Morgunblaðið - 02.03.2007, Síða 26
daglegt líf
26 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Nú er árshátíðavertíðin í algleymingi úti um
borg og bí og þá er upplagt að nota helgina til
að dekra svolítið við sig, ekki einvörðungu í
mat og drykk, heldur ekki síður í líkamsdekri
á borð við nudd, heitu pottana og góða og nær-
andi göngutúra til að hlaða batteríin fyrir
komandi vinnuviku.
Tónleikar á Dillon
Fyrir þá, sem eru í stuði fyrir smáeyrna-
konfekt í kvöld er tilvalið að skella sér á Dillon
þar sem hljómsveitin Royal Fortune ætlar að
troða upp með tónleikum. Mikið kapp verður
lagt á að plokka strengi á bössum, gíturum og
banjóum á sem viðkunnanlegastan máta með
seiðandi trumbuslætti og söngvasælu. Ásamt
hljómsveitinni ætlar hinn síferski Helgi Valur
að troða upp með nýtt efni en hann undirbýr
upptökur á nýrri hljómplötu um þessar mund-
ir. Tónleikarnir hefjast kl. 21.30 og er frítt inn,
en síðan ætla plötusnúðarnir Silja og Steinunn
að halda uppi fjöri fram eftir kvöldi.
Túlípanar í Blómavali
Blómlegt verður um að litast í Blómavali í
Skútuvogi um helgina því þá verða þar til sýn-
is hátt í eitt hundrað mismunandi gerðir af
túlípönum. Flestar hafa þær sérstaklega verið
ræktaðar hér á landi fyrir þessa sýningu, en
auk Blómavals standa garðyrkjubændur og
nemendur Garðyrkjuskólans að sýningunni.
Búið verður til sannkallað blómalandslag úr
litskrúðugum túlípönum á sýningarsvæðinu,
en margir kannast kannski við árlegar túl-
ípanasýningar í Hollandi, helsta rækt-
unarlandi túlípana í Evrópu.
Dagur tónlistarskólanna
Um helgina stendur líka mikið til hjá Tón-
listarskólanum á Akureyri og Sinfón-
íuhljómsveit Norðurlands. Tónlistarskólinn
heldur hátíðlegan dag tónlistarskólanna með
tónleikum í Ketilhúsinu á morgun þar sem
verða tónleikar í gangi allan daginn. Á sunnu-
dag verða síðan tónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands í Akureyrarkirkju kl. 16
með þátttöku strengjasveitar Tónlistarskól-
ans.
Óperur Niflungahringsins
Fyrir óperuunnendur er kjörið að bregða
sér í Norræna húsið næstu fjóra sunnudaga í
mars því Richard Wagner-félagið á Íslandi
mun þá sýna hinar fjórar óperur Nifl-
ungahringsins af mynddiskum. Það eru óp-
erurnar Rínargullið, Valkyrjan, Siegfried og
Ragnarök. Sýningarnar hefjast kl. 13. Sýnd
verður uppsetning frá Bayreuth í upptöku,
sem gerð var árið 1991 í leikstjórn Harry
Kupfer. Hér er um að ræða einstakt tækifæri
til að kynnast óperunum í uppsetningu og
flutningi góðra listamanna.
mælt með …
Áföstudögum á föstunni verður blásiðtil saltfiskveislu í Neskirkju. Aðsögn Arnar Bárðar Jónssonar,sóknarprests í Neskirkju, er þetta
hugmynd sem hann hefur verið með í mag-
anum síðan hann var starfandi á biskupsstofu
og hefur náð að koma á koppinn núna. „Þá
stakk ég upp á því að við reyndum að vekja at-
hygli á föstunni, þessu tímabili sem nú stendur
yfir. Fasta er hluti af trúariðkun fólks um allan
heim,“ segir Örn Bárður, „innan flestra ef ekki
allra trúarbragða. Fastan er fyrir páskana, þá
íhugum við þjáningar krists og beinum sjónum
okkar enn frekar að neyð heimsins og vanda-
málum. Hátíðin hefst svo þegar páskarnir
koma; þegar upprisunni er fagnað. Þá breytir
allt um tón.“
Markmiðið með saltfiskdögunum er þannig
að vekja athygli á föstunni með máltíð svo að
fólk geti komið saman og átt samfélag. „Hluti
af andvirði máltíðarinnar rennur til líkn-
armála,“ segir Örn Bárður.
Nýtt safnaðarheimili við Neskirkju hefur
breytt ýmsu fyrir starfsfólk kirkj-
unnar. Kaffihúsið segir Örn Bárð-
ur vera hið eina sinnar tegundar
á landinu.
„Við fengum biskupinn til
að koma fyrsta skiptið sem
við buðum upp á saltfisk á
föstudegi og hann talaði um
trú á föstu,“ segir Örn
Bárður en bætir því svo við
að annar flötur sé líka á mál-
inu. „Við Íslendingar höfum
flutt út ógrynni af saltfiski í
gegnum aldirnar og stærstu mark-
aðir okkar hafa verið í Suður-Evrópu.
Skýringin er kannski að stærstum hluta sú að
eftir kjötkveðjuhátíðina auka menn fiskneyslu
í þessum löndum. Þar er saltfiskur það besta
sem þeir fá.“
Áður fyrr borðuðu Íslendingar meiri fisk og
kíminn segir Örn Bárður að hann minnist þess
að hafa borðað fisk fimm sinnum í viku árið um
kring. „Það var bara kjöt tvisvar í viku, á mið-
vikudögum og sunnudögum,“ segir hann.
„Föstudagur er sá dagur sem menn neyta ekki
kjöts í kaþólsku löndunum.“
Fiskur eitt af fyrstu
táknum kirkjunnar
Margrét Hrönn Þrastardóttir, matráðskona
í Neskirkju, var afar ánægð með hvernig til
tókst fyrsta föstudaginn sem boðið var upp á
saltfisk og sagði viðtökurnar hafa verið frá-
bærar. Örn Bárður tekur undir það og hnykkir
á því að maturinn hafi verið afar góður.
Í dag kemur Einar K. Guðfinnsson í heim-
sókn og talar um þorskinn út frá viðskiptalegu
sjónarmiði og sjávarútveg. „Það er svo merki-
legt að það skuli tengjast saman,“ segir Örn
Bárður, „trú, fiskvinnsla og viðskipti. Þetta
tengist allt í saltfiskinum, auk þess sem fisk-
urinn er eitt af fyrstu táknum kirkjunnar.“
Ólafur Hannibalsson verður gestur þegar
þriðji saltfiskföstudagurinn rennur upp í Nes-
kirkju, en hann
þýddi einmitt
bókina Sögu
þorsksins.
Margrét matráðs-
kona töfrar fram suð-
ræna saltfiskrétti þessa daga
og brást góðfúslega við bón um að
gefa lesendum Morgunblaðsins slíka uppskrift
auk þess sem hún lét uppskrift að ljúffengri og
matarmikilli súpu fljóta með.
Saltfiskur með hvítlauk og ólífum
Fyrir 4
800 g saltfiskur, vel útvatnaður, roð- og bein-
laus
3 msk hveiti
3 msk ólífuolía, extra virgin
2–3 stk hvítlaukur
1 stk chilipipar
1–2 bollar svartar ólífur
safi úr 1⁄2 sítrónu
1 glas af vatni
Saltfiskurinn skorinn í bita og velt upp úr
hveitinu, steikt í ólífuolíunni í u.þ.b. þrjár mín-
útur. Sett í eldfast form.
Hvítlaukurinn kjarnhreinsaður, chilipipar
er saxaður og ristaður á pönnu. Sítrónusafinn
blandaður vatninu, hellt yfir og ólífum bætt út
í, suðan látin koma upp. Þessu er svo hellt yfir
saltfiskinn og bakað í fimm mínútur við 200°
(180° blástursofn).
Meðlæti
6–8 kartöflur
1 rófa
2–3 laukar
1 tsk grófmalaður svartur pipar
1 msk ólífuolía
Kartöflur þvegnar og þerraðar, skornar í
báta. Rófa skræld og skorin í teninga. Laukur
saxaður. Öllu blandað saman. Sett í eldfast
mót og bakað í 25 mínútur við 180°.
Svo er gott salat alveg nauðsynlegt með.
Kjúklingasúpa
500 g steikt kjúklingabringa,
1 laukur saxaður,
lítil dós tómatmauk (-puré),
1 dós kókosmjólk,
1 lítri vatn
1–2 msk kjúklingakraftur,
1 lítill blaðlaukur, sneiddur
300 g þunnt sneiddar gulrætur
1 rauð paprika, skorin í strimla
salt og pipar eftir smekk
Tómatmauk og laukur sett í þykkbotna pott
og hitað vel, best er ef tómatmaukið er að því
komið að brenna við. Vatni, kjúklingakrafti,
papriku og gulrótum bætt í og soðið í 15 mín.
Þá er brytjuðum kjúklingabringum, kók-
osmjólk og blaðlauk bætt við og soðið við væg-
an hita í fimm mínútur.
Morgunblaðið/Ásdís
Smakkaðist vel Góður rómur var gerður að kræsingunum. Í dag kemur Einar K. Guðfinnsson í heimsókn og talar um þorskinn.
Trú, fiskvinnsla og við-
skipti tengjast í saltfiski
Fasta Margrét Hrönn Þrastardóttir, matráðskona í Neskirkju, út-
býr suðræna og seiðandi saltfiskrétti á föstudögum á föstunni.
Hún var afar ánægð með hvernig til tókst fyrsta sinni.