Morgunblaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 23
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Sverrir Jóhannesson eigandi
Rendita ehf. og Sigurþór Sigurðsson eig-
andi Malarvinnslunnar hf. hafa gert með
sér samning um að Malarvinnslan steypi og
reisi fyrir Rendita 24 íbúða fjölbýlishús fyr-
ir 55 ára og eldri, með félagsaðstöðu og
verslunarrýmum á jarðhæð. Húsið verður
fimm hæðir auk bílakjallara undir því öllu.
Á jarðhæð, sem er 1.323 m² að stærð er
gert ráð fyrir 520 m² félagsaðstöðu og dag-
vistun fyrir eldra fólk. Einnig er gert ráð
fyrir 803 m² verslunarrými á hæðinni. Á
þaki jarðhæðar verður 380 m² garður, m.a.
með púttvelli. Á 2. til 5. hæð verða 24 íbúðir,
frá 86 til 127 fermetra að stærð. Öllum íbúð-
um fylgir bílastæði í bílageymslu.
Auk þess að vera stærsta bygging sem
reist hefur verið á Egilsstöðum er hún
fyrsta bygging á Austurlandi þar sem bíla-
kjallari verður undir öllu húsinu. Húsið
verður fyrsta nýbyggingin við Strikið svo-
nefnda í nýjum miðbæjarkjarna á Egils-
stöðum. Verkáætlun gerir ráð fyrir að húsið
verði tilbúið í febrúarlok árið 2008.
Teikning/Rendita ehf.
Miðbæjarhús Fjölbýli fyrir eldra fólk er
fyrsta nýbygging í nýjum miðbæ.
Nýtt fjölbýli
fyrir 55 +
Eftir Steinunni Ásmundsdóttur
steinunn@mbl.is
Egilsstaðir | Alcoa Fjarðaál hefur
verið gagnrýnt fyrir að ráða
starfsfólk frá öðrum fyrirtækjum
á Austurlandi og skapa þannig
ruðningsáhrif í atvinnulífinu.
Sveitarfélög, stofnanir og fyr-
irtæki, þ.m.t. Alcoa Fjarðaál, hafa
nú sameinast um sérstakt átak til
að fá fólk til að flytja á Austur-
land.
Hilmar Sigurbjörnsson, upplýs-
ingafulltrúi frá Alcoa, sagði á
kynningarfundi á Hótel Héraði á
miðvikudagskvöld að sú gagnrýni
að Alcoa Fjarðaál tæki fólk frá
heimafyrirtækjum væri réttmæt
og að hugsanlega hefðu verið
höggvin nokkuð stór skörð í ýmis
fyrirtæki á Austurlandi og dæmi
um að fyrirtæki hefðu verið
gleypt.
„Við viljum ekki að svæðið bíði
skaða af þessu og viljum leggja
okkar að mörkum til að fá fleiri
inn á svæðið,“ segir Hilmar. „Okk-
ur hefur þótt vanta að sveit-
arfélög, stofnanir og fyrirtæki
sameinist um að kynna svæðið því
hér eru næg búsetu-, atvinnu- og
viðskiptatækifæri. Nú hafa þessir
aðilar loks sameinast um slíkt
kynningarátak. Við ætlum sameig-
inlega að koma á fót upplýsingavef
sem Þróunarfélagið mun hýsa og
vera með kynningarefni, auk aug-
lýsingaherferðar á næsta ári.
Þetta er gert til að benda fólki á
hvar það getur fengið upplýsingar
um öll þessi störf og tækifæri sem
eru hér á svæðinu og til að setja
þetta allt saman í jákvætt sam-
hengi. Átakið gengur undir nafn-
inu Austurland tækifæranna.“
Hilmar sagði mikið lagt upp úr
því að heimafyrirtæki myndu
þjónusta álverið og víkka þannig
út starfsemi sína og eflast. „Að
einhverju leyti hefur þetta þýtt að
við höfum hvatt fyrirtæki til að
sameinast til að geta uppfyllt þau
skilyrði sem við gerum og lagt upp
úr því að samningar séu báðum
aðilum hagstæðir og hugsaðir til
langs tíma.“ Hilmar segir Alcoa
Fjarðaál þó ekki vilja að fyr-
irtækin verði of háð sér og að þau
verði því að hafa önnur verkefni
og aðra samninga líka. Talið sé að
slíkt sé samfélaginu fyrir bestu.
Gangsetja á hið nýja álver 9.
apríl kl. 12 á hádegi eftir tæplega
5 mánuði, með 100 MW raforku úr
kerfi Landsvirkjunar, sem nægir
til að gangsetja 42 rafgreining-
arker. Álverið verður komið í full-
an rekstur um áramótin 2007/
2008.
Brugðist við ruðningsáhrifum
Sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir markaðssetja Austurland sameiginlega
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Framkvæmdahámark Um 1.600 manns vinna nú við byggingu álvers Alcoa Fjarðaáls á Reyðarfirði og er
mannaflaþörf verkefnisins í toppi. 1⁄3 hluta verksins verður skilað næsta vor og að fullu í árslok 2007.
Í HNOTSKURN
»Áhyggjur hafa verið afstórfelldri tilfærslu fólks
frá austfirskum fyrirtækjum
til Alcoa Fjarðaáls.
»Sveitarfélög, stofnanirog fyrirtæki á Austur-
landi hafa sameinast um öfl-
ugt kynningarátak til að fá
fólk til búsetu í fjórðungnum.
»Álverið verður gangsetteftir tæpa fimm mánuði.
LANDIÐ
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Borgarbyggð | „Ég á ekki rætur
þarna og þekki ekki staðhætti vel.
Ég skoðaði viðfangsefnið því meira
sem gestur,“ segir Örn Smári Gísla-
son, grafískur hönnuð á auglýsinga-
stofunni Ó!, en tillaga hans var valin
sem nýtt byggðamerki fyrir Borg-
arbyggð.
Eftir sameiningu nokkurra sveit-
arfélaga í Borgafirði og nágrenni
undir heiti Borgarbyggðar var
ákveðið að efna til samkeppni um
nýtt byggðamerki fyrir sveitarfélag-
ið. Fyrstu verðlaun fékk tillaga Arn-
ar Smára, „Fléttan“, og var það
kynnt á opnu húsi í Borgarnesi í
fyrradag.
Opið til túlkunar
Örn Smári segir að merkið hafi
verið spunnið út frá þeim atriðum
sem komu upp í huga hans þegar
hann hugsaði til Borgarbyggðar,
sögunnar, menntuninnar og menn-
ingarinnar. Hann segist hafa tengt
söguna við Skallagrím og Egil og
menntunina og menninguna við
Snorra Sturluson. Grunnformið er
að hans sögn víkingahjálmur en not-
að er fornt fléttumynstur. „Það opn-
ast margt þegar formið er óhlut-
bundið,“ segir Örn Smári og vísar til
þess að menn hafi strax séð út úr
merkinu íþróttamenn, fjöll og jafn-
vel gömlu Hvítarbrúna.
Í umsögn dómnefndar kemur
fram að merkið sé sérstætt í flokki
byggðamerkja. Í stað þess að kalla
sjálfkrafa fram hugmynd um ákveð-
in einkenni, til dæmis í landslagi eða
sögu, eins og algengt er, gefi það til-
efni til fjölbreytilegrar túlkunar og
persónulegrar skírskotunar.
Drykkjarhorn var aðaltáknið í
hinu gamla byggðamerki Borgar-
ness og fjöðin og laxinn hafa yf-
irleitt ekki verið langt undan þegar
merki hafa verið teiknuð í héraðinu.
Örn Smári segist ekki hafa skoðað
fyrri merki mikið enda hafi komið
skýrt fram í keppnisreglum að nýja
merkið mætti ekki líkjast þeim
gömlu.
Sigurvegarinn í keppninni fékk
peningaverðlaun auk þess sem
merkið var keypt, samtals 350 þús-
und kr.
Víkingahjálmur úr
fornu sléttumynstri
Morgunblaðiði/Guðrún Vala
Byggðamerki Páll S. Brynjarsson
bæjarstjóri og Örn Smári Gíslason
við nýtt merki Borgarbyggðar.
Suðursveit | Guðrún Sveinsdóttir, nú búsett á Höfn í Hornafirði, færði Rit-
höfundasambandi Íslands að gjöf húseignina að Sléttaleiti í Suðursveit við
stutta en hátíðlega athöfn fyrir skömmu. Ragnheiður Tryggvadóttir fram-
kvæmdastjóri og Pétur Gunnarsson formaður tóku við gjöfinni.
Um er að ræða nýlegt sumarhús reist þar sem bærinn stóð áður og er gjöf-
in til minningar um foreldra Guðrúnar, Auðbjörgu og Svein Mikael, síðustu
ábúendur að Sléttaleiti, svo og einkabróður Guðrúnar, Þorgils Bjarna. Einn-
ig vill hún með gjöfinni heiðra minningu frænda síns, Einars Braga, skálds
og rithöfundar, en Einar var á unglingsárum við sumarstörf hjá frændfólki
sínu að Sléttaleiti. Í húsinu er að finna öll ritverk Einars og ýmisleg gögn um
höfundarverk hans að auki. Fram kemur í fréttatilkynningu að rithöfundar
hugsa sér gott til glóðarinnar að eflast til ritstarfa eystra.
Gefur rithöfundum hús