Morgunblaðið - 17.11.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 29
Ristaður kjúklingaréttur
með sætum kartöflum og
apríkósufeta
fyrir 4
4 sætar kartöflur
4 paprikur
1 tsk. kummin
½ tsk. chilipipar
1 tsk. salt
4 msk. ólífuolía
4 kjúklingalæri
150 g fetaostur
1 dl kotasæla
1 dl sýrður rjómi
12 þurrkaðar apríkósur
fersk mynta
örlítill svartur pipar
½ dl graskersfræ
Afhýðið sætu kartöflurnar og
skerið í aflanga bita, skerið paprikur
í aflanga bita og setjið í ofnfast mót
eða leirpott. Setjið kjúklingalærin í
mótið. Blandið kryddi, olíu og salti
saman og dreifið yfir. Bakið við
200°C í u.þ.b. 30–40 mínútur eða þar
til kjarnhiti í kjúklingalærunum er
73°C og kartölurnar eru orðnar
mjúkar.
Maukið fetaostinn létt með gaffli í
skál og hrærið kotasælunni og sýrða
rjómanum saman við. Saxið apríkós-
urnar smátt og hrærið þeim
saman við ásamt grófsax-
aðri myntu og svörtum pip-
ar. Smakkið til og látið
standa á meðan rétturinn
mallar í ofninum. Stráið
graskersfræjunum yfir
kjúklingaréttinn þegar
hann er tilbúinn og berið
fram, gjarnan með bragð-
miklu rauðvíni.
Heilsusamlegur
fiskréttur
fyrir 4–6
800 g ýsa
½ tsk. salt
1 msk. sítrónusafi
200 g ferskir sveppir, saxaðir
1 laukur, saxaður
½ blaðlaukur, saxaður
2 rauðar paprikur, í bitum
3 gulrætur, í sneiðum
400 g rækjur
1½ dl matargerðarrjómi
150 g rjómapiparostur
1 tsk. paprikuduft
1 msk. karrý
1 msk. humarkraftur
1–2 dl rifinn ostur
Skerið fiskinn í bita og raðið í eld-
fast fat stráið yfir smá salti og sí-
trónusafa. Setjið saxað grænmeti og
rækjur yfir. Setjið rjómaost, mat-
argerðarrjóma og krydd í hristara
eða matvinnsluvél og blandið saman
og hellið yfir fiskinn. Stráið osti yfir
og bakið í u.þ.b 30 mínútur við
180°C. eða þar til fiskurinn er bak-
aður í gegn og kjarnhiti er um 65°C.
Berið fram með hrísgrjónum eða
brauði og fersku salati. Það eina sem
tekur tíma við þennan rétt er að
skera niður grænmeti. Það er snjallt
að undirbúa þennan rétt alveg dag-
inn áður og hafa hann tilbúinn í kæl-
inum og skella í ofninn þegar heim
er komið. Brátt fyllir yndisleg mat-
arlykt húsið …Afslappaður kvöldmatur Ristaður kjúklingur með apríkósufeta.
Eftir Steingrím Sigurgeirsson
sts@mbl.is
Vínsamlög eru starfrækt íflestum víngerðarlöndumEvrópu og eru þau væg-ast sagt misgóð. Stund-
um er metnaðurinn enginn en
stundum er vínsamlagið leiðandi
framleiðandi á sínu svæði og fram-
leiðir vín á heimsmælikvarða.
Á Ítalíu er vínsamlag nefnt
Cantina og gott dæmi um hörku-
gott vínsamlag er Cantina Terlano
í Suður-Týról. Þar sem Suður-
Týrólar eru tvítyngdir hefur sam-
lagið einnig þýskt heiti eða Kelleri
Terlan. Það var stofnað 1893 og
eiga um hundrað vínbændur aðild
að því.
Cantina Terlano Pinot Grigio
2005 er feykistórt hvítvín, sæt
epla- og perubomba með örlitlum
sítrus og vínberjum. Mikið boddí
og langt. 1.650 krónur. Hörkuvín.
18/20
Cantina Terlano Sauvignon
Winkl 2005 er ágengt með ný-
slegnu grasi og sætum hvítum
ávöxtum, feitt með öflugri sýru út
í gegn. 1.750 krónur. 17/20
Cantina Terlano Porphyr Ris-
erva 2003 er vín úr þrúgunni La-
grein, sem á uppruna sinn að
rekja til þessa svæðis og er nær
algjörlega óþekkt utan þess. Vínið
er dökkt, svarblátt og liturinn ekk-
ert farinn að gefa eftir þótt um
þrjú ár séu liðin frá því þrúgurnar
voru pressaðar. Angan vínsins er
kraftmikil með krækiberja- og sól-
berjasaft í bland við dökkt súkku-
laði og örlítið krydd. Vínið er
tannískt mjög, en þau eru mjúk og
yfirbragð vínsins í munni er lag-
skipt þar sem hver hjúpurinn af
öðrum tekur við. Vín til að geyma
í 3–5 ár en gefa ella einhverja
klukkutíma í karöflu áður en það
er borið fram. 2.860 krónur. 19/20
Ég fjallaði í síðustu viku um tvö
alveg hreint virkilega góð Chianti
Classico-vín. Hér er eitt til við-
bótar, en árinu yngra en hin tvö,
frá árinu 2004, og enn einn stíll-
inn.
Castello di Querceto Chianti
Classico 2004 er haustlegt vín með
ristuðum möndlum, kryddjurtum
og laufum í bland við eik og dökk-
rauð rifsber og kirsuber. Örlítið
sprittað og fínleg eik. Í munni
hreint og beint, með flottri fyll-
ingu og kröftuga sýru og tannín.
Einfaldlega gott vín sem er flott
núna en mun halda sér og batna í
2–3 ár. 1.790 krónur. 18/20
Hér að ofan var fjallað um sjald-
gæfa þrúgu – Lagrein. En þær eru
fleiri þrúgurnar sem ekki eru jafn-
þekktar og Cabernet og Char-
donnay. Ítalir eiga margar sem
eru sumar hverjar þegar best læt-
ur síst síðri en þrúgur með
þekktari heiti. Má nefna Nero
d’Avola, Sagrantino, Aglianico,
Primitivo og Fiano í því sam-
hengi.
Teroldego Rotaliano er annað
dæmi en sú þrúga er nær ein-
ungis ræktuð Suður-Týrol og
Trentino héraði á Ítalíu. Heitið
Teroldego er sagt eiga rætur sín-
ar í þýsku og merkja Tyroler
Gold eða Týrólagull. Fáir gera
betri Teroldego en Elisabeta For-
adori og er toppvínið hennar
Granato alveg hreint magnað.
Foradori Teroldego Rotaliano
2003 hefur dökkt yfirbragð, byrj-
ar með sedrusvið og kryddi en
færist síðan yfir í bláberjaböku
blandaðri vanillu og lakkrís. All-
langt í munni með tannínbiti. Þarf
nokkurn tíma til að opna sig. 1.950
krónur 17/20
vín
Morgunblaðið/Ásdís
Óvenjulegar þrúgur frá Ítalíu
edda.is
„FRÁBÆR BÓK“ÁLEITIN OG MARGSLUNGIN
un
sins
2004
Penninn Eymundsson
og Bókabú›ir MM
15. nóv.
2.
Skáldverk
Kristín Steinsdóttir vakti mikla athygli fyrir bók sína
Sólin sest að morgni, sem hlaut afar góðar viðtökur
lesenda og gagnrýnenda. Nú sendir hún frá sér aðra
sögu, skylda þeirri í aðferð og stíl. Bókin fjallar um
Sigþrúði sem er einstæðingur en jarðarfarir eru helsta
upplyfting hennar og þar hittir hún fólk sem er í sömu
sporum í lífinu.
Áhrifamikil saga um óvenjulegt efni, skrifuð af næmi
og skopskyni.
Úr umsögnum gagnrýnenda um Sólin sest að morgni:
„Heillandi saga sem lætur lítið yfir sér en býr yfir
djúpri visku, æðruleysi og ljóðrænni fegurð.“
Sigríður Albertsdóttir, DV
„Gullmoli“ –Hrund Ólafsdóttir, Mbl.
Jón Gnarr: Indjáninn
- skálduð ævisaga
„Jón hefur einstakt lag á að
snerta skrýtnar taugar í manni
og sveifla sakleysislegum
sannleiksþræði milli gleði-
hláturs og gráturs. Við sem
uxum úr grasi á árunum milli
'70-'80 höfum eignast
sagna- ritara sem erfitt
verður að slá við.
Frábær bók!“
Bryndís Loftsdóttir,
Eymundsson