Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 17
LANDIÐ
- Velferðarsvið
Húsaleigubætur
Sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar
Athygli er vakin á að samkvæmt lögum um húsaleigubætur nr. 138/1997 skal
endurnýja umsókn um húsaleigubætur árlega í upphafi árs og gildir umsóknin til
ársloka.
Umsækjendur um húsaleigubætur í Reykjavík eru minntir á að skila umsókn fyrir
árið 2007 til Þjónustumiðstöðva Reykjavíkurborgar í síðasta lagi 16. janúar
næstkomandi.
Þeir sem eiga lögheimili í Miðbæ eða Hlíðum hafi samband við
Þjónustumiðstöð Miðborgar/Hlíða, Skúlagötu 21, sími 411 1600.
Þeir sem eiga lögheimili í Vesturbæ hafi samband við Þjónustumiðstöð
Vesturbæjar, Hjarðarhaga 45-47, sími 411 1700.
Þeir sem eiga lögheimili í Laugardal eða Háaleiti hafi samband við
Þjónustumiðstöð Laugardals/Háaleitis, Síðumúla 39, sími 411 1500.
Þeir sem eiga lögheimili í Breiðholti hafi samband við Þjónustumiðstöð
Breiðholts, Álfabakka 12, sími 411 1300.
Þeir sem eiga lögheimili í Árbæ, Grafarholti eða Norðlingaholti hafi
samband við Þjónustumiðstöð Árbæjar/Grafarholts, Bæjarhálsi 1,
sími 411 1200.
Þeir sem eiga lögheimili í Grafarvogi eða Kjalarnesi hafi samband við
Þjónustumiðstöð Grafarvogs, Langarima 21, sími 411 1400.
Rangárþing ytra | Foreldrafélag
Leikskólans á Laugalandi í Holt-
um afhenti leikskólanum tvær
tölvur að gjöf sem ætlaðar eru til
notkunar fyrir leikskólabörn við
leik og störf.
Foreldrafélagið leitaði stuðn-
ings hjá fimm félögum í Rangár-
þingi og fjármagnaði þannig
kaupin. Þau félög sem lögðu fé til
stuðnings verkefninu voru Kven-
félagið Lóa á Landi, Kvenfélagið
Eining í Holtum, Kvenfélagið í
Ásahreppi, Veiðifélag Land-
mannaafréttar og Veiðifélag
Holtamannaafréttar.
Eftirminnileg þakkarræða
Tölvurnar voru afhentar form-
lega við athöfn sem efnt var til í
kjölfar litlu jóla leikskólans. Börn
og starfsfólk leikskólans voru að
vonum ánægð með gjöfina, segir í
fréttatilkynningu, en tölvur hafa
verið hluti af daglegu starfi leik-
skólans um margra ára skeið.
Tími var kominn til að endurnýja
tölvukostinn og Foreldrafélagið
tók það verkefni að sér. Við af-
hendingu gjafarinnar vakti at-
hygli þakkarræða leikskóla-
barnanna sem lesin var lýtalaust
upp af 5 ára stúlku, Brimrúnu Eir
Óðinsdóttur.
Myndin var tekin við
afhendinguna, f.v.: Sigrún Björk
Benediktsdóttir leikskólastjóri,
Sigríður Th. Kristinsdóttir, for-
maður foreldrafélagsins, Jón
Ágúst Reynisson, ritari foreldra-
félagsins, Kjartan G. Magnússon,
formaður Veiðifélags Land-
mannaafréttar, Elínborg Sváfn-
isdóttir, formaður kvenfélagsins
Lóu, og Jóna Valdimarsdóttir,
kvenfélaginu Einingu.
Athöfn Gjafirnar voru afhentar við hátíðlega athöfn í leikskólanum.
Félög í sveitinni gáfu
tölvur í leikskólann
Akranes | Bílver á Akranesi, sem
um árabil hefur rekið bílaverk-
stæði, bílasölu og verið umboðsaðili
fyrir bílaumboð Bernhards, opnaði
á dögunum nýtt þjónustuhús við
Innnesveg 1 á Akranesi. Er hér um
að ræða stóran og glæsilegan sýn-
ingarsal og einnig rúmgott þjón-
usturými.
Hjónin Reynir Sigurbjörnsson og
Magndís Bára Guðmundsdóttir
hafa um árabil rekið Bílver við Ak-
ursbraut á Akranesi og samhliða
verið sölu- og þjónustuaðilar fyrir
Bernhard sem selur Honda- og
Peugeot-bíla. Nú hafa þau selt
verkstæðisreksturinn og munu sér-
hæfa sig í sölu og þjónustu á nýjum
og notuðum bílum frá Bernhard.
Nýja húsnæðið er samtals 1.012
fermetrar, á einni hæð. Bílasalan
og þjónusturými henni tengt verð-
ur í rösklega helmingi húsnæðisins,
en í syðri enda hússins verður lík-
lega verslunarrekstur þegar fram í
sækir. Lóðin er stór og rúmgóð og
gefur mikla möguleika.
Reynir Sigurbjörnsson sagðist í
samtali vera mjög ánægður með
þessa nýju aðstöðu. „Þetta er vel-
heppnuð framkvæmd og húsið vel
staðsett í bænum. Okkur hefur
verið tekið mjög vel í okkar rekstri
og fyrir það er um við þakklát og
erum bjartsýn á framhaldið,“ sagði
Reynir.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Opnun Hjónin Reynir Sigurbjörnsson og Magndís Bára Guðmundsdóttir
opnuðu nýtt þjónustuhús Bílvers með viðhöfn á dögunum.
Bílver og Bernhard
opna nýtt þjónustuhús
Ísafjörður | Lokið er uppfærslu á
Vigor fjárhagshugbúnaði hjá Ísa-
fjarðarbæ og Vigor viðskiptahug-
búnaði hjá Orkubúi Vestfjarða.
Ný útgáfa af hugbúnaðinum gefur
Ísafjarðarbæ frekari möguleika á
rafrænni vinnslu, skönnun skjala og
reikninga og rafrænni samþykkt
reikninga yfir veðviðmót. Kemur
þetta fram í fréttatilkynningu frá
TM Software.
Framfarir hjá
Ísafjarðarbæ
♦♦♦
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Hrönn Garðarsdóttir
læknir við Heilbrigðisstofnun Aust-
urlands á Egilsstöðum hefur fengið
aðra af tveimur námsstöðum til sér-
fræðináms í heimilislækningum, sem
heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytið auglýsti nýverið. Tíu læknar
sóttu um stöðurnar tvær. Sérfræði-
námið er fjögur og hálft ár og þann
tíma verður heimahöfn Hrannar á
HSA á Egilsstöðum, þó svo að um
það bil helming tímans verði hún við
störf utan heilsugæslunnar, á
sjúkrahúsi. Þórhallur Harðarson,
fulltrúi framkvæmdastjóra Heil-
brigðisstofnunar Austurlands segir
tilkomu námsstöðunnar marka tíma-
mót og sé fyrir stofnunina og starfs-
menn hennar bæði viðurkenning og
hvatning. „Stjórnendur og starfs-
menn þurfa að kappkosta að standa
þannig að umgjörð og innihaldi
námsstöðunnar að eftirsóknarvert
þyki að fá slíka stöðu innan HSA.
Þetta er í fyrsta sinn sem við fáum
slíkt tækifæri og það verðum við að
nýta vel. Takist vel til kann þessi
staða Hrannar nú að marka upphaf
farsæls framhalds á sérfræðinámi í
heimilislækningum innan HSA, ekki
bara á Egilsstöðum, heldur víðar,“
sagði Þórhallur.
Góður styrkur frá Giljasjóði
HSA var skömmu fyrir jól afhent-
ur 1,8 milljóna kr. styrkur frá Gilja-
sjóði sem nýta á til breytinga á hús-
næði stofnunarinnar á Egilsstöðum.
Bæta á og stækka aðstöðu fyrir
sjúkra- og iðjuþjálfun og kemur
styrkurinn sér vel þar sem brýn þörf
var orðin á endurbótum þessarar að-
stöðu. Þá gaf Toyota stofnuninni á
dögunum 42" flatskjá sem nýtist vist-
fólki á öldrunardeild.
Námsstaða
innan HSA
Mjóifjörður | Milli fjörutíu og
fimmtíu manns mættu til messu í
Mjóafirði annan dag jóla. Sr. Sig-
urður Rúnar Ragnarsson messaði.
Organisti var Ágúst Ármann Þor-
láksson, sem ásamt félögum úr
kirkjukór Norðfjarðarkirkju leiddi
messusöng. Sóknarpresturinn, org-
anistinn og fleira fólk tók sér far
með björgunarskipinu Hafbjörgu,
skipi björgunarsveitarinnar Gerpis
á Norðfirði. Siglt var fyrir Nýpuna
í blíðskaparveðri til Mjóafjarðar,
góð útsýn var og sáu farþegar bæði
hvíta tófu og fjórar kindur, tvær
svartar og tvær hvítar, yst í Nýp-
unni. Vel var mætt til messunnar,
flestir heimamenn á Mjóafirði
ásamt gestum lengra að komnum,
alls nær fimmtíu manns, en góð
færð er til Mjóafjarðar um þessar
mundir. Eftir messuna þáðu kirkju-
gestir kaffi og meðlæti að Sól-
brekku.
Messa í Mjóafjarðarkirkju
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Egilsstaðir | Almenningssamgöngur
hefjast á milli Fellabæjar og Egils-
staða þann 8. janúar 2007 og verða
þær gjaldfrjálsar.
Í upphafi verða farnar átta ferðir á
dag, til reynslu í þrjá mánuði. Á þeim
tíma verður gerð neytendakönnun,
þ.e. kannað hvort þjónustan mætir
kröfum notenda, t.d. hvort tímasetn-
ingar henta. Ekið verður á einum bíl
alla virka daga og er lagt upp frá
Fellabæ.
Frá því í haust hefur íbúum
Fljótsdalshéraðs gefist kostur á að
nýta sér almenningssamgöngur í
dreifbýli frá þéttbýliskjörnunum
Hallormsstað, Eiðum og Brúarási,
sem reknar eru í tengslum við skóla-
akstur. Samkvæmt ákvörðun bæjar-
stjórnar Fljótsdalshéraðs eru þessar
ferðir gjaldfrjálsar.
Nánari upplýsingar um tímatöflu
aksturins má nálgast á vefnum
www.fljotsdalsherad.is.
Strætó úr Fellabæ