Morgunblaðið - 20.02.2007, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 20.02.2007, Qupperneq 24
Í Kaíró Halla og Ragna á Khan Al Khalili-markaðnum ásamt Regínu, þriðju systurinni, sem kom í heimsókn er þær sátu á skólabekk í Egyptalandi í haust. Upplifun Systurnar þrjár í heimsókn í Alexandríu sem er næststærsta borg Egyptalands. Þær standa hér fyrir framan borgarvirkið. Egypska leiðsögustelpan Katrin er lengst til hægri. Halla og Ragna Ólafs-dætur ljóma af sjálf-stæði þrátt fyrir unganaldur, þær urðu 22 ára sl. aðfangadag sem er harla ungur aldur miðað við þá reynslu sem þær búa að. Þær eru frá Djúpavogi en eiga heima í Danmörku þar sem þær eru í námi og segjast vera hálfgerðar flökkukindur. „Við fluttum að heiman þegar við vorum sextán til að fara í Verslun- arskólann í Reykjavík í stað þess að fara t.d. á Egilsstaði eða Höfn,“ segir Halla. Þær systur segjast hafa haft þörf fyrir að kynnast stærri stað en Djúpavogi. „Átti maður að fylgja vinunum eða gera eitthvað upp á eigin spýtur?“ út- skýrir Ragna togstreituna í huga þeirra. Skoðanir systranna og væntingar til lífsins slá í takt við keimlíkar raddir þeirra sem hálf- erfitt er að greina á milli á bandi blaðamanns. Þær ætluðu sér ekki að lenda í sama bekknum í Versló, nú þegar þær höfðu valið, en fylgd- ust óvart að alveg út námið. Ekki að þær vildu forðast hvor aðra – eru raunar bestu vinkonur – en sem tvíburi er stundum erfitt að vera sjálfstæður. „Eitt sinn á fót- boltaæfingu þegar ég hafði ekki mætt talaði Ragna stanslaust um okkur við eina nýja stelpu, við vær- um að fara að gera þetta og hitt, og stelpan varð eitt spurning- armerki,“ segir Halla. „Þá fékk ég högg, ég var orðin 18 ára og hugs- aði að ég yrði aðeins að fara að slíta mig frá. Við höfðum alltaf þekkt sama fólkið sem skildi þetta „við“,“ segir Ragna. Bæklingur og tilviljun Veturinn eftir útskrift fluttist Ragna til Danmerkur og hóf nám í arabísku og Austurlandafræðum í Árósum og lauk fimmtu önninni í janúar. Halla hefur nýhafið sama nám. Hvernig skyldi þessi áhugi á arabísku hafa vaknað? „Þetta er fyrst og fremst áhugi á annarri menningu, við höfum alltaf haft mikinn áhuga á að læra tungu- mál. Mér finnst öll menning sem er öðruvísi en mín mjög spennandi. Svo þegar ég var á leiðinni út til Danmerkur var ég að fletta bækl- ingi og um leið og ég rak augun í arabískunámið vissi ég að ég yrði að kynna mér þetta betur,“ segir Ragna. Af tilviljun sá „hinn helm- ingurinn“ líka umræddan bækling og rak strax augun í arabísku og íslamska menningu, án þess að Ragna hefði gefið nokkuð upp. „Ég byrjaði þó nám í fyrra í við- skiptaháskóla úti því mig langaði ekki að gera nákvæmlega það sama og Ragna en svo átti viðskipta- fræðin engan veginn við mig. Ég varð bara að hætta að hugsa um að ég væri tvíburi og gera það sem mig langaði til,“ segir Halla einlæg. Systurnar settust síðan á egypskan skólabekk í Kaíró í haust, Ragna í skiptinámi. Þær segja tvo og hálfan mánuð hafa verið alltof stuttan tíma sem þó hafi verið vel nýttur. „Ég lærði miklu meira í málinu heldur en í þessi tvö ár í Danmörku,“ segir Ragna, og Halla segist hafa lært stöku orð og skilji þónokkuð og sé ánægð með það. Þær bjuggust við vissu menning- arsjokki í Kaíró sem kom á daginn. „Við fundum svolítið úti hvað við erum ungar en allir í náminu voru a.m.k. tíu árum eldri – maður þarf náttúrlega að hafa þroska til að takast á við þetta,“ segir Ragna. „Við skárum okkur talsvert úr í útliti sem gat verið erfitt. Þarna snýst allt um peninga og við vorum orðnar svolítið þreyttar á prútt- menningunni,“ segir Ragna. „Um leið og maður fer að ná tökum á tungumálinu verður allt miklu auð- veldara,“ heldur Ragna áfram. „Okkur fannst við vera öruggar í þessari 20 milljóna stórborg sem kom á óvart en maður heyrði aldrei af neinu misjöfnu og allir eru mjög vinsamlegir,“ lýsir Halla en segir ferðamenn, sérstaklega bandaríska, þó oft snuðaða t.d. af leigubíl- stjórum. „Þeir eru yfirleitt ekki hrifnir af Bush en ég held að Bandaríkjamenn verði þó ekki mik- ið fyrir barðinu á heimamönnum sem er ótrúlegt í ljósi þess að múslimar verða pottþétt fyrir að- kasti í Bandaríkjunum.“ Halla segir að hatursfull stefna sé ekki rekin í þessu múslimalandi a.m.k. „Það ríkir mikill náungakærleikur. Moskur og kirkjur eru hlið við hlið, þú hefur þitt samband við þinn guð og ég við minn er hugsunin.“ Þær systur segjast sjálfar ekki trúræknari en hinn venjulegi Ís- lendingur en samfélagið í Egypta- landi byggist hins vegar á trúnni. „Við gengum alltaf framhjá mosk- unni í hádeginu og það var svo gaman að sjá að þar var allt troðið. Allir standa saman og biðja, til að sýna að allir séu jafnir í trúnni, embættismaður og götusópari,“ segir Ragna og Halla tekur undir: „Allt sem ég veit um þessa trú er fallegt en múslimar eru alltaf í þeirri stöðu að verja trú sína, eins og vinkonur okkar í Danmörku, það þurfum við ekki – og auðvitað telja þau hryðjuverkamenn ekki góða múslima,“ segir Halla. „Eina sem er dregið fram um íslamstrú er neikvætt. Og ég er pottþétt á því að við komum þangað með ein- hverja fordóma,“ segir Halla. Ragna botnar: „Þótt maður sé allt- af að berjast gegn því.“ Núna líti þær öðrum augum t.a.m. á klæðnað múslima og finnist flott hvernig konurnar klæða sig í stíl við slæð- urnar sem í huga margra tengist kúgun. Þær systur segja frá múslimsk- um vinkonum sínum í Danmörku. „Ein er að berjast við að vera bæði dönsk og múslimi en önnur vill bara vera mjög góður múslimi og umgengst bara sína,“ segir Ragna. Halla heldur áfram: „Ég myndi segja að þessi sem er „sjálfstæðari“ hafi mjög heilbrigða hugsun: Ég veit að ég er góð manneskja, ég þarf ekkert endilega að vera með slæðu, að biðja stanslaust eða vera gift Líbana til þess að vera góður múslimi. Ég held að flestir í kring- um okkur hugsi þannig.“ Framtíð í arabískunni Halla og Ragna sjá ýmsa mögu- leika varðandi framtíðarstarf. „Mér finnast margir vina minna fara „skynsömu“ leiðina í námi en það eru ýmsir möguleikar vegna fjölda fólks frá Miðausturlöndum í Dan- mörku, t.d. túlkastarf, jafnvel í Kaíró,“ segir Ragna. Ísland sé þó líka í myndinni, hér sé heimili þeirra þrátt fyrir flökkueðlið og eftirsóknarvert andrúmsloftið í Danmörku andspænis stressinu sem þær segja alltaf byrja þegar þær komi hingað. En sem áhorf- endur að fátæktinni í Kaíró og stéttaskiptingu segjast þær hafa fundið að þær hafi það gott hér. „Ég tala nú ekki um mengunina, manni var illt í augunum og það var mengunarlykt af fötunum,“ segir Halla – eða var það Ragna? Að síðustu bendir blaðamaður þeim á með vísifingri að koma í myndatöku en fær upplýsingar frá systrum – sem gætu komið að gagni síðar – um að puttahreyf- ingin þýði einfaldlega „nú lem ég þig“ samkvæmt arabískri hefð. Það var og. thuridur@mbl.is Flökkukindur í arabískunámi Morgunblaðið/Kristinn Tvíburar Ragna (t.v.) og Halla Ólafsdætur eru sem ein manneskja; þær hrífast gjarnan af sömu hlutunum og eru nú báðar í arabískunámi í Danmörku, enda alltaf haft áhuga á ólíkum menningarheimum. Tvíburasysturnar Halla og Ragna Ólafsdætur dvöldu á framandi slóð- um Egyptalands í Kaíró í haust til að læra arab- ísku. Þuríður Magnúsína Björnsdóttir ræddi við þær um heim múslima og einstakt samband tvíbura. Sakkara Freyja Friðbjarnardóttir, móðir systranna, við hlið betlara. daglegt líf 24 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.