Morgunblaðið - 28.12.2006, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 23
!!" # "
$
%
&
'
!!!
" # $ #%
&'' !!
((( ley, og hann fylgdist nokkuð undr-
andi með okkur íslensku valkyrj-
unum raða í okkur af hverjum
diskinum á fætur öðrum og einhver
hafði á orði að við værum hreint
eins og úlfar í afmæli, enda svangar
eftir langt ferðalag. Hemsley hætti
að borða löngu á undan okkur en
hvatti okkur þó óspart til dáða. Ekki
tókst þó betur til en svo að við gáf-
umst upp þegar tveir réttir voru eft-
ir og trúr bandarískri menningu
fékk Hemsley afganginn með sér
heim í fjórum risastórum pokum
(doggy-bag).
Í Baltimore er hægt að gera ým-
islegt fleira en versla ef áhugi er á
annað borð fyrir hendi. Í Inner Har-
bor er margt skemmtilegt að finna
og má þar nefna National Aquari-
um, sem er nokkurs konar sædýra-
safn en þó ekki, því þar má líka sjá
fugla og alls kyns skriðkvikindi.
Höfrungasýningar eru þrisvar á dag
og slíka sýningu hafa allir gaman af
að sjá, bæði börn og fullorðnir. Rétt
við National Aquarium er risastór
Barnes & Noble-bókaverslun og
notalegt getur verið að hvíla þreytta
fætur þar innan um bækurnar með
góðan kaffibolla til að gæða sér á, en
Starbucks er með kaffisölu í búð-
inni.
Reyna að missa sig ekki
Verslunarþyrstum Íslendingum
er vert að benda á verslunarmið-
stöðina Arundel Mills. Hún er að-
eins fyrir utan borgina en ferðin
þangað er vel þess virði og meira en
það. Þeir sem ekki eru á bílaleigubíl
geta tekið lest frá Baltimore á flug-
völlinn og þaðan gengur skutla beint
í Arundel Mills. Þar er m.a. að finna
Levi’s-verslun þar sem hægt er að
gera fáránlega góð kaup og önnur
verslun sem benda má á er Bed,
bath & beyond og ef fólk er ekki því
sterkara á svellinu er auðvelt að
missa sig þar og grípa þetta og hitt
án þess að leiða endilega hugann að
því hvernig hægt er að koma hlut-
unum heim. Þegar farið er í Arundel
Mills er skynsamlegt að hafa með
sér einhvers konar körfu á hjólum,
ef bílaleigubíllinn stendur ekki fyrir
utan, til að þurfa ekki að bera varn-
inginn um langa vegu.
Eiginlega veitir ekki af að ætla
sér a.m.k. tvo daga til að fara vel í
gegnum Arundel Mills-verslunar-
miðstöðina.
Eitt er víst og það er að áður en
lagt er af stað frá klakanum kalda
borgar sig að vera búinn að kynna
sér hvað er í boði í Baltimore og
áætla sér einhvern tíma í fleira en
að versla.
Trúðu Þú getur gert hvað sem er ef þú trúir á sjálfan
þig, eru skilaboð borgarstjóra Baltimore til borgarbúa.
Við höfnina Í National Aquarium er margt sem gleður
augað, allt frá smáfuglum til höfrunga og hákarla.
Ýmsar hagnýtar upplýsingar um
Baltimore, m.a. góða leiðsögu-
menn, er að finna á
www.baltimore.org.
Pazo er góður veitingastaður og
gaman að líta þar inn og fá sér ljúf-
fengan kvöldverð í rómantísku
andrúmslofti.
1425 Aliceanna Street Baltimore,
Md 21231. Sími 4105347296.
www.pazorestaurant.com, info-
@pazorestaurant.com
THE New York Times hefur valið
Albaníu sem hagkvæmasta valkost-
inn í ferðalögum. Þetta kemur fram
á vef Aftenposten.
Ekki alls fyrir löngu hefði verið
fullkomlega óraunhæft að mæla með
Albaníu sem áfangastað. Síðustu ár
hefur það þó gerst að Albanía hefur
komist ótrúlega langt í því sem snýr
að lýðræði og þróun. Landið er orðið
flottur – og ódýr – áfangastaður fyr-
ir ferðamenn.
Höfuðborgin Tirana er frábær
byrjunarreitur, sérstaklega ef litið
er til þess að erfitt er að eyða meira
en 1.000 krónum á mann á bestu
veitingastöðum borgarinnar.
Þó er sérstaklega nefndur til sög-
unnar suðurhluti landsins sem þykir
áhugaverðastur og þar er einnig
hægt að spara í stórum stíl.
Í hafnarbænum Saranda má t.d.
fá tveggja manna herbergi með
flottu sjávarútsýni fyrir um það bil
3.000 krónur. Strendurnar við bæinn
þykja líka mjög góðar.
Aðalaðdráttarafl Suður-Albaníu
er Butrint, sem er 2.500 ára gamall
bær. Butrint er á heimsminjaskrá
UNESCO.
Butrint Bær í Suður-Albaníu sem
er á heimsminjaská UNESCO.
Albanía hagkvæmasti
valkosturinn í Evrópu
ÞEIR sem hafa álitið að skemmti-
siglingar væru bara fyrir eldra og
virðulegra fólk þurfa nú að hugsa
upp á nýtt. Á vef Aftenposten er
sagt frá því að mörg skipafélög
stefni markvisst að því að bjóða upp
á skemmtisiglingar þar sem sér-
staklega er gert ráð fyrir því að börn
geti skemmt sér vel.
Flestöll stóru skipafélögin sem
eru í skemmtisiglingum hafa nú eig-
in barnadagskrá, nefna má barna-
og unglingaklúbba, barnapössun og
reyndar allt sem nöfnum tjáir að
nefna.
Barnvænt Á sífellt fleiri skemmti-
ferðaskipum er nú einnig reynt að
höfða til barna.
Skemmti-
siglingar
fyrir börn
Morgunblaðið/Eyþór