Morgunblaðið - 24.11.2006, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 51
menning
AÐ taka höfundarverk annarra og gera því skil
upp á nýtt hefur alla tíð verið umdeild iðja. Sum-
ir kasta til höndum og raka inn auðfengnu fé á
meðan aðrir leggja metnað í gjörðina, vanda til
verka og nálgast viðfangsefnið af fagmennsku og
virðingu. Út eru komnar þrjár nýjar íslenskar
plötur sem falla kirfilega undir síðari skilgrein-
inguna.
Að virkja fólkið
Plata Sniglabandsins, Rúvtops, er tvöföld og
fer nokkurn veginn í bága við tökulagahugmynd-
ina. Sniglabandið er ekki að flytja lög eftir aðra í
eiginlegum skilningi, heldur byggir á forskrift
sem fólk úti í bæ leggur því í hendur. Lögin eru
sem sagt samin af Sniglabandinu eftir pöntun.
„Þannig er mál með vexti að við höfum verið
að keyra þennan útvarpsþátt okkar um langa
hríð á Rás 2,“ útskýrir Pálmi Sigurhjartarson,
einn af meðlimum Sniglabandsins. „Þar spilum
við það sem fólk vill heyra, fólk kemur með
uppástungu að lagbút, umfjöllunarefni, texta eða
hvaðeina og við spinnum svo við það á staðnum.“
Efni plötunnar er frá sumrunum 2003 og 2004.
Fyrri diskurinn inniheldur lög sem Sniglabandið
tók sér viku í að semja. Síðasti hlustandinn sem
hringdi inn fékk að velja form lagsins og voru
þau ýmist frumflutt í þættinum og látin standa
þannig eða þá að þau voru unnin í hljóðveri. Síð-
ari diskurinn inniheldur hins vegar upptökur úr
þættinum og er öllu frjálslegri, gamansamir
lagabútar eru þar í bland við grín og glens með-
lima sjálfra.
„Þetta er að mörgu leyti ágæt leið til að búa til
tónlist,“ segir Pálmi. „Maður kemur efni á fram-
færi með hjálp fólksins í landinu. Fólkið er með í
þessu og ég tel að það útskýri vinsældir þessara
þátta.“ Pálmi segir að eftir allan þennan tíma séu
meðlimir farnir að þekkja vel inn á hver annan,
bæði tónlistarlega og á öðrum sviðum.
„Maður mætir í tveggja tíma þátt með tómt
blað og þá er um að gera að kunna að láta bolt-
ann rúlla og svo að kasta honum á milli.“ Tólf
laga plata, sem fylgir svipuðum lögmálum og
Rúvtops, er svo væntanleg næsta vor.
Erfitt að velja úr
Sjöunda hljóðversplata Sixties kallast Hvað er
hvað verður og inniheldur lög Jóhanns G. Jó-
hannssonar. Að sögn Rúnars Arnar Friðriks-
sonar söngvara voru þeir félagar í eitt og hálft ár
að fullgera plötuna, enda nóg að gera í spila-
mennskunni. „Okkur langaði til að gera plötu,
sem snerist bara um einn höfund. Við fórum því
að líta í kringum og skoða hvað myndi henta
okkur. Við duttum svo niður á Jóa G. sem á ótrú-
leg lög í tonnatali.“ Meðlimir settu sig í samband
við Jóhann sem var ánægður með tiltækið, og lét
þeim meira að segja í té þrjú lög sem ekki hafa
heyrst áður, en tvö þeirra voru samin árið 1963 á
Bifröst. Jóhanni var svo haldið upplýstum um
gang mála og honum voru reglulega sendar
prufuupptökur. Rúnar segir að sveitin sé nú tek-
in að blanda saman böllum og tónleikum, hún
byrji á því að renna í gegnum þessa lagaskrá Jó-
hanns, enda sé mjög gaman að spila þetta efni.
Það er viss list að nálgast efni annarra og
Rúnar segir að krafan sé ætíð að „bæta“ það sem
fyrir er.
„Svo fara sumir í fýlu þegar uppáhaldslögin
þeirra eru „skemmd“ og það er skiljanlegt, mað-
ur þekkir þá tilfinningu sjálfur. En svo eru aðrir
sem eru himinlifandi. Eðli málsins samkvæmt
tekur fólk þessu misjafnlega.“ Rúnar segir vinn-
una við plötuna hafa verið mikla áskorun en um
leið hafi þetta verið mjög skemmtilegt. Erfiðast
hafi verið að velja úr því ógrynni af frábærum
lögum sem Jóhann hefur samið, og platan hafi
auðveldlega getað verið tvöföld.
„Seventies“-sóttin
Þeir Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Krist-
jánsson hafa þá gefið út plötuna Nokkrar nota-
legur ábreiður. Koma þeir fram sem Stebbi og
Eyfi en þeir hafa troðið upp á tónleikum um ára-
bil þó að fyrst nú sé einhverju þrykkt á plast.
Tónlistin er ljúft popp, ættað frá Ameríku, og
lögin vel flest frá áttunda áratugnum. Meðal ann-
ars eru nokkur laganna runnin undan rifjum
hljómsveitarinnar Bread. Stefán lýsti því í viðtali
við Bylgjuna að hann og Eyfi hefðu tekið mikla
„Seventies“-sótt á dögunum, og í kjölfarið hafi
loks verið ákveðið að kýla á plötu.
Tónlist | Þrjár ólíkar tökulagaplötur eru komnar út
Sniðugir Sniglabandið sendi á dögunum frá sér
tvöföldu gleðiplötuna Rúvtops.
Heiðursmenn Sjöunda hljóðversplata hljóm-
sveitarinnar Sixties kallast Hvað er hvað verður.
Notalegir Þeir félagar Stebbi og Eyfi vita sitt-
hvað um ábreiður frá áttunda áratugnum.
Vélað um annarra verk
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Bor›apantanir í síma 444 5050
e›a vox@vox.is
Jólamatse›ill me› íslenskri
villigæs í a›alrétt frá 1. des.
& villigæs
Jól
GÓÐ
HEILSA
GULLI
BETRI
Lið-a-mót
FRÁ
www.nowfoods.com
APÓTEK OG HEILSUBÚÐIR
H
á
g
æ
ð
a
fr
a
m
le
ið
sl
a
A
ll
ta
f
ó
d
ýr
ir
NNFA QUALITY
No. 1 í Ameríku
Bókin sem allir
eru að tala um
- og þú verður
að lesa!
Einlæg og
átakamikil ævisaga
sem lætur engan
ósnortin.
EINS og greint var frá fyrr í mán-
uðinum hlaut Dagur Kári Pét-
ursson kvikmyndaverðlaun kennd
við Peter Emil Refn en verðlaunin
voru veitt í Kaupmannahöfn síðast-
liðinn miðvikudag.
Þetta er í fimmta sinn sem verð-
launin eru afhent en þeir sem hlotið
hafa þessa viðurkenningu á undan
Degi Kára eru ekki ómerkari leik-
stjórar en Lars von Trier, Lukas
Moodysson, Nicolas Winding Refn
og Natasha Arthy.
Morgunblaðið náði tali af Degi
Kára í gær og var hann að vonum
ánægður með verðlaunin, sem að
hans sögn felast í „milljón krónum
og miklum heiðri“.
Fyrr á árinu hlaut Dagur jafn-
framt Carl Th. Dreyer-kvikmynda-
verðlaunin í Danmörku. Hversu
miklu máli skipta verðlaun af þessu
tagi kvikmyndagerðarmanninn?
„Þau skipta mig ótrúlega miklu
máli. Ég gerði bíómynd í Danmörku
sem ég tel að hafi skipt miklu máli
fyrir danskan kvikmyndaiðnað en
það sáu hana kannski ekki margir.
Því þykir mér vænt um að tvenn af
stærstu kvikmyndaverðlaunum
Danmerkur hafi fallið mér í skaut á
árinu. Það segir mér að fólk meti
myndina að verðleikum,“ sagði
Dagur Kári en umrædd mynd er að
sjálfsögðu Voksne mennesker.
Verðlaunin eru að sögn Dags
veitt í tilefni af Voksne mennesker
þótt vissulega sé jafnframt verið að
verðlauna fyrir önnur unnin störf.
Dagur er þessa dagana á fullu í
undirbúningi fyrir gerð næstu
myndar sinnar, sem hefur fengið
nafnið Good Heart, en áætlað er að
tökur á henni hefjist í mars á næsta
ári.
Mikill heiður
Dagur Kári Pétursson hefur hlotið tvenn dönsk kvikmynda-
verðlaun á árinu og vinnur nú að gerð næstu myndar sinnar
Morgunblaðið/ÞÖKMargverðlaunaður Dagur Kári.