Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 20
20 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
MYNDLISTAMAÐURINN Ólafur
Elíasson er einn tíu listamanna sem
valdir hafa verið til að hanna verk í
höll Friðriks
krónprins af
Danmörku og
Mary eiginkonu
hans.
Höllin var
byggð árið 1758
af Kristjáni átt-
unda og verður
framtíðar-
húsnæði krón-
prinsparsins.
Ólafur mun hanna lýsingu í eitt her-
bergjanna en meðal hinna lista-
mannanna eru Kasper Bonnén, Jes-
per Christiansen, Jeppe Hein, Tal R
og Erik A. Frandsen. Þó svo að
flestir listamannanna séu málarar
sagði Flemming Borreskov, tals-
maður sjóðsins sem fjármagnar
verkefnið, að vinna listamannana
myndi ekki eingöngu ala af sér mál-
verk.
„Áskorunin felst meðal annars í
því að láta verkin passa við þessa
gömlu byggingu,“ sagði Borreskov
einnig. Áætlað er að öll verkin verði
tilbúin árið 2009 en heildarkostn-
aður er talinn verða 30 milljónir
danskra króna.
Ný list í
Höllinni
Ólafur Elíasson
meðal hönnuða
Ólafur Elíasson.
Í TILEFNI af því að Alþjóðlegur
dagur bókarinnar var í gær bað
breska vefsíðan www.worldbookday-
.com fólk að segja hvaða tíu bókum
það gæti ekki lifað án. Kom í ljós að
það er bókin Hroki og hleypidómar
eftir Jane Austen sem stóð hjarta
fólks næst. Bækur af svipuðum meiði
voru ofarlega, í þriðja sæti var Jane
Eyre eftir Charlotte Brontë og Wut-
hering Heights eftir systur hennar
Emily var í því sjöunda, Great Ex-
pectations eftir Dickens náði svo því
tíunda. Hringadróttinssaga var önn-
ur og bækurnar um Harry Potter í
fjórða sæti, klassíkin To Kill a Mock-
ingbird er í því fimmta og 1984 eftir
Orwell deildi því áttunda með His
Dark Materials eftir Pullman. Biblían
náði sjötta sæti.
Það sem kom mest á óvart voru
vinsældir klassískra bókmennta í
Bretlandi. „Allar bækurnar á topp tíu
listanum eru tímalaus gæðaverk,“
segir á vefsíðu Guardian.
Það samtímaskáld sem náði hæst á
listanum með fullorðinsbók var Seb-
astian Faulks með Birdsong en hann
náði samt ekki nema í 17. sæti.
Klassíkin
vinsælust
HLJÓMSVEITIRNAR Æla,
Jan Mayen og Fræbblarnir
spila á opnu húsi á Nasa í
kvöld.
Fræbblarnir kynna efni af
næstu plötu sinni sem kemur
út á næsta ári auk þess að spila
eldra efni. Jan Mayen er að
vinna að annarri breiðskífu
sinni sem kemur út í vor, ný
lög verða því áberandi á pró-
grammi kvöldsins. Æla heldur
nú í mars út til Bretlands þar sem sveitin mun
leika á nokkrum tónleikum.
Húsið verður opnað kl. 23, hljómleikarnir byrja
kl. hálf eitt og standa til kl. 3. Frítt inn.
Tónleikar
Rokkað á Nasa
á opnu húsi
Jan Mayen spilar á
Nasa í kvöld.
GUÐRÚN Kristjánsdóttir
opnar sýninguna Veðurfar í
Ásmundarsal og Gryfju Lista-
safns ASÍ á morgun, laug-
ardag, kl. 15.
Í tilefni af því verður lista-
mannaspjall á sunnudaginn kl.
15 þar sem Guðrún ræðir um
verk sín og leiðir gesti um sýn-
inguna.
Á sýningunni er áhorfandinn
kallaður inn í veðraheim sem
er mjög heimilislegur og hversdagslegur en um
leið opnast heimur sem er fjarstæðukenndur þeg-
ar hið alltumlykjandi munstur er komið inn á gafl.
Veðurfar stendur til 25. mars.
Myndlist
Hversdagslegur
veðraheimur
Verk eftir Guðrúnu
Kristjánsdóttur.
LITLAR freistingar er yf-
irskrift hádegistónleika sem
fara fram í Ketilhúsinu á Ak-
ureyri kl. 12.15 í dag.
Þar mun Björn Leifsson
klarínettuleikari og Aladár
Rácz píanóleikari leika tónlist
eftir W.A. Mozart en Einar
Geirsson, matreiðslumeistari á
Karólínu restaurant, mun sjá
um léttan hádegisverð sem er
innifalinn í miðaverðinu.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð hjá Tónlist-
arfélagi Akureyrar. En með röðinni vill félagið
hlúa að starfandi tónlistarfólki á Akureyri og ná-
grenni.
Tónleikar
Litlar freistingar
í Ketilhúsi
Ketilshús er á
Akureyri.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
KVIKMYNDIN Skrapp út í leik-
stjórn Sólveigar Anspach fékk nú í
vikunni styrk upp á 200.000 evrur
úr Eurimages, kvikmyndasjóði
Evrópuráðsins, en það nemur um
17,5 milljónum íslenskra króna.
Um er að ræða nýja alíslenska
kvikmynd sem tekin verður að öllu
leyti hér á landi. „Já, bæði í
Reykjavík og úti á landi en við er-
um ennþá að leita að tökustöðum,
til dæmis að bóndabæ,“ segir Sól-
veig. Stefnt er að því að hefja tök-
ur upp úr miðjum apríl.
„Myndin fjallar um konu sem á
tvo drengi sem hún elur upp sjálf.
Hún vill hins vegar fara frá Íslandi
því henni finnst of kalt og ekki
nógu mikil sól hérna. En til þess að
geta farið þarf hún hins vegar að
selja fyrirtækið sitt,“ segir Sólveig,
og bætir því við að nokkrar sögur
fléttist svo saman.
Engar stjörnur
Ekki hefur verið ráðið í öll hlut-
verk í myndinni, en Sólveig segir
það þó langt komið. „Það er hún
Didda Jónsdóttir sem leikur aðal-
hlutverkið, hún lék í annarri mynd
eftir mig, Stormy Weather eða
Stormviðri,“ segir hún.
„Svo verða þrír erlendir leik-
arar, Julien Cottereau sem lék í
Hertu upp hugann sem var sýnd í
Sjónvarpinu á sunnudaginn, hann
lék bróðurinn í þeirri mynd. Svo er
ung stúlka sem ég gerði stuttmynd
með, hún er frá Dublin og heitir
Joy Doyle. Síðan verður örugglega
bandarískur leikari en við erum
ekki búin að staðfesta hver það
verður,“ segir Sólveig sem skrifar
handritið ásamt Frakkanum Jean-
Luc Gaget. „Það verður líka mikil
tónlist í myndinni, það er Sigurður
Halldór Guðmundsson sem var í
Hjálmum sem gerir hana.“
Aðspurð segir Sólveig ekki víst
hvenær myndin verður frumsýnd.
„Ég hugsa að það fari eftir því á
hvaða kvikmyndahátíðir hún
kemst. Það er mikilvægt fyrir
svona mynd að komast á góða
kvikmyndahátíð því hún er á ís-
lensku og það eru engar stjörnur í
henni. Þannig að þetta er kannski
ekki mjög „commercial“ mynd.“
Fram og til baka
Heildarkostnaður við Skrapp út
er 110 milljónir króna, en auk
styrksins frá Eurimages fær hún
styrk frá Kvikmyndamiðstöð Ís-
lands og CNC, frönsku kvik-
myndamiðstöðinni. Þá hefur hún
einnig verið forseld til Frakklands.
Síðar í þessum mánuði verður
svo mynd sem Sólveig gerði fyrir
þónokkru sýnd í Sjónvarpinu.
„Fyrir sjö árum gerði ég heim-
ildamynd sem heitir Reykjavík:
Álfar í borginni. Hún hefur verið
sýnd bæði í Frakklandi og Þýska-
landi, en hún verður loksins sýnd í
Sjónvarpinu hér 23. mars,“ segir
hún. „Þetta er mynd um Reykja-
vík, hvernig þrír ungir Íslendingar
sjá borgina. Einn þeirra er til
dæmis Hugleikur Dagsson,“ segir
Sólveig og bætir því við að hljóm-
sveitin Múm hafi samið tónlist fyr-
ir myndina.
Sólveig, sem er fædd í Vest-
mannaeyjum, hefur verið búsett í
Frakklandi nánast allt sitt líf. „Ég
bý í Montreuil sem er rétt fyrir ut-
an París. En ég fer mikið fram og
til baka því það er svo gott að geta
tekið það besta úr hvoru landi.“
Of kalt og engin sól
Sólveig Anspach gerir nýja íslenska mynd um konu sem vill komast frá Íslandi
Morgunblaðið/G.Rúnar
Eyjastúlka Sólveig er fædd í Vestmannaeyjum en býr í Frakklandi.
Í HNOTSKURN
» Skrapp út verður tekin aðöllu leyti á Íslandi.
»Heildarkostnaður við mynd-ina nemur um 110 milljónum
króna.
» Didda Jónsdóttir leikur aðal-hlutverkið en einhverjir er-
lendir leikarar munu einnig
koma fram.
» Hinn 23. mars verður svoheimildamyndin Reykjavík:
Álfar í borginni sýnd í sjónvarp-
inu, en hana gerði Sólveig árið
2000.
www.solveig-anspach.com
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA gekk rosalega vel og við-
tökurnar voru mjög góðar,“ segir
Baltasar Kormákur leikstjóri, en
leikritið Pétur Gautur var frumsýnt
í Barbican menningarmiðstöðinni í
Lundúnum í fyrrakvöld. Uppselt er
á allar tíu sýningar hópsins og seg-
ir Baltasar að yfirmenn leikhússins
séu mjög áhugasamir um að fá
leikritið aftur, og setja það þá upp
á stóra sviðinu. „Þeir eru að tala
um að þeir vilji fá þetta aftur út
sem fyrst og ég er bara að fara að
skoða stóra sviðið hjá þeim,“ segir
hann, og bætir því við að vonandi
geti orðið af því. „Ég get ekki talað
fyrir hönd Þjóðleikhússins en ég
mun gera allt sem í mínu valdi
stendur til þess.“
Tinna Gunnlaugsdóttir þjóðleik-
hússtjóri sem var viðstödd frum-
sýninguna segir að fulltrúar frá
ýmsum leikhúsum hafi sýnt mikinn
áhuga á að fá verkið sett upp hjá
sér, en þar á meðal voru aðilar frá
Póllandi, Finnlandi, Japan, Ástr-
alíu, Svíþjóð og Noregi.
„Það er spurning hvernig við
getum höndlað þetta, hverju við
getum orðið við,“ segir hún og út-
skýrir að um mjög stóra sýningu sé
að ræða.
„En það er sérstaklega gaman
að því að það er áhugi frá þessum
helstu leikhúsum á Norðurlöndum.
Svo er búið að bjóða sýningunni til
Japan árið 2010,“ segir Tinna.
Barbican vill Pétur
Gaut á stóra sviðið
Pétur Gautur Var vel tekið í London og aðilar frá Póllandi, Finnlandi og Ástralíu hafa sýnt uppfærslunni áhuga.
♦♦♦