Morgunblaðið - 20.02.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 20.02.2007, Síða 22
AP Í stíl Brenda Forrester og hundarnir hennar Diva og Ringo tóku þátt í skrúðgöngunni. Gott Hundurinn Dixie fékk ítalskan mat hjá eiganda sínum Lindu Giarratana Fjólublá Púðluhundurinn Brule tók sig vel út í múnderingunni. HUNDAR fjölmenntu með eigendum sínum í árlega hundaskrúðgöngu sem haldin var í bænum Deland á Flórída í síðustu viku. Hundarnir mættu í sínu fínasta pússi eins og myndirnar bera með sér og gervin eftir því mörg. Ítalska línan, mótorhjólastíllinn og lita- og munsturgleði áttu þar sína fulltrúa og hvuttarnir hafa efalítið ekki farið framhjá neinum sem átti leið í bæinn þennan dag. Skrautlegir í skrúðgöngu Töff Chihuahua hundurinn Chi- quita er mótor- hjólatýpan. tómstundir 22 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Ég úlnliðsbrotnaði þegarvið vorum að keppa ámóti Haukum um dag-inn. Ég datt illa og ein Haukastelpan datt ofan á mig og höndin á mér beyglaðist einhvern veginn undir mér. Þetta var rosa- lega vont en ég kláraði samt að spila leikinn. Ég fór daginn eftir upp á slysavarðstofu og þá kom í ljós að ég var brotin,“ segir Agnes Guðmundsdóttir, sem spilar hand- bolta með Gróttu. „Það var alveg þess virði að halda þetta út, því við unnum leikinn,“ segir hin unga baráttukona sem hefur verið í handboltanum frá því hún var tíu ára, en hún verður sautján ára á þessu ári. Það er heilmikil vinna að vera í boltanum, Agnes er á æfingum fjórum sinnum í viku og inn á milli eru leikir sem taka heilu kvöldin.. „Enda hef ég ekki tíma til að vera í neinu öðru en handboltanum og skólanum, en ég er á fyrsta ári í Versló og nóg að gera í náminu.“ Agnes segir marga góða kosti fylgja því að æfa handbolta. „Það er mikið og gott félagslíf sem fylgir þessu og þetta er góð almenn hreyfing. Handboltinn veit- ir mér mikla ánægju og ég er alltaf glöð eftir æfingar. Ég á líka mínar bestu vinkonur í boltanum. Þó svo að margar hafi hætt og nýjar kom- ið inn þá er ákveðinn kjarni sem hefur alltaf haldið saman. Og þó svo að við höfum ekki farið allar í sömu framhaldsskólana í haust þá höldum við góðu sambandi í gegn- um boltann.“ Smitandi handboltaáhugi Agnes segir að keppnisferðirnar séu líka rosalega skemmtilegur hluti af því að æfa handbolta, hvort sem þær eru innan lands eða utan. „Við eigum til dæmis margar góðar minningar frá ferðalögum sem við höfum farið í til Vest- mannaeyja og Akureyrar og svo höfum við líka farið í keppnisferðir til Ítalíu og Svíþjóðar og það var alveg meiri háttar.“ Agnes segir það frekar fúlt að vera úlnliðsbrotin og mega ekki spila með sínu liði. „En ég mæti á bekkinn og hvet stelpurnar áfram þegar það eru leikir. Það þýðir ekkert annað en vera með þó maður sé ekki inni á vellinum. Svo verð ég að fara í ræktina og halda mér í formi svo ég dragist ekki aftur úr þeim á meðan brotið er að gróa, því ég má ekki æfa handbolta í fimm vikur.“ Handboltaáhugi Agnesar hefur smitað út frá sér í fjölskyldunni því að yngri systir hennar, Rebekka, æfir líka handbolta hjá Gróttu. Úlnliðsbrotin á bekknum Þó að hún fái ekki að spila með þá lætur hún sig ekki vanta á bekkinn til að aðstoða og hvetja sínar stelpur. Kristín Heiða Kristinsdóttir heyrði í stelpu með óbil- andi handboltaáhuga og hönd í gifsi. Morgunblaðið/Brynjar Gauti Brotin Agnes lætur gifsið ekki á sig fá, enda veitir handboltinn henni mikla ánægju. „Þetta var rosalega vont en ég kláraði samt að spila leikinn. Ég fór beint upp á slysavarðstofu að leik loknum.“ Morgunblaðið/Brynjar Gauti Á bekknum Þolinmóð hvetur hún áfram stelpurnar sínar. khk@mbl.is gæludýr

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.