Morgunblaðið - 24.11.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 21
Á ÁRUNUM 1965–1980
ferðaðist danski ljósmynd-
arinn Mogens S. Koch alls
tíu sinnum til Grænlands
með Hasselblad-myndavél
sína. Afrakstur ferðanna er
yfir 100 þúsund myndir og
hluti af þeim verður á sýn-
ingu sem verður opnuð í dag
í Ljósmyndasafni Reykja-
víkur. Myndirnar sýna í svarthvítu stórbrotið
landslag Grænlands þar sem andstæður ljóss
og skugga eru í öndvegi. Ljósmyndasafn
Reykjavíkur er til húsa í Tryggvagötu 15, 6.
hæð.
Ljósmyndir
Ljós og skuggar
RANGÁRÞING ytra og
Sunnlenska bókaútgáfan á
Selfossi boða til bókamessu
að Laugalandi í Holtum
laugardaginn 25. nóvember
kl. 14:30. Þar verða kynntar
tvær nýútkomnar bækur,
fyrsta bindi Holtamanna-
bókar og þriðja bindi af
Þykkskinnubókum Helga
Hannessonar frá Sumarliðabæ. Bækurnar
verða báðar til sölu á sérstöku tilboðsverði.
Boðið verður upp á glæsilega menningar-
dagskrá. Kvenfélag Holtamanna mun selja
veitingar.
Bókmenntir
Bókamessa
INDVERSKA frétta-
veitan NewKerala.com
gerir forsætisráðherra
Íslands að umfjöllunar-
efni á síðu sinni. Þar er
fjallað um væntanlega
heimsókn Geirs H.
Haarde til Indlands í
janúar á næsta ári og
greint frá erindi heim-
sóknarinnar, sem er að
sögn „tilraun til að koma á góðu sambandi
kvikmyndagerðarmanna á Indlandi og á
Íslandi.“
Óuppgötvað Ísland
Haft er eftir Auðuni Atlasyni, starfs-
manni íslenska sendiráðsins í Delhi, að
Geir muni hitta bæði forseta landsins,
A.P.J. Apdul Kalam, og forsætisráð-
herrann, Manmohan Singh. Auk þess mun
Geir taka þátt í ráðstefnu sem ber yfir-
skriftina India – The Big Picture.
Haft er eftir Auðuni að Íslendingar séu
miklir kvikmyndaáhugamenn.
Þá segir hann einnig að fjöldi Holly-
wood-kvikmynda hafi verið tekinn á Ís-
landi en Bollywood-kvikmyndagerðar-
menn eigi enn eftir að uppgötva kosti
landsins til kvikmyndagerðar.
Bollywood
til Íslands?
Geir H. Haarde
Íslandsvinir? Bollywood-leikararnir
Katrina Kaif og Akshay Kumar taka spor-
ið á Indversku kvikmyndaverðlaununum.
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
Fabúlu fara fram í kvöld í
Tjarnarbíói. Á tónleikunum
flytur Fabúla og hljómsveit
efni af nýútkomnum diski,
Dusk. Fabúla leikur á píanó
og harmóníum, en með henni
koma fram; Birkir Rafn
Gíslason á gítar, Jökull Jörg-
enssen á bassa, Sigtryggur
Baldursson á trommur og
slagverk og Ingunn Halldórsdóttir á selló. Tón-
leikarnir hefjast klukkan 21, miðar eru seldir á
www.midi.is og í verslunum Skífunnar og er
miðaverð 2.000 kr.
Tónlist
Fabúla í kvöld
Fabúla
KANINN er nafn á nýrri útvarpsstöð sem tók
til starfa í gær en stöðin mun ólíkt öðrum starf-
andi útvarpsstöðvum – og Kananum gamla á
Keflavíkurflugvelli – eingöngu flytja íslenska
tónlist. Jakob Frímann Magnússon, tónlist-
armaður og formaður FTT (Félags tón-
skálda og textahöfunda), er einn þeirra
er standa að baki nýju útvarpsstöðinni.
„Stöðin nýja er á vissan hátt óður til
kanans og þeirra jákvæðu tónlistar-
áhrifa sem frá honum stöfuðu og hin-
ar eldri kynslóðir héldu að myndu
hafa skaðleg áhrif á æsku landsins og
íslenska þjóðmenningu.“
Ástæðan fyrir því að stöðin hefur út-
sendingar nú, segir Jakob, er að um þess-
ar mundir kemur megnið af íslenskri tónlist
út og það sé eðli málsins samkvæmt svo gott
sem útilokað að hinar fjölbreytilegu en sértæku
útvarpsstöðvar geti sinnt allri þeirri tónlist svo
að sómi sé að.
„Það eru um 200 plötur sem koma út á árinu
og útvarpsstöðin mun leggja áherslu á nýjar
plötur en þá verður einnig leikin íslensk tónlist
frá fyrri árum, einskonar blanda af því óþekkta
og kunnuglega.“
Hugmyndina að útvarpsstöðinni á Jóhann G.
Jóhannsson sem Jakob segir mikinn frum-
kvöðul innan tónlistarstéttarinnar. „Hann átti
hugmyndina og stofnaði SATT sem seinna varð
að FTT og hann átti hugmyndina að Músíktil-
raunum sem enn eru í gangi.“
Stöðin mun njóta liðsinnis 365 miðla sem láta
útvarpsstöðinni í té tækjabúnað og húsnæði en
FTT og Samtök flytjenda og hljómplötuútgef-
enda, standa straum af kynningarstarfsemi og
öðrum kostnaði.
Útvarpstíðni Kanans verður 94.3 og stefnt er
að því að halda úti útsendingum til 24. desem-
ber. „Við sjáum svo til eftir áramót hvort það er
grundvöllur fyrir að halda áfram útsend-
ingum,“ segir Jakob að lokum.
Kaninn leikur íslenska tónlist
Kaninn Merki nýjustu útvarpsstöðvarinnar
sem leikur eingöngu íslenska tónlist.