Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 48

Morgunblaðið - 20.02.2007, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ / AKUREYRI eeee V.J.V. TOPP5.IS eeee B.S. FRÉTTABLAÐIÐ eeee B.B.A. PANAMA.IS eeee RÁS 2 HANNIBAL RISING kl. 8 -10 B.i. 16 ára PERFUME kl. 10 B.i. 12 ára MAN OF THE YEAR kl. 6 - 8 LEYFÐ VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ LETTERS FROM IWO JIMA kl. 6 - 9 B.i. 16 ára PERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára DREAMGIRLS kl. 6 - 9 LEYFÐ BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára FORELDRAR kl. 7:50 LEYFÐ BABEL kl. 9:30 B.i. 16 ára STRANGER THAN FICTION kl. 5:50 LEYFÐ NICOLAS CAGE EVA MENDES SÝND Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI eeee H.J. MBL. eeee LIB - TOPP5.IS eeee FRÉTTABLAÐIÐFORELDRAR KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON HJÁLPIN BERST AÐ OFAN eee S.V. - MBL SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16 ára BLOOD DIAMOND kl. 10:20 B.i. 16 ára ROCKY BALBOA kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára / KEFLAVÍK SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is SVALASTASPENNUMYNDÁRSINS FRÁ SAMA HÖFUNDI OG FÆRÐI OKKUR SILENCE OF THE LAMBS OG RED DRAGON KEMUR ÞIÐ VITIÐ HVER HANN ER.... ...SVONA BYRJAÐI ÞAÐ Rangt að hafa frítt í leikskóla MÉR finnst rangt hjá vinstri græn- um að ætla að gera eitt af sínum helstu stefnumálum að hafa frítt í alla ríkisrekna leikskóla (þeir birtu grein í blaðinu um daginn um að ætla að hafa þetta eitt af sínum stefnumálum). Ástæðurnar fyrir því að mér finnst þetta rangt er að í fyrsta lagi þá eru ekki eingöngu ríkisreknir leikskólar hér, heldur einnig einka- reknir leikskólar, t.d. Regnboginn í Ártúnsholti. Þeir myndi auðvitað strax fara á hausinn og fólk þar missa vinnuna. Það er mjög erfitt nú til dags að fá pláss á leikskóla fyrir börn. Og um leið og einkareknu leik- skólarnir þyrftu að loka yrði það ennþá erfiðara. Önnur ástæðan er að nú er verið að reyna að fá aukna fjármuni út úr leikskólunum til að geta borgað starfsfólki þar betri laun og einnig vantar fé fyrir laun grunnskólakenn- ara. Þarna myndum við tapa enn meira fé og hver veit nema að þá þyrfti að hækka skattana eða jafnvel lækka laun einhverra? Þriðja ástæðan er sú að það eru ekki bara leikskólar hér á landi. Einnig eru dagmömmur og heils- dagsskólar sem eru fyrir 1.–4. bekk í grunnskólum þar sem krakkarnir geta farið í nokkurskonar pössun eftir skóla. Þá væri ósanngjarnt að hafa gjald á því öllu og þyrfti því að hafa það frítt, það kostar pening. Það yrði líka að hafa allan mat frían í leikskólum og eflaust þyrfti að gefa frían mat í skóla og þá myndum við tapa ennþá meiri pening. Mér finnst þessi hugmynd mjög undarleg og vona að hún verði aldrei að veru- leika. Ég get ekki séð annað en að þetta myndi bara leiða til hærri skatta eða einhvers annars sem myndi þurfa að gera til að fá meiri pening til að borga þetta upp. Eftir þessa hugmynd missti ég allt álit mitt á flokknum og er það 100% að ég kýs ekki þennan flokk í vor, ég útiloka alveg þennan flokk með þetta stefnumál. Einn óánægður. Kjalvegur – nei takk KJALVEGUR: Hraði, hagkvæmni og arður eru mikil töfrahugtök. Við eigum blátt áfram að falla á kné af hrifningu. Og nú eigum við að falla á kné yfir þeirri hugmynd að geta skutlast yfir Kjöl á beinum og upp- byggðum vegi. Þessi hugmynd vek- ur nokkrar mikilvægar spurningar:  Hver er réttur minn sem vil geta farið á milli landshluta í rólegheit- um á mínum Landróver?  Hvaða leið á ég nú að fara án þess að stofna lífi mínu og annarra í hættu vegna sífellds framúraksturs?  Er ekki meiri hætta á að ég drepi mig á uppbyggðum malarvegi en nið- urgröfnum og krókóttum? Hluti Kjalvegar er þegar upp- byggður og Sprengisandur er á sömu leið. Á þessum köflum eykst ökuhraði til muna og vegurinn verð- ur eitt samfellt stórhættulegt þvottabretti. Næ ég sama sambandi við umhverfi mitt á 90 km hraða og 40? Hvor vegurinn er nær landinu, sá uppbyggði eða sá gamli, nið- urgrafni og krókótti? Maður spyr sig! Rósa Sigrún Jónsdóttir. Týndur gaukur ÞESSI fallegi dísarpáfagaukur flaug frá heimili sínu í Hafnarfirði laug- ardaginn 17. febrúar. Ef einhver hefur orðið hans var, vinsamlegast hringið í Fríðu í síma 6977509. Fundarlaun. velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Hlutavelta | Þessi ungi herramaður, Axel Fannar Friðriksson, Grænugötu 4, Akureyri, kom og færði Rauða krossinum 1.020 kr. sem hann hafði aflað með því að ganga í hús og safna flöskum. Það er margt í lífinusem Víkverji ekki skilur með góðu móti, stórir sem smáir hlutir sem ýmist vekja furðu eða hugarangur. Fyrir það fyrsta skilur Víkverji ekki þau læti sem eru í kringum boðaða klám- ráðstefnu á Hótel Sögu. Honum stendur á sama, á meðan ekki eru framin hér lögbrot af þessum gestum. Víkverji skilur ekki athyglina sem forseti Íslands fær. Á meðan embættið nefnist ekki konungdæmi er Víkverja slétt sama hvað forsetinn tekur sér fyrir hend- ur eða í hvaða ráði hann situr. Er ekki laust í tóbaksvarnaráði? Víkverji skilur ekki Sjónvarpið fyrir að hafa fært Lost og Að- þrengdar eiginkonur framar í dag- skrána. Börnin ekki sofnuð og Vík- verji missir af öllu. Hvernig líður útvarpsstjóra yfir því? Víkverji skilur ekki Ellý í Q4U fyrir að hafa sent töffarann Sigga út úr X-Factor, eða þá sem kusu eitt- hvað annað en töffarann Eirík Hauksson í Evróvisjón. Víkverji skilur ekki Kastljós fyrir að taka viðtal við drukkinn ungling. Var áhorfskönnun í gangi eða hvað? Víkverji skilur ekki lengur Baugsmálið og þann fjölmiðlasirkus sem réttarhöldin eru orðin. Það vantar bara að þessi maður sem lít- ur út eins og Clark Kent fari í Súperman- búninginn og gangi frá „vondu“ köllunum. Víkverji skilur ekki hvernig fólk hefur tíma til að skrifa allt þetta blogg, annaðhvort er það atvinnulaust, ein- mana eða svona rosa- lega athyglissjúkt. Víkverji skilur ekki tilganginn með hraða- hindruninni á Flókagötu vestan Rauðarárstígs. Hún hægir svo á um- ferð að þeir bílar á Rauðarárstíg sem eru á stöðvunarskyldu rjúka af stað og allt getur farið í klessu. Víkverji skilur hvorki boðskap Frjálslynda flokksins né femínista. Víkverji skilur ekki kvörtun rit- stýru Krónikunnar yfir því að tíma- ritið hafi ekki fengið næga fjölmiðla- athygli. Við hverju bjóst hún? Víkverji skilur ekki hvernig hægt er að finna fíkniefni innvortis á fólki við „hefðbundna tollaleit“. Víkverji vildi ekki lenda í óhefðbundinni leit. Loks skilur Víkverji ekki þá sem skilja hann ekki. Þeir hafa bara ekki húmor. víkverji skrifar | vikverji@mbl.is        dagbók MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF: ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Í dag er þriðjudagur 20. febrúar, 51. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Er Ísbóset sonur Sáls frétti, að Abner væri dauður í Hebron, féllust honum hendur, og allur Ísrael varð óttasleginn. (II Sam. 4, 1.–2.) hlutavelta ritstjorn@mbl.is Hin óútreiknanlega Kelly Osbo-urne, sem helst hefur unnið sér það til frægðar að vera dóttir Sharon og Ozzy Osbourne, greindi frá því á tónleikum til stuðnings HIV-smituðum í Lundúnum í gær- kvöldi að einn úr fjölskyldunni hefði greinst HIV-smitaður. Sagði Kelly frá því að málefnið skipti sig því miklu máli. Að sögn ljósmyndara sem voru á tónleik- unum í Camden í Lundúnum var Kelly grátandi þegar hún fór af sviðinu. Osbourne- fjölskyldan varð sjónvarpsvinur á mörgum heimilum fyrir nokkrum árum er raunveru- leikaþættir með fjölskyldunni voru sýndir á sjónvarpsstöð- inni MTV.    Söngkonan Mariah Carey segistekki geta gengið á neinu öðru en háhæluðum skóm. „Ég get ekki gengið í flatbotna skóm. Ég fæ blöðrur af því. Barnfóstran mín hló að mér þegar ég var tólf ára af því að ég gekk alltaf á tánum. Ég gat bara ekki gengið á hælunum,“ segir hún í viðtali við breska blaðið The Times. „Það má svo sannarlega segja að ég sé hælastelpa. Ég get hlaupið á háum hælum og ég gæti synt í þeim ef ég þyrfti. Söngkonan, sem er 37 ára, seg- ist einnig vonast til þess að fundið verði upp krem sem slétti hrukkur áður en hún þarf á andlitslyftingu að halda. Að öðrum kosti telur hún að hún muni læra að lifa með hrukkunum jafnvel þótt henni finnist þær alveg hræðilegar líkt og önnur ellimerki.    Parið Pete Doherty og KateMoss virðast vera mestu mát- ar þessa dagana, en Moss kom fram á NME-tónlistarhátíðinni ásamt hljómsveit Dohertys, Babys- hambles á sunnudaginn. Moss söng ásamt unnusta sínum lagið „La Belle et La Bête“. Breska slúðurblaðið The People sagði hins vegar frá því í gær að náðst hefði símamyndskeið af Doherty taka sterk eiturlyf á heimili kunningja síns fyrir skömmu. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn sem Moss kemur nálægt tón- list því fyrir fáeinum misserum vakti hún athygli fyrir söng sinn í laginu „Some Velvet Morning“ með hljómsveitinn Primal Scream. People segir að myndskeiðið hafi Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.