Morgunblaðið - 24.11.2006, Side 4

Morgunblaðið - 24.11.2006, Side 4
4 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tæplega þrítugum karlmanni fyrir kynferðisbrot gegn stjúpdóttur sinni og vinkonu hennar. Maðurinn mun sitja í fangelsi í þrjú og hálft ár og er gert að greiða stjúpdóttur sinni 1,5 milljónir króna í miskabætur og vin- konu hennar eina milljón króna. Brotin gegn stjúpdótturinni framdi maðurinn á heimili þeirra á tímabilinu frá miðju ári 2000, þegar stúlkan var aðeins sex ára gömul, til október á árinu 2004. Vinkonu stúlkunnar mis- notaði maðurinn á árinu 2004, að minnsta kosti í fimm skipti við heimili sitt. Í niðurstöðu Hæstaréttar er vísað til héraðsdóms en þar kemur fram að maðurinn eigi sér engar málsbætur. Hann hafi ítrekað brotið gegn stjúp- dóttur sinni og hins vegar vinkonu hennar. Málið dæmdu hæstaréttardómar- arnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kol- beinson, Garðar Gíslason, Hrafn Bragason og Markús Sigurbjörnsson. Kolbrún Sævarsdóttir saksóknari sótti málið af hálfu ákæruvaldsins og Sveinn Andri Sveinsson hrl. og Björn Þorri Viktorsson hdl. vörðu manninn. Fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot Í PRÓFKJÖRI Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi á morgun er mikilvægt að valinn verði listi sem skapi sterka heild og endurspegli ákveðna breidd bæði út frá lands- hlutum en ekki síður út frá kynjum. Þetta er mat Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns Sjálf- stæðisflokksins, sem segir flokks- menn bera mikla ábyrgð með þátt- töku í prófkjöri en þar ráðist hver heildarmynd listans verður, ekki ein- ungis í kjördæminu heldur landinu í heild. Þátttakan snúist ekki um stuðning við einn einstakling heldur að raða saman sigurstranglegum lista. Prófkjörið á morgun er það síð- asta hjá flokknum fram að næstu al- þingiskosningum. Að mati Þorgerð- ar eru listar Sjálfstæðisflokksins sem settir hafa verið saman fram að þessu afar sterkir. „En það er engu að síður þannig að það skiptir máli núna þegar gengið er til kosn- inga í þessu stóra kjördæmi, þar sem margir öflug- ir og frambæri- legir einstakling- ar eru í framboði, að flokksmenn hafi það í huga þegar þeir velja á listann að menn eru ekki bara að velja einn einstak- ling heldur eru menn að skapa sterka liðsheild sem endurspegli ákveðna breidd bæði út frá lands- hlutum, en ekki síður út frá kynjum. Það skiptir ekki eingöngu máli fyrir Norðausturkjördæmi heldur fyrir landið allt.“ Að sögn Þorgerðar er mikilvægt að forystukonum innan flokksins vegni vel í prófkjörinu. Þorgerður tekur fram að hún telji þýðingarmik- ið að konur séu ekki eingöngu í bar- áttusætum heldur líka í öruggum þingsætum. Spurð hvort hún sé þeirrar skoð- unar að prófkjör sé leið sem henti konum ekki jafnvel og körlum svarar Þorgerður: „Af eigin reynslu myndi ég svarar þessari spurningu neit- andi, enda hefði ég aldrei getað kom- ist til metorða innan flokksins nema í gegnum prófkjör,“ segir Þorgerður og tekur fram að vissulega hafi hún ákveðnar efasemdir um að prófkjör fleyti konum jafnlangt og körlum. „Við erum með konur sem hafa sýnt það og sannað að þær geti verið öfl- ugir talsmenn flokksins og því tel ég að við eigum að styðja við þær eins og við höfum stutt við karlmenn sem verið hafa öflugir talsmenn flokks- ins.“ Listinn endurspegli ákveðna breidd Varaformaðurinn vill sjá fleiri konur í öruggum þingsætum Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir LÖGREGLAN á Blönduósi hlaut viðurkenninguna „Umferðarljósið“ á Umferðarþingi í gær fyrir fram- lag sitt til umferðaröryggis en þetta var í sjöunda skipti sem verð- launin eru veitt. Það var Sturla Böðvarsson sam- gönguráðherra sem afhenti verð- launin og í ræðu sinni sagði hann meðal annars: „Lögreglan á Blönduósi hefur kennt okkur að aka skikkanlega og fara að lögum – að minnsta kosti í umdæmi sínu.“ Sem dæmi um árangur lögregl- unnar nefndi Sturla að meðaltal sektarboða á stöðugildi á Blönduósi var 361 í fyrra en 43 þegar hlutfall á stöðugildi yfir landið er skoðað. Ljósmynd/Einar Magnús Magnússon Blönduóslögreglan fékk Umferðarljósið HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur dæmt tvo Litháa á fertugsaldri í sjö ára fangelsi fyrir að gera tilraun til að smygla 11,9 kg af amfetamíni til landsins í bíl, sem þeir fluttu til landsins með ferjunni Norrænu í sumar. Mennirnir heita Šarûnas Budvytis og Virûnas Kavalèiukas, báðir bú- settir í Kaunas í Litháen. Þeir komu með Norrænu til Seyðisfjarðar 6. júlí. Við skoðun í farþegarými sáust fjögur ilmspjöld og vakti það athygli tollvarða sem greindu réttinum frá því að mennirnir hefðu virst tauga- óstyrkir og ekki gefið trúverðugar skýringar á ferðum sínum. Við nán- ari leit í bílnum fundust átta 1,5 lítra plastflöskur, fullar af hvítu dufti, sem komið hafði verið vandlega fyrir í eldsneytistanki. Mennirnir tveir sögðust hins vegar ekki kannast við að neitt væri falið í tankinum. Í niðurstöðu héraðsdóms segir m.a, að Šarunas hafi ítrekað orðið ber að ósannsögli um veigamiklar stað- reyndir málsins. Um félaga hans seg- ir í dómnum, að vegna ítrekaðra rangfærslna og ósannsögli sé erfitt að henda reiður á hlut hans í innflutn- ingi fíkniefnanna. Dómurinn horfði til þess m.a. að mennirnir hefðu sam- mælst um upplogna ferðasögu til að villa um fyrir íslenskum yfirvöldum og loks þess, að Virûnas tók sér í framhaldi far með Norrænu í nafni þriðja manns. Var því talið hafið yfir allan skynsamlegan vafa að Virûnas hefði vitað eða honum hlotið að vera ljós raunverulegur tilgangur ferðar- innar. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að báðir mennirnir hafa hlotið refsi- dóma í öðrum ríkjum. Dómurinn taldi mennina ekki eiga sér neinar málsbætur og magn og styrkleiki efnisins, sem þeir fluttu til landsins, var virt til sérstakrar refsiþyngingar. Málið dæmdu héraðsdómararnir Jónas Jóhannsson sem dómsformað- ur, Eggert Óskarsson og Greta Bald- ursdóttir. Jónas taldi átta ára fang- elsi hæfilega refsingu en lenti í minnihluta með þá niðurstöðu. Verjendur voru Sveinn Andri Sveinsson hrl. og Björgvin Jónsson hrl. Sækjandi var Sigríður Elsa Kjartansdóttir saksóknari hjá ríkis- saksóknara. 7 ára fangelsi fyrir tæp 12 kíló af amfetamíni Tveir Litháar áttu sér engar málsbætur að mati dómsins Eftir Andra Karl andri@mbl.is „VIÐ ræddum ýmis málefni tengd tvíhliða viðskiptum Íslands og Finnlands og það eru engin vanda- mál okkar á milli þar,“ sagði Geir H. Haarde forsætisráðherra eftir fund sinn með Matti Vanhanen, for- sætisráðherra Finnlands, í gær- kvöldi. Geir sagði mjög ánægjulegt hversu mörg íslensk fyrirtæki væru að hasla sér völl í Finnlandi og ekki annað að heyra en vel væri tekið undir það. „Þeir eru fullgildir þátt- takendur í alþjóðavæðingunni og þeirra fyrirtæki eru um allan heim, þannig að þeir skilja þetta vel.“ Fjölmörg mál báru á góma á fundi forsætisráðherranna og sérstaklega var farið yfir formennskutíð Finna í Evrópusambandinu (ESB), það sem hefur verið að gerast og það sem fram undan er. Einnig var vikið að stækkun ESB og málefnum Evr- ópska efnahagssvæðisins. „Þar vakna upp spurningar um markaðs- aðgang fyrir okkar vörur í nýju löndunum tveimur og eins aðild okkar að þróunarsjóðum. Við höfum lagt áherslu á að þarna sé virkt jafnvægi og einhliða framlög kæmu ekki til greina nema við fengjum bættan aðgang,“ sagði Geir sem tel- ur Íslendinga eiga ágæta banda- menn í Finnum. Þá gerði Geir grein fyrir þeirri breyttu stöðu sem uppi er á Norð- ur-Atlantshafi og farið var yfir ör- yggis- og varnarmálin. „Við rædd- um þetta í heild sinni og þeir hafa heilmikinn áhuga á því máli. Þeir eru næstu nágrannar við Rússa og hafa mikinn skilning á öllu því sem lítur að vörnum og öryggismálum.“ Í kjölfar fundarins var haldinn blaðamannafundur og beindust spurningar til Vanhanen aðallega að samskiptum Pólverja og Rússa. Einnig voru spurningar varðandi hagkerfi Íslendinga og stöðu þess. „Þarna voru viðskiptablaðamenn frá Reuters og Bloomberg sem höfðu áhuga á þeim málum. Þeir spurðu mikið út í efnahagsmál þjóð- arinnar, gengismál og þess háttar og vildu heyra skoðanir mínar á því.“ Ánægja með aukin við- skipti Íslendinga og Finna Forsætisráðherrar Íslands og Finnlands funduðu í gær Reuters Eftir fund Geir H. Haarde forsætisráðherra og Matti Vanhanen, forsætis- ráðherra Finnlands, takast í hendur í kjölfar fundar þeirra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.