morgunblaðið - 17.11.2006, Qupperneq 26
|föstudagur|17. 11. 2006| mbl.is
daglegtlíf
Hvernig væri að bjóða vinum
eða ættingjum heim um
helgina, baka vöfflur og hafa
það huggulegt? » 28
helgin
Eftir að hún eignaðist börn sjálf
fékk Helga Ólafsdóttir fata-
hönnuður áhuga á barnafata-
tísku. » 30
tíska
Því ekki að gera eitthvað annað
á meðan kvöldmaturinn mallar í
ofninum, spyr Heiða Björg
Hilmisdóttir. » 28
matur
Steingrímur Sigurgeirsson
segir vínsamlagið Cantina Terl-
ano í Suður-Týról vera hörku-
gott. » 29
vín
Ingólfur Margeirsson útvarpar
spjalli og tónlist á heimasíðu
sinni og heimilishundurinn Óli-
ver lætur líka í sér heyra. » 30
daglegt
Hann er búinn að sjá tugiþúsunda kvikmynda ener samt alltaf jafn-spenntur. „Það er alltaf
viðburður þegar ný James Bond-
mynd er frumsýnd,“ segir Guð-
mundur Breiðfjörð, markaðsstjóri
kvikmyndadeildar Senu, sem er einn
af fáum Íslendingum sem þegar hafa
séð myndina. „Ég hafði mínar efa-
semdir um að Daniel Craig gæti fet-
að í fótspor Pierce Brosnan, sem mér
fannst frábær Bond, en það reyndust
algjörlega óþarfa áhyggur. Craig er
frábær, kominn til að vera,“ segir
markaðsstjórinn og var sjálfur tilbú-
inn að skella sér í smóking fyrir
myndatökuna í tilefni frumsýning-
ardagsins en myndin Casino Royal
verður frumsýnd í dag í öllum helstu
kvikmyndahúsum landsins.
– En hvernig má skýra vinsældir
njósnara hinnar bresku hátignar?
„Það er saga Bond-myndanna. Sú
fyrsta, Dr. No, var frumsýnd árið
1962 þannig að sagan spannar 44 ár.
Hver kynslóð á sinn Bond og sínar
Bond-myndir sem þær tengjast oft til-
finningaböndum. Myndirnar endur-
spegla líka samtíma sinn og tíðarand-
ann og eru því skemmtilegur aldar-
spegill. Fyrir fjórum áratugum var
kalda stríðið í algleymingi og baráttan
við austurblokkina, núna eru það al-
þjóðlegir fjárglæframenn, vopnasalar
og hryðjuverkamenn.“
Konur orðnar jafnokar
En eru ekki óttalegar staðalímyndir
dregnar upp af konum og körlum í
þessum myndum?
„Jú, sjálfsagt má segja það en
ímyndirnar hafa nú samt verið að
breytast eftir því sem ferskari vindar
hafa blásið um samfélagið. Konur
gegna sífellt mikilvægari hlutverkum
í myndunum og eru sannkölluð
hörkukvendi og oft jafnokar Bonds.
Þetta eru spennandi og tæknilega vel
útfærðar myndir með oft ólíkinda-
legum söguþræði og það er einfald-
lega skemmtilegt.“
Guðmundur er svo sannarlega í
draumastarfi því hann hefur haft
áhuga á kvikmyndum frá unga aldri.
„Mamma tók mig fimm ára gamlan
með sér á myndina „Gone with the
wind“ í Gamla bíói og þá má segja að
teningunum hafi verið kastað. Ég hef
síðan ekki getað slitið mig frá kvik-
myndum og það er auðvitað frábært
að geta sameinað áhugamál og starf.
Ég fór hins vegar ekki á fyrstu
Bond-myndina fyrr en tíu ára, í
Tónabíó árið 1978, en það var mynd-
in „The Spy who Loved Me“ með
Roger Moore. Þá þurftu Íslendingar
að bíða miklu lengur eftir nýjustu
myndunum en nú. Sú sem ég hef
hins vegar séð oftast og held mest
upp á er Goldfinger sem var fram-
leidd árið 1964 en þá var Sean Con-
nery í aðalhlutverki.“
Hann á erfitt með að tilnefna
besta Bondinn. „Þeir hafa allir eitt-
hvað til brunns að bera nema Tim-
othy Dalton. Pierce Brosnan var svo-
lítið minn maður þar til nú að Daniel
Craig kom, sá og sigraði. Mér finnst
hann setja Bond á annan stall og
þessi mynd vera ein besta Bond-
myndin. Ég hlakka bara til þess að
sjá hana aftur.“
Morgunblaðið/Ásdís
Spenntur Guðmundur Breiðfjörð bíður alltaf spenntur eftir nýrri James
Bond-mynd þrátt fyrir að hafa séð tugi þúsunda mynda á lífsleiðinni.
Tengist Bond
tilfinningaböndum
Reuters
Heillandi Daniel Craig virðist
heilla hörðustu Bond-aðdáendur
upp úr skónum.
Góðum morgunmat: Hafragrautur með MS léttkakói klikkar ekki
ásamt sportþrennu til þess að fá vítamín í kroppinn.
Fínni fjölskylduskemmtun: Húsdýragarðurinn er alltaf vinsæll og bíó-
ferð vekur iðulega lukku hjá krökkunum.
Notalegri kvöldstund: Kveikja á kertum, kúra upp í sófa með konunni
og horfa á gamla, góða Bond-mynd.
Guðmundur mælir með:
Camphylobactermengun reyndist
vera í 13% kjúklingasýna sem tekin
voru á markaði á Íslandi á tíma-
bilinu júlí til september í ár. Að
sögn Herdísar Guðjónsdóttur, mat-
vælafræðings hjá Umhverfis-
stofnun er þetta svipað hlutfall og í
rannsóknum undanfarinna ára.
Ekkert sýnanna var mengað af
salmonellu.
Umhverfisstofnun og heilbrigð-
iseftirlit sveitarfélaga hefur reglu-
legt eftirlit með örveruástandi á
kjúklingum á markaði og í gær
birtust niðurstöður frá tímabilinu
júlí til september. Niðurstöðurnar
sýndu að 7 sýni eða tæplega 13%
voru campylobactermenguð. Í flest-
um tilvikum var um ferska kjúk-
lingabita að ræða en í einu tilfelli
fannst mengunin í heilum, frosnum
kjúkling.
„Þetta er svipað eins og verið
hefur,“ segir Herdís. „Það er alltaf
viss fjöldi sýna sýkt af camphylo-
bakter. Fólk er hins vegar meðvitað
um að elda kjúklinginn vel, borða
hann ekki blóðugan og að skera
kjúkling og aðra matvöru, s.s. salat
ekki á sama bretti. Því sýkist fólk
yfirleitt ekki af camphylobakter
sem kemur úr kjúklingi.“
Ekkert sýnanna var mengað af
salmonellu. „Það er mjög sjaldgæft
að það finnist við þetta eftirlit, sem
betur fer, enda er það mun alvar-
legri sýking en camphylobakter.“
Sjö kjúklingasýni sýkt
Morgunblaðið/Kristján
Kjúklingar Engin sýnanna var sýkt
af salmonellu.
Kristjana F. Steingrímsdóttir,
Hrauni í Aðaldal, yrkir um laxveiði:
Ósköp finnst mér aflinn tregur
engir fiskar gefast hér,
en fúll á móti fiska dregur
fyrir augunum á mér.
Og um valkosti yrkir Kristjana:
Mætti ég biðja en bara fá
bitann eða sopann,
mig sem fleiri mundi þá
meira langa í dropann.
Þá um tækifæri:
Mörgum happ úr hendi smó,
hikið varð til skaða,
gefist lag í lífsins sjó
láttu bara vaða.
Og loks yrkir hún um stökuna:
Þjóðarstoltið stakan var.
Styrk og fegurð málsnilldar
áfram grýttar götur bar
gegn um myrkar aldirnar.
Laxveiði og
tækifæri
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
NÝLEG frönsk rannsókn hefur leitt í
ljós að mannslíkaminn framleiðir sitt
eigið verkjalyf sem er margfalt áhrifa-
ríkara en morfín. Svo segir á vefútgáfu
BBC, en efni þetta heitir opiorphin og
þeim sem stóðu að rannsókninni tókst
að einangra það úr munnvatni fólks.
Síðan var efni þessu sprautað í rottur
sem voru undirlagðar af sársauka og
þurfti miklu minna magn af opiorphin
heldur en morfíni til að stöðva verkina.
Þeir Frakkar sem stóðu að rannsókn-
inni binda miklar vonir við að í fram-
haldinu verði hægt að finna nýjar leið-
ir í verkjameðferðum, en þeir segja að
efnið megi finna víðar í líkamanum en í
munnvatni. Hingað til hefur morfín
verið öflugasta verkjalyfið, en í til-
raununum sem gerðar voru á rott-
unum þurfti sexfalt stærri skammt af
morfíni en af opiorphin til að stöðva
sársauka, þannig að það er til mikils að
vinna.
Þeir sem stóðu að rannsókninni eru
enn ekki vissir um hvað eigi sér ná-
kvæmlega stað, en þeir halda að opi-
orphin komi í veg fyrir niðurbrot á
próteinum í líkamanum sem loka þeim
leiðum í heilanum sem senda boð um
sársauka.
Aðrir vísindamenn hafa efasemdir
um mikilvægi þessarar rannsóknar og
segja að engar haldbærar sannanir
séu fyrir því að opiorphin hafi eitthvað
að gera með lífeðlisfræðilega þáttinn í
sársaukaskynjun.
Líkaminn framleiðir
sjálfur besta verkjalyfið
Reuters