Morgunblaðið - 20.02.2007, Síða 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
fólk
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
AF HVERJU STENDUR „VARIÐ
YKKUR Á KÖTTUM“ Á SKILTINU ÞÍNU?
VARIÐ
YKKUR Á
KÖTTUM!
VARIÐ
YKKUR Á
KÖTTUM!
VARIÐ
YKKUR Á
KÖTTUM!
VEGNA ÞESS AÐ KETTIR
ERU VONDIR
EF ÞÚ TEKUR ÞAÐ
EKKI NIÐUR
ÞÁ BER ÉG ÞIG
MEÐ ÞVÍ!
SJÁÐU
BARA!
HUNDAR
ERU
MJÖG OFT
EINMANA
KETTIR HATA OKKUR...
HESTAR STÍGA Á OKKUR...
VILLIDÝRIN LÍTA NIÐUR
Á OKKUR
ÆI...
ÞAÐ ER
EINS GOTT
AÐ FÓLK
ER TIL!
KANNSKI HEFUR KALVIN
FARIÐ AÐ TÍGRISDÝRA-
GRYFJUNNI. HANN HEFUR SVO
GAMAN AÐ TÍGRISDÝRUM
HA HA! KANNSKI ER HANN
BARA OFAN Í GRYFJUNNI,
FYRST HANN HEFUR SVONA
GAMAN AÐ ÞEIM
NÚNA ÆTLUM VIÐ AÐ
SYNGJA DRYKKJUSÖNG
VÍKINGANNA
DREKKA DREKKA DREKKA
DREKKA DREKKA DREKKA
DREKKA DREKKA DREKKA
DREKKA DREKKA DREKKA
DREKKA DREKKA DREKKA!
EN BARA
Í HÓFI
LONE RANGER
OG NÝI AÐSTOÐAR-
MAÐURINN HANS,
SEM FENGINN
VAR VEGNA
KVARTANA UM
KYNÞÁTTAFORDÓMA
NÚ ER NÓG KOMIÐ! ÞÚ
ERT BÚINN AÐ VERA LEIÐUR
Í MARGA
DAGA!
ÞAÐ ER AUGLJÓST
AÐ ÞAÐ ER EITTHVAÐ
AÐ OG ÉG ÞARF AÐ FÁ AÐ
VITA HVAÐ ÞAÐ ER!
RAJIV VAR AÐ SEGJA
MÉR AÐ EINN AÐAL
VIÐSKIPTAVINUR OKKAR
ÆTLAÐI AÐ SEGJA UPP
SAMNINGNUM SÍNUM
ERTU BÚINN AÐ
VERA SVONA LEIÐUR
ÚT AF ÞVÍ?
AF
HVERJU
SAGÐIR ÞÚ
MÉR EKKI
FRÁ ÞVÍ?
ÉG VAR
HRÆDDUR
UM AÐ ÞÚ
YRÐIR FÚL
ÉG ER
KOMINN TIL
ÞESS AÐ HITTA
LÆKNINN
GÓÐAN
DAGINN
HERRA
PARKER
KOMDU MEÐ
MÉR INN Á
SKRIFSTOFU
EKKERT
MÁL
SÍÐAST
ÞURFTI
ÉG AÐ
BÍÐA Í
MEIRA EN
KLUKKU-
TÍMA
AFLÝSTU HINUM
TÍMUNUM MÍNUM
AF
HVERJU ER
ÉG EKKI
SÁTTUR
VIÐ ÞETTA?
VEIÐIMAÐUR hugar að veiðigildru sinni við Manilaflóa á Filippseyjum.
Flóinn þykir afar fallegur og í honum er finna eitt besta, náttúrulega hafn-
arstæðið í veröldinni.
Reuters
Hugað að afla
Ámorgun miðvikudag efnaFeministafélag Íslands,Kvennaathvarfið, Kven-réttindafélag Íslands,
Mannréttindaskrifstofa Íslands,
Neyðarmóttaka vegna nauðgana,
Rannsóknarstofa í kvenna- og kynja-
fræðum, Samtök kvenna af erlendum
uppruna, Stígamót og UNIFEM á
Íslandi til morgunverðarfundar með
fulltrúum stjórnmálaflokkanna.
Fundurinn er haldinn undir yf-
irskriftinni Stefnumót við stjórn-
málaflokka: Kynbundið ofbeldi.
Guðrún Jónsdóttir er talskona
Stígamóta: „Framundan er kosn-
ingavor og viljum við nota tækifærið
og hlýða stjórnmálaflokkunum yfir í
þessum málaflokki.“ Guðrún segir
hafa mátt merkja ánægjulega þróun í
starfi kvennahreyfingarinnar á und-
anförnum árum og eiga kvenna-
samtök í auknum mæli samstarf um
leiðir og stefnur í baráttumálum: „Við
beitum samtakamætti okkar til að
krefja stjórnmálaflokkana um að-
gerðir og viljum setja þennan mála-
flokk á dagskrá strax í upphafi kosn-
ingabaráttunnar.“
Fundurinn hefst með stuttum inn-
gangserindum Guðrúnar, Ásu Ólafs-
dóttur lögfræðings og Kristínar Ást-
geirsdóttur forstöðumanns
Rannsóknarstofu í kvenna- og kynja-
fræðum við Háskóla Íslands: „Nú
liggur fyrir frumvarp dóms-
málaráðherra sem endurskoðar kyn-
ferðisbrotahluta hegningarlaga. Þar
hefur Björn Bjarnason tekið til hend-
inni og leiðrétt ýmis úrelt lagaákvæði
sem þurfti nauðsynlega að lagfæra,“
segir Guðrún. „Þó eru viss ákvæði
sem við erum allar sammála um að
þurfi að breyta og er eitt stærsta
ágreiningsefnið hvernig nýja frum-
varpið fjallar um vændi. Við álítum
vændi eina birtingarmynd kynbund-
ins ofbeldis og viljum að lögin fari
með vændi sem slíkt og geri þá sem
kaupa vændi ábyrga.“
Guðrún segir kynbundið ofbeldi
umfangsmikið vandamál og vitund-
arvakningu hafa átt sér stað síðustu
ár hér á landi: „Þróuninni má líkja við
vatnaskil og fólk sem beitt hefur verið
þessu ofbeldi er orðið meðvitaðra um
hversu alvarlegum mannréttinda-
brotum það hefur orðið fyrir,“ segir
Guðrún. „Við verðum áþreifanlega
vör við þessa þróun hjá Stígamótum;
fólk leitar í auknum mæli til okkar um
aðstoð og við erum farin að veita
þjónustu víðar um land. Meðal ann-
ars höfum við hafið tilraunaverkefni í
kvennafangelsinu og aðstoðað við að
koma á laggirnar sjálfshjálparhópum
á Ísafirði, Akureyri og í Vest-
mannaeyjum. Við beinum sjónum
sérstaklega að Austurlandi, sem
vegna vegalengda hefur farið nokkuð
á mis við þjónustuna en Fljótsdals-
hérað og Fjarðabyggð styrkja Stíga-
mót til þess að bjóða upp á þriggja
mánaða tilraunaþjónustu á svæðinu.
Hafa móttökurnar verið slíkar að
færri komast að en vilja og þurfti að
auka þjónustuna um meira en helm-
ing og önnum við þó ekki eftirspurn.“
Morgunverðarfundurinn er hald-
inn á Grand Hóteli og hefst kl. 8.
Morgunverður kostar 1.400 kr. en öll-
um er velkomið að sitja fundinn.
Kvenréttindi | Morgunverðarfundur kvenna-
hreyfingarinnar um kynbundið ofbeldi
Stefnumót við
stjórnmálaflokka
Guðrún Jóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 1954.
Hún lauk lands-
prófi frá Kvenna-
skólanum, stúd-
entsprófi frá MT
1974, B.S. prófi í
líffræði frá Há-
skóla Íslands
1978 og lauk námi í félagsráðgjöf
frá Norges Communal og Social
Hogskole 1994. Guðrún starfaði við
kennslu og rannsóknir við Líf-
fræðistofnun HÍ, starfaði fyrir
Kvennalistann og Kvennaathvarf
og var framkvæmdastýra Norsku
kvennaathvarfahreyfingarinnar.
Frá árinu 1999 hefur hún verið tals-
kona Stígamóta. Guðrún er gift
Tómasi Jónssyni sérkennslufulltrúa
Kópavogsb. og eiga þau þrjár dæt-
ur og þrjú barnabörn.