Morgunblaðið - 28.12.2006, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Hvernig ætli samkomulagið séþessa dagana á milli ráðherra
gömlu undirstöðuatvinnuveganna?
Einar K. Guðfinnsson eyðilagði með
einu pennastriki markaðinn fyrir ís-
lenzkar landbúnaðarafurðir í
Bandaríkjunum, sem Guðni Ágústs-
son var búinn að byggja upp með
ærnum tilkostnaði, fyrirhöfn og
ferðalögum til Washington. Í gær
bætti sjávarútvegsráðherrann um
betur í fréttum Ríkisútvarpsins og
sagði í raun að landbúnaðarráð-
herrann hefði aldrei náð neinum ár-
angri í markaðssókninni vestra.
Vandinn viðmarkaðs-
setninguna í
Bandaríkjunum,
til dæmis á land-
búnaðarvörum,
stafar hins vegar
ekki af neikvæð-
um áhrifum af
hvalveiðum.
Vandinn stafar
fyrst og fremst af
því að ekki eru til staðar fjárhags-
legar forsendur til að halda þessum
útflutningi áfram. Strax um mitt
þetta ár lágu fyrir miklar efasemdir
útflytjenda á dilkakjöti, til dæmis,
um að þetta gæti haldið áfram,“
sagði Einar K. Guðfinnsson í viðtali
við RÚV. Í framhaldinu var haft eft-
ir honum að menn ættu að snúa sér
að „hinu raunverulega vandamáli,“
sem væri að bændur fengju ekki það
verð, sem dygði til að gera Banda-
ríkjamarkað að fýsilegum kosti.
Gott og vel, kannski er það rétt hjásjávarútvegsráðherra að út-
flutningur á Bandaríkjamarkað
muni aldrei bera sig. En hafa
ákvarðanir hans hjálpað til í þeim
efnum?
Og fyrst Einar K. Guðfinnsson villhorfast í augu við raunveruleg
vandamál, ætti hann kannski að
horfast í augu við staðreyndirnar
varðandi hvalveiðar Íslendinga.
Nánast ekkert ríki er hlynnt þeim,
lítill sem enginn markaður er fyrir
afurðirnar og skaðinn fyrir íslenzkt
efnahagslíf er líkast til nú þegar orð-
inn meiri en ávinningurinn. Þetta er
hið raunverulega vandamál vegna
ákvörðunar sjávarútvegsráðherra.
STAKSTEINAR
Einar K.
Guðfinnsson
Raunveruleg vandamál
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
-.
/
0
0
--
1
+-'
+2
2
'
-3
4!
4!
4!
4!
4!
4!
4!
4!
4!
4!
4!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
3
.
/
1
1
5
-
-
+-
+1
'
)*4!
4!
6
6
4!
4!
4!
6
6
)
%
!7
"12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
(
2
3
+.
3
+-5
+1
.
2
+-
2
8 4!
4!
7 4!
4!
4!
4!
4!
7 4!
4!
9! :
;
! " "#
$% &'
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
9:
;
-
!! =. :
; * <4!
%
7
8
*
= ;
/
-5>-19
>
<
)
"
>
<
6
<6
-5>-19
<
<
8 %
;
%
1 -5
?; *4
*@
"3(4>
><4?"@A"
B./A<4?"@A"
,4C0B*.A" .-2 5<1
553
-10
33'
0..
2-3
(-'
-5.0
-13(
-'.'
-3'/
-/5'
''52
--'.
-'5(
--1.
--5-
-1.2
-155
-33-
-312
-(1.
'51/
'.-5
.<.
-</
-<5
-</
-<-
5<2
5<.
5<1
.<3
-<(
-<-
-<(
-<5
5<3
5<'
kr. 18 þúsund fyrir einstaklinga,
4.500 kr. fyrir elli- og örorkulífeyris-
þega og kr. 6.000 fyrir öll börn yngri
en 18 ára í sömu fjölskyldu.
Þegar hámarksgreiðslum er náð á
fólk rétt á afsláttarkorti. Hingað til
hefur þurft að safna greiðslukvittun-
um og framvísa þeim hjá Trygginga-
stofnun til að fá afsláttarkortið. Frá
áramótum verður sú breyting á að
afsláttarkortið verður sent sjálf-
TRYGGINGASTOFNUN ríkisins
(TR) mun hefja sjálfvirka útgáfu á
afsláttarkortum fyrir læknis- og
heilsugæsluþjónustu nú um áramót-
in. Nýja kortið er liður í viðleitni
Tryggingastofnunar til að auðvelda
sjúkratryggðu fólki að nálgast rétt
sinn, segir í frétt frá stofnuninni.
Árlegar hámarksgreiðslur sem al-
menningur þarf að greiða fyrir lækn-
is- og heilbrigðisþjónustu á ári eru
krafa heim til þeirra sem ná há-
marksgreiðslum ef upplýsingar um
það eru til hjá Tryggingastofnun.
Endurgreiðslur verða lagðar beint
inn á bankareikninga einstaklinga.
Fá ekki upplýsingar frá
sjúkrahúsum og heilsugæslum
Tryggingastofnun berast upplýs-
ingar frá sjálfstætt starfandi sér-
fræðingum, sem eru með samning
við Tryggingastofnun, um flestar
greiðslur sjúklinga fyrir þjónustu
þeirra. Tryggingastofnun berast
hins vegar ekki upplýsingar frá
heimilis- og heilsugæslulæknum eða
sjúkrahúsum. Þessum gögnum þarf
fólk eftir sem áður að safna saman
og senda til þjónustumiðstöðvar eða
til umboða Tryggingastofnunar til að
fá afsláttarkortið, segir í frétt frá
stofnuninni.
TR gefur út sjálfvirk afsláttarkort
Afsláttarkortið sent sjálfkrafa heim til þeirra sem ná hámarksgreiðslum
ÓLÍKT flestum öðrum brotum
fjölgaði fíkniefnabrotum árið 2005
og hefur þessum brotum þá fjölgað
stöðugt frá árinu 2001. Í heild fjölg-
aði fíkniefnabrotum um 58% árið
2005 samanborið við meðalfjölda
brota síðustu fimm árin þar á und-
an.
Þetta kemur fram í Afbrotatöl-
fræði Ríkislögreglustjóra fyrir síð-
asta ár. Brotum vegna vörslu eða
neyslu fíkniefna fjölgar einna mest
eða um 79% og brotum vegna dreif-
ingar eða sölu fíkniefna eða um 43%.
Á sama tíma fækkar hins vegar
innflutningsbrotum nokkuð eða um
27 %.
Á síðasta ári lögðu lögregla og
tollgæsla hald á tæplega 21 kíló af
hassi, sem er töluvert minna en árið
áður og í raun minnsta magn af
hassi sem lagt hefur verið hald á síð-
astliðin sjö ár. Einnig var minna
tekið af amfetamíni en árið á undan
eða tæplega níu kíló. Þá voru tekin
tæplega fimm kíló af maríjúana sem
er mun meira en árið á undan en
svipað og árið 2000.
Fram kemur að minna var tekið
af kókaíni en árið á undan, eða rúm-
lega eitt kíló. Athygli vekur að á
sama tíma og minna er tekið af hassi
er meira tekið af kannabislaufi sem
gæti vísað til þess að meira af efni sé
framleitt hér á landi.
Í fyrra voru 1.396 manns kærðir
fyrir fíkniefnabrot, 1.189 karlar og
207 konur og voru karlar því rúm-
lega 85% kærðra.
Fleiri fíkni-
efnabrot
VEÐUR
FRÉTTIR
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Minn-
ingarsjóði Þorvalds Finnbogasonar
stúdents. Styrkinn hlaut Sigurður
Örn Aðalgeirsson, nemandi á þriðja
ári í rafmagns- og tölvuverkfræði við
Háskóla Íslands, fyrir hæstu meðal-
einkunn að loknu öðru námsári.
Sigurður Örn er stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
Hann hlaut nýsköpunarverðlaun
Forseta Íslands árið 2006 ásamt fé-
laga sínum Jóni Steinari Garðars-
syni fyrir verkefnið Sport Cool og 2.
sætið í hugmyndasamkeppni HÍ,
Upp úr skúffunum, fyrir sama verk-
efni. Sport Cool tæknin er bylting-
arkennd aðferð við meðhöndlun
íþróttameiðsla sem sameinar þekk-
ingu á lífeðlisfræði og eðlisfræði, eðli
frumurofs og varmaflutnings. Sig-
urður Örn hyggur á framhaldsnám
erlendis og hefur hug á að einbeita
sér að hönnun sjálfvirkra stýringa,
segir í fréttatilkynningu.
Minningarsjóður Þorvalds Finn-
bogasonar stúdents var stofnaður af
foreldrum hans, Sigríði Eiríksdóttur
og Finnboga Rúti Þorvaldssyni,
fyrrverandi forseta verkfræðideild-
ar HÍ, á 21 árs afmæli Þorvalds,
þann 21. desember 1952. Tilgangur
sjóðsins er að styrkja stúdenta til
náms við verkfræðideild HÍ eða til
framhaldsnáms í verkfræði við ann-
an háskóla, að loknu grunnnámi í
verkfræðideild HÍ.
Styrkveiting Frá hægri: Ástríður Magnúsdóttir, Vigdís Finnbogadóttir,
Sigurður Örn Aðalgeirsson, Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands,
og Sigurður Brynjólfsson, forseti verkfræðideildar.
Hlaut styrk úr
Minningarsjóði Þorvalds
Morgunblaðið/G. Rúnar
Kaffihús Reyklausu kaffihúsin í miðbæ Reykjavíkur laða til sín barnafólk eins og myndin ber glöggt vitni um.