Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 10
Í HNOTSKURN
» Stjórnarskrárnefnd hófstörf í ársbyrjun 2005 og
átti að skila af sér við árslok
2006.
» Eina samkomulagið semhefur náðst er um ferlið
við stjórnarskrárbreytingar
og frumvarp um að þær verði
bornar undir þjóðaratkvæði.
Morgunblaððið/Brynjar Gauti
Fiskurinn okkar allra Framsóknarflokkurinn ætlar að beita sér fyrir því að ákvæði um auðlindir sjávar verði sett
inn í stjórnarskrá fyrir þinglok. Þá er fyrir hendi vilji allra flokka á Alþingi nema Sjálfstæðisflokks.
lindum sjávar yrði sett í stjórn-
arskrá en vilji var fyrir hendi til
þess hjá öllum flokkum nema Sjálf-
stæðisflokkinum.
Þingmenn Samfylkingarinnar
fögnuðu yfirlýsingum ráðherranna
tveggja mjög og ítrekuðu að það
stæði sannarlega ekki á stjórn-
arandstöðunni að styðja Framsókn
í þessu máli. Því ætti að vera meiri-
hluti fyrir málinu á þingi. „Það
liggja fyrir yfirlýsingar frá öllum
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
mun beita sér af öllu afli fyrir því
að tekið verði ákvæði inn í stjórn-
arskrá um sameign þjóðarinnar á
auðlindum sjávar. Þetta kom fram í
máli Jóns Sigurðssonar, iðn-
aðarráðherra og formanns Fram-
sóknarflokksins, og Guðna Ágústs-
onar, landbúnaðarráðherra og
varaformanns Framsóknar, á Al-
þingi í gær við fyrstu umræðu um
frumvarp um varnir gegn land-
broti. „Það liggur auðvitað fyrir að
við framsóknarmenn munum gera
kröfu til þess að stjórnarsáttmálinn
verður efndur,“ sagði Guðni og gaf
til kynna að jafnvel yrði gengið í
málið á þessu þingi. „Við skulum
vona að hér á þessu þingi, sem á
enn einhverja daga eftir og enn er
langt til jóla, eins og sagt er, að við
klárum það mál og náum samstöðu
um það hvað auðlindir sjávar varð-
ar og stjórnarskrána.“
Jón Sigurðsson tók undir með
Guðna síðar í umræðunum og árétt-
aði að Framsóknarflokkurinn
myndi áfram beita sér fyrir sam-
eignarákvæði í stjórnarskrá „sem
styrkir og staðfestir löggjafarvald
Alþingis um afnot á nýtingarrétti
eins og t.d. í núgildandi fiskveiði-
stjórnarkerfi“.
Stjórnarandstaðan öll með
Eins og áður hefur komið fram
náðist ekki samstaða í stjórn-
arskrárnefnd um að sameign á auð-
stjórnarandstöðuflokkunum um
það að menn vilji standa að því að
setja ákvæði inn í stjórnarskrá um
sameign þjóðarinnar á auðlindum
sjávar,“ sagði Jóhann Ársælsson og
Össur Skarphéðinsson sagði að
Framsókn yrði látin standa við
þessi orð. „Það mun koma fram til-
laga á þessu þingi án efa um þessa
breytingu á stjórnarskránni og þá
munum við fá að njóta afls Fram-
sóknarflokksins,“ sagði Össur.
Sjávarauðlindir í sameign
Framsóknarflokkurinn styður ákvæði í stjórnarskrá um að sjávarauðlindir
verði sameign þjóðarinnar Möguleiki á frumvarpi á þessu þingi
10 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
LISTI hinna staðföstu þjóða var
fráleit fréttatilkynning frá Hvíta
húsinu, sagði Jón Sigurðsson, iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra, á Al-
þingi í gær í umræðum um þings-
ályktunartillögu stjórnarandstöðu-
flokkanna þess efnis að Ísland yrði
tekið af umræddum lista. „Með
þessari þingsályktunartillögu er
verið að veita þessum lista formlegt
vægi og gildi hér á landi,“ sagði Jón
og bætti við að það væri eðlilegast
að svara þessum lista með pólitísk-
um yfirlýsingum og það hefði hann
sjálfur gert.
Jón sagði engu að síður að hann
teldi að ákvörðunin um afstöðu Ís-
lendinga til Íraksstríðsins hefði ver-
ið röng eða mistök sem og ákvörð-
unarferlið. Hins vegar væri
umræðan á þingi undarleg þar sem
menn væru að nota tækifærið til að
slá innanríkispólitískar keilur á
kostnað Framsóknarflokksins.
„Þessi umræða er flutningsmönnum
tillögunnar til skammar,“ sagði Jón
og bætti við að ástandið væri þannig
í Írak að sýna ætti því meiri virð-
ingu.
Sæunn Stefánsdóttir, þingmaður
Framsóknar, tók undir þessi orð síð-
ar í umræðunum og var ósátt við að
menn skyldu nota Íraks-málið til að
vinna gegn Framsóknarflokknum,
sem þó hefði viðurkennt að stuðn-
ingurinn við stríðið hefði verið mis-
tök. Sæunn sagðist jafnframt telja
að þetta mál hefði m.a. orðið til þess
að Halldór Ásgrímsson og Davíð
Oddsson hættu í pólitík.
Kattarþvottur
Stjórnarandstöðuþingmönnum
þótti aftur á móti fráleitt að kalla
lista hinna staðföstu þjóða fréttatil-
kynningu og sökuðu Framsókn um
kattarþvott. Magnús Þór Hafsteins-
son, þingmaður Frjálslynda flokks-
ins, las upp úr eigin þýðingu á
stuðningsyfirlýsingu Íslands og
sagði augljóst að þetta væri eindreg-
in stuðningsyfirlýsing sem hefði ver-
ið á heimasíðu Hvíta hússins frá því
í mars 2003.
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, spurði hvers
vegna Halldór Ásgrímsson hefði
varið þessa ákvörðun með kjafti og
klóm ef þetta hefði bara verið frétta-
tilkynning. „Auðvitað var það þann-
ig að Ísland var sett á þennan lista
með fullkomnum vilja tveggja
manna,“ sagði Össur.
Steingrímur J. Sigfússon, þing-
maður Vinstri grænna, sagði að eng-
ar þjóðréttarlegar forsendur hefðu
verið fyrir árás á Írak. „Hvers
vegna var listinn Bandaríkjamönn-
um svona mikilvægur? Það var
vegna þess að þeir voru að reyna að
fá yfirbragð lögmætis á ólöglega
innrás í land sem brýtur stofnsátt-
mála Sameinuðu þjóðanna,“ sagði
Steingrímur og vakti jafnframt at-
hygli á því að enginn sjálfstæðis-
maður væri viðstaddur umræðuna.
Listi hinna staðföstu
fráleit fréttatilkynning
Morgunblaðið/ÞÖK
Keilusláttur Jón Sigurðsson segir stjórnarandstöðuna slá innanrík-
ispólitískar keilur á kostnað Framsóknarflokksins í umræðum um Írak.
Stjórnarandstaðan vill að ríkisstjórnin taki Ísland af lista
hinna viljugu og sakar Framsóknarflokkinn um kattarþvott
Ágúst Ólafur Ágústsson 1. mars
Sport að vera lasinn
Í þetta sinn var bólu-
setningin í miðju próf-
kjöri og því taldi ég mig
ekki hafa tíma til að fá
hana. Mikil mistök. Í
morgun hélt ég að ég
væri að deyja. Konan er
annars dugleg að dekra við mig og
heldur stöðugu streymi af tei til mín.
Stelpunum á Framnesveginum finnst
þetta hins vegar vera eitthvert sport
hjá pabbanum og segjast líka vilja
vera veikar.
Meira: agustolafur.blog.is
Birgir Ármannsson 1. mars
Bjórinn 18 ára
Um leið og landsmenn
fagna þeim miklu
skattalækkunum sem
taka gildi í dag er
ástæða til að halda upp
á að 18 ár eru liðin frá
B-deginum svonefnda,
1. mars 1989. [...] Einhver ætti auðvit-
að í tilefni dagsins að taka sig til og
rifja upp nöfn þeirra sem stóðu gegn
þessum breytingum á sínum tíma [...].
Meira: www.birgir.isMeira:
Titringur á þingi
Töluverður titringur varð á Alþingi í
gær þegar Framsóknarmenn gáfu til
kynna að þeir myndu berjast fyrir því
af alefli að fá í gegn stjórnarskrár-
breytingu fyrir þinglok um að sjáv-
arauðlindir verði sameigin þjóð-
arinnar, en kveðið er á um það í
stjórnarsáttmála Framsóknar og
Sjálfstæðisflokks. Ekki náðist sam-
komulag um þetta í stjórnarskrár-
nefnd og strandaði málið á Sjálf-
stæðisflokknum. Á göngum þingsins
var skrafað um ríkisstjórnarslit enda
ljóst að Framsókn væri ákveðin í að
fá sínu framgengt.
Enginn samningur
Valdimar L. Friðriksson spurði
heilbrigðisráðherra í þriðja sinn á Al-
þingi í gær hvers
vegna ekki hafi
verið gerður þjón-
ustusamningur
við SÁÁ og sagði
athugasemd hafa
borist frá Rík-
isendurskoðun
við að samningar
hafi staðið opnir
síðan í desember
2005. Valdimar
gagnrýndi jafnframt að veittar skyldu
500 milljónir kr. til SÁÁ án samnings
um nýtingu fjárins og sagði ófremdar-
ástand vera að skapast í meðferð-
armálum vegna lágra fjárframlaga.
Framlög hafa aukist
Siv Friðleifsdóttir sagðist gjarnan
vilja gera þjónustusamning við SÁÁ
en sagði jafnframt
að framlög til SÁÁ
hefðu aukist milli
áranna 2006 og
2007 og að fram-
lögin næmu um
2.000 krónum á
hvern Íslending.
Til samanburðar
sagði Siv að fram-
lögin væru rúmar
500 krónur á
mann í Danmörku. Hún væri að reyna
að ná samningum við SÁÁ með því
fjárframlagi sem er til ráðstöfunar frá
Alþingi.
Slæm stjórnskipan
Í framhaldinu lýsti fjöldi þing-
manna yfir áhyggjum af stöðu SÁÁ og
að samtökin
þyrftu að ganga á
eignir sínar til að
geta haldið úti
rekstrinum. Pétur
H. Blöndal var
ósáttur við stjórn-
skipan SÁÁ og
sagði sama
manninn vera yf-
irlækni, formann
framkvæmdastjórnar og stjórn-
arformann fyrirtækisins. „Þannig að
hann uppfyllir öll þau skilyrði sem
voru hjá Byrginu,“ sagði Pétur.
Þetta fór mjög fyrir brjóstið á nokkr-
um þingmönnum sem þótti Pétur
vega með ósanngjörnum hætti að
umræddum manni sem ekki gæti var-
ið sig. Var þess krafist að Pétur bæð-
ist afsökunar og Össur Skarphéð-
insson bað forseta um að víta hann.
Pétur sagðist aðeins hafa verið að
benda á galla í stjórnskipun en baðst
afsökunar hefði hann meitt einhvern.
Betri samningar
Pétur notaði jafnframt tækifæri til
að vekja athygli á frumvarpi sem
hann hefur lagt fram ásamt nokkrum
sjálfstæðismönnum. Þar er m.a. að
finna tillögur um auknar kröfur varð-
andi verksamninga sem ráðherrar
gera, t.a.m. að í samningum verði ná-
kvæm ákvæði um hvernig eftirliti
verði háttað og um árangurinn sem
er stefnt að með fjárveitingu og
rekstri.
Dagskrá þingsins
Nefndardagar verða á Alþingi á
mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Næsti þingfundur er því ekki fyrr en á
fimmtudag og að honum meðtöldum
eru aðeins áætlaðir fimm starfs-
dagar eftir fram að þinglokum.
Valdimar Leó
Friðriksson.
Siv Friðleifsdóttir.
Pétur H. Blöndal
ÞETTA HELST …
ÞINGMENN BLOGGA
BJÖRN Bjarna-
son kom aftur til
starfa í dóms- og
kirkjumálaráðu-
neytinuí gær en
hann hefur verið
frá vegna veikinda
eftir að hægra
lunga hans féll
saman snemma í síðasta mánuði.
Ingvi Hrafn Óskarsson mun engu
að síður sitja áfram á þingi en hann
kom inn sem varaþingmaður
Björns sl. mánudag en fram til þess
hafði Katrín Fjeldsted setið á þingi.
Björn kom-
inn aftur