Morgunblaðið - 24.11.2006, Qupperneq 48
48 FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
menning
SPENNANDI BÆKUR • SPENNANDI BÆKUR •
ENNANDI BÆKUR •
Súperamma í sumarfríiLangar þig á gíraffabak? Spennandi ferðalag
Skemmtileg bók fyrir yngstu börnin þar sem
ímyndunaraflið fer á flug. Glæsilegar myndir
eftir Brian Pilkington og smellnar vísur eftir
Þórarin Eldjárn.
Amma og Óli
lenda í æsi-
spennandi
eltingarleik við
vasaþjófa í fríinu
sínu. Sólrík saga
fyrir upprennandi
leynilöggur.
Rissu rituunga
langar að sjá
ísbirni og því
leggur hún upp í
langferð norður
eftir ströndum
Grænlands.
Spennandi saga
eftir verðlauna-
höfunda.
(88). Þetta er spurning sem endur-
ómar í huga lesanda. Annar sam-
bærilegur taugaveiklunarkippur sög-
unnar á sér stað þegar óvænt að-
koma aukapersónu afstýrir naum-
lega því að illa fari fyrir Arnari, en þá
hugsar hann með sér: „Eitt augna-
blik fannst mér þessi óvænta inn-
koma hans nánast fáránleg. Hún
minnti mig á ódýra vendingu í amer-
ískri hasarmynd“ (206). Þessi sjálfs-
vitund textans bætir ekki fyrir stirð-
busalega framvinduna heldur beinir
sjónum að því að á köflum bókstaf-
lega ískrar í hjólum söguþráðarins.
Þá er ónefnt það atriði sem pirraði
mig hvað mest en það tengist með-
förum höfunda á fyrstu persónu frá-
sagnaraðferðinni. Þegar fram líða
stundir kemur í ljós að sögumaður
hefur leynt lesendur mikilvægri vitn-
eskju. Svona taktar virka ef sögu-
maður á að vera óáreiðanlegur en í
þessu tilviki virðist nokkuð ljóst að
höfundar ætlast ekki til að lesendur
vantreysti Arnari (nema eftir á, og þá
í þessu eina atriði). Hér er frekar um
að ræða klaufalega aðferð við að við-
halda og skapa spennu og leggja
drög að óvæntri uppljóstrun og er
skýrt merki um að höfundar hafa
verið í vandræðum með hvernig átti
að miðla sakamálaplottinu.
LEIGUBÍLSTJÓRI tekur upp far-
þega á nýársdag og fram undan er
allsérkennilegur túr. Farþeginn virð-
ist efnaður mjög en er drukkinn og
lætur bílinn hendast um bæinn fyrir
sig. Farið er í stuttar heimsóknir á
ólík heimili en bílstjórinn, sem heitir
Arnar, öðlast kannski fyrst sýn á
hversu furðulegur kúnninn er þegar
sá síðarnefndi heimtar að þeir fari í
bíó til að drepa tímann. Síðan er
keyrt á Þingvelli þar sem farþeginn
býður bílstjóranum á nýársfögnuð ís-
lenskra fjármanna og kvöldið er
sannarlega orðið það einkennilegasta
sem Arnar hefur upplifað í sínu
starfi. Arnar fær vel greitt fyrir tíma
sinn og leiðir skilur að lokum en þó
ekki fyrr en hann hefur lent í handa-
lögmálum við farþegann við bakka
Öxarár. Það er því slæm bylta morg-
uninn eftir þegar Arnar kemst að því
að lík manns hafi fundist á Þingvöll-
um, einmitt þar sem leiðir hans og
farþegans skildi og að sjálfsögðu
reynist fórnarlambið vera furðufugl-
inn sem hann hafði hringsólað með
daginn og kvöldið áður. Arnar er
kominn á kaf í morðmál og það sem
verra er, hann er efstur á lista yfir
hina grunuðu. Í grófum dráttum er
þetta inngangurinn að nýrri saka-
málasögu eftir þá Árna Þórarinsson
og Pál Kristin Pálsson sem nefnist
Farþeginn, en áður hafa þeir skrifað
saman bókina Í upphafi var morðið
en auk þess er Árni þekktur fyrir
sakamálaröð sína um Einar blaða-
mann.
Áðurnefndur Einar kemur reynd-
ar allmikið við sögu hér sem auka-
persóna en aðalhlutverk verksins
skipar Arnar leigubílstjóri og sagan
er sögð í fyrstu persónu frá hans
sjónarhorni. Fram-
vindan er hröð enda á
sagan sér stað á örfáum
dögum í upphafi nýs árs
og óhætt er að segja að
atburðarásin sé nægi-
lega straumlínulöguð til
að halda flestum les-
endum við efnið. Bókin
er hins vegar langt í frá
gallalaus og má í því
samhengi nefna nokkur
ólík atriði.
Eftir að Arnar upp-
götvar að hann er
flæktur í ljótt mál og
liggur sjálfur undir
grun tekur hann ein-
kennilega ákvörðun sem virðist alls
ekki eiga sér rót í sálarlífi eða hegð-
unarmynstri venjulegs manns (sem í
þessu tilviki er þrítugur uppgjafa-
bókaútgefandi) en það er að rann-
saka málið upp á eigin spýtur. Hvat-
inn að atburðarásinni er sú stað-
reynd að Arnar tekur upp á því að
sækja heim ókunnugt fólk og yfir-
heyra það, hálfpartinn út í bláinn en
að nafninu til um störf og aðstæður
farþegans. Það kemur líka í ljós að
bókin er meðvituð um fjarstæðuna að
baki þessari hegðun, enda spyr einn
þeirra sem Arnar fer á fund við hvað
hann þykist eiginlega vera að gera
með þessu rannsóknarbrölti sínu
Morð við Öxará
BÆKUR
Skáldsaga
Eftir Árna Þórarinsson og Pál Kristin
Pálsson. JPV útgáfa. Reykjavík. 2006.
239 bls.
Farþeginn
Björn Þór Vilhjálmsson
Árni Þórarinsson Páll Kristinn Pálsson
ÚT ER komin önnur saga
um máfasysturnar Rissu og
Skeglu. Þetta er sjálfstætt
framhald af sögunni um
Rissu sem ekki vildi fljúga.
Hér eru systurnar og for-
eldrar þeirra stödd á hafinu
úti fyrir vesturströnd
Grænlands og bíða vors
þegar ætlunin er að fljúga
heim til Íslands á ný. Syst-
urnar leggja í leyfisleysi í ævintýraför til
Grænlands í leit að ísbjörnum og er för þeirra
meginefni sögunnar.
Texti Kristínar er látlaus og rennur vel í
lestri, Halla Sólveig gefur honum líf með
myndum sínum. Halla hefur bókina á því að
varpa Rissu bókstaflega inn í söguna með
krafti sem hún heldur í gegnum allar mynd-
irnar sem iðulega ná yfir alla síðuna en text-
anum er jafnan komið fyrir í jafnvægi við þær
og öfugt. Persónur eru auðkenndar á sama
máta og í fyrri bókinni, ljúfa Rissa er með fal-
legt hálsskraut eins og mamma hennar en
herskáa Skegla sem er ekki eins varkár er með
mynstur við augun. Öll er fjölskyldan nokkuð
bústin og blómleg sem gerir hana hlýlega og
vingjarnlega. Í textanum eru ýmis heim-
skautadýr kynnt til sögunnar, selir, rostungar,
hnísur, náhvalir og ísbirnir, dýr sem gott er að
ungir lesendur á norðurslóðum þekki, því þau
eru okkar dýr ef svo má segja. Halla Sólveig
fylgir textanum en velur sínar eigin áherslur.
Hún skapar risastóran rostung með stingandi
augnaráð, undirleita hákarla undir yfirborð-
inu, forvitnilega náhvali. Hún birtir líka ýmis
smáatriði sem ekki er að finna í texta, td. fugla
sem renna sér salíbunu niður ísjaka, hlæjandi
seli ofl. og það gæðir samlesturinn með börn-
um meira lífi. Síður þykir mér ganga upp sú
tilraun að innlima texta beint í myndirnar.
Halla býr til drama í myndum sínum, ekki síst
með vali á sjónarhorni, en hún nýtir sér vel
sjónarhorn fuglsaugans, og mikilli hreyfingu
td. þar sem sleðahundur virðist ætla að
stökkva út úr bókinni og glefsa í Rissu.
Viðfangsefni þessarar sögu með sitt for-
vitnilega nafn er óhjákvæmileg hringrás nátt-
úrunnar, dýr éta dýr til að lifa og það gerir þau
ekki vond, þau fylgja bara sinni eðlishvöt. Það
er síðan lesandans að svara spurningunni um
ísbjarnaátið. Ef til vill hefði að ósekju mátt
rifja örlítið skarpar upp persónusköpun úr
fyrri bókinni, ég held að nýfengið hugrekki
Rissu komist frekar til skila til þeirra sem
fylgdust með henni þegar hún þorði ekki að
fljúga. Í texta og myndum skilar sér þó nokkur
fróðleikur um íslenska náttúru og dýralíf, allt á
eðlilegan og leikandi máta. Án þess að börnin
átti sig á því læra þau sitthvað um farfugla, dýr
í norðurhafi og búskaparhætti á Grænlandi.
Ævintýri í norðurhafi
BÆKUR
Barnabók
Eftir Kristínu Steinsdóttur og Höllu Sólveigu Þor-
geirsdóttur, Vaka-Helgafell 2006, 32. bls.
Hver étur ísbirni?
Ragna Sigurðardóttir
Kristín Steinsdóttir Í SVÖRTUM fötum er nú orðin ansi ráðsett
hljómsveit. Þeir eru hér á ferð með plötuna
Orð en á henni eru lög eftir þá sjálfa. Það
heyrist glöggt á þessari
plötu hve vel spilandi hljóm-
sveit Í svörtum fötum er
orðin. Það er eins og þeir
hafi ekkert fyrir því að
skella í eina plötu eða svo,
með hverjum slagaranum á
fætur öðrum. Ég ímynda mér þó alls ekki að
sköpunarferli þeirra sé auðveldara en hjá
öðrum, útkoman hljómar bara svo fjandi
fyrirhafnarlaus.
Lögin þeirra eru flest mjög góð. Þeir
kunna að leggja fram efniviðinn og vinna úr
honum í takt við þann stíl sem þeir hafa til-
einkað sér fyrir löngu. Þeir leika sér að
forminu og brydda aðeins upp á nýjungum.
Gott dæmi um þetta eru lög á borð við
„Ekkert mál“, þar sem krakkar úr Kárs-
nesskóla syngja með og þeir notast við brot
úr „Öxar við ána“. Kannski svolítið væmið á
köflum en Í svörtum fötum er afar fjöl-
skylduvæn hljómsveit. Þeir eru kunna líka
að láta frá sér stórbrotna popp-slagara,
„Þessa nótt“ er gott dæmi um það – lagið
hefði gjarnan mátt vera örlítið lengra, þann-
ig hefði það líklega notið sín enn betur.
Lokalag plötunnar, „Dag einn“, er skemmti-
legur blágresis-smellur sem sýnir skemmti-
lega hlið á hljómsveitinni.
Það sem truflaði mig einna mest við
hlustun plötunnar voru útsetningarnar. Þær
eru ágætar en mér fannst að þær hefðu get-
að verið miklu betri. Mér finnst líka Jónsi
oft hafa sungið miklu betur en hann gerir
hér. Hann er frábær dægurlagasöngvari en
mér fannst röddin ekki njóta sín fyllilega á
plötunni. Stundum fannst mér eins og hann
væri að reyna of mikið á sig. Á plötunni sem
hann gaf út sjálfur fyrir síðustu jól fann ég
betur fyrir hæfileikum hans og getu. Það er
eins og rólyndi dragi fram það besta í hon-
um því að í rólegri lögunum, eins og til
dæmis „Þessa nótt“, syngur hann eins og
engill.
Þrátt fyrir góða plötu þykir mér Í svört-
um fötum í rauninni ekki bæta mjög miklu
við það sem þeir hafa áður gert. Samt finnst
mér eins og þeir eigi í sér nokkrar góðar
plötur í viðbót, sérstaklega ef þeir þora að
vera ævintýragjarnir og festast ekki um of í
viðjum þess sem þeir þekkja vel. Þeir eru
nefnilega mjög góð hljómsveit en þær, eins
og allir, geta lengi batnað.
Vandað að
vanda
TÓNLIST
Geisladiskur
Geisladiskur hljómsveitarinnar Í svörtum fötum
nefndur Orð. Í svörtum fötum eru Áki Sveinsson á
bassa, Einar Örn Jónsson á hljómborð, Jón Jósep
Snæbjörnsson syngur, Hrafnkell Pálmarsson á gítar
og Páll Sveinsson á trommur. Lög og textar eru eftir
þá sjálfa. Í svörtum fötum sáu um upptökustjórn og
útsetningar. Hljóðblöndun og lokavinnsla var í hönd-
um Axels Árnasonar. Sena gefur út.
Í svörtum fötum – Orð
Helga Þórey Jónsdóttir
Þýska fyrir-sætan Heidi
Klum og banda-
ríski söngvarinn
Seal eignuðust
son í gær. Dreng-
urinn, sem vó
tæpar 16 merkur,
hefur fengið
nafnið Johan
Riley Fyodor
Taiwo Samuel.
„Hann er heil-
brigður og fal-
legur og er alveg
eins og móðirin,“
segir í tilkynningu á heimasíðu Seal.
Þau Klum, sem er 33 ára, og Seal,
sem er 43 ára, giftu sig á síðasta ári.
Þau eiga fyrir ársgamlan son, Henry
Guenther Ademola Dashtu Samuel.
Klum á einnig dótturina Leni með
Ítalanum Flavio Briatore, fram-
kvæmdastjóra kappakstursliðs
Renault.
Fólk folk@mbl.is
Hljómsveitin Noise sendir frá sérí dag sína aðra breiðskífu, Wic-
ked. Til að fagna þeirri útgáfu held-
ur hún útgáfuhóf á Dillon á morgun.
Þar hyggst sveitin leika nokkur lög
fyrir gesti og skemmta sér síðan
með þeim að því loknu. Gamanið
hefst kl. 21 og er ókeypis inn.