Morgunblaðið - 17.11.2006, Blaðsíða 56
56 FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
ÞÚ ÆTTIR AÐ
SETJA MEIRI
SAND Á
ÓSKALISTANN
HE!
HE!
HE! ÉG ÞOLI
EKKI AFMÆLIS-
MARTRAÐIR
ÞESSIR
STEINAR ERU
MJÖG GÓÐIR
TIL ÞESS AÐ
KASTA Í REIÐI!
EFTIR AÐ ÞÚ ERT BÚINN
AÐ KASTA ÞEIM, TEKURÐU
ÞÁ ALLA UPP AFTUR?
JÁ... ÉG NOTA ALLTAF
SÖMU STEINANA...
ÞANNIG AÐ ÞETTA ER
LÍKA GÓÐ HREYFING
SOLLA, GETTU HVAÐ
ÉG ER MEÐ Í HÖNDUNUM
ER ÞAÐ
ÓGEÐSLEGT? ÆTLI
ÞAÐ
EKKI
ER ÞETTA
EITTHVAÐ
ÓGEÐSLEGA
VIÐBJÓÐSLEGT
SEM ENGINN
ANNAR MUNDI
HALDA Á?
ÉG
VEIT NÚ
EKKI
ALVEG
HVORT
ENGINN
MUNDI...
ÉG VIL
EKKI GISKA
Á ÞETTA,
KALVIN!
HVAÐ
MEINARÐU? ÞÚ
VARST ALVEG Á
RÉTTRI LEIÐ!
MANSTU ÞEGAR ÞÚ SAGÐIR VIÐ MIG AÐ
EF ÉG MYNDI GIFTAST ÞÉR ÞÁ MYNDI ÉG
DREKKA KAMPAVÍN MEÐ KÓNGAFÓLKI?
JÁ
ÉG HEF ÁKVEÐIÐ AÐ SÆTTA MIG VIÐ ÞAÐ AÐ
DREKKA BJÓR MEÐ NÁGRÖNNUNUM
GRÍMUR, KANNSKI
ÆTTIRÐU AÐ TAKA
EINHVERN ÞÁTT Í
FÉLAGSLÍFINU Í SKÓLANUM
ÉG
ER AÐ
ÞVÍ!
KENNARINN
SETTI MIG Í
VERKEFNI SEM
TENGIST
SKÓLABLAÐINU
ÉG VISSI ÞAÐ
EKKI! HVAÐ ÞARFTU
EIGINLEGA AÐ
GERA?
EKKI NEITT...
ÉG ÞARF BARA
ALLTAF AÐ
STANDA Á ÞVÍ
ÚTI Í HORNI Í
KENNSLU-
STUNDUM
ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ
VIÐ SÉUM AÐ FARA FRÁ
MÚSAVERÖLD!
FANNST
ÞÉR GAMAN?
JÁ, ÞETTA
VAR ALVEG
YNDISLEGT
FRÍ MEÐ
FJÖLSKYLDUNNI
ÉG Á EFTIR
AÐ HUGSA
MJÖG HLÝLEGA
TIL ÞESSA
STAÐAR Í
LANGAN
TÍMA
EÐA AÐ MINNSTA KOSTI
ÞANGAÐ TIL ÉG FÆ
KREDITKORTAREIKNINGINN
ÉG ER
FARINN,
SLEPPTU
MARY JANE!
EKKI FYRR EN
ÉG ER KOMINN Í
ÖRUGGT SKJÓL
ÉG ER JAFN
HJÁLPARVANA
OG ÞESSI
ÁHÆTTUDÚKKA ÞARNA
EN ÉG MÁ EKKI LEYFA
HONUM AÐ TAKA HANA!
Stjórnvísi –félag um faglegastjórnun býður til málþingsum öldrunarþjónustufimmtudaginn 23. nóvem-
ber næstkomandi undir yfirskrift-
inni „Hvað vil ég að bíði mín á hjúkr-
unarheimili?“
Anna Björg Aradóttir er formað-
ur heilbrigðishóps Stjórnvísi: „Með
málfundinum viljum við fá fram um-
ræðu um hvort og hvernig markmið-
asetningu er háttað í öldrunarþjón-
ustu og þá einkum með tilliti til
starfsemi hjúkrunarheimila. Jafn-
framt viljum við huga að því hvort
þessi markmið séu unnin með íbúum
heimilanna og aðstandendum þeirra
og taki mið af stefnu stjórnvalda í
öldrunarþjónustu.“ segir Anna
Björg.
„Þjóðin er að eldast og mikið hef-
ur verið rætt um skipulag og stefnu
þjónustu við aldraða hérlendis síð-
ustu misseri. Undanfarin ár hefur
áherslan einkum verið á að byggja
stofnanir, hins vegar er ekki óal-
gengt að fólk sem er í brýnni þörf
fyrir aðhlynningu þurfi að bíða lengi
eftir plássi, og þá einkum á höf-
uðborgarsvæðinu. Nú vilja stjórn-
völd og aldraðir meta betur þarfir
aldraðra fyrir þjónustu og leggja
aukna áherslu á heimaþjónustu svo
aldraðir geti sem lengst búið á eigin
heimili.“
Á málþinginu taka til máls fulltrú-
ar ýmissa hópa sem láta sig öldr-
unarþjónustu varða: „Við viljum
fjalla um málefnið á jákvæðum nót-
um: líta til framtíðar og benda á leið-
ir til að bæta þjónustuna og á mark-
vissan hátt. Við hefjum þingið með
ávarpi ráðherra, en þvínæst tekur til
máls Vilborg Ingólfsdóttir skrif-
stofustjóri hjá ráðuneyti heilbrigðis-
og tryggingamála og fjallar um
áherslur heilbrigðisyfirvalda í öldr-
unarþjónustu,“ segir Anna Björg.
„Þóra Karlsdóttir, framkvæmda-
stjóri dvalar- og hjúkrunarheimilis-
ins Holtsbúðar, fjallar um hvernig
hjúkrunarheimili vinna að markmið-
asetningu og eftirfylgd, og aðkomu
íbúa og aðstandenda að ferlinu, og
því næst mun Reynir Ingibjartsson,
formaður Aðstandendafélags aldr-
aðra, greina frá sjónarmiðum að-
standenda aldraðra.“
Elsa B. Friðfinnsdóttir, formaður
Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga, fjallar um hvað hið opinbera
vill fá fyrir það fjármagn sem varið
er til rekstrar hjúkrunarheimila, og
því næst munu Gunnar Eyjólfsson
og Kristbjörg Kjeld flytja brot úr
leikritinu Græna landinu.
María Th. Jónsdóttir, formaður
Félags aðstandenda Alzheimer-
sjúkra, kynnir fræðsluefni sem fé-
lagið hefur gefið út og því næst mun
Marit Gausel Blom, rannsókn-
arstjóri félags- og heilbrigð-
ismálaráðuneytis Noregs, fjalla um
þá áskorun sem umönnun fólks með
heilabilun felur í sér fyrir norska
öldrunarþjónustu: „Loks mun
Hanna Lára Steinsson, for-
stöðumaður rannsóknaseturs í
barna- og fjölskylduvernd við HÍ,
flytja erindi um lög um öldr-
unarþjónustu á Íslandi og á Norð-
urlöndunum og Margrét Margeirs-
dóttir, formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni,
greinir frá sjónarmiðum sinna skjól-
stæðinga,“ segir Anna Björg.
Málþingið stendur frá kl. 8.15 til
11.30 og er haldið í Rúgbrauðsgerð-
inni, Borgartúni 6.
Velferð | Málþing Stjórnvísi um markmiða-
setningu í öldrunarþjónustu 23. nóvember
Hvert stefna
hjúkrunarheimilin?
Anna Björg
Aradóttir fædd-
ist á Húsavík
1955. Hún lauk
stúdentsprófi frá
MT 1975, hjúkr-
unarfræðiprófi
frá HÍ 1980 og
meistaranámi frá
sama skóla 2003.
Að loknu námi starfaði Anna Björg
við heilsugæsluna og sem hjúkr-
unarfræðingur við fangelsin á höf-
uðborgarsvæðinu. Hún er nú yfir-
hjúkrunarfræðingur hjá Land-
læknisembættinu. Anna Björg er
gift Þorleifi Magnússyni verslunar-
stjóra og eiga þau tvö börn.
SAGT hefur verið um fyrstu kvik-
myndina í fullri lengd sem byggð er
á Veggie Tales teiknimyndaseríunni
að það þyrfti verulega skapstygga
og fúllynda menn að hafa ekki ein-
hverja ánægju af henni. Jonah: A
Veggie Tales Movie byggist á biblíu-
sögunni um Jónas og hvalinn og
myndin er sögð jafnt fræðandi og
skemmtileg bæði fyrir börnin og for-
eldrana. Í myndinni er sagan sögð
eða öllu heldur sungin af sérstakri
tegund af póstbera, predikara sem
boðar Guðs orð. Jónas heldur í mikla
sjóferð með sjóræningjum sem end-
ar reyndar með þeim ósköpum að
Jónas og félagi hans Khalil falla fyr-
ir borð og í magann á risavöxnum
hvali. Í þrjá daga og þrjár nætur
íhugar Jónas málin og ákveður loks
að ganga á Guðs vegum. Myndin er
hljóðsett á íslensku. Hún verður
frumsýnd í dag í Sambíóunum.
Litríkt Í fyrstu myndinni um grænmetiskarlana er sagt frá Jónasi í hvalnum.
Jónas og hvalurinn
ERLENDIR DÓMAR
Metacritic 58/100
Variety 70/100
New York Times 50/100
Entertainment Weekly 67/100
(Allt skv. Metacritic)
Frumsýning | Jonah: A Veggie Tales Movie