Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 33 MINNINGAR ✝ Jón Vídalín Sig-urðsson fæddist á Búðum í Fá- skrúðsfirði 4. jan- úar 1913. Hann lést á sjúkrahúsi Seyð- isfjarðar 6. febrúar síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Sigurðar Þórð- arsonar frá Kálfa- felli í Suðursveit og Salóme Ingibjargar Magnúsdóttir frá Litla Hólmi í Leiru. Eftir lát föður síns flytur hann ásamt móður sinni til Siglufjarðar 1940. Þar kynnist hann konu sinni. Jón kvæntist 10.10. 1944 Sig- rúnu Sigurðardóttur, f. 10.10. 1916, d. 10.3. 1996. Börn hans og Sigrúnar eru Sigurbjörn, kvæntur Hugrúnu Ólafsdóttur, þau eiga tvö börn og eitt barna- barn og Anna Gunnlaug, hún á tvö börn og fjögur barnabörn. Fyrir átti Sigrún dótt- urina Gunnþórunni Gunnlaugsdóttir, gifta Hafsteini Sig- urjónssyni, þau eiga fjögur börn og 12 barnabörn. Jón byrjaði ung- ur til sjós. Ungur þurfti hann að ger- ast fyrirvinna móð- ur sinnar vegna veikinda föður síns er síðar lést. Hann stundaði sjómennsku nánast all- an sinn starfsferil og bjó á Siglufirði frá 1940 til 1973. Fluttist þá í Garðinn og bjó þar í 4 ár. Fluttist til Seyðisfjarðar 1977 og vann þar hjá Norðursíld í 20 ár. Útför Jóns verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Elsku pabbi minn. Þá ertu farinn frá okkur. Þú ætl- aðir alltaf að komast 10. hringinn kringum landið en þeir urðu bara 9 sá síðasti er hafinn þangað sem eilífðin er og almættið finnst, þangað sem við öll eigum eftir að fara. Söknuðurinn er mikill hjá okkur öllum en minning- arnar lifa og eru margar og góðar. Þú varst mér góður faðir, tókst mig strax að þér 7 ára gamla sem þína eigin dóttur þegar þið mamma gift- ust. Það var ekki erfitt að byrja strax á að kalla þig pabba, annað kom ekki til greina, ekki var mamma þín síðri við mig en hún var alltaf amman á heimilinu. Seinustu 30 árin sem þú hefur búið hér á Seyðisfirð gerðu okkur ennþá nánari, dagleg samskipti voru bæði heima og á sama vinnustað, auk þess að þið Hafsteinn voruð alltaf svo góð- ir vinir og höfðuð sama áhugamál. Þær voru ófáar ferðirnar ykkar kringum kindurnar og öll árin í Norð- ursíld sem þið unnuð saman. Þú varst með afbrigðum hraustur maður, ég man aldrei eftir þér veik- um, fórst einu sinni í viðgerð eins og þú orðaðir það, mjöðmin var eitthvað að angra þig. En þú lést það ekki aftra þér að koma við og við og leysa af sem brýnari í frystihúsinu þótt kominn væri yfir áttrætt. Eftir að þú misstir mömmu fyrir 11 árum sástu alfarið um þig sjálfur. Þú varst ekki vanur heimilisstörfum því mamma sá vel um þig. En þig munaði ekki mikið um það, heimilið var alltaf tandurhreint og svo vel var búið um að ég kallaði rúmið fjölina og húsið Hvítholt. Svo var keyptur nýr bíll og þínar sumarlegu hringferðir hófust, alltaf ein ferð á sumri og skoðaðir flestalla staðir á landinu, ókst öll jarð- göng og heimsóttir gamla vini. Eljan og áhuginn var svo mikill að eitt sum- arið hringdir þú í mig frá Djúpavogi og sagðist vera á heimleið enda hringurinn að verða búinn. Næsta morgun hringirðu og varst þá stadd- ur í Hóladómkirkju, þú hafðir gleymt að koma þar við og þá var einfaldast að skreppa norður. Þvílíkur hraust- leiki. Heima var það handavinnan, orð- inn 80 ára og fórst að mála dúka, rýja mottur og púða og síðast en ekki síst allt postulínið, sem þú málaðir, ótal könnur, vasa og diska. Hver sem hefði séð þína vinnulúnu fingur eftir áratuga sjómennsku hefði vart trúað slíku handbragði. En svona varstu vandvirkur, samvisku- samur og heiðarlegur. Elsku pabbi minn, tengdapabbi, afi og langafi. Við þökkum þér af öllu hjarta fyrir alla samfylgdina gegnum lífið. Biðjum Guð að blessa þig og varðveita og mömmu líka um alla ei- lífð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Þín dóttir Gunnþórunn. Við eigum bágt með að trúa að komið sé að kveðjustund en okkur langar að minnast afa okkar með ör- fáum orðum. Afi Seyðó eins og við kölluðum hann alltaf var einstaklega glaðlyndur, góður og ljúfur maður og ekki má gleyma að minnast á hvað hann gat verið stríðinn og með smit- andi hlátur. Minningarnar og allar skemmtilegu samverustundirnar á Seyðisfirði og allar heimsóknirnar til afa og ömmu munu ylja okkur um hjartarætur. Fyrsta minningin sem við systkinin munum frá því að við vorum pínulítil er að þegar við kom- um í heimsókn til afa og ömmu stóðu þau ávallt í hlaðinu og tóku vel á móti okkur og svo fórum við systkinin beint inn í eldhús í nammiskúffuna sem var ávallt búið að fylla með góð- gæti áður en við komum. Ekki má gleyma hvað litlu hendurnar okkar voru forvitnar um alla fínu hlutina hans afa, enda átti hann rosalega mikið af dóti sem okkur fannst spenn- andi. Hann elti okkur um allt hús til að athuga hvað við værum að bralla. Afi var duglegur að leika við okkur og gaf sér alltaf tíma fyrir okkur. Hann var einstaklega hraustur enda fékk hann sér alltaf lýsi ofan á fiskinn og reyndi í mörg ár að fá okkur til að gera það sama, en án árangurs. Afi ferðaðist mikið og keyrði alltaf hing- að suður hvert sumar. Við vorum svo stolt að eiga svona duglegan afa sem keyrði svona langa leið. Afa fannst gaman að hannyrðum og bjó til marga fallega hluti sem fegra heimili okkar og verða varðveittir. Okkur þótti vænt um afa og erum þakklát fyrir allt sem hann gerði fyrir okkur. Við munum varðveita allar yndislegu minningarnar um afa og ömmu á Seyðó í hjarta okkar og vitum að þið munuð vaka yfir okkur. Elsku afi, góða ferð og kysstu ömmu frá okkur. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. ( Sig. Jónasson frá Presthólum.) Jón Ólafur og Steinunn. Elsku pabbi. Þá er þessu lokið, allavega að sinni. Síðustu mánuðir voru þér erfiðir, bæði andlega og lík- amlega. Andlega af því að þú vildir ekki vera upp á aðra kominn og lík- amlega þar sem krabbameinið var farið að láta þig finna fyrir sér á nýj- an leik. Þú sem aldrei vildir vera upp á aðra kominn og ekki láta hafa fyrir þér varðst að sætta þig við það hlut- skipti. Nú get ég ekki lengur hringt í þig til að athuga hvernig heilsan er, því að eftir að þú greindist með krabba- meinið varst þú ákveðinn í að það yrði skorið burt. Ótal minningar hafa sprottið upp í huga mínum undanfarna daga þar sem ég hef hugsað um það sem ég gæti skrifað þér. Allar minningarnar um þig eru góðar enda varst þú góður og hlýr. Ferðalögin sem þú fórst alltaf á sumrin eftir að mamma dó gleymast ekki. Þú byrjaðir að undirbúa þig fyr- ir hringferðina, eins og þú kallaðir það, í apríl og lagðir svo yfirleitt af stað daginn eftir 17. júní hvernig sem viðraði. Nema einu sinni þegar snjór var yfir Norðurlandi og þú komst ekki af stað fyrr en viku seinna. Þú varst svo skipulagður í þessum ferð- um, þó var ég dálítið áhyggjufullur þegar þú fórst út á þjóðveginn en þú skilaðir þér alltaf heilu og höldnu þrátt fyrir smáóhöpp sem við minn- umst ekki á núna. Einnig er minnisstætt síðastliðið sumar þegar þú komst með okkur í sumarbústaðinn hvað þú hresstist mikið við að koma í sveitina, kom þá upp í þér ferðahugurinn. Ég minnist samtalsins sem við átt- um hér í eldhúsinu áður en þú fórst í aðgerðina, að þú ættir eftir að fara og skoða svo margt í næstu hringferð. En þú hefur nú lokið hringferðunum hér en eflaust ert þú á ferðalagi þar sem þú ert núna. Ég mun ávallt sakna þín og það tekur mjög á mig að vita það að heimsóknirnar verða ekki fleiri í bili eða símtölin til þín. Lífið hjá þér á Seyðisfirði var í föst- um skorðum eftir að mamma dó, það var aðdáunarvert að fylgjast með því hvernig þú skipulagðir þig. Þegar þú vaknaðir á morgnana fékkstu þér morgunverð, fórst í göngutúra, sinnt- ir heimilisstörfunum því ekki vildir þú húshjálp, sagðist þrífa þitt heimili sjálfur, og ekki má gleyma Leiðar- ljósi sem þú misstir aldrei af og ef manni varð á að hringja á meðan Leiðarljós var í sjónvarpinu var ekki svarað í símann. Svo mátti nú aldrei vera snjókorn eða ryk á stéttinni. Svo varst þú svo duglegur að föndra og mála postulín, ekki gat maður nú ímyndað sér að þú ættir eftir að sýna svona mikla snilli með pensilinn. Nú á kveðjustund þakka ég fyrir hverja samverustund með þér og fyr- ir allt sem þú kenndir mér. Minning- arnar eru mér mikill fjársjóður sem ég mun ávallt varðveita. Elsku pabbi, ég veit að þú ert kom- inn á betri stað og þér líður betur, all- ar þjáningar þínar horfnar. Ég kveð þig með margar góðar minningar í hjarta. Ég veit að þú vakir yfir okkur og verndar. Nú legg ég augun aftur ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engill, svo ég sofi rótt. Minning um góðan föður lifir. Þinn sonur Sigurbjörn. Jón Vídalín Sigurðsson Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar Englasteinar Helluhrauni 10 Sími 565 2566 – www.englasteinar.is 15% afsláttur af öllum legsteinum og fylgihlutum Sendum myndalista ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, PÉTUR VIÐAR KARLSSON, Grenigrund 38, Selfossi, andaðist á heimili sínu laugardaginn 17. febrúar. Brynhildur Tómasdóttir, Páll Pétursson, Auður I. Ottesen, Kristján Karl Pétursson, Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Hrund Pétursdóttir Winckler, Anders Winckler, Hjörtur Leví Pétursson, Ásdís Ýr Aradóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓSEF TRYGGVASON, Þrastarhóli, Arnarneshreppi, lést á heimili sínu laugardaginn 17. febrúar. Hann verður jarðsunginn frá Möðruvallaklausturs- kirkju laugardaginn 24. febrúar kl. 14.00 Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarsjóð Heimahlynningar á Akureyri. Vilborg Pedersen, Hreinn Pálsson, Sigríður Kristín Bjarkadóttir, Salvör Jósefsdóttir, Árni Ómar Jósteinsson, Ingibjörg Valgerður Jósefsdóttir, Sigurður Svan Gestsson, Óskar Jósefsson, Ingibjörg Sverrisdóttir, Haraldur Jósefsson, Sigrún Jósefsdóttir, Friðbjörn Hilmar Kristjánsson, Hildur Jósefsdóttir, Guðmundur Örn Helgason, Níels Pétur Jósefsson, Anna Jóna Vigfúsdóttir, Heiða Björk Jósefsdóttir, Ingi Rúnar Jónsson, Sigríður Hrefna Jósefsdóttir, Ricky Carl Sørensen, Ólöf Harpa Jósefsdóttir, Axel Grettisson, afabörn og langafabörn. ✝ Elskulegur sambýlismaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, KARL JÚLÍUSSON, Garðhúsum, Grindavík, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja föstudaginn 16. febrúar. Jarðsungið verður frá Grindavíkurkirkju laugardag- inn 24. febrúar kl. 14.00. Sigrún Guðmundsdóttir, Guðmundur Grétar Karlsson, Sigurður Rúnar Karlsson, Jón Júlíus Karlsson, Páll Tryggvi Karlsson, Finndís Fjóla Birgisdóttir, Ronja Rán Pálsdóttir, Ylfa Dröfn Pálsdóttir. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN EINARSSON, Hjallaseli 55, (Seljahlíð), Reykjavík, andaðist sunnudaginn 18. febrúar. Útförin auglýst síðar. Ingveldur Jónsdóttir, María Jónsdóttir, Axel Stefán Axelsson, Leifur Jónsson, Bryndís Petersen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR ÁSGEIRSSON, Melseli 8, Reykjavík, lést á líknardeild Landakotsspítala sunnudaginn 18. febrúar. Útför fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 26. febrúar kl. 13.00. María Rósinkarsdóttir, Ottó Kolbeinn Ólafsson, Björk Baldursdóttir, Jakob Ólafsson, Helena Soffía Leósdóttir Little, Rósinkar Snævar Ólafsson, Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir, Guðný Ólafsdóttir, Ómar Gunnarsson, Ásgeir Kristján Ólafsson, Aðalheiður Gylfadóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.