Morgunblaðið - 02.03.2007, Side 6

Morgunblaðið - 02.03.2007, Side 6
Kreppa Hugmyndir hafa verið um að gera brú yfir ána Kreppu en Ferðafélag Fljótsdalshérðas leggst alfarið gegn vegarlagningu þar. FERÐAFÉLAG Íslands, Ferða- félag Akureyrar og Ferðafélag Fljótsdalshéraðs leggjast gegn nýrri vegarlagningu í Vatnajökuls- þjóðgarði. Ferðafélag Fljótsdals- héraðs telur að mikilvægt sérkenni þjóðgarðsins eigi að vera frum- stætt vegakerfi. Ferðafélag Íslands, en í því eru um 7 þúsund félagsmenn, hefur í gegnum árin staðið fyrir margvís- legri uppbyggingu á svæði Vatna- jökulsþjóðgarðs. Ferðafélagið er andvígt því að lagðir verði nýir vegir á borð við þá sem um er getið í skýrslu ráðgjafarnefndar um Vatnajökulsþjóðgarð en þar eru áform um að malbika slíka vegi. Í umsögn Ferðafélags Akureyr- ar til umhverfisnefndar Alþingis er varað við að gerðar séu áætlanir um vegi með bundnu slitlagi eða upphækkaða vegi um hálendið norðan Vatnajökuls, s.s. að Öskju. „Á þessu svæði eru nú þegar veg- arslóðar sem eru færir yfir hásum- arið. Vegna veðurfars á þessu svæði er vandséð að ferðamanna- tíminn þarna mundi lengjast í telj- andi mæli með bættum vegum.“ Félagið bendir á að í skoðana- könnunum komi fram að fólk kæri sig ekki um upphækkaða vegi á svæðinu. Það telur koma til greina að öræfin norðan Vatnajökuls, t.d. á milli Skjálfandafljóts og Jökulsár á Fjöllum, verði skilgreind sem svæði þar sem megináherslan verði lögð á að laða að göngufólk og aðra sem eru reiðubúnir að leggja töluvert á sig líkamlega til að skoða landið. „Slíkt væri líka í samræmi við þá stefnu sem rekin hefur verið í Öskju mörg undanfarin ár að ekki megi aka á bílum að sumarlagi að Öskjuvatni. Ljóst er að verði lagðir vegir með bundnu slitlagi inn á þetta svæði, þá muni það gjör- breyta aðstæðum þess með ófyr- irsjáanlegum afleiðingum.“ Ferðafélag Fljótsdalshéraðs leggst alfarið gegn hugmyndum um nýja vegtengingu milli Kára- hnjúkavegar og Austurleiðar með brú á Kreppu og sömuleiðis gegn hugmyndum um bundið slitlag á vegi innan þjóðgarðsins. Mikilvægt sérkenni hans þurfi að vera frum- stætt vegakerfi sem falli vel að landinu. Frumstæðir vegir mikil- vægt sérkenni garðsins Í HNOTSKURN »Ferðafélag Íslands hefur í gegnum áratugina staðið að marg-víslegri uppbyggingu á svæði Vatnajökulsþjóðgarðs. Það hef- ur byggt upp skála, sinnt landvörslu og náttúruvernd. »Ferðafélag Íslands telur að í Vatnajökulsþjóðgarði þurfi aðtryggja rekstrarskilyrði skála og þeirrar þjónustu sem félag- ið rekur. 6 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest dóm Héraðs- dóms Reykjavíkur um að fyrrverandi ritstjóri tímaritsins Hér & nú skuli greiða Bubba Morthens 700 þúsund krónur í miskabætur fyrir fyrirsögn á forsíðu blaðsins þar sem stóð „Bubbi fallinn“. Um- mælin voru einnig dæmd dauð og ómerk. Í dómi Hæstaréttar segir, að ekki sé talið unnt að skilja forsíðufyrirsögnina öðruvísi en svo að fullyrt væri að Bubbi væri byrj- aður að neyta vímuefna, enda vissu flestir um neyslu hans fyrr á tíð. Hæstiréttur taldi, að eins og fullyrðingin hefði verið fram sett væri hún talin fela í sér ærumeiðandi aðdróttun. Hins vegar var ekki talið að samhljóða fyrirsögn á blaðsíðu 16 til 17 í tölublaðinu fæli í sér fullyrðingu um vímuefnanotkun Bubba eða aðdróttun í skilningi hegningarlaga. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason, Hrafn Bragason og Mark- ús Sigurbjörnsson. Bubbi vann í Hæstarétti Bubbi Morthens tónlistarmaður Ummælin „Bubbi fallinn“ dæmd dauð og ómerk HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt karlmann í 2 ára fangelsi, þar af í 17 mánuði skil- orðsbundið, fyrir manndrápstilraun með því að stinga föður sinn hnífi í hægri síð- una. Í héraðsdómi var maðurinn dæmdur í árs fangelsi, þar af voru 9 mánuðir á skilorði. Hæstiréttur taldi, að ósannað væri að maðurinn hefði fyrirfram ætlað að bana föður sínum. En þegar litið væri til at- vika og þá einkum til þess hve hættulegu og stóru vopni maðurinn beitti, hvert hann beindi því og hve langt það gekk inn í líkama fórnarlambsins, svo og með hliðsjón af afleiðingum stungunnar, yrði að álykta að manninum hefði átt að vera ljóst, þegar hann hóf atlöguna með hnífn- um, að bani hlytist eða kynni að hljótast af. Málið dæmdu hæstaréttardómararnir Gunnlaugur Claessen, Árni Kolbeinsson, Garðar Gíslason og Ólafur Börkur Þor- valdsson og Haraldur Henrysson fyrrver- andi hæstaréttardómari. Tveir þeir síð- astnefndu skiluðu sératkvæði um að staðfesta bæri niðurstöðu héraðsdóms. Verjandi var Sveinn Andri Sveinsson hrl. og sækjandi Sigríður J. Friðjónsdóttir saksóknari hjá ríkissaksóknara. Hlaut 2 ára fangelsisdóm ♦♦♦ ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir mennta- málaráðherra flutti ávarp í gær við opnun ráðstefnu á Nordatlantens-bryggju í Kaup- mannahöfn sem haldin var í tilefni Al- þjóðaheimskautaársins. Ásamt Íslendingum stóðu Danir, Færeyingar og Grænlendingar að ráðstefnunni. Vigdís Finnbogadóttir var fundarstjóri á ráðstefnunni og Friðrik, krón- prins Danmerkur, sem er með Þorgerði á myndinni, var viðstaddur opnunina, en hann er sérstakur verndari Alþjóðaheimskautaárs- ins í Danmörku og á Grænlandi. Einnig fluttu ávörp ráðherrar frá Dan- mörku og Færeyjum, landsstjórnarmaður frá Grænlandi og norrænir vísindamenn. Samið um dönskukennslu Þá ritaði Þorgerður Katrín undir samning í gær með Bertel Haarder, menntamálaráð- herra Danmerkur, um sérstakan stuðning landanna við dönskukennslu á Íslandi. Samn- ingurinn nær til fimm ára og er framhald af tveimur fyrri samningum um stuðning við þessa kennslu. Fjárveitingar Dana til þessa verkefnis nema um 30 milljónum króna ár- lega en fjárframlag Íslendinga um sex millj- ónum. Í samningnum er m.a. kveðið á um ráðn- ingu dansks lektors eða annars sendikennara við Kennaraháskóla Íslands og tveggja danskra farkennara fyrir grunnskólana. Krónprins á heimskautaráðstefnu Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „VIÐ sáum ekkert tilefni til að mæta í svona bútasaum,“ segir Borgþór Kjærnested, fram- kvæmdastjóri Landssambands eldri borgara (LEB). Fulltrúar eldri borgara voru boðaðir á fund heilbrigðisnefndar Alþingis í gær- morgun þar sem ræða átti breyt- ingar á lögum um málefni aldraðra. Fundurinn átti að hefjast klukkan 8.30 en honum var að lokum frest- að. Borgþór segir að fulltrúar LEB hafi verið boðaðir á fundinn síðdeg- is í fyrradag. Hann hafi rætt við stjórnarmenn í samtökunum en þeir hafi neitað því að mæta á fundinn. Eldri borgarar hafi ítrek- að lýst yfir því að þörf sé á að end- urskoða lögin um málefni aldraðra í heild. Þá komi fram í stjórnarsátt- mála ríkisstjórnarinnar að endur- skoða eigi löggjöfina um aldraða. „Það er talað um þetta þar líka og það gerist ekki neitt. Það eru bara einhver svona skrípalæti fyrir kosningar,“ segir Borgþór. Á fundinum í gær átti að ræða breyt- ingar á lögunum sem tengjast greiðslum fjármagns- tekjuhafa í Framkvæmdasjóð aldr- aðra og vistunarmati. Borgþór seg- ir vistunarmatið í góðum höndum í Reykjavík, en úti á landi hafi verið gerðar athugasemdir við þau mál. „Þeir hljóta að geta sett þessi lög án þess að við hjálpum þeim eitt- hvað sérstaklega við það.“ Guðjón Ólafur Jónsson, formaður heilbrigðisnefndar Alþingis, segir ýmsar ástæður fyrir því að fundur heilbrigðisnefndar féll niður í gær, en þær tengist bæði gestum sem á hann áttu að koma og möguleikum nefndarmanna til að sækja fundinn. Boðað verði til nýs fundar í nefnd- inni eftir helgi. Enginn neyddur á fundi Guðjón Ólafur kveðst hafa heyrt ávæning af því að fulltrúar eldri borgara hafi ekki viljað mæta á fundinn og að þeim fyndist óheppi- legt „að það væri verið að krukka svona í einstakar greinar“ laganna um aldraða. „Ég held að þessar breytingar séu báðar til bóta og það sé í sjálfu sér ekki efnislegur ágreiningur um þær,“ segir Guðjón Ólafur. Fleiri mál hafi verið á dag- skrá. „Það varð samkomulag milli okk- ar sem mættum á fundinn að það væri best að slá þessu á frest fram í næstu viku,“ segir Guðjón Ólafur. Hann sagðist í gær hafa í hyggju að hafa samband við fulltrúa LEB og óska eftir því að samtökin sendu fulltrúa á næsta fund. „En það verður enginn neyddur á fund heilbrigðisnefndar. Það er fyrst og fremst verið að gefa fólki kost á að koma sínum sjónarmiðum að,“ segir hann. Að sögn Kristjáns L. Mölller, sem situr í heilbrigðisnefnd fyrir hönd Samfylkingar, var fundurinn í gær boðaður klukkan 8.30. „Klukkan korter fyrir níu var enn enginn stjórnarþingmaður mættur. Þá stóð ég upp og lét bóka það að ég hefði ekkert á þessum fundi að gera þar sem stjórnar- þingmenn væru ekki mættir,“ segir Kristján. Hann og aðrir fulltrúar stjórnarandstöðunnar hefðu gengið út af fundinum. Mættu ekki á fund heilbrigðisnefndar Í HNOTSKURN »Félög eldri borgara hafaítrekað óskað eftir því að löggjöfin um málefni aldraðra verði endurskoðuð í heild. »Hafa þau farið fram á aðnefnd verði skipuð til þess að fara yfir löggjöfina »Þá hafa félög eldri borg-ara samþykkt ályktanir um málið, meðal annars á síð- asta landsfundi LEB og í yf- irlýsingu sem birt var í fyrra- sumar. Borgþór Kjærnested. Kristján L. Möller Guðjón Ólafur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.