Morgunblaðið - 20.02.2007, Page 19

Morgunblaðið - 20.02.2007, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 19 AKUREYRI Stofnfundur hagsmunafélags fólks með heilaskaða, aðstandenda og annarra sem láta sig málefnið varða, verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar kl. 20:00 að Hátúni 10, 9. hæð. Allir sem hafa áhuga á málefnum fólks með heilaskaða eru hvattir til að mæta. F.h. undirbúningsnefndar, Kristín Michelsen: kristin@hvitlist.is Maggý Magnúsdóttir: maggy@reykjalundur.is SUÐURNES Reykjanesbær | Málþingið Áfram ábyrg – áhrif skilnaðar á börn og leiðir til úrbóta verður haldið í Kirkjulundi, safnaðarheimili Kefla- víkurkirkju, í Reykjanesbæ föstu- daginn 23. febrúar næstkomandi. Málþingið er samvinnuverkefni Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, Keflavíkurkirkju og Kjalarnessprófastsdæmis. Til- gangur þess er að varpa ljósi á og skapa umræður um vanda þann sem steðjar að börnum í skilnaðarmálum og leita leiða til þess að bregðast við honum. Málþingið er öllum opið. Hjördís Árnadóttir, framkvæmda- stjóri fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, segir að málþingið sé afrakstur samvinnu við Kjalar- nessprófastsdæmi og aðila í Þýska- landi sem hafi unnið sérstaklega með þennan hóp barna. Í framhaldinu hafi verið ákveðið að skoða málið út frá ýmsum hliðum hérlendis í þeirri von að finna úrræði fyrir þennan þjóðfélagshóp. Skipulögð dag- skrá verður frá klukkan 10.00 til 16.00 á föstudag. Gunnar Kristjáns- son, prófastur Kjalarnesspró- fastsdæmis, setur ráðstefnuna og Hjördís Árnadótt- ir flytur ávarp. Á meðal fyrirlesara eru Erika Beck- mann, sálfræðingur og forstöðumað- ur fjölskylduþjónustu lúthersku kirkjunnar í Marburg í Þýskalandi, dr. Sigrún Júlíusdóttir, prófessor í félagsráðgjöf við HÍ, Álfgeir Logi Kristjánsson, aðjúnkt við kennslu- fræði- og lýðheilsudeild HR, Thomas Mainz, sálfræðingur og ráðgjafi í Marburg, Benedikt Jóhannsson sál- fræðingur, Ingibjörg Bjarnardóttir hdl., og Valgerður Halldórsdóttir, kennari og félagsráðgjafi MA og for- maður Félags stjúpfjölskyldna. Málþing um áhrif skiln- aðar á börn og úrbætur Hjördís Árnadóttir Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is HNEFALEIKAFÉLAG Reykja- ness og Bracken frá Dublin kepptu í hnefaleikum í hnefaleikahöllinni í Reykjanesbæ, áður gömlu sundhöll- inni í Keflavík, á laugardag. Þetta er í fyrsta sinn sem írskt félagslið keppir í hnefaleikum hérlendis og jafnframt var þetta fyrsta alþjóðlega unglinga- keppnin í hnefaleikum hérlendis. Keppnin heppnaðist mjög vel, að sögn Guðjóns Vilhelms, hnefaleika- þjálfara hjá BAG, Hnefaleikafélagi Reykjaness, en vegna hennar kom 28 manna hópur hingað frá Írlandi; 16 keppendur, fimm þjálfarar og sjö fylgdarmenn. Heimamenn styrktu lið sitt með fjórum keppendum frá Reykjavík og Hafnarfirði. Annars vegar kepptu 12 til 15 ára keppendur í unglingaboxi, svonefndu diploma- boxi fyrir börn og unglinga eða snertiboxi, þar sem bannað er að slá fast og dæmt er fyrir stíl, þ.e. fóta- burð, vörn og tækni. Írarnir unnu í sjö viðureignum en Davíð Bjarnason úr Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar hafði betur gegn írskum mótherjum sínum. Í flokki eldri keppenda unnu Írar fimm bardaga og heimamenn þrjá, þ.e. Stefán Breiðfjörð, Íslands- meistari 2006 úr Hnefaleikafélagi Hafnarfjarðar, Alexei Páll Siggeirs- son úr Hnefaleikafélagi Reykjavíkur og Litháinn Mindagas Visniauskas úr Hnefaleikafélagi Reykjanesbæjar. Guðjón Vilhelm segir að Írarnir hafi staðið framar, en íslensku kepp- endurnir hafi staðið sig mjög vel. Hann bendir á að æfingar fyrir ung- linga í Reykjanesbæ hafi ekki hafist fyrr en á liðnu hausti og því hafi þeir ekki mikla reynslu en þeim mun meira keppnisskap. Hann segir að frammistaða Davíðs Bjarnasonar hafi komið einna mest á óvart. Hann hafi byrjað að æfa í haust en greinilegt sé að þjálfari hans, Óskar Luis Justo frá Kúbu, sé að gera góða hluti. „Strák- arnir voru flestir að fara í fyrsta sinn í hringinn en þeir voru alls óragir og áfjáðir í að keppa.“ Framkvæmdin heppnaðist mjög vel og segir Guðjón Vilhelm að margir hafi lagt hönd á plóg og þeim beri öll- um að þakka. Gríðarlega góð stemn- ing hafi skapast í höllinni og Írarnir hafi verið yfir sig ánægðir. Hann seg- ir að þeir séu mjög hátt skrifaðir í áhugamannahnefaleikum og haldi sérstaklega vel utan um unglinga- starfið. „Þeir vilja endurgjalda heim- sóknina og buðu okkur að koma út í maí eða júní. Við eigum eftir að skoða það nánar en ég reikna með að við tökum boðinu.“ Mikil stemning í hnefaleikahöllinni Víkurfréttir/Jón Björn Fyrsti bardaginn Davíð Atlason með rauðan hjálm var í hringnum í fyrsta sinn sem keppandi og varð að játa sig sigraðan á móti Shane Egan. Fyrsta alþjóðlega unglingakeppnin Í HNOTSKURN » Mikil stemning var íhnefaleikahöllinni í Reykjanesbæ þegar heima- menn tóku á móti Bracken frá Dublin. » Meira en 300 áhorfendurfylgdust með keppninni sem markaði tímamót í hnefa- leikum hérlendis. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is FORSTJÓRI Samherja segir ekk- ert að því að hampa margfeldis- áhrifum fyrirtækisins þó slíkt virð- ist helst ekki mega gera nema varðandi stóriðju – enda sé starf- semi Samherja ígildi stóriðju. Hann segir fyrirtækið hafa markað ákveðin spor í íslenskum sjávarút- vegi. Margfeldisáhrif „Hjá Samherja starfa yfir 600 manns hér á landi og að auki höfum við leitast við að færa verkefni á ýmsum sviðum inn á Eyjafjarðar- svæðið. Við höfum líka átt þátt í að stofna önnur fyrirtæki og styrkja þau sem fyrir eru hér. Á tyllidögum kalla menn slíkt gjarnan margfeld- isáhrif og tala helst ekki um þau nema í tengslum við stóriðju. Mér finnst ekkert að því að hampa margfeldisáhrifunum þegar Sam- herji er annars vegar enda er starf- semi félagsins ígildi stóriðju,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, for- stjóri Samherja, við formlega vígslu nýs og endurbætts skrif- stofuhúsnæðis félagsins. Blásið til sóknar Eins og greint var frá í Morg- unblaðinu á sunnudaginn tilkynnti Þorsteinn Már þar, að Samherji hæfist brátt handa við að reisa full- komnasta fiskvinnsluhús í heimi á Dalvík. Hann sagði mikla vinnu hafa verið lagða í hönnun þess inn- an fyrirtækisins. „Fiskvinnsluhús okkar á Dalvík hefur meðal annars verið stærsti framleiðandi landsins á ferskum fiskhnökkum undanfarin ár. Það er vegna þess að hráefnisöflunin byggist öll á veiðum stærri tog- skipa. Af sömu ástæðu hefur starfs- fólk frystihússins á Dalvík ekki ver- ið kauplaust einn einasta dag frá árinu 2000,“ sagði hann. Þorsteinn Már nefndi í ávarpi sínu, eins og fram kom í blaðinu á sunnudaginn, að stjórn fyrirtækis- ins tók í fyrra þá ákvörðun að blása til sóknar, og mörgum hefði þótt það djörf ákvörðun. „Við ákváðum að endurnýja skipaflota félagsins markvisst. Með þessu bætum við vinnuaðstöðu, að- búnað, öryggi og tekjumöguleika sjómanna. Við fengum nýtt skip síðla sumars 2006, Margréti EA, og annað um síðustu helgi. Við munum halda áfram á þessari braut. Við ákváðum jafnframt að búa betur að starfsmönnum félagsins í landi með því að endurnýja skrif- stofuhúsnæði félagsins. Þá eru framkvæmdir við bygg- ingu 4.300 fermetra húss yfir eld- isker Silfurstjörnunnar í Öxarfirði á lokastigi en þar er væntanlega um að ræða eina af stærri bygg- ingum utan höfuðborgarsvæðisins – ef frá eru talin álver og fótbolta- hús.“ Höfum markað spor Forstjóri Samherja sagðist hreykinn af því að geta sagt að fyr- irtækið hefði „markað ákveðin spor í íslenskum sjávarútvegi á þeim tæpa aldarfjórðungi sem félagið hefur starfað. Samherji var í far- arbroddi frystitogaravæðingarinn- ar á sínum tíma. Samherji gerbylti uppsjávarveiðum og -vinnslu með smíði Vilhelms og hefur nú sýnt eft- irbreytnivert frumkvæði við að endurnýja skipastól sinn.“ Þorsteinn Már sagði, eins og líka var nefnt í blaðinu á sunnudaginn, að hér á landi væri sjávarútvegur- inn settur í uppnám að lágmarki á fjögurra fresti – við kosningar til Alþingis. „Við stjórnmálamennina vil ég segja að við hefðum kannski átt að eiga meiri samskipti við ykk- ur gegnum árin og vera duglegri að segja frá því sem við erum að gera.“ Hjá Samherja starfa nú að minnsta kosti 20 manns, sem hafa útskrifast úr Háskólanum á Akur- eyri á liðnum árum. „Þetta segir sína sögu um tengslin við Háskól- ann á Akureyri og þýðingu þess að háskólagengnu fólki bjóðist starf við hæfi á staðnum að útskrift lok- inni,“ sagði forstjórinn. Starfsfólk Samherja á Dalvík ekki verið kauplaust einn einasta dag frá 2000 Samherji er ígildi stóriðju Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Nýjasta skipið Oddeyrin EA 21, nýjasta skip Samherja sem keypt var frá Noregi, er það kom til heimahafnar á Akureyri fyrir rúmri viku. Í HNOTSKURN »Forstjóri Samherja segirmargfeldisáhrif fyrirtæk- isins mikil og það sé í raun ígildi stóriðju. »Alls starfa rúmlega 600manns hjá Samherja hér á landi. »Samherji var í fararbroddifrystitogaravæðing- arinnar á sínum tíma. Sam- herji gerbylti uppsjávar- veiðum og -vinnslu með smíði Vilhelms og hefur nú sýnt eft- irbreytnivert frumkvæði við að endurnýja skipastól sinn, segir Þorsteinn Már Baldvins- son forstjóri. ÞAÐ eru örugglega ekki margir dagar sem setja jafnsterkan svip á bæjarlífið á Akureyri og öskudagurinn. Búningaklædd börn flykkjast í verslanir, fyrirtæki og stofnanir og skemmtilegir, oft nýstárlegir söngvar, óma allan daginn. Það má glögg- lega sjá í ljósmyndasafni Minjasafnsins á Akureyri en þar eru varðveittar margar myndir frá öskudeginum á Akureyri í gegnum tíðina. Í tilefni útlitsbreytinga á rótgrónni heimasíðu Minjasafnsins www.akmus.is, sem tekin verður í notkun í fyrramálið 20. febrúar kl. 10, verður Öskudagsmyndasýning opnuð á sama tíma. Öskudagsmyndir hjá Minjasafninu TÆPLEGA tvítugur ökumaður bifreiðar missti vald á henni og ók út af veginum við Krossanesbraut, skammt sunnan fiski- mjölsverksmiðjunnar, að nóttu til um helgina. Bíllinn hafnaði ofan í fjöru, tug- um metra neðan vegarins, mikið skemmd- ur en ökumaðurinn slapp ótrúlega vel. Hann slasaðist reyndar lítillega og var fluttur á slysadeild, en þar bar helst til tíð- inda að tekið var úr honum blóðsýni, enda grunaður um ölvun. Keyrði út af og lenti niðri í fjöru HREIÐAR Eiríksson lögfræðingur heldur í dag fyrirlestur á Lögfræðitorgi HA sem hann kallar Hernaðaríhlutun af mann- úðarástæðum. Hreiðar lauk BA-prófi í lög- fræði frá Háskólanum á Akureyri vorið 2006. Hann á að baki 20 ára feril í lögregl- unni og hefur að auki starfað við frið- argæslu á vegum Sameinuðu þjóðanna í Bosníu-Herzegóvínu og Líberíu. Fyrirlest- urinn hefst kl. 12.00 í stofu L201 á Sólborg við Norðurslóð. Mannúðarástæður fyrir hernaði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.