Morgunblaðið - 24.11.2006, Page 35

Morgunblaðið - 24.11.2006, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 35 Ármúli 26 / Sími 522 3000 / www.hataekni.is P IP A R • S ÍA • 6 0 5 3 1 YAMAHA RX-N600 6 x 145 W, 4 ohms, 1kHz, 0,7%THD Tengjanlegur við internet Verð: 79.995 kr. YAMAHA RX-V2700 7 x 200W, 4 ohms, 1kHz, 0,7%THD Uppskölun í HDMI: 576p, 720p eða1080i Verð: 169.995 kr. YAMAHA RX-V659 7 x 150 W, 4 ohms, 1kHz, 0,7%THD EISA verðlaunamagnari 2007 Verð: 69.995 kr. Komdu í Hátækni og heyrðu betur það sem við höfum að segja um Yamaha heimabíómagnara. ÉG FAGNA því að taka þátt í fyrsta prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Norð- austurkjördæmi til al- þingiskosninga. Ég býð fram krafta mína til að veita listanum forystu og leiða þá miklu vinnu sem framundan er. Ég treysti flokkssystkinum mínum fullkomlega til að stilla upp sterkum og sigurstranglegum lista og leggja þannig grunn- inn að glæstum sigri í vor. Von mín er sú að þátttakan í prófkjörinu verði með eindæmum góð þannig að niðurstaðan endurspegli sem best vilja sjálfstæðisfólks í kjördæminu. Óviðunandi staða Við sjálfstæðismenn í Norðaust- urkjördæmi þurfum að ganga vask- lega fram því okkar bíður ærið verk- efni. Í síðustu alþingiskosningum var Sjálfstæðisflokkurinn næst- stærsti flokkurinn í kjördæminu, á eftir Framsóknarflokknum, og ein- ungis sjónarmun á undan Samfylk- ingunni. Sú staða þessa langbesta stjórnmálaflokks landsins er að mín- um dómi óviðunandi. Við þurfum svo sannarlega að bretta upp ermarnar og reka af okkur slyðruorðið. Ég er reiðubúinn til að stýra því verki sem við þurfum að vinna til að Sjálf- stæðisflokkurinn verði á ný forystuafl í þessu góða og gjöfula kjördæmi. Ég sætti mig ekki við neitt minna en að Sjálf- stæðisflokkurinn end- urheimti forystu- hlutverk sitt í kjördæminu í kosn- ingunum á vori kom- anda og veit að flokks- systkini mín eru mér sammála um það. Verk að vinna! Við sjálfstæðismenn höfum verk að vinna! Fyrsta skrefið er að setja saman sigurstranglegan lista í próf- kjörinu og mynda breiðfylkingu að baki honum. Næsta skref er svo að setjast yfir málin og skerpa áhersl- urnar. Sé vel að verki staðið óttast ég ekki dóm kjósenda í vor því Sjálf- stæðisflokkurinn hefur sýnt það með verkum sínum að hann á allt gott skilið. Við skulum stíga fyrsta skrefið núna. Það gerum við með því að mæta á kjörstað og kjósa. Sýnum viljann í verki og göngum samstillt til sigurs! Samstillt til sigurs Kristján Þór Júlíusson hvetur íbúa Norðausturkjördæmis til að taka þátt í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins »Ég býð fram kraftamína til að veita list- anum forystu … Kristján Þór Júlíusson Höfundur er bæjarstjóri á Akureyri og býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðaust- urkjördæmi. ÉG HORFÐI á Silfur Egils fyrir skömmu og sá ótrúlega umræðu um innflytjendamál. Magnús Þór Haf- steinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, hélt því fram að innflytj- endur væru orðnir „vandamál“ hér á landi. Þegar hann var spurður um dæmi sagði hann ýmsar sögur af því sem hann hefur heyrt og vitnaði í al- mennan orðróm. Já, „sögur“; það er alltaf hægt að vitna í orðróm þegar maður getur ekki stuðst við staðreyndir. Hér er ein staðreynd: atvinnuleysi á Íslandi hefur minnkað frá tæpum 2% í sept- ember 2005 niður 1% í dag, þrátt fyr- ir þetta „ógnandi“ vandamál frá 1. maí sl., þegar Ísland opnaðist fyrir nýjum ESB-löndum. Magnús Þór talaði um þetta „flæði“; af fólki sem streymir inn í landið, og lét í veðri vaka að það væri að stela störfum frá Íslendingum. Hvernig er hægt að segja þetta þegar fleiri störf eru til nú en fyrir ári síðan? Svarið er einfalt: Magnús Þór er að reyna að hræða fólk til þess að ná stuðningi og vinna sér fylgi. Þetta var undirstrikað með ýmsum rang- færslum sem hann hélt á lofti. Hann talaði um múslima sem „þekkja ekki okkar menningu og þekkja ekki okkar tungumál“. Á hverju átti hann von, að fólk lærði allt um ís- lenska menningu og færi á íslensku- námskeið erlendis áður en það kæmi til lands- ins? Og hvað kemur trú þessu máli við? Hann talaði líka enda- laust um hvað við vær- um lítil þjóð sem þyldi ekki fleiri innflytjendur og hvernig við værum ekki fjölmenningarlegt land. Á hvaða öld lifir hann eig- inlega? Hann sagði líka frá því hvernig sumir „þurfi ekki að læra ís- lensku“. Alþingismaðurinn hefur greinilega ekki kynnt sér lög lands- ins í þessum efnum, þar sem stendur að innflytjendur séu skuldbundnir til að stunda 150 klukkustunda nám- skeið í íslensku til þess að fá dvalar- og atvinnuleyfi. Og fyrirgefið, það er líka bráðnauðsynlegt að læra ís- lensku ef maður ætlar sér að gera meira á Íslandi heldur en að þrífa skrifstofur eða vinna í frystihúsi. Svona fór það. Magnús Þór segir eitt, en veruleikinn er allt annar. Svona tala þjóðernissinnar og ras- istar, um allan heim. Ef maður les grein sem Magnús Þór skrif- aði hinn 3. nóvember sl. á vefsíðunni hans, er hægt að sjá nokkur línurit, kort og gröf sem benda á hvernig inn- flytjendum hefur fjölg- að hér á landi, án þess að benda á að atvinna hefur aukist – ekki minnkað – á sama tíma. Markmið hans virðist það eitt að hræða fólk. Kjarni greinarinnar er að fólk frá Austur-Evrópu (sem er oft notað til að vekja upp kaldastríðstilfinningar) vinnur fyrir lægri laun en Íslend- ingar, þannig að íslenskir verka- menn gætu misst vinnuna. Eins og ég átti von á getur Magnús hins veg- ar ekki sagt hversu margir Íslend- ingar hafa misst starf sitt vegna þessa. En það er ekki meginmálið? Málið er hverjum er um að kenna og hverjir bera ábyrgð á þessu? Ekki þeir sem borga launin, ó, nei: sam- kvæmt Magnúsi er það innflytjand- anum sjálfum að kenna hvað hann fær lítið borgað – hann ber sjálfur ábyrgð á láglaunastefnunni! En eru það ekki bæði stéttarfélög og atvinnurekendur sem bera ábyrgð á því að sjá til þess að verka- menn fái borgað samkvæmt lögum? Jú, reyndar, en það er miklu auð- veldara að skella skuldinni á útlend- inga, og benda á fólk sem er aðeins að reyna að búa sér betra líf og betri menntun fyrir börnin sín, og segja að þetta fólk sé vandamálið. Það tekur vinnu og orku að efla eftirlit með at- vinnurekendum, og sjá til þess að innflytjendur þekki sín sjálfsögðu réttindi. En nei, í stað þess er sagt að þetta fólk eigi að reka úr landi. Lausn Magnúsar, sem hann sagði frá í Silfri Egils, er að setja upp meira og flóknara innflytjendaeftirlit. Það er ekki bara peningasóun heldur mundi það ekki leysa vandamálin. Lausnin er m.a. þessi: ASÍ er búið að taka saman frábæran bækling fyrir innflytjendur, þýddan á rúm- lega 20 tungumál, sem útskýrir rétt- indi þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að komast í hendur hverrar einustu manneskju sem flytur til landsins. Á sama tíma er þarft að efla eftirlit og gera meira til að sjá til þess að at- vinnurekendur borgi öllum starfs- mönnum sínum samkvæmt lögum. Refsa verður þeim sem misnota að- stöðu sína og brjóta lög í þessum efn- um. Það væri bæði ódýrara, skilvirk- ara og áhrifameira en þjóðernissinnadraumur Magnúsar Þórs. Það er ennþá nóg pláss fyrir fleiri hér á landi, sem vinna, borga skatta inn í kerfið, byggja upp landið með okkur og auðga fjölmenningu sem gerir landið okkar betra fyrir alla. Sem betur fer eru flestir Íslendingar sammála því. Það er sorglegur dagur þegar stjórnmálamenn reyna að nota óraunhæfan ótta og hræðsluáróður til að ná stuðningi landsmanna. Þjóðernisdraumur Magnúsar Þórs Paul F. Nikolov gerir at- hugasemdir við málflutning Magnúsar Þórs Hafsteinssonar »Magnús Þór er aðreyna að hræða fólk til þess að ná stuðningi og vinna sér fylgi. Paul F. Nikolov Höfundur er frambjóðandi í forvali VG TENGLAR .............................................. http://paulfnikolov.blogspot.com/ Sagt var: Það voru fulltrúar tveggja samtaka. RÉTT VÆRI: … fulltrúar tvennra samtaka. SNOTRARA VÆRI ÞÓ: … fulltrúar frá tvennum samtökum. (Ath.: Eintala af orðinu samtök (eitt samtak, samtakið) er ekki til.) Gætum tungunnar Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.