Morgunblaðið - 17.11.2006, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 55
menning
Miðasala í síma 4 600 200 I www.leikfelag.is
ALLIR Í LEIKHÚS Á AKUREYRI!
Aðeins sýnt fram að jólum!
Tryggðu þér miða núna:
Fim 16.nóv kl. 20 UPPSELT
Fös 17.nóv kl. 19 UPPSELT
Lau 18.nóv kl. 19 UPPSELT
Fim 23.nóv kl. 21 UPPSELT
Fös 24. nóv kl 19 örfá sæti laus
Lau 25. nóv kl. 19 örfá sæti laus
Fös 1. des kl. 19 örfá sæti laus
Næstu sýn: 2/12, 8/12, 9/12, 15/12, 16/12. - Ekki við hæfi barna.
„frábær skemmtun – alvöru hrollur.
Flott verk, flottur leikur, flott sýning.“
PBB, DV „frábærlega unnin...
drepfyndið“
ÞT, Mbl
„gríðarlega áhrifamikil sýning“
SLG, RÚV
DV
„í heimsklassa“
JJ, Dagur.net
„enn ein skrautfjöðurin í hatt LA“
HMB, Akureyri.net
Hvað segirðu gott?
Allt fínt.
Ef þú ættir eina ósk, hvers
myndirðu óska þér? (Spurt af síð-
asta aðalsmanni, Berki Jónssyni)
Ef ég ætti eina ósk, myndi ég
óska mér að kunna öll tungumál.
(Auðvitað vill maður líka góða
heilsu og allt það.)
Kanntu þjóðsönginn?
Ég held ég kunni þjóðsönginn.
Áttu þér gælunafn?
Ellý.
Hvað talarðu mörg tungumál?
Ef óskin rætist, öll. ;)
Hvenær fórstu síðast til útlanda
og hvert?
Búlgaríu í júlí.
Uppáhaldsmaturinn?
Ís.
Bragðbesti skyndibitinn?
Ís.
Hvaða bók lastu síðast?
Skáldið.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Ég er mín eigin kona.
Hvaða plötu ertu að hlusta
á?
Hver á plötur !!!! Spilastokk-
urinn (Ipod) minn er með Trans
tónlist.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
X- ið.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Þeir eru svo margir. Elska
sjónvarp.
Þú ferð á grímuball sem …?
Slanga.
Helstu kostir þínir?
Stundvís.
En gallar?
Fljótfær.
Fyrsta ástin?
Er enn að bíða.
Besta líkamsræktin?
Dans.
Algengasti ruslpósturinn?
Það veit ég ekki, ég hendi
honum án þess að tékka á því.
Hvaða ilmvatn notar þú?
Ég á minnsta kosti tíu til
skiptanna.
Hvar myndirðu vilja búa
annars staðar en á Íslandi?
Ítalíu.
Uppáhaldsbloggsíða?
X-Factor síðan.
Hvers viltu spyrja næsta við-
mælanda?
Er líf eftir dauðann?
Bíður enn
eftir fyrstu
ástinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aðalskona vikunnar er Elínborg Halldórsdóttir.
Hún er líklega betur þekkt sem Ellý í Q4U,
íslenskri pönksveit sem sló í gegn í byrjun níunda
áratugarins. Ellý er nú myndlistarmaður sem
býr á Akranesi og er ein af þremur dómurum í
sjónvarpsþættinum X-Factor sem hefur
göngu sína á Stöð 2 í kvöld.
Íslenskur aðall | Elínborg Halldórsdóttir
ÞAÐ HEFUR verið árið tvöþúsund
og tvö eða þrjú sem ég heyrði lagið
„Pilot“ í fyrsta sinn. „Vá,“ hugsaði ég,
„þetta er algjörlega ný stefna fyrir
Maus. Biggi er virkilega búinn að
taka sig á í söngnum og þessar rokk-
uðu raftónlistarpælingar eru al-
gjörlega að virka.“ Ég spurði fjölda
fólks hvort
það hefði
heyrt nýja
lagið með
Maus og
hvernig því
þætti þessi
nýi hljómur.
Fólk horfði
forviða á mig, enda kom á daginn að
„Pilot“ var ekkert með Maus eftir allt
saman. Þetta var víst nýtt lag með
þýsku rafpoppsveitinni The Notwist.
Það er engu líkara en að Birgir Örn
Steinarsson, Biggi í Maus, hafi hugs-
að á svipuðum nótum þegar umrætt
lag fór að heyrast. Hann er allavega
búinn að gefa út plötuna Id sem sæk-
ir óhikandi í brunn The Notwist (og
skyldra sveita eins og Lali Puna) og
stundum má varla heyra hvort er
hvað. Þetta er ekkert leyndarmál,
Biggi nefnir Notwist t.a.m. sem
áhrifavald í viðtölum.
Söngrödd Bigga er umdeild og
hver hefur sína skoðun á „manninum
með járnröddina“. Einhverra hluta
vegna passar rödd Bigga hvergi inn,
vandamálið er ekki að hann hitti ekki
á tónana, heldur er áferðin einhvern
veginn þannig að hún stingur alls
staðar í stúf, bæði í rokksamhengi
Maus og í þessum nýja hljóðheimi.
Því miður veldur þetta ekki sjarm-
erandi áhrifum hjá undirrituðum eins
og aðrar „skrítnar“ raddir eiga til að
gera (t.d. Joanna Newsom).
Lagasmíðar Bigga elta hljómana
fremur fyrirsjáanlega og hér er fátt
sem kemur á óvart. Hins vegar eru
útsetningar víða mjög góðar, sér-
staklega vil ég minnast á tréblástur í
„Perfect Sunday“ og harmónikku í
„Sofðu með ljósið á“ – eina lag plöt-
unnar sem er á íslensku (og finnsku!).
Notkun ritvélar sem slagverks í
„Don’t Break the Silence“ er eft-
irminnileg og rafgaldrar heppnast al-
mennt vel. Þó að rafhljómur af þessu
tagi hafi eiginlega bara heyrst hjá
Worm Is Green (og mögulega Am-
pop) hér á landi er hann margtugginn
erlendis en Biggi lagar sig að helstu
klisjunum og gerir þær að sínum eig-
in.
Það er Id ekki til tekna að hún
hljómar ekkert ægilega vel. Þetta má
t.d. heyra í „Reverend Bill Hicks“ þar
sem hljóðfærin renna saman í óræða
drullu á miðju tíðnisviðinu. Það vant-
ar tilfinnanlega slagkraft í hljóminn,
það er furðulega mikill svefnherberg-
isblær á upptökunum.
Umslagið er hins vegar ótrúlega
vandað, allt frá frábærri grafík Sigga
Eggertssonar til ofurprentunar á
framhliðinni og skemmtilegra hug-
leiðinga frá Bigga um tilurð og um-
fjöllunarefni hvers einasta lags sem
ljá hverju þeirra aukið gildi.
Id slær ekki Neon Golden með
Notwist við, og það ætlast heldur
enginn til þess. Þó að Biggi sé á kunn-
uglegum slóðum í eyrum þeirra sem
hafa fylgst með jaðarpoppi síðustu
fimm ár rétt nær hann síðustu lest og
syngur sig inn í hefðina með ágætis
árangri.
Síðasta lest
TÓNLIST
Geisladiskur
Öll lög eru eftir Birgi Örn Steinarsson og
Tim Simenon. Geoff Smith hjálpar til í
„Don’t Break the Silence“, „Just Like
the End“ og „Sofðu með ljósið á“ og
Sanna Kurki-Suoni er einnig meðhöf-
undur síðastnefnda. Textar eru eftir
Birgi. The Bigital Orchestra flytur. Geoff
Smith og Birgir tóku upp í Reykjavík og
Lundúnum. Hljóðblöndun: Jono Podmore
og Tim Simenon. Hljómjöfnun: Mike
Marsh í The Exchange. Siggi Eggertsson
hannar umslag. 12 tónar gefa út. 38:13.
Biggi – Id
Atli Bollason
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 ● sími 551 4050 ● Reykjavík