Morgunblaðið - 20.02.2007, Blaðsíða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Skráning viðburðar í Staður og stund er á
heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos
Skráning viðburða
Ég er fædd og uppalin austur íFljótshlíð. Nálægð náttúru og
þjóðtrúar hefur ávallt verið mitt
veganesti. Ég mála alltaf beint frá
hjartanu, þannig að litirnir taka
völdin og flæða yfir myndflötinn,“
segir Álfheiður Ólafsdóttir sem ný-
lega opnaði myndlistasýningu sem
hún kallar „Álfar í mannheimum“ á
Thorvaldsen bar í Austurstræti 8–
10. Sýningin mun standa til 31.
mars.
Nú fer hver að verða síðastur að sjásýninguna Frelsun litarins í Lista-
safni Íslands, því henni lýkur sunnudaginn
25. febrúar.
Sýningin kemur frá Musée des Beaux-
Arts í Bordeaux í Frakklandi í tengslum
við menningarhátíð sem frönsk og íslensk
stjórnvöld standa að, Pourquoi Pas? –
Franskt vor á Íslandi, og markar sýningin
upphaf hátíðarinnar. Sýningin færir okk-
ur sérstaka sýn á fauvismann, af-
drifaríkan tíma innan málaralistarinnar
sem náði hámarki árið 1905 og fól í sér
nýjar skilgreiningar í stefnu málverksins.
Verk eftir heimsþekkta málara listasög-
unnar eru á sýningunni, má nefna Raoul
Dufy, Pierre Bonnard, Henri Matisse,
Oskar Kokoschka, Auguste Renoir og Fé-
lix Vallotton. Alls eru verkin á sýningunni 52 eftir 13 listamenn.
Jón Stefánsson (1881–1962) var eini Íslendingurinn sem var nemandi Mat-
isse. Jón var nemandi Matisse 1908–1911. Sýnt er úrval verka eftir Jón Stef-
ánsson í eigu Listasafns Íslands.
Tónlist
Hitt Húsið | Pósthússtræti 3-5 (gengið inn
Austurstrætismegin). Fimmtud. 22. feb.
mun jötunn rísa í kjallara Hins Hússins því
þar munu saman koma 3 kraftmiklar hljóm-
sveitir: Andrúm, Coral og Envy of Nona.
Tónleikarnir byrja kl. 20.
Norræna húsið | Ný íslensk tónlist á Há-
skólatónleikum kl. 12.30-13. Pamela De
Sensi og Rúnar Þórisson flytja nýjar út-
setningar á ísl. þjóðlögum eftir Elínu Gunn-
laugsdóttur og nýtt verk eftir Jónas Tóm-
asson. Einnig verða verk eftir Bozza,
Cordero og Margola. Aðgangseyrir kr. 1000
en kr. 500 fyrir eldri borgara og öryrkja;
ókeypis fyrir nemendur HÍ.
Myndlist
Anima gallerí | Aðalheiður S. Eysteins-
dóttir. Lágmyndir. Til 24. feb. Opið þri.-lau.
kl. 13-17 www.animagalleri.is
Auga fyrir auga | á horni Klapparstígs og
Hverfisgötu. „Feel free to join me“ er titill
innsetningar Önnu Lindar Sævarsdóttur. Til
11. mars. Opið miðvikud. kl. 15-18, föstud.
laugard. og sunnud. kl. 14-17.
Café Karólína | Sýning Kristínar Guð-
mundsdóttur samanstendur af textaverk-
um á glasamottur og veggi.
Café Mílanó | Faxafeni 11. Flæðarmálið -
Ljósmyndasýning Rafns Hafnfjörð. Opið kl.
8-23.30 virka daga, kl. 8-18 laugardaga og
kl. 12-18 sunnudaga.
Energia | Haf og Land. Málverkasýning
Steinþór Marinó Gunnarsson. Opið kl. 8-
20. Til 1. mars.
Gallerí 100° | í höfuðstöðvum Orkuveit-
unnar, Bæjarhálsi 1. Samkeppni um úti-
listaverk. Sýning á innsendum tillögum um
gerð útilistaverks við Hellisheiðarvirkjun.
Opið alla virka daga frá kl. 8.30-16. Sjá nán-
ar www.or.is/gallery
Gallerí Lind | Kópavogi. Kjartan Guð-
jónsson er listamaður febrúarmánaðar.
Kjartan er fæddur 1921 og var einn af upp-
hafsmönnum Septembersýningarinnar
sem hélt uppi merkjum afstraktmálverks-
ins á árunum 1947-1952. Til 23. febrúar.
Gallerí Úlfur | Baldursgötu 11. Sýning Þór-
halls Sigurðssonar – Fæðing upphafs.Til
20. feb. Opið mán.-föst. kl. 14-18, laug. og
sun. kl. 16-18.
Gallery Turpentine | The Kodak Moments
– Myndaflokkur um fjölskyldulíf – elskendur,
foreldra, börn og barning kynja. Hallgrímur
Helgason sýnir 110 grafíkverk unnin á ár-
unum 2004-2007.
Gerðuberg | RÚRÍ: Tími - Afstæði - Gildi.
Opið virka daga kl. 11-17 og um helgar kl. 13-
16. Til 15. apríl.
Hafnarborg | Hrafnhildur Inga Sigurð-
ardóttir sýnir tæplega 40 olíumálverk, mál-
uð á þessu ári og því síðasta. Myndirnar
eru minningarbrot frá ferðalögum um Ís-
land. Til 4. mars.
Hafnarborg | Yfirlit yfir listferil. Dröfn Frið-
finnsdóttir (1946-2000) lét mikið að sér
kveða í íslensku listalífi og haslaði hún sér
völl í einum erfiðasta geira grafíklist-
arinnar, tréristunni. Til 4. mars.
Hallgrímskirkja | Mynd mín af Hallgrími.
28 íslenskir myndlistarmenn sýna út-
færslur sínar á hinni alkunnu mynd Hjalta
Þorsteinssonar af Hallgrími Péturssyni.
Hrafnista Hafnarfirði | Olga Steinunn
Bjarnadóttir sýnir í Menningarsal til 2.
mars.
i8 | Sýning á verkum Kristins E. Hrafns-
sonar til 24. feb. Opið þri.-föst. kl. 11-17 og
laug. kl. 13-17.
Karólína Restaurant | Listagilinu á Ak-
ureyri. Jónas Viðar sýnir málverk. Til 4.
maí. Nánar á www.jvd.is
Kling og Bang gallerí | Helgi Hjaltalín og
Pétur Örn sýna tvær einkasýningar í sam-
vinnu. Þar fara saman ný verk og verk sem
eru endurgerð svo þau verða jafn ný og
ógerðu verkin sem kvikna með bygg-
ingavörubæklingnum. Þar verður sýningin
sjálf endurgerðin frekar en verkin sjálf.
Listasafn ASÍ | Leiðsla. Eygló Harðardóttir
sýnir skjáverk, málverk á pappír, teikningar
og þrívíð verk, unnin með safnrýmið í huga.
Til 25. febrúar. Aðgangur er ókeypis.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Jóns Óskars - Les Yeux de Ĺombre Jaune
og Adam Batemans - Tyrfingar. Opið alla
daga nema mánudaga 12-17.
Listasafn Íslands | Frelsun litarins/Regard
Fauve, sýning á frönskum expressjónisma í
upphafi 20. aldar. Sýning á verkum Jóns
Stefánssonar í sal 2. Síðasta sýningarvika.
Opið kl. 11-17 alla daga, lokað mánudaga.
Ókeypis aðgangur.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Efri
hæð: Ljósmyndasýning Blaðaljósmynd-
arafélags Íslands. Neðri hæð: Kárahnjúkar.
Ljósmyndir eftir: Ragnar Axelsson, Pál
Stefánsson, Þorvald Örn Kristmundsson,
Brynjar Gauta Sveinsson, Kristin Ingvars-
son og Vilhelm Gunnarsson. Til 18. mars.
Safnbúð og kaffistofa.
Listasafn Reykjanesbæjar | Duushúsum.
Sýning Hlaðgerðar Írisar Björnsdóttur og
Arons Reys Sverrissonar. Sýningin ber
heitið Tvísýna og um er að ræða málverk í
anda raunsæisstefnu; af börnum, húsum
og umhverfi.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Erró
safnið - Gleymd framtíð. Sýningin sam-
anstendur af 100 vatnslitamyndum sem
voru málaðar á árunum 1981-2005. Mynd-
irnar eru flestar í eigu Errós og hafa ekki
verið sýndar hér á landi áður.
D er ný sýningaröð sem nefnd er eftir ein-
um sýningarsal hússins og er hugsuð sem
framtíðarverkefni safnsins. Fyrst til að
sýna verk sín í sýningaröðinni er Birta Guð-
jónsdóttir.
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Á
sýningunni Foss eru tengsl listar og nátt-
úru rannsökuð í gegnum verk fjögurra
listamanna. Listamennirnir eru: Hekla
Dögg Jónsdóttir, Ólafur Elíasson, banda-
ríska listakonan Pat Steir og Rúrí. Sýning-
arstjóri er Hafþór Yngvason.
K-þátturinn. Á sýningunni eru verk og ferill
Kjarvals skoðuð út frá hugarheimi Kjarvals
í því skyni að varpa nýju ljósi á verk hans
fyrir samtímann. Sýningarstjóri er mynd-
listarmaðurinn Einar Garíbaldi Eiríksson
sem hefur í verkum sínum kannað sýn Ís-
lendinga á náttúruna og verk Kjarvals.
Kjarval og bernskan. Sýning í norð-
ursalnum fyrir börn þar sem varpað er ljósi
á ýmsa forvitnilega snertifleti Kjarvals við
æskuna. Verkin á sýningunni varpa ljósi á
og eru uppspretta hugleiðinga um ólíkar
aðstæður barna fyrr og nú.
Listhús Ófeigs | Skólavörðustíg 5. Bjarni H.
Þórarinsson, Ómar Stefánsson og Guð-
mundur Oddur Magnússon samstarfsverk-
efnið Cosmosis-Cosmobile. Guðmundur
Oddur bræðir saman á sinn hátt mynd-
heima þessara tveggja listamanna. Þetta
er sölusýning stendur til 28. febr. Opið á
verslunartíma.
Skaftfell | Framköllun, sýning Haraldar
Jónssonar. Til 20. feb. Opið kl. 13-17 allar
helgar eða eftir samkomulagi. www.skaft-
fell.is
Þjóðarbókhlaðan | Sigurborg Stefánsdóttir
sýnir bókverk til 28. febrúar. Bókverk eru
myndlistarverk í formi bókar, ýmist með
eða án leturs.
Söfn
Gljúfrasteinn - Hús skáldsins | Opið alla
daga nema mánudaga kl. 10-17. Hljóð-
leiðsögn á íslensku, ensku, sænsku og
þýsku. Margmiðlunarsýning og gönguleiðir
í nágrenninu. Frekari upplýsingar á
www.gljufrasteinn.is. Sími 586 8066.
Iðnaðarsafnið á Akureyri | Meðal þess
sem framleitt var í Iðnaðarbænum Ak-
ureyri var súkkulaði, skinnkápur, skór, hús-
gögn og málning. Á Iðnaðarsafninu gefur
að líta þá framleiðslu sem fram fór á Ak-
ureyri á síðustu öld auk véla, verkfæra,
auglýsinga og sveinsstykkja. Opið á laug-
ardögum kl. 14-16.
Landnámssýningin Reykjavík 871±2 |
Aðalstræti 16, er lokuð. Opnað að nýju 3.
mars.
Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn
| Sparibækur. Sýning Sigurborgar Stef-
ánsdóttur Bókverk eru myndverk í formi
bókar.
Sýning. Upp á Sigurhæðir - Matthías Joch-
umsson. Matthías Jochumsson var lyk-
ilmaður í „þjóðbyggingu“ 19. aldar. Sýningin
stendur út febrúar.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Skotið:
Menjar tímans – Sissú. Sýningin fjallar um
áferð og athafnir sem verða til við breyt-
ingar í umhverfi mannsins. Til 20. febr.
Minjasafnið á Akureyri | Minjasafnið á Ak-
ureyri sýnir nú 70 óþekktar myndir og bið-
ur almenning um aðstoð við að setja nafn á
andlit og heiti á hús. Hefur þú séð annað
eins? Nokkrir sjaldséðir gripir sem gestir
geta spreytt sig á að þekkja. Aðrar sýn-
ingar: Akureyri-bærinn við Pollinn & Eyja-
fjörður frá öndverðu.
Myntsafn Seðlabanka og Þjóðminjasafns
| Í húsnæði Seðlabankans að Kalkofnsvegi 1
er yfirlitssýning á íslenskum gjaldmiðli og
öðru efni í eigu safnsins. Þar er einnig
kynningarefni á margmiðlunarformi um
hlutverk og starfsemi Seðlabanka Íslands.
Opið mán.-föst. kl. 13.30-15.30. Gengið inn
um aðaldyr bankans frá Arnarhóli. Aðgang-
ur er ókeypis.
Perlan | Sögusafnið er opið alla daga kl. 12-
17. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum leik-
myndir sem segja söguna frá landnámi til
1550. www.sagamuseum.is
Þjóðmenningarhúsið | Á sýningunni Hand-
ritin eru sýnd nokkur merkustu skinn-
handrit miðalda, svo sem Konungsbækur
Eddukvæða og Snorra Eddu, Flateyjarbók
og valin handrit lagabóka, kristilegra texta
og Íslendingasagna, og auk þess nokkur
mikilvæg pappírshandrit frá seinni öldum.
Leiðsögn fyrir hópa og nemendur.
Á lokaspretti sýningarinnar Íslensk tísku-
hönnun 23.-27. febrúar verður sýndur nýr
fatnaður frá hönnuðunum; Spaksmanns-
spjörum, Ástu Guðmundsdóttur, Þorbjörgu
Valdimarsdóttur, Rósu Helgadóttur, Önnu
Guðmundsdóttur, Dóru Emilsdóttur, Rögnu
Fróða, Jónu B. Jónsdóttur og Steinunni
Sigurðardóttur.
Leiklist
Borgarbókasafn Reykjavíkur - Kringlu-
safn | Dagur vonar - Leikhússpjall fimmtu-
daginn 22. febr. kl. 20.15. Frá höfundi til
áhorfanda. Hilmir Snær Guðnason leik-
stjóri, Birgir Sigurðsson leikskáld og Birg-
itta Birgisdóttir leikari spjalla um leikverkið
Dagur vonar og vinnu leikhópsins. Boðið
upp á kaffi og konfekt. Allir velkomnir.
Fyrirlestrar og fundir
Afríka 2020 félag áhugafólks um Afríku
sunnan Sahara | Úganda er efni málstofu
félagsins Afríka í Alþjóðahúsinu, Hverf-
isgötu 18, í kvöld, þriðjudag, kl. 20.30, í til-
efni nýrrar kvikmyndar um Idi Amin, fyrr-
verandi einræðisherra í Úganda. Jónas
Haraldsson talar um einræðisherra í Afríku
og Kristinn Kristinsson um arfleifð Amin í
úgandísku samfélagi í dag. Málstofan er öll-
um opin og aðgangur ókeypis.
Krabbameinsfélagið | Skógarhlíð 8. Opið
hús og fræðslufundur Samhjálpar kvenna
verður í kvöld, þriðjudag, 20. febrúar, kl.
20. Dagskrá: Vigdís Stefánsdóttir erfða-
ráðgjafi flytur erindið: „Erfðaráðgjöf - hvað
er það?“ Kaffi. Allir velkomnir og takið með
ykkur gesti. Stjórnin.
Lesblindusetrið | Akureyri. 1. mars kl. 20.
Kolbeinn Sigurjónsson, Davis ráðgjafi hjá
Lesblindusetrinu heldur fyrirlestur um les-
blindu og Davis-aðferðafræðina. Davis-
viðtöl í boði 1. og 2. mars. kolbeinn-
@lesblindusetrid.is, s: 566 6664.
OA-samtökin | Í tilefni af 25 ára afmæli OA
samtakanna á Íslandi verður haldinn hátíð-
arfundur fimmtud. 22. feb. kl. 20 í húsnæði
SÁÁ, Efstaleiti 7. Allir velkomnir. Uppl. á
www.oa.is
Seðlabanki Íslands | Málstofa í dag kl. 15.
Málshefjandi er Þórarinn G. Pétursson,
staðgengill aðalhagfræðings og deild-
arstjóri rannsóknar- og spádeildar Seðla-
banka Íslands. Ber erindi hans heitið „Áhrif
nýlegra breytinga á innlendum húsnæð-
islánamarkaði á húsnæðisverð“.
Fréttir og tilkynningar
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við
Hyrnuna. Blóðgjöf er lífgjöf.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun miðvikudaga kl. 14-17. Tek-
ið við fatnaði og öðrum munum þriðjudaga
kl. 10-15. Sími 551 4349 virka daga kl. 10-
15. Netfang maedur@simnet.is
Frístundir og námskeið
Kópavogsdeild Rauða kross Íslands | Ósk-
að er eftir fleiri sjálfboðaliðum til að sinna
heimsóknaþjónustu. Undirbúnings-
námskeið verður haldið í sjálfboðamiðstöð-
inni Hamraborg 11 í dag, þriðjud., kl. 18-21.
Námskeiðið er ókeypis og opið öllum
áhugasömum.
Krabbameinsfélagið | Fluguhnýtinga-
námskeið Krabbameinsfélagsins hefst 26.
feb. Námskeið er 6 skipti (2 vikur) og verð-
ur: mánudaga, þriðjudaga og miðvikudag
kl. 16.15-18.15. Námskeiðið er félögum að
kostnaðarlausu. Skráning á fjaröfl-
un@krabb.is eða í síma 540 1922 fyrir 23.
feb.
Staðlaráð Íslands | Námskeið 22. feb. kl.
8.30-14.45: ISO 9000 - Lykilatriði, upp-
bygging og notkun. Markmiðið er að þátt-
takendur geti gert grein fyrir meg-
ináherslum og uppbyggingu
kjarnastaðlanna í ISO 9000:2000 röðinni
og þekki hvernig þeim er beitt við að koma
á og viðhalda gæðastjórnunarkerfi. Kl.
8.30-14.45. Sjá nánar á vef Staðlaráðs,
www.stadlar.is
Útivist og íþróttir
Garðabær | Vatnsleikfimi fyrir alla. 4x í viku
kl. 7-8 á morgnana í innilauginni í Mýrinni,
Garðabæ. Hreyfing í vatni er tilvalin líkams-
rækt sem eykur vellíðan. Uppl. eða fyr-
irspurnir í síma 691 5508 og á netf. anna-
dia@centrum.is Anna Dia íþróttafræðingur.
staðurstund
Myndlist
Álfar í mann-
heimum
Myndlist
Sérstök sýn á fauvismann
8 TILNEFNINGAR TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
eeeee
BAGGALÚTUR.IS
- Miðasala í Smárabíó og Regnbogann - Engar biðraðir
Sími - 564 0000Sími - 462 3500
Ghost Rider kl. 5.40, 8 og 10.15 B.i. 12 ára
The Pursuit of Happyness kl. 8 og 10.20
Dreamgirls kl. 5.40
Ghost Rider kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára
Ghost Rider LÚXUS kl. 5.30, 8 og 10.30
Notes on a Scandal kl. 8 og 10 B.i. 12 ára
The Pursuit of Happyness kl. 5.30, 8 og 10.30
Rocky Balboa kl. 8 og 10.20 B.i. 12 ára
Anna and the moods m/ensku tali kl. 4 og 4.45 STUTTMYND/ótextuð
Anna og skapsveiflurnar m/ísl. tali kl. 4 og 4.45 STUTTMYND
Vefurinn hennar Karlottu m/ísl. tali kl. 3.40
Night at the Museum kl. 5.40
Köld slóð kl. 5.45 B.i. 12 ára
Byggð á sannri sögu um
manninnn sem reyndi
það ómögulega!
1TILNEFNING TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
eee
M.M.J - Kvikmyndir.com
eee
S.V. - MBL
eeee
S.V. - MBL
eeee
K.H.H. - FBL
700
kr fy
rir fu
llorð
na
og 5
00 k
r fyr
ir bö
rn
eee
S.V. - MBL
SVALASTA
SPENNUM
YND
ÁRSINS
NICOLAS CAGE EVA MENDES