Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Andra Karl andri@mbl.is „STÓRU skotterturnar eru það vin- sælasta um þessar mundir og stórar rakettur virðast vera komnar í tísku,“ segir Jón Ingi Sigvaldason, sölu- og markaðsstjóri Slysavarn- arfélagsins Landsbjargar, en sölu- staðir flugelda opna flestir fyrir há- degi. „Íslendingar fá seint leið á að skjóta upp flugeldum, ég held að það sé á hreinu.“ Telja má líklegt að á milli 500 og 600 tonn af flugeldum séu flutt inn til landsins fyrir áramótin og er Landsbjörg með um helming af því magni. Samkeppni hefur sett svip sinn á markaðinn og segir Jón Ingi að björgunarsveitirnar finni fyrir henni. „Við finnum að menn sækja töluvert stíft í þetta, okkur finnst það svolítið sárt þar sem fyrir okkar sveitir er þetta oft á tíðum eina tekjulindin,“ segir Jón og bætir við að samkeppninni sé svarað með því að gera þjónustuna og vörurnar enn betri. „Það sem okkur þykir hins vegar sárast er að þessir einkaaðilar herma eftir okkar aðferðum í söl- unni. Þeir klæðast svipað og við og hafa jafnvel álíka borða þannig að fólk áttar sig síður á að það er ekki að styrkja björgunarsveitirnar.“ Fjölskyldupakkarnir fyrst uppseldir í fyrra Burt séð frá skottertum og stórum rakettum segir Jón Ingi fjöl- skyldupakkana sívinsæla. „Þeir hafa aldrei verið vinsælli en í fyrra og voru með því fyrsta sem seldist upp.“ Hann segir aukna sölu í skot- tertum og rakettum ekki draga úr vinsældum fjölskyldupakkanna og í raun vera hreina viðbót. Jón Ingi segir Landsbjörgu leggja mikið upp úr því að vera með nýj- ungar á hverju ári og fyrir þessi ára- mót er t.a.m. ennþá stærri fjöl- skyldupakki en áður og nýjar skottertur. „Svo er hann Trítill dottinn út en við komum með hann aftur á næsta ári, þá svolítið breytt- an.“ Gengisbreytingar hafa töluverð áhrif á verð flugelda og reikna má með að verð hækki eitthvað í ár. Jón Ingi telur þó hækkunina ekki verða mikla, í mesta lagi tíu prósent á þeim vörum sem munu hækka í verði. Perlusýningin á föstudag Eins og undanfarin ár verður veg- leg flugeldasýning við Perluna á vegum Landsbjargar þar sem flug- eldum verður skotið upp í takt við tónlist – hún hefst kl. 20 á föstudag. „Það hafa alveg ótrúlega margir horft á sýninguna og miklum fjölda bifreiða verið lagt, t.a.m. við Háskóla Íslands. Við reynum alltaf að toppa síðasta ár og það verður töluvert af tívolíbombum og stórum skottertum sem fara í sýninguna.“ Að auki verða fjölmargar sýn- ingar víðs vegar um landið, á mis- munandi tímum. Jón Ingi hefur séð um flugeldamál Landsbjargar undanfarin ár og seg- ir töluverða vinnu fylgja áramót- unum sem raunar hefjist snemma á nýju ári. Mest sé þó að gera þegar líða fer að gamlárskvöldi, en t.a.m. þarf að taka á móti flugeldunum, pakka inn og dreifa til björg- unarsveitanna auk þess sem útbúa þarf sölustaði eftir kúnstarinnar reglum. Afgreiðslan er svo aðallega í höndum björgunarsveitamanna og maka þeirra og að sjálfsögðu eru all- ir í sjálfboðavinnu. Stendur hvorki né fellur með veðrinu Fjölmörg félagasamtök og íþróttafélög fjármagna starfsemi sína með flugeldasölu og einna stærst er KR-flugeldar. Lúðvík S. Georgsson, framkvæmdastjóri KR- flugelda, er bjartsýnn á komandi sölutíð sem stendur hæst frá því kl. 16 síðdegis 30. desember til kl. 16 á gamlársdag, en þá selst um 80% allra flugelda. Hann segir vinsældir skotterta hafa vaxið mikið og svo virðist sem fólk kaupi frekar stærri hluti en færri. „Við flytjum inn í kringum 100 tonn sem er töluvert meira en í fyrra, líklega um 30% meira, og bú- umst við góðri sölu. Það er gott efna- hagsástand í þjóðfélaginu og engin ástæða til að halda að það sé neitt lakara en í fyrra,“ segir Lúðvík en KR-flugeldar selja einnig flugelda í heildsölu. „Bróðurparturinn af íþróttafélögum sem eru í flug- eldasölu kaupa hjá okkur, svo eru nokkrar björgunarsveitir og Kiw- anis-klúbbar svo eitthvað sé nefnt.“ Veðurspám ber saman um að vel ætti að viðra á gamlárskvöld en Lúð- vík segir veðurfar ekki hafa mikil áhrif á flugeldasölu. „Það hefur minnkað og ég myndi frekar segja að veðrið spili inn í þannig að það breyti góðu ári í frábært ár. Salan stendur hins vegar ekki né fellur með veðrinu sem þyrfti að öllum lík- indum að vera skelfilegt til þess.“ Íslendingar fá seint leið á að skjóta upp flugeldum Morgunblaðið/G. Rúnar Gera klárt Þorvaldur Örn Finnsson og Hjörtur Már Helgason, sjálfboðaliðar hjá flugeldamarkaði Landsbjargar, unnu hörðum höndum við að undirbúa opnun flugeldasölu þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði. Í HNOTSKURN »Jón Ingi Sigvaldason hjáLandsbjörgu er ósáttur með samkeppnina á flug- eldamarkaðinum. Hann segir samkeppnisaðila líkja eftir björgunarsveitum. »Skotterturnar eru hvaðvinsælastar um þessar mundir og stórar rakettur. »Um 80% flugeldasölu ferfram frá kl. 16 síðdegis 30. desember til kl. 16 á gaml- ársdag. Talið er að 500–600 tonn af flugeldum verði flutt inn í ár sem er þriðjungsaukning frá síðasta ári UNDANFARIN fimm ár hafa Blindrafélagið og Slysavarn- arfélagið Landsbjörg unnið saman að forvörnum til að fyrirbyggja augnslys af völdum flugelda. Í sam- starfi við Íslandspóst, Sjóvá og Prentsmiðjuna Odda munu félögin senda öllum tíu til fimmtán ára börnum gjafabréf fyrir hlífðargler- augum. Samtals hafa 27.309 börn- um verið send gjafabréf og að sögn forsvarsmanna félaganna er vonin sú að þau verði til þess að ekkert þeirra slasist á augum um áramót. Allir ættu að nota flugeldagler- augu, sama hvort verið er að skjóta upp flugeldum eða eingöngu að horfa á. Einnig eru foreldrar hvatt- ir til að vera börnum sínum góðar fyrirmyndir og nota sjálf hlífð- argleraugu auk þess sem þau verða að vera meðvituð um hvað börn þeirra eru að fást við þessa daga, í kjölfar þess að sölustaðir flugelda hafa opnað. Flest slysin má rekja til þess að hvorki er farið eftir grund- vallarreglum um notkun flugelda né leiðbeiningum sem á vörunum eru og er slíkt fikt of algengt. Hlífðargler- augu gefin SAMKVÆMT svifryksmælingum Umhverfissviðs Reykjavíkurborgar sl. nýársnótt var magn svifryks langt yfir leyfilegum mörkum. Mest var það 1.809 míkrógrömm á rúm- metra en hættumörk eru 50 mík- rógrömm á rúmmetra. Aðstæður um nóttina voru þannig að hægur vindur var eða logn og því hélst svifrykið yfir mörkunum lengur en ella hefði verið, eða allt til klukkan átta um morguninn. Samkvæmt spá Veðurstofu Ís- lands er útlit fyrir að vindur verði hægur á nýársnótt en þrátt fyrir það ætti venjulegu fólki ekki að vera nein hætta búin af svifryks- menguninni. Að sögn Magna S. Jónssonar lungnalæknis ættu hins vegar þeir sem eru með astma eða langvinnan lungnasjúkdóm að forð- ast að vera þar sem mengunin er mest, s.s. þar sem verið er að skjóta upp flugeldum. „Ég myndi ráð- leggja þeim sem eru með astma að taka vel af astmalyfjum sínum, jafn- vel 30. desember, en alla vega á gamlársdag og nýársdag.“ Svifryk fer yfir leyfi- leg mörk „Á UNDANFÖRNUM árum hafa þetta langmest verið ungir strákar á bilinu tíu til átján ára sem hafa verið að slasast. Að stórum hluta er það vegna þess að þeir eru ekki með hlífðarfatnað en einnig sökum þess að þeir fikta mikið með sprengjurnar, t.a.m. safna saman púðrinu og kveikja í,“ segir María Soffía Gottfreðsdóttir augnlæknir. „Slysin eru afar misjöfn, allt frá smábrunum á augnlokum, yfirborði augans og andliti í að vera alvarlegri augnskaði þar sem augað getur sprungið og viðkomandi missir sjón.“ María Soffía segir að flest slysin séu minniháttar brunar sem hefði verið hægt að koma í veg fyrir með hlífðargleraugum. Mörg þeirra bera með sér mikil óþægindi en oft er það þannig að púður fer inn í augað og þá þarf að hreinsa það vel. „Oft þarf end- urteknar aðgerðir til að ná öllum sprengju- brotunum og svarta púðrinu sem festist inni í húðinni og yfirborði augans. Yfir það grær þó með tímanum en þegar flugeldurinn nær að sprengja augað þá er það mikið alvar- legra.“ María segir að slysin séu alls ekki bundin við gamlársdag eða -kvöld. Hún segir einnig afar breytilegt milli ára hversu mikið er af slysum. „Í fyrra voru mun færri slys en árið á undan. Svo er hægt að minnast á alda- mótaárið en þá var mjög mikið af slysum og sérstaklega alvarlegum slysum. Þannig að þetta virðist koma í hrinum.“ Háværir hvellir hættulegir heyrninni Minna fer fyrir heyrnarskemmdum vegna flugeldanna en þær eru engu að síður stað- reynd. „Við fáum kannski ekki neinar hol- skeflur strax eftir áramótin en við vitum að svona miklir hvellir skaða heyrnina að ein- hverju leyti. Það er hins vegar ekki jafn áþreifanlegt og ef viðkomandi slasast á sjón, þá flýtir hann sér til læknis,“ segir Bryndís Guðmundsdóttir, heyrnarfræðingur á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, sem segir að nota ætti eyrnahlífar þegar farið er að sprengja, sérstaklega þegar um skottertur er að ræða. „Hvellir og smellir eru það hættulegasta fyrir heyrnina sem við getum fengið. Hægt er að verða fyrir óbætanlegum skaða þar sem hárfrumur inni í kuðungnum skaddast og deyja – þær fáum við aldrei aftur.“ Einkenni heyrnarskemmda geta verið hella fyrir eyrum, jafnvel stöðugt væl sem getur þó farið eftir nokkra klukkutíma. „En það er ekki fyrr en farið er í heyrnarmæl- ingu að það sést hvað hefur gerst. Það sem gerist þegar hvellskaði verður er að þá heyrir viðkomandi ekki vissa óraddaða sam- hljóða. Hann verður kannski ekkert óskap- lega var við það í fyrstu en þetta verður til þess að hann misheyrir oftar og misskilur.“ Fyrst detta út stafir eins og S, F og Þ og er þá erfitt að greina í sundur orð sem byrja á þessum stöfum og hljóðum. Fólk missir þá fljótt hæfileikann til að greina talmál í klið. Ungir drengir líklegastir til að fikta Slys af völdum flugelda eru óumflýjanlegur þáttur áramóta en afar misjafnt er á milli ára hversu mörg þau verða Algengast er að öryggisatriðum sé ekki fylgt og ranglega sé farið með flugeldana Morgunblaðið/Ómar Hávaðamengun? Heyrnarskemmdir geta myndast vegna hávaða af flugeldum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.