Morgunblaðið - 28.12.2006, Síða 12

Morgunblaðið - 28.12.2006, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins Til eru eldtefjandi efni sem hægt er að úða yfir kertaskreytingar. Aldrei má þó treysta á að slíkt komi í veg fyrir bruna. Munið að slökkva á kertunum i Mogadishu. AP, AFP. | Hersveitir bráðabirgðastjórnarinnar í Sómal- íu og eþíópskir hermenn náðu í gær á sitt vald mikilvægum bæ í suðurhluta landsins og settu síðan stefnuna á Mogadishu, höfuðborg landsins. Sagt er, að mikið mann- fall hafi orðið í bardögum þeirra við íslamista en þeir hafa látið undan síga á öllum vígstöðvum. Boðað var til skyndifundar í ör- yggisráði Sameinuðu þjóðanna í fyrrakvöld vegna átakanna í Sóm- alíu en ekki náðist samstaða um ályktun, sem fól í sér kröfu um „tafarlaust vopnahlé og viðræður milli stríðandi fylkinga“ og einnig, að allt „erlent herlið skyldi á brottu frá landinu“. Bandaríkja- menn og Bretar vildu ekki fallast á síðari liðinn og sögðu, að fyrst yrði að koma á vopnahléi og viðræðum. Herlið íslamska dómstólaráðs- ins, sem ráðið hefur mestallri Sómalíu, flúði í gær eftir harða bardaga frá bænum Jowhar, sem er 90 km frá Mogadishu. Hafa ísl- amistar flúið nokkra aðra bæi og haldið til Mogadishu en búist er við, að þar muni þeir reyna að berjast til þrautar. Þurrkar, flóð og stríðsátök Ástandið í Sómalíu er hörmu- legt. Þar hafa þurrkar valdið fólki miklum búsifjum á síðustu árum en að undanförnu gífurleg úrkoma og flóð. Talið er, að þau hafi svipt um hálfa milljón manna lífsbjörg- inni. Ekki bæta stríðsátök úr en vegna þeirra hefur Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna neyðst til að hætta loftflutningum til landsins um stundarsakir. Arababandalagið skoraði í gær á Eþíópíustjórn að kalla strax heim herlið sitt frá Sómalíu og Afríku- sambandið tók undir áskorunina á fundi fulltrúa hvorra tveggja sam- takanna í Addis Ababa, höfuðborg Eþíópíu. Íslamistar bú- ast til varnar í Mogadishu Stjórnarherinn í Sómalíu og eþíópskir hermenn stefna til höfuðborgarinnar                       ! !       "!#      !   ! $       !   %!  &     ( !    !      %        )       )       Jerúsalem. AFP, AP. | Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, fyrirskip- aði ísraelska hernum í gær að hefja aftur árásir gegn palestínskum vígahópum á Gaza-svæðinu eftir að tveir ísraelskir unglingar særðust í eldflaugaárás. Skipunin brýtur í bága við um mánaðarlangt vopna- hlé en henni er ætlað að uppræta hópa sem skjóta Qassam-flaugum á Ísrael. Herskáir Palestínumenn í Gaza- borg brugðust við ákvörðuninni með því að hóta frekari árásum, með þeim orðum að ef Ísraelsher léti ekki af aðgerðum sínum á Vest- urbakkanum og á Gaza myndu íbú- ar ísraelsku borganna Sderot og Ashkelon gjalda dýru verði með eldflaugaárásum. Palestínska stjórnin hefur hins vegar hvatt báða aðila til að virða vopnahléið, ásamt því sem Mið- Austurlandakvartettinn svokallaði – Evrópusambandið, Sameinuðu þjóð- irnar, Rússar og Bandaríkjamenn – voru beðnir um að grípa inn í at- burðarásina áður en „ástandið verð- ur alvarlegt“. Á sama tíma lagði Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, áherslu á nauðsyn þess að koma friðarviðræðum í réttan farveg áður en Condoleezza Rice, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, kemur í heimsókn á svæðið í næsta mánuði, að loknum fundi sínum með Hosni Mubarak, forseta Egyptalands. Yfir 60 flaugum skotið á Ísrael Samkvæmt skilmálum vopnahlés- ins frá 26. nóvember dró Ísraelsher lið sitt frá Gaza gegn því, að hætt yrði að skjóta flaugum á Ísrael. Síð- an hefur yfir 60 flaugum verið skot- ið frá Gaza-svæðinu og á aðfaranótt þriðjudags særðust tveir ísraelskir unglingar í árás á Sderot. Olmert fyrirskipar árásir á Gaza FROSTI afi hefur gert víðreist um Rússland að undanförnu, komið við í þorpum, bæjum og borgum um landið þvert og endilangt en í gær kom hann til Moskvu. Þar tók stórmenni á móti honum, meðal annars borgarstjórinn Júrí Lúzhk- ov, sem er ystur til hægri á mynd- inni, en Frosti ætlar að halda þar upp á áramótin og síðan sjálf jól- in, sem í austurkirkjunni eru 7. janúar. AP Frosti afi kominn til Moskvu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.