Morgunblaðið - 28.12.2006, Blaðsíða 21
ferðalög
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 21
Moncalvo er staðsett á frjóu land-svæði milli tveggja stórra fljótaog er jarðvegurinn því ein-staklega mjúkur og stein-
efnamikill. Af þessari ástæðu er það rómað
fyrir góða vínrækt og eru vínin Grignolino
og Barbiola þekktust þeirra sem þaðan
koma.
Það hentar þó ekki síður vel til trufflu-
ræktar, en truffla er sveppur sem grær í
eikarskógum og nærist á trjárótum sem
gerir leitina að þeim erfiðari en ella. Hér
áður fyrr voru svín notuð til leitarinnar en
þau reyndust full gráðug í sveppinn og gat
fyrir vikið reynst erfitt að hafa stjórn á
trufflu-áti þeirra. Í dag eru því notaðir sér-
stakir leitarhundar sem ekki éta sveppinn,
sem er einkar dýr fæða.
Daginn sem trufflu-hátíðin var haldin lék
veðrið við hvern sinn fingur og fólk
streymdi að á bílum og í rútum, ólmt í að
fylla vit sín af unaðssemdum lífsins. Ég
bjóst við að á hátíðinni yrði einungis að
finna trufflur, en þar skjátlaðist mér – Ítal-
ir geta enda ekki verið þekktir fyrir annað
en að taka með sér fjölda matvælaafurða til
að kynna og sýna. Á hátíðinni var því að
finna ofgnótt víns, spægipylsur, osta, sveppi
af hinum ýmsu gerðum, dýrindis grænmeti
sem og margar tegundir sætinda.
Þefað, þreifað og skoðað
Trufflu-sýningin og verðlaunaafhendingin
var þó hápunktur hátíðarinnar, þó ekki væri
laust við að bros brytist fram á varnirnar
við að sjá alvarlega eldri menn með hvítan
snjó á kraganum og nefið út í loftið þefa,
þreifa og skoða gaumgæfilega hverja einu
og einustu af þeim tugum trufflna sem þar
var að finna.
Veitt voru síðan verðlaun fyrir fallegustu
truffluna, þyngstu truffluna o.s.frv. en
skemmtilegasti flokkurinn fannst mér vera
fallegasta trufflan, enda trufflur líklega
einn ljótasti sveppur sem til er. Flest verð-
launin á hátíðinni fékk maður sem er kall-
aður Signor Simone Tartufo (sem þýðir
truffla á ítölsku) en hann er að sögn sig-
urstranglegastur ár hvert á þessari hátíð.
Að verðlaunaafhendingu lokinni tók við sala
á verðlauna-trufflunum ásamt hinum.
Ég fékk þær upplýsingar hjá einum sölu-
mannanna að hann hefði selt þyngstu truffl-
una, sem vó 315 grömm og að hana hefði
keypt forstjóri fyrirtækis í Mílanó. Truffl-
unnar ætlaði hann svo að njóta ásamt 20
starfsmönnum sínum sem einnig voru á há-
tíðinni.
Ég hafði fengið ströng fyrirmæli fyrir há-
tíðina að eyða ekki öllum heimilispening-
unum í trufflur, en hver getur staðist slíka
matarparadís? Ég keypti því eina pínulitla
trufflu á 5.000 kr. og sé ekki eftir því.Frek-
ari upplýsingar um Moncalvo og hátíðir sem
haldnar verða í nánustu framtíð er hægt að
finna á http://www.commune.mon-
calvo.asti.it en þess má geta að bærinn er
einnig frægur fyrir sérstaklega fitusprengt
og bragðgott nautakjöt og er hátíð tileinkuð
því haldin þar í desember ár hvert.
Keppni Trufflur eru skoðaðar af mikilli
alvöru í trufflukeppninni í Moncalvo.
Fjölbreytni Sveppi af öllum stærðum og
gerðum var að finna á truffluhátíðinni.
Ljósmynd/ Sigurrós
Fegurð Trufflur verða seint sagðar fagrar, en engu að síður er keppt um fallegustu truffluna.
Trufflu-hátíð mikil er árlega haldin í fjallaþorpinu Moncalvo á
Ítalíu og ákvað Sigurrós Pálsdóttir að gera sér ferð á hátíðina
og kynnast trufflunum betur.
Hann var kallaður
Signore Simone tartufo