Morgunblaðið - 28.12.2006, Síða 30
30 FIMMTUDAGUR 28. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Ragna EfemíaGuðmundsdóttir
fæddist í Sölvanesi í
Lýtingsstaðahreppi
í Skagafirði 23. nóv-
ember 1938. Hún
lést á Heilbrigð-
isstofnun Sauð-
árkróks aðfaranótt
15. desember síðast-
liðins. Foreldrar
hennar voru Guð-
mundur Svein-
björnsson bóndi, f.
10. apríl 1914, d. 11.
október 2004, og
Sólborg Hjálmarsdóttir ljósmóðir,
f. 9. júní 1905, d. 28. mars 1984.
Systkini Rögnu Efemíu eru:
Hjálmar Indriði, f. 1937, Rósa Sig-
urbjörg, f. 1940, Birna Gunn-
hildur, f. 1941, Snorri, f. 1942, og
Sveinbjörn Ólafur, f. 1942.
Árið 1957 giftist Ragna Pétri
Símoni Víglundssyni, f. 28. ágúst
1937. Þau skildu árið 1983. Þau
eignuðust fimm börn. Þau eru: 1)
Guðmundur Svanberg, f. 24. ágúst
1956, kvæntur Elísabetu Guð-
mundsdóttur, f. 21. september
1958, búsett í Mosfellsbæ. Börn
þeirra eru Sólveig Ragna, f. 1982,
Gunnhildur Edda, f. 1984, og Guð-
mundur Smári, f. 1990. Auk þeirra
á Guðmundur Hugrúnu Helgu, f.
1977, með fyrri konu sinni, Mar-
gréti Stefánsdóttur, f. 1955. Hug-
rún Helga er í sambúð með Ar-
inbirni Þórarinssyni, f. 1974, og
eiga þau tvö börn, Elmar Atla, f.
kölluð Ebba, þurfti snemma að
fara að heiman til að vinna fyrir
sér. Eftir að Ragna og Pétur
kynntust bjuggu þau á Sauð-
árkróki en fluttu síðan til Ak-
ureyrar þar sem þau bjuggu til
ársins 1965. Þá fluttu þau að
Sölvanesi, æskuheimili Rögnu, og
hófu búskap. Þar bjuggu þau til
ársins 1972 er þau fluttu að Lauga-
bóli í Steinsstaðabyggð þar sem
þau fóru bæði að starfa við Steins-
staðaskóla. Árið 1976 fluttu þau að
Lækjarbakka 11 á Steins-
staðamelnum þar sem þau höfðu
reist sér hús. Þau fluttu til Reykja-
víkur árið 1982 þar sem Ragna fór
að vinna í þvottahúsinu Fönn. Pét-
ur og Ragna slitu samvistir árið
1983. Ragna flutti að Klapparstíg
12 í Reykjavík þar sem hún bjó til
ársins 1999. Árið 1988 fór Ragna
að vinna hjá Hitaveitu Reykjavík-
ur á Nesjavöllum og vann þar til
1998 þegar hún varð að hætta
vegna veikinda. Ragna flutti á
Bergþórugötu 9 og bjó þar í eitt ár
eða þar til hún flutti aftur til
Skagafjarðar árið 2000. Hún flutti
að Hásæti 3a en auðnaðist aðeins
að búa þar í nokkra mánuði, vegna
veikinda sinna lagðist hún inn á
Heilbrigðisstofnun Sauðarkróks
árið 2001. Þar átti hún heimili á
deild fimm þar til hún lést. Ragna
var mikill náttúruunnandi og hafði
yndi af ferðalögum innan lands
sem utan. Hún vann í tíu sumur hjá
Ferðaskrifstofu Úlfars Jacobsens
sem matráðskona í fjallaferðum og
gat notið þess að sameina áhuga-
mál og vinnu. Ragna hafði yndi af
söng og starfaði með mörgum kór-
um þegar hún bjó í Skagafirði.
Ragna Efemía verður jarðsungin
frá Sauðárkrókskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 14.
2001, og Telmu Mary,
f. 2004. 2) Margrét
Björg, f. 28. desem-
ber 1957, gift Björg-
vini Margeiri Guð-
mundssyni, f. 12.
apríl 1954, búsett á
Sauðárkróki. Börn
þeirra eru Katrín
Eva, f. 1977, hún á
tvö börn með fyrr-
verandi eiginmanni
sínum, Stefáni Jóns-
syni, f. 1972, þau eru
Kristófer Fannar, f.
1995, og Jónína Mar-
grét, f. 2002; Efemía Hrönn, f.
1982, hún er í sambúð með Valdi-
mari Matthíassyni, f. 1973; Stef-
anía Fanney, f. 1985; og Viktor
Sigvaldi, f. 1991. 3) Víglundur
Rúnar, f. 3. janúar 1959, kvæntur
Hafdísi Eddu Stefánsdóttur, f. 11.
desember 1959, búsett í Varma-
hlíð. Börn þeirra eru Pétur Fann-
berg, f. 1983, í sambúð með Stef-
aníu Eyþórsdóttur, f. 1987; og
Ellen Ösp, f. 1987. 4) Sólborg Alda,
f. 27. janúar 1962, gift Hallgrími
Hauki Gunnarssyni, f. 9. sept-
ember 1947, búsett í Mosfellsbæ.
Dóttir þeirra er Brynhildur, f.
1995. 5) Ragnar Pétur, f. 21. jan-
úar 1971, búsettur í Reykjavík.
Börn hans og fyrrverandi konu
hans, Dóru Ingibjargar Valgarðs-
dóttur, f. 1972, eru Margrét Petra,
f. 1993, Halla Sigríður, f. 1999, og
Haukur Steinn, f. 2001.
Ragna Efemía, sem var yfirleitt
Þú sem gafst mér þetta líf, þú
sem hughreystir mig þannig að ég
gat betur tekist á við aðsteðjandi
vanda, þú sem fræddir og ólst mig
upp í kærleika og ást ert nú gengin
til náða. Við sem kynntumst þér
best erum sennilega öll sammála
því hve trúr og tryggur vinur þú
varst og hvernig þú tókst á við
vandamál og erfiðleika til þess að
sigrast á þeim.
Þú varst ung ákveðin í því að
stofna heimili og eignaðist mig 17
ára gömul. Síðan fylgdu þau Mar-
grét og Rúnar með eins árs millibil.
Eftir fjögur ár eignaðist þú Sól-
borgu og Ragnar Pétur um það
leyti þegar við elstu systkinin vor-
um að fara að heiman. Dugnaður-
inn og baráttan komu þér í gegnum
það sem þurfti. Líf þitt var ekki
alltaf dans á rósum en brosandi og
með þinni einstöku gleði tókstu á
við verkefnin til þess að ljúka þeim.
Gleðistundirnar voru líka nokkuð
margar þó svo að veikindi þín
kipptu skyndilega undan þér fót-
unum í orðsins fyllstu merkingu.
Þú ætlaðir þér alltaf að skoða heim-
inn eins og þú orðaðir það. Þú varst
búin að láta nokkrar af þeim óskum
rætast með því að ferðast til fjar-
lægra landa þar sem þú dáðist að
menningu og fegurð landa og þjóða.
Mikla ánægu varst þú búin að fá
af óbyggðum Íslands þar á meðal
með ferðum með Úlfari Jacobsen
þar sem þú vannst í mörg sumur.
Þá fannst þér þú ekki komast nær
Guði en þegar þú á stilltum sum-
arkvöldum labbaðir út í guðsgræna
náttúruna með svefnpokann þinn til
að sofna á fögrum stað í hinni
dásamlegu náttúru Íslands.
Fyrir um tíu árum fóru svo veik-
indi þín að gera vart við sig. Í bar-
áttunni við þau var aðdáunarvert að
sjá hvernig þú reyndir að takast á
við það að verða heil aftur. En þessi
sjúkdómur var ekki eitthvað sem
lætur undan dugnaði og þraut-
seigju. Bjargið var ókleift.
Elsku mamma, þú sem gafst mér
þetta líf, ég og fjölskylda mín hugsa
í lotningu og þakklæti til þeirra
stunda sem þú gafst okkur.
Guðmundur og fjölskylda.
Nú ertu horfin, héðan kæra
hjartans vina, burt mér frá
þér ég nú vil, þakkir færa
þögul tárin, leika um brá.
Lengi götu, ganga máttum
grýtt og hörð, var stundum braut
en við margar einnig áttum
yndisstundir, gegnum þraut.
Því ég stilli harm í hljóði,
horfi yfir forna slóð,
kveð þig nú, með litlu ljóði,
ljúfa mamma, kona góð.
Fyrir handan, hafið kalda
hygg ég, að þú bíðir mín.
Minning þín um aldir alda
eflaust verður sólin mín.
Elsku mamma, einnig viljum
eiga stund við beðinn þinn.
Núna er hljótt, er hér við skiljum,
hjörtun klökkna nú um sinn.
Muna blíða, bernsku kæra
börnin þín og þakkir nú
fyrir ást og allt það kæra
okkur, sem að veittir þú.
Barnabörnin bljúg nú senda
blíða hinstu kveðju þér.
Tengdabörn og tryggir vinir
til þín allir beinast hér,
koma nú, að kistu þinni,
krjúpa þar svo undur hljótt.
Allir hafa sama sinnis
segja þökk – og góða nótt.
(Borgfjörð)
Rúnar og Hafdís.
Lífshlaup móður minnar var eins
og lífshlaup margra alþýðukvenna
sem fæddust á fyrri hluta síðustu
aldar. Hún fæddist í sveit, ólst upp í
sveit og eina menntunin sem henni
varð auðið var fullnaðarpróf og
kvennaskólavist í hálfan vetur. Hún
fór snemma að vinna fyrir sér, vann
hin ýmsu verkamannastörf alla sína
ævi. Hún giftist og eignaðist sitt
fyrsta barn sautján ára gömul. Þeg-
ar hún var tuttugu og þriggja voru
börnin orðin þrjú og eftir það bætt-
ust tvö við.
Hún hlaut sína menntun í litlum
skóla í sveitinni sinni og hafði góða
námshæfileika til að bera. Það ber
útskriftarskírteinið hennar úr
barnaskólanum vott um. Með föður
mínum bjó hún í tuttugu og sex ár.
Leiðir þeirra skildu og móðir mín
fór að kanna hvað væri „hinum
megin við Esjuna“. Hana langaði til
að afla sér meiri menntunar. Af því
varð ekki. Hún lagðist í ferðalög í
fríum sínum jafnt innan lands sem
utan. Hún sótti heim fjarlæg lönd í
Mið-Austurlöndum, Afríku og Suð-
ur-Ameríku.
Hún elskaði að ferðast á fjöllum.
Hún var mikil náttúrukona og á
ferðalögum sínum vildi hún helst
sofa úti undir berum himni í svefn-
pokanum sínum og tala við stjörn-
urnar. Hún var svo lánsöm að vera
í vinnu hjá Ferðaskrifstofu Úlfars
Jacobsen í fjöldamörg sumur við að
elda mat fyrir fjallaferðalanga. Í
því starfi naut hún sín virkilega.
Þótt hún hefði lítt gaman af því að
elda mat gat hún ferðast um öll
fjöll og firnindi í krafti vinnu sinn-
ar.
Móðir mín veiktist fyrir tíu árum
af hinum illvíga Parkinsonsjúk-
dómi. Hún var með sérstaklega
slæmt afbrigði sjúkdómsins. Allur
máttur líkamans og öll geta til að
tjá sig hvarf smám saman. Andlegu
atgervi hélt hún hins vegar
óskertu. Undir lokin gat hún vart
tjáð sig nema í gegnum sitt blíðlega
augnaráð. Húmorinn missti hún
aldrei og gat alltaf kreist fram bros
þegar brandarar flugu í heimsókn-
um. Þrautseigja og dugnaður móð-
ur minnar kom berlega í ljós í veik-
indum hennar. Hún gafst aldrei
upp. Æðruleysið við að takast á við
sjúkdóminn var aðdáunarvert.
Undanfarin fimm ár dvaldi hún á
Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks og
naut þar frábærrar umönnunar
starfsfólksins á deild fimm. Þar átti
hún sitt heimili og þar gátum við
heimsótt hana og verið með henni
eins og um einkaheimili væri að
ræða. Þar naut hún aðhlynningar
og umhyggju fram á síðasta dag.
Hlýjan frá starfsfólkinu og vist-
mönnum var einstök. Það ber allt
að þakka. Af öllum öðrum ólöst-
uðum hugsaði Margrét systir mín
einstaklega vel um móður okkar og
verður það seint þakkað. Það var
huggun harmi gegn að vita af því
að bak við fjöllin fékk móðir mín
bestu umhyggju sem völ var á.
Fósturlandsins Freyja,
fagra vanadís,
móðir, kona, meyja,
meðtak lof og prís.
Blessað sé þitt blíða
bros og gullið tár.
Þú ert lands og lýða
ljós í þúsund ár.
(Matthías Jochumsson)
Hversdagshetjan móðir mín.
Hvíl í friði.
Sólborg Alda Pétursdóttir.
Ragna Efemía
Guðmundsdóttir
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
LINDA AXELSDÓTTIR,
lést á líknardeild Landakotsspítala laugardaginn
23. desember.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sigríður Sigurðardóttir, Magnús Marísson,
Svanhildur Sigurðardóttir, Gylfi Guðmundsson,
Axel Finnur Sigurðsson, Elínborg Sigurðardóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn og faðir minn,
SKÚLI ÞÓR KJARTANSSON,
Víðimel 62,
andaðist á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 18. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Hrefna Hákonardóttir,
Ágúst Þór Skúlason.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, bróðir og afi,
KJARTAN STEFÁNSSON KEEN
listmálari,
Lundi,
Skagaströnd,
lést föstudaginn 22. desember.
Örn Smári Kjartansson, Bjarney Vala Steingrímsdóttir,
Árdís Kjartansdóttir, Hjörleifur Jóhannesson,
Kristín Þóra Kjartansdóttir, Hlynur Hallsson,
Guðlaug Ásta Stefánsdóttir Vazquez
og barnabörn.
✝
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
JOHANNE BJÖRGHEIM TORP,
lést á dvalarheimilinu Holtsbúð laugardaginn
23. desember.
Holger Torp og Elín Lovísa Egilson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar,
GÍSLI ÁGÚSTSSON
frá Brúnastöðum,
Dælengi 20,
Selfossi,
lést laugardaginn 23. desember.
Jarðsungið verður frá Selfosskirkju föstudaginn
29. desember kl. 11 f.h.
Systkini hins látna.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SÆFRÍÐUR INGÓLFSDÓTTIR,
Víðilundi 20,
Akureyri,
lést laugardaginn 23. desember.
Hún verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
miðvikudaginn 3. janúar kl. 13.30.
Katrín Hermannsdóttir, Jón Magnússon,
Sigríður Stefanía Bragadóttir, Emil Vilhjálmsson,
Ingólfur Bragason, Arndís Heiða Magnúsdóttir,
Axel Bragi Bragason, Ingibjörg Ragnarsdóttir,
Karl Sævar Bragason,
Kristín Björg Bragadóttir, Marteinn Sigurðsson,
Ásdís Björk Bragadóttir, Einar Axel Schiöth,
Rakel Hrönn Bragadóttir, Árni Jón Erlendsson,
Sigurður Bragason, Erla Björgvinsdóttir,
Magnús Hörður Bragason,
Iðunn Bragadóttir, Stefán Bragi Bjarnason,
Svanhildur Bragadóttir, Hákon Þröstur Guðmundsson,
ömmubörn og langömmubörn.