Morgunblaðið - 17.11.2006, Qupperneq 28
matur
28 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Gæðastund með vinum og fjölskyldu
Það getur verið strembið fyrir þá sem hafa
ákveðið að eyða ekki 54 dögum í jólaund-
irbúning að komast undan þeim sem eru svo
snemma á ferðinni síðustu helgarnar í nóv-
ember. Með góðum vilja er slíkt þó mögulegt,
einkum þó með því að sniðganga fjölmiðla og
verslunargötur og -miðstöðvar, enda er sem
betur fer enn margt ójólalegt í boði nú þegar
tæpar tvær vikur eru í aðventuna. Maður er
manns gaman og yfirleitt þarf ekki að fara
langt til þess að sækja það fjör enda fjöl-
skylda eða vinir yfirleitt í kallfæri. Á meðan
Kári og kuldaboli skemmta sér úti er því
mælt með að kveikja á kertum og draga upp
spil, hvort heldur sem er hefðbundin eða
borðspil, og kenna krökkunum að spila
Svarta-Pétur og Ólsen Ólsen eða þá gamla
góða spurningaspilið Trivial Pursuit. Skella
síðan poppkorni í örbylgjuna og setja í stóra
skál og súpa á kóki í gleri með til þess að full-
komna fortíðaruppvakningu frá áttunda og ní-
unda áratug síðustu aldar. Þetta er
skemmtun sem klikkar ekki fyrir fólk á milli
þrítugs og fimmtugs – og auðvitað börnin
sem kunna vel að meta samveruna með full-
orðnum.
Samfélagsmyndir í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur
Á hverjum degi dynja yfir okkur myndir
en sjaldnast stöldrum við við þær og skoð-
um betur. Ljósmyndir eru vanmetið list-
form og segja oft meira en hin margtuggðu
þúsund orð. Undanfarið hefur umræða um
innflytjendur hér á landi farið hátt í frétt-
um, þar á meðal Pólverja, en oft erum við
ekkert að leggja okkur eftir bakgrunni
fréttanna. Um þessa helgi eru síðustu for-
vöð að sjá sýningu fréttaljósmyndarans
Chris Niedenthals, POLSKA 1969–1989, í
Ljósmyndasafni Reykjavíkur, Grófarhúsinu,
Tryggvagötu 15. Hann er heimsþekktur
ljósmyndari og hefur unnið m.a. fyrir tíma-
ritin Newsweek, TIME og Der Spiegel. Í
ljósmyndum Chris Niedenthals má skoða
sögu Póllands frá 1960 til dagsins í dag.
Þar er einnig sýning ljósmyndarans
Kjartans Þorbjörnssonar – Golla, sem sýnir
hvað táknmyndir frelsis og fangelsis geta
verið sláandi líkar. Hann heimsótti öll fang-
elsi á Íslandi og festi á filmu þá aðstöðu sem
fangar landsins búa við.
Sitji guðs englar í Þjóðleikhúsinu
Liðlega 60 ár eru liðin frá því að seinni
heimsstyrjöldinni lauk og enn eru á lífi Ís-
lendingar sem muna vel eftir atburðum
hennar. Blessað stríðið, þ.e. hernám breska
hersins og síðan þess bandaríska, hafði
geysilega mikil áhrif á íslenskt samfélag. Í
leikritinu Sitji guðs englar, sem sýnt er í
Þjóðleikhúsinu og gert eftir sögum Guðrúnar
Helgadóttur, er brugðið upp mynd af íslensku
samfélagi á stríðsárunum. Það ætti engin
stórfjölskylda að láta þessa sýningu framhjá
sér fara því hún gefur börnum nútímans
tækifæri til þess að upplifa og skynja hvernig
Ísland var fyrir tíma allsnægtanna, hvernig
Ísland var þegar amma og afi ólust upp. Börn
eru í mörgum burðarhlutverkum og standa
sig frábærlega.
Til að kóróna stríðsárastemninguna má
einnig mæla með þemasýningunni „Jæja eru
þeir þá komnir“ í Byggðasafni Hafnarfjarðar,
Vesturgötu 6, sem fjallar um hernám Breta á
Íslandi.
Á fund við Bond, James Bond
Það eru alltaf tíðindi þegar nýr leikari tek-
ur við hlutverki njósnara hennar hátignar.
Það mun því ekki verða talað um annað en
frammistöðu Daniels Craigs í hlutverki
James Bonds á næstu dögum. Veldur hann
mælt með …
Morgunblaðið/Golli
hlutverkinu eða ekki? Til þess að hafa skoðun
og vera samræðuhæf/ur um þetta dægurmál
líðandi stundar má fara til fundar við James
Bond um helgina – og já allt er breytingum
undirorpið. Nú er honum víst orðið sama
hvort Martini-kokteillinn er hristur eða
hrærður!
Eftirmiðdagskaffi með týndum sauði
Að lokum skal mælt með því að heimsækja
gamla, góða frænku, vin eða vinkonu eða ann-
an týndan sauð sem ekki hefur sést lengi í
lífsgæðakapphlaupinu eða þá bara amstri
hversdagsins. Það er ótrúlegt hvað ein
klukkustund getur styrkt gömul ættar- og
vináttubönd. Best væri auðvitað að slá á þráð-
inn og bjóða viðkomandi í heitt súkkulaði og
vöfflur með rjóma. Það er gott fyrir sálina í
kuldanum og myrkrinu – jafnvel þótt það séu
12 dagar þangað til hinn lögboðni góðverka-
mánuður hefst.
Það einfaldasta af öllu ein-földu er að elda ofnrétt þarsem öllu er skellt saman íofnskúffu, leirpott eða eld-
fast mót og maturinn látinn malla
með kryddum og eldast í ró og næði.
Þetta er einfaldasta matargerð í
heimi og hún er meira að segja fljót-
leg líka, auk þess sem algjör óþarfi
er að standa yfir pottum og pönnum
heldur má nýta tímann í eitthvað
annað á meðan. Setja í þvottavélina,
lesa blöðin, fara í bað, læra með
börnunum, taka á móti gestum eða
bara slappa af …
Uppskrift að notalegum
afslöppuðum kvöldverði
1. Komið heim
2. Fá sér eitthvað gott að drekka
3. Kveikja á ofninum
4. Skera grænmeti og setja það
ásamt öðru í uppskriftinni í leir-
pott eða mót
5. Leggja á borð
6. Láta matinn eldast í ofninum
meðan þú gerir eitthvað annað
7. Njóta þess að borða matinn,
gjarnan í góðum félagsskap við
kertaljós
8. Verði ykkur að góðu!
Afslappaður kvöldverður
Morgunblaðið/Kristinn
Heilsusamlegur fiskréttur Góð kvöldverðarlausn á köldum kvöldum.
Suma daga langar mann helst að geta gripið í eitthvað
einfalt, fljótlegt og þægilegt í matinn. Daglega eru
margir Íslendingar að reyna að leysa þetta mál oftar
en ekki í bílnum á leið heim úr vinnu. Mörgum dettur
í hug að stoppa einhvers staðar og kaupa í matinn,
aðrir ganga lengra og kaupa tilbúinn mat eða panta
hann heim þegar heim er komið, Heiða Björg Hilm-
isdóttir segir það þó alls ekki bestu lausnina.
„ÓGNARSPENNANDI“SOKKABUXNAMÓDEL, VÍSKÍ OG MURAKAMI DJÖRF OG EINLÆG
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
15. nóv.
6.
Skáldverk
Bókmenntaverðlau
Danska ríkisútvarps
Dönsku
bóksalaverðlaunin 2
Undantekningin er mögnuð saga um
hin mörgu andlit ástarinnar og
illskunnar. Hún er margföld metsölubók
í Danmörku og víða um heim, rómuð
jafnt af lesendum sem gagnrýnendum.
„Undantekningin er afbragðs saga ...
ógnarspennandi ... höfundurinn
sýnir ótrúlega innsýn í mannlegt eðli.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Frbl.
„Framúrskarandi skáldsaga . . .
Stórkostleg blanda af spennusögu með
útsmoginni og flókinni atburðarás.“
Michael Eigtved, B.T.
Tómas er ungur stúdent af
landsbyggðinni sem hefur nám í
Reykjavík. Hans fábreytta líf
umturnast þegar hann kynnist
hinni hálfjapönsku Saiko sem
starfar sem sokkabuxnamódel og
kynnir hann fyrir vískídrykkju og
verkum Haruki Murakamis. En
Saiko á sér hræðilegt leyndarmál
...
„Áræðin og grípandi
skáldsaga eftir kjarkaðan
höfund.“
Kári Gunnlaugsson, kistan.is
Ljósmyndari í New York fær
það verkefni að mynda ekkju
eins frægasta ljósmyndara
samtímans. Þau virðast eiga fátt
sameiginlegt annað en að vera
Íslendingar en hann heillast af
aldri hennar, reynslu og visku
og hún af æsku hans, hvatvísi
og aðdáun. Frumleg og
munúðarfull saga.