Morgunblaðið - 20.02.2007, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 20.02.2007, Qupperneq 52
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 ÞRIÐJUDAGUR 20. FEBRÚAR 51. DAGUR ÁRSINS 2007 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Austan 10-20 m/s, hvassast syðst. Rigning öðruhvoru suð- austanlands en annars þurrt að kalla. Hvessir síðdegis. » 8 Heitast Kaldast 7°C 1°C TÖLVUTEIKNIMYND um þrumuguðinn Þór verður frumsýnd árið 2010, en það er íslenska fyrirtækið Caoz sem framleiðir. Um er að ræða gamansama ævintýramynd í fullri lengd, eða 90 mínútur. Hugmyndin að myndinni kviknaði árið 2003 og vinnsla hófst árið 2005 og því er um sjö ára ferli að ræða. Að sögn Hilmars Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Caoz, er áætlaður kostnaður við myndina um 1,4 milljarðar króna og gerir hann ráð fyrir að innan skamms muni um 120 manns vinna við hana. Einhverjir útlendingar verða ráðnir til verkefnisins en flestir teiknaranna verða þó íslenskir. Hilmar segir markað fyrir myndir af þessu tagi risastóran og eftir miklu að slægjast. | 18 Þór frum- sýndur 2010 Þrumuguð Tölvuteiknaður Þór. Kostnaður 1,4 milljarðar TVEIR strákar settust niður á grasflöt við Háteigsveg, við Fjöltækni- skóla Íslands, og hvíldu sig á leiðinni heim úr skólanum. Þá var ekki ónýtt að fá sér smábita. Svo heppilega vildi til að annar strákurinn átti afgang af skólanestinu og gat gefið vini sínum með sér. Gangan heim úr skólanum varð því að nokkurs konar lautarferð þótt árstíminn stemmdi ekki alveg. En drengirnir voru vel klæddir, kannski aðeins um of því eitthvað virtist það vefjast fyrir öðrum þeirra að grípa matarbitann með markmannshönskunum. Morgunblaðið/G. Rúnar Í lautarferð á leið heim úr skólanum „Á ÍSLANDI er þingræði. Forseti Íslands ræð- ur því ekki hverjir eru ráðherrar í ríkisstjórn, sem starfar á grundvelli þingræðisreglunnar. Því er auðvitað fráleitt að ráðuneytin séu ein- hvers konar deildir í forsetaembættinu. Forset- inn lét þess reyndar getið að slík túlkun ætti við ef menn vildu fara í „orðhengilsleik“ varðandi stjórnskipunina. Ég tel ekki að æðstu ráðamenn þjóðarinnar eigi að stunda slíka leiki.“ Þetta segir Geir H. Haarde, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins. Morgunblaðið bar ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, um stjórnskipulega stöðu forsetaemb- ættisins, í þættinum Silfri Egils sl. sunnudag, undir formenn stjórnmálaflokkanna í gær. ,,Mér finnst verið að taka orð [forsetans] úr því samhengi sem þau eru sögð í og þar að auki sýnist mér að þau séu sögð í gamansömum tón og að engin ástæða sé til að leggja í þau þá miklu merkingu sem mér finnst Morgunblaðið gera,“ segir m.a. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar. „Forseti Íslands er hafinn yfir deilur og dæg- urmál og ég vil bregðast við í samræmi við þetta,“ segir Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra og formaður Framsóknarflokksins. „Ég get aðeins sagt, sem íslenskur þegn, að ýmsar skilgreiningar og stjórnlagaskýringar núverandi forseta Íslands í sjónvarpsviðtali um helgina komu mér mjög á óvart og ég hef ekki heyrt þær eða séð fyrr,“ segir Jón Sigurðsson. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs, kveðst vera sammála því að forsetaembættið heyri ekki með beinum hætti undir neitt ráðuneyti. Hins vegar sé augljóst að forsetaembættið hafi sérstök tengsl við tvö ráðuneyti. Við for- sætisráðuneytið vegna samskipta forseta við ríkisstjórn og gott samstarf við utanríkisráðu- neytið vegna skyldna forsetans á erlendri grund. Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, kveðst ekki hafa heyrt fyrr þessa skilgreiningu á forsetaembættinu [sem forsetinn setti fram í sjónvarpsþættinum]. |4 Fráleitt að ráðuneytin séu deildir í forsetaembættinu  Ingibjörg Sólrún segir orð forseta tekin úr samhengi  Skilgreiningar forseta komu Jóni Sigurðssyni á óvart  Sérstök tengsl, segir Steingrímur J. SÍMINN og Landsvirkjun hafa samið við Samkeppniseftirlitið um greiðslu 80 millj- óna króna sektar fyrir ólögmætt samráð vegna kaupa Símans á eignarhlut í fjar- skiptafélaginu Fjarska og kaupa á sex ljós- leiðarastrengjum milli Hrauneyjafossvirkj- unar og Akureyrar. Af þessum 80 milljónum greiðir Síminn 55 milljónir og Landsvirkjun 25 og eru þetta hæstu sektir sem samið hefur verið um til þessa. Í kjölfar frétta í fjölmiðlum árið 2005 hófu samkeppnisyfirvöld að eigin frumkvæði rannsókn á umræddum kaupum og var Símanum og Landsvirkjun í framhaldi af henni sent andmælaskjal þar sem fram kom það frummat Samkeppniseftirlitsins að markmiðið með samningunum hefði verið að raska samkeppni og skipta með sér markaði á sviði fjarskipta. | 9 Greiða 80 milljónir í sekt ♦♦♦ MENNTARÁÐ Reykjavíkurborgar vill að foreldrar grunnskólabarna taki sig í auknum mæli saman um að aka börnum í skóla. Þá vill ráðið að tveir umhverfisdagar eða grænir dagar verði hluti skólastarfs og að þeir verði settir inn í svokallað skóladagatal grunnskól- anna. Þetta er kjarninn í tveimur tillögum sem samþykktar voru samhljóða í menntaráði í gær. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, minnir á að svifryk og loftmeng- un í borginni hafi mikið verið til umræðu að undanförnu enda hafi komið í ljós að loft- mengun í borginni sé síst minni en í ýmsum öðrum borgum Evrópu. Tillögur menntaráðs gangi einmitt út á það að reyna að draga úr loftmengun við grunnskóla borgarinnar með því að stjórnendur skólanna hvetji nemendur til að ganga í skólann og foreldra yngri barna til að fylgja þeim fótgangandi eða aka þeim í skólann til skiptis. Staðreyndin sé sú að mikið sé um að yngri börnum sé ekið í skólann á morgnana og sótt síðdegis en lítið sé um að foreldrar sammælist um aksturinn. Þá er í til- lögunum gert ráð fyrir að komið verði upp skiltum við skólana þar sem ökumenn eru hvattir til að láta bíla ekki ganga í lausa- gangi. Júlíus segir að tillaga um að efna til tveggja umhverfisdaga, grænna daga, sé af sama meiði. Annars vegar verði dagur tengd- ur náttúrunni og umhverfisfræðslu og hins vegar dagur tengdur hreinsun og fegrun um- hverfisins. Foreldrar sammælist um akstur barna Morgunblaðið/RAX Óloft Loftmengun í Reykjavík er sögð síst minni en í ýmsum öðrum borgum Evrópu. Tillögur menntaráðs ganga einmitt út á það að reyna að draga úr henni við grunnskóla borgarinnar. Í HNOTSKURN »Menntaráð Reykjavíkur samþykkirað efna til átaks í að draga úr loft- mengun við grunnskóla með því m.a. að hvetja foreldra og starfsfólk skólanna til umræðu um betra loft. » Stjórnendur skólanna hvetji nem-endur til að ganga í skólann og for- eldra yngri barna til að fylgja þeim fót- gangandi eða aka þeim til skiptis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.