Morgunblaðið - 20.02.2007, Síða 14

Morgunblaðið - 20.02.2007, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR   &'("  &') "*' +      &'("  &') "* +        &'("  &') "* +       &'("  &') "* +                     !           ',                  "#  $ "# %  &'  ( #       ) ) ) )) )!) )) ) ) )   !" + % *  %""    !  "*  ""' -.  /  % %""    ',   ' 0" ""     ! ""*  ""' 1  2 /% 3 ) ) ) )) )!) )) ) ) )   ( 4 5  6  ( 4 5  6  ( 4 5  6 $       %  !&'# + % * %""     $ !  "*  ""' -. ' 5      ',( ', % ',  &     78  ''' ) ) ) )) )!) )) ) ) )   '   '    '   * ' Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is „ÞETTA hefur verið erfið og léleg loðnuvertíð. Kvótaaukningin kom seint og svo hefur verið áta í loðnunni allan tímann, mismikil að vísu. Fyrir vikið er búið að frysta mun minna en ella,“ sagði Einar Víglundsson, vinnslustjóri HB Granda á Vopnafirði, þegar Verið ræddi við hann í gær. Byrjað var að skera loðnu á Vopnafirði á laugardaginn og pakka hrognum á sunnudag. Í gær var svo von á Faxa með afla, en þá var verið að vinna loðnu úr Sunnuberginu. Einar sagði að hrognin væru ekki nógu þroskuð fyrir japanaska mark- aðinn og því væri verið að framleiða iðnaðarhrogn. Búið væri að pakka tæpum 100 tonnum af hrognum, annað eins væri í vinnslu og svo yrði unnið svipað magn úr Faxa. Nýt- ingin úr loðnunni hafi verið 7 til 8% í hrogn. Víða er byrjað að vinna hrogn, meðal annars á Akranesi. Einar segir að mikil eftirspurn sé eftir afurðum á öllum mörkuðum og verð gott. Hins vegar óttist hann að menn hafi í einhverjum tilfellum teygt sig of langt og fryst of slaka loðnu, sérstaklega um borð í vinnsluskipunum. Hann vonast þó til að svo sé ekki raunin. Verð á loðnuafurðum er mjög hátt um þessar mundir, bæði á markaðnum í Rússlandi og Japan. Verð hefur hækkað um allt að 30% í erlendri mynt frá síðustu vertíð og vantar loðnu alls staðar. Norðmenn hafa fryst nokkur þúsund tonn fyrir markaðinn í Austur-Evrópu, en annars er framboð á loðnu aðeins héðan. Loðnan hefur að undanförnu veiðzt á svæðinu frá Vestmannaeyj- um og vestur að Þorlákshöfn. Í gær var bræla á miðunum, yfir 20 metr- ar á sekúndu. Í gær hafði verið til- kynnt um 94.000 tonna afla til Fiski- stofu, en það svarar til 31% af leyfilegum heildarafla. Ekki er gert ráð fyrir að aukið verði við kvótann, þar sem ekki hefur fundizt meiri loðna en áður hefur verið mæld. Erfið og léleg loðnuvertíð Loðnan Frysting loðnuhrogna er nú hafin. Hér er verið að vinna hrognin hjá HB Granda á Vopnafirði og er nýtingin nokkuð góð, 7 til 8% ÚR VERINU KONA sem lögð var inn á sjúkrahús í fyrrakvöld vegna gruns um reyk- eitrun í kjölfar eldsvoða í íbúð á 3. hæð fjölbýlishúss við Hringbraut, hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur málið til rannsóknar og ligg- ur konan undir grun um íkveikju. Hún er sjálf umráðamaður íbúðar- innar og er andlega vanheil og hef- ur verið vistuð á geðdeild að sögn lögreglu. Miklar skemmdir urðu á íbúðinni vegna hita og reyks. Slökkvistarf gekk greiðlega og komust allir íbú- ar hússins út áður en liðsmenn slökkviliðsins komu á vettvang. Morgunblaðið/Júlíus Bruni Íbúðin er mikið skemmd og liggur fyrir grunur um íkveikju Grunuð um íkveikju ÁSGEIR Karlsson, sem er yfirmaður fíkniefnadeild- arinnar í Reykjavík, hefur verið ráðinn yfirmaður nýrr- ar greiningardeildar ríkislögreglustjóra frá og með 1. mars nk. Á sama tíma mun Jónmundur Kjartansson, yf- irlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, fara til starfa hjá lögreglu höfuðborgarsvæðisins og mun hann stjórna innri endurskoðun embættisins. Ásgeir Karlsson hefur verið tæplega 30 ár í lögregl- unni eða frá árinu 1978, tæplega 10 ár sem yfirmaður fíkniefnadeildar. Þar áður starfaði hann m.a. við útlend- ingaeftirlit hjá lögreglu. Jónmundur Kjartansson hefur verið yfirmaður sviðs 3 hjá ríkislög- reglustjóra og farið með starfsmannamál, skipulagsmál, tölvumál og fleira. Yfirmaður greiningardeildar Ásgeir Karlsson Á HEIMASÍÐU Mosfellsbæjar er m.a. fjallað um opnun nýrrar úti- sundlaugar við Lækjarhlíð. Þar er óskað eftir hugmyndum að nafni á mannvirkið og eru Mosfellingar beðnir að skila inn tillögum að nafni í Þjónustuver Mosfellsbæjar fyrir 30. mars nk. Nafn á sundlaug BREIÐHOLTSHÁTÍÐ – menning- arhátíð eldri borgara hefst á morg- un, en henni er ætlað að varpa ljósi á öflugt menningar- og félagsstarf í Breiðholti. Að þessu sinni sækja há- tíðina gestir frá Reykjanesbæ, Sel- fossi, Hrunmannahreppi og ná- grannabyggðum Reykjavíkur. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borg- arstjóri mun heimsækja fjórar þjónustustofnanir aldraðra í hverf- inu, Siv Friðleifsdóttir heilbrigð- isráðherra verður gestur íþróttahá- tíðar eldri borgara og Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, verður gestur á hátíð leik- skólabarna og eldri borgara. Heiðursgestur Breiðholtshátíðar verður Gunnar Eyjólfsson leikari og einn af frumbyggjum Breið- holtsins. Breiðholtshátíðin stendur yfir frá 21.-25. febrúar og er liður í Vetrarhátíð í Reykjavík. Breiðholtshátíð STJÓRN Skagafjarðarveitna ehf. samþykkti á síðasta fundi sínum að leita samstarfs við Háskólann á Hólum og Fisk-Seafood um úttekt á möguleikum í fiskeldi í Skagafirði. Fiskeldi KRISTINN Wium Tómasson, fulltrúi verkkaupa, þ.e. Kópavogs- bæjar, í tengslum við lagningu Klæðningar hf. á vatnsleiðslu í gegn- um Heiðmörk, áætlar að alls hafi í kringum sextíu tré verið fjarlægð af svæðinu í tengslum við framkvæmd- irnar sem hófust fyrir meira en mán- uði. Segir hann í kringum þrjátíu 3–6 metra há tré hafa verið urðuð á Kjóavöllum í Kópavogsbæ. Tekur hann fram að umrædd tré hafi verið sinubrunnin og illa farin að neðan. Að sögn Kristins voru um þrjátíu 2–3 metra tré fjarlægð úr Heiðmörk og komið fyrir á afgirtu geymslu- svæði í Hafnarfirði 7.–9. febrúar sl., en freista á þess að gróðursetja trén aftur þegar framkvæmdum er lokið við þann áfanga sem verið var að vinna þegar framkvæmdir stöðvuð- ust. Segist Kristinn hafa gert þetta í samráði við verkkaupa. Starfsmaður Skógræktarfélags Reykjavíkur fór ásamt lögreglu- manni í Hafnarfjarðarhraun til þess að athuga hvort þar væri að finna tré sem fjarlægð höfðu verið úr Heið- mörk. Að sögn Helga Gíslasonar, framkvæmdastjóra Skógræktar- félags Reykjavíkur (SR), fundust þar 30–50 tré á bilinu 3–5 metrar að hæð með rótum. Kristinn vísar því á bug, sem fram hafi komið í umræðunni, að um hafi verið að ræða nokkur hundruð tré sem fjarlægð voru og bendir jafn- framt á að hæsta tréð hafi aðeins verið 7 metrar en ekki 10–12 metrar, eins og haft hefur verið eftir fram- kvæmdastjóra SR. Að sögn Kristins var ákvörðun um förgun og flutning trjáa tekin í sam- ráði við garðyrkjustjórann í Kópa- vogi. „Hann segir að innan við 5% líkur séu á að tré lifi þetta [umplönt- un og flutning] af,“ segir Kristinn og tekur fram að það fari þó eftir hæð og aldri trjáa. Aðspurður segir Helgi ung tré innan við tveggja ára aldur vel eiga að þola það að vera umplantað, séu þau í höndum fagaðila sem kunni til verka. „Ef þetta er gert vel þá eiga trén að lifa. Það þarf eitthvað meira en lítið að fara úrskeiðis til þess að tré lifi umplöntun ekki af.“ Aðspurður segir Helgi fráleitt að færa trén í Hafnarfjörð og planta þeim þar ef til standi að gróðursetja þau aftur í Heiðmörk að fram- kvæmdum loknum. „Ef til stendur að endurplanta þessum trjám að framkvæmdum loknum þá hefði auð- vitað verið eðlilegast að hafa trén áfram í Heiðmörk og fela Skógrækt- arfélagi Reykjavíkur að annast þau því að við erum sérfræðingar í með- höndlun á trjám.“ Segir um 30 tré í geymslu Telur óskiljanlegt að trén skyldu flutt úr Heiðmörk ef stað- ið hafi til allan tímann að þau yrðu gróðursett þar aftur Í HNOTSKURN »Framkvæmdir Klæðn-ingar hf. vegna lagningar vatnsleiðslu fyrir Kópavogsbæ voru stöðvaðar föstudaginn 9. febrúar þegar í ljós kom að framkvæmdaleyfi vantaði. »Þá var búið að fjarlægja ábilinu 60–100 tré. Um helmingur þeirra var urðaður en afganginum komið fyrir í Hafnarfjarðarhrauni. Morgunblaðið/Kristinn Í geymslu Um 30 tré, sem tekin voru upp með rót í Heiðmörk, 2-3 m há, eru nú á afgirtu svæði í Hafnarfjarð- arhrauni. Önnur 30 tré og öllu hærri voru urðuð á Kjóavöllum í Kópavogi. 105 ÖKUMENN voru teknir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórum var veitt eftirför vegna hraðaksturs. Sex voru stoppaðir sem höfðu aldrei öðlast ökuréttindi eða voru sviptir ökuleyfi. 105 á hraðferð

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.