Morgunblaðið - 24.11.2006, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. NÓVEMBER 2006 53
dægradvöl
Suðurlandsbraut 20 – 108 Reykjavík
Sími 588 0200 –www.eirvik.is
-hágæðaheimilistæki
Miele þvottavélar
Íslenskt stjórnborð
Ný og betri tromla
Verð frá kr. 114.800
-hreinn sparnaður
1.
verðlaun
í Þýskalandi
W2241WPS
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. exd5 cxd5 4. c4
Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 e6 7. Rf3 Be7
8. c5 0-0 9. Bb5 h6 10. Bf4 Bd7 11.
0-0 Ra5 12. Bd3 b6 13. b4 Rb7 14.
Ba6 Dc8 15. Re5 Re8 16. Hc1 bxc5
17. dxc5 f6 18. Rg6 Hf7 19. Rxe7+
Hxe7
Staðan kom upp í Íslandsmóti
kvenna sem lauk fyrir skömmu í
húsakynnum Skáksambands Íslands.
Íslandsmeistarinn, Lenka Ptácní-
ková (2.262) hafði hvítt gegn Hall-
gerði Helgu Þorsteinsdóttur (1.765).
20. Rxd5! Hf7 21. c6 Bxc6 22. b5
exd5 23. bxc6 og svartur gafst upp.
Lenka fékk fullt hús vinninga á
mótinu en Hallgerður náði þriðja
sætinu með 5 vinninga af 7 mögu-
legum.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Veik vörn.
Norður
♠106
♥ÁK5
♦Á1042
♣ÁKG9
Vestur Austur
♠82 ♠ÁK9754
♥D10432 ♥86
♦G7 ♦K95
♣7652 ♣108
Suður
♠DG3
♥G97
♦D863
♣D43
Suður spilar 3G og fær út spaðaáttu.
Austur hefur komið litnum sínum á
framfæri og því spilar vestur út spaða.
Sagnhafi sér átta slagi og ef hann er
með röntgenaugu getur hann búið til
slag á hjartasjöuna með því að spila
fyrst gosanum og svo níunni. Þannig
fellir hann áttuna aðra í austur, en slík
spilamennska er fráleit fyrir menn
með venjulega sjón. Þetta er enn eitt
spilið frá landsliðskeppni Bandaríkja-
manna í fyrrasumar og yfirleitt fóru
3G einn niður. Nema þar sem austur
dúkkaði fyrsta slaginn. Tveir sagnhaf-
ar fengu á sig þá vörn og nýttu tæki-
færið vel. Þeir tóku laufslagina og ÁK
hjarta. Austur má bara missa einn
tígul og verður því að henda einum
spaða, en þá er óhætt að senda hann
þar inn til að spila frá tígulkóngnum í
lokin.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
Krossgáta
Lárétt | 1 mýrarljós,
8 lýkur, 9 sælu, 10 hrós,
11 mæla fyrir, 13 líkams-
hlutann, 15 ullarsnepla,
18 smákornið, 21 eykta-
mark, 22 sverð, 23 rán-
dýrs, 24 trassafenginn.
Lóðrétt | 2 hrotti, 3 tæp-
lega, 4 ull, 5 var fastur
við, 6 sálmur, 7 kvenfugl,
12 erfiði, 14 háttur,
15 hægur gangur,
16 tapi, 17 dáið, 18 krók,
19 nísku, 20 boli.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fjörs, 4 hadds, 7 nældi, 8 lófar, 9 get, 11 regn,
13 engi, 14 andar, 15 fálm, 17 rusl, 20 arg, 22 kopar,
23 arður, 24 reisa, 25 tórði.
Lóðrétt: 1 fánar, 2 öflug, 3 seig, 4 holt, 5 dofin, 6 sorti,
10 eldur, 12 nam, 13 err, 15 fákur, 16 Lappi, 18 urðar,
19 lerki, 20 arða, 21 galt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
1 110 erlendir fjárfestar hafa keypthlut í Kaupþing banka í útboði.
Hver er forstjóri Kaupþing banka?
2 Ísland er í öðru sæti á lista Eco-nomist yfir ríki þar sem lýðræði
þykir vera mest. Hvaða ríki er í fyrsta
sæti?
3 Skipafélag hefur boðað að þaðhyggist hefja strandsiglingar eft-
ir áramót. Hvaða félag er þetta?
4 Nesútgáfa hefur gefið úr bók umfæreyska málarann Mikines.
Hver er höfundurinn?
Svör við spurningum gærdagsins:
1. Eggert Magnússon og félagar hafa tekið
yfir Lundúnaliðið West Ham, sögufrægt fé-
lag og ýmsir goðsagnakenndir leikmenn
hafa verið hjá félaginu í gegnum tíðina, þar
á meðal þrír sem voru í heimsmeistaraliði
Englendinga á sínum tíma. Hverjir voru
þeir? Svar: Bobby Moore, Martin Peters og
Goeff Hurst. 2. Dómtekið hefur verið mál
dómara gegn ríkinu vegna afnáms úrskurð-
ar kjaradóms í lok árs 2005. Hvaða dóm-
ari er þetta? Svar: Guðjón St. Marteins-
son. 3. Mikil krapastífla er í einu af helstu
fljótum landsins. Hvaða fljót er það? Svar:
Jökulsá á Fjöllum. 4. Avion Group hefur
fengið nýtt en gamalkunnugt nafn. Hvað
heitir félagið nú? Svar: Hf. Eimskipafélag
Íslands.
Spurt er…
ritstjorn@mbl.is
MEGAS er eina
ástæða þess að
undirritaður
minnist tónleika
sem haldnir voru
fyrir löngu til að
safna fé til skógræktar, þeir hétu
,,Rokkskógar“, eða eitthvað svipað.
Óvitað er hvar þau tré eru nið-
urkomin, en karlinn með rauðu leð-
urhúfuna stóð ásamt ógnvekjandi
föruneyti og lék lag sem heitir
Söngur um ekki neitt, lag sem enn
er í miklu uppáhaldi og flutning-
urinn á því þetta kvöld gleymist
ekki.
Á plötu sinni rifjar Magga Stína
svolítið upp þennan tíma, þegar
Megas kom aftur og gaf út fjórar
plötur í röð, skrýtnar og stundum
erfiðar, en frábærar. Tíma sem
kannski fellur stundum í skuggann
af ,,sígildu“ Megasarlögunum og
plötunum, þeim sem hann gerði áð-
ur en hann fór í sína sjálfskipuðu út-
legð í kringum 1979. Á plötu Möggu
Stínu er ekki bara Fílahirðirinn frá
Súrín, heldur Enginn vegur fær,
Aðeins eina nótt, og lagið Björt ljós,
borgarljós.
Fílahirðirinn, sem áður vakti
óhug hjá mörgum, getur varla talist
neitt annað en fallegt lag. Aðra sögu
er að segja um Björt ljós, borg-
arljós, lag sem fjallar um sveitapilt
sem verður fyrir því óláni í borginni
að drottningar bókstaflega vinda úr
honum sakleysið. Lagið er hroll-
vekjandi, jafnt í flutningi Möggu
Stínu sem Megasar.
Önnur lög, ný og gömul, heppnast
líka vel og verða stundum að algjöru
sælgæti. Lagið um óþarflega fund-
vísi Ingólfs Arnarsonar (sem hefur
átt vel við undanfarið), Óskin, sem
er nýtt, og Enn (að minnsta kosti),
þetta eru lög sem mann grunar að
muni lifa lengur en þessi jól. Það eru
margar ástæður fyrir því að platan
er svona vel heppnuð; Magga Stína
velur lögin vel, mikilvægara er að
hún hefur góða tilfinningu fyrir því
sem höfundurinn gerði, áherslur, ris
og lægðir, allt er þetta gert af
snyrtimennsku og lipurð. Þá eru það
hljóðfæraleikararnir, Magga er
heppin að hafa svo góða menn sér til
aðstoðar, sérstaklega ber að nefna
mjúkan og úfinn orgel- og hljóm-
borðsleik Harðar Bragasonar.
En Magga Stína er ekki Megas,
og það veit hún, stundum hljóma
textarnir eins og óviðeigandi,
sungnir með bjartri og lagvísri
röddu Möggu.
Þetta er kannski kosturinn og
gallinn, Magga Stína gefur lögum
Megasar nýja vídd, útsetur upp á
nýjan máta án þess nokkurn tíma að
dauðhreinsa eða færa í auðmeltari
búning, eins og svo algengt er á
þessum síðustu og verstu tímum tö-
kulagaplatna. Um leið vantar auð-
vitað röddina sem upphaflega flutti,
sem virðist manni stundum órjúf-
anlegur hluti þrenningar, lagasmíða,
texta og raddar, en þar með eru líka
gallarnir upp taldir.
Hrollvekjandi sælgæti
TÓNLIST
Geisladiskur
Magga Stína syngur Megas, geislaplata
Möggu Stínu. Á plötunni leika auk
Möggu Stínu Kristinn H. Árnason, Þórður
Högnason, Hörður Bragason, Matthías
Hemstock og Kormákur Geirharðsson.
Öll lög og textar eru eftir Megas. Disk-
urinn var hljóðritaður í Geimsteini en
Guðmundur Kristinn Jónsson, Ívar Ragn-
arsson og Bjarni Bragi Kjartansson komu
að hljóðblöndun.
Magga Stína - Syngur Megas
Gísli Árnason