Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 28
daglegt líf
28 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Við höfum vissulega gert til-raunir til að vera sjálf-stæðir ungir drengir, enalltaf endað með því að
elta hver annan enda má segja að
bæði lögfræðin og KR sé okkur í
blóð borið,“ segir hinn 27 ára gamli
Stefán Karl Kristjánsson, sem er
frumburður foreldra sinna, útskrif-
aðist sem lögfræðingur frá HÍ í
fyrravor og er nú farinn að starfa á
lögfræðiskrifstofu föður síns og
hæstaréttarlögmannsins Kristjáns
Stefánssonar í Austurstræti 10a
sem fæst við alhliða lögfræðiþjón-
ustu.
Móðirin Steinunn M. Lárusdóttir
er líka lögfræðingur og starfar sem
framkvæmdastjóri úrskurð-
arnefndar almannatrygginga sem
þarf að jafnaði að taka á fjögur
hundruð kærumálum á ári.
En það er ekki nóg með það að
foreldrarnir og frumburðurinn séu í
sínum daglegu störfum að fást við
lögfræðifléttur því þau Steinunn og
Kristján eiga þrjá syni til viðbótar
sem allir stefna leynt og ljóst að því
sama. Páll, sem er 23 ára, stefnir að
BA-prófi í lögfræði í vor og Jón
Bjarni, sem er 22 ára, lýkur því
vorið 2008, en þá eiga þeir báðir
eftir tveggja ára mastersnám. Ör-
verpið hann Gunnar, sem fagnar
tvítugsafmæli sínu í dag, er nú á
lokaári í MR, sem er menntaskóli
hinna bræðranna líka. Hann valdi
sér lögfræði sem valfag og útilokar
alls ekki þá hugmynd að hann muni
feta í fótspor foreldra sinna og
bræðra í lögfræðideild HÍ. „Fót-
boltinn á hinsvegar hug minn allan
sem stendur og það væri vissulega
gaman að fá tækifæri í atvinnu-
mennsku erlendis einhvern tímann.
Ég geri mér hinsvegar grein fyrir
því að ég þarf að afla mér ein-
hverrar menntunar líka og ég er
farinn að ímynda mér að það sé
smálögfræðipressa ríkjandi hér
heima,“ segir Gunnar, sem skrifaði
undir leikmannasamning við Vík-
inga fyrir jól eftir fimmtán ára
knattspyrnuferil hjá KR.
Stuðningsmenn á hliðarlínunni
Fjölskyldan hefur alla sína tíð
búið í Vesturbænum rétt við KR-
völlinn og hafa strákarnir allir haft
brennandi áhuga á boltanum síðan
þeir voru smápollar. KR-heimilið
hefur því að heita má verið eins og
annað heimili bræðranna og ennþá
eru þeir að leika sér með boltann,
ýmist sem leikmenn eða þjálfarar.
Þeir halda úti stuðnings-
mannasíðu KR-inga og stofnuðu
ásamt nokkrum félögum sínum
Knattspyrnufélag Vesturbæjar
heima í stofu haustið 2004 sem nú
leikur í þriðju deildinni. Foreldr-
arnir hafa því verið ötulir stuðn-
ingsmenn á hliðarlínunni und-
anfarin tuttugu ár auk þess sem
húsfreyjan hefur mætt til að tippa á
hverjum laugardagsmorgni í nokk-
ur ár ásamt sjö öðrum kynsystrum
sínum, svona til að brjóta karlaveld-
ið svolítið upp, eins og hún orðar
það.
„Mamma kemur okkur sífellt á
óvart með sinni alkunnu visku um
menn og málefni í ensku deildinni.
Hún veit allavega meira en við
höldum,“ segir Jón Bjarni. Þrátt
fyrir mikla samheldni skiptist fjöl-
skyldan í tvennt í stuðningi við
ensku meistaraliðin því á meðan
bræðurnir og mamman halda með
Liverpool stendur fjölskyldufað-
irinn einn með Manchester United
og er ánægður með sig enda segist
hann alltaf vera í vinningsliðinu.
„Við erum allir mjög samrýndir
og höfum kosið að fara sömu leið í
lífinu nánast undantekningalaust
hingað til, hvort sem við erum að
velja lið til að spila með eða halda
með, framhaldsskóla eða nám. Eina
frávikið er að ég hélt með Chicago
Bulls á meðan hinir í fjölskyldunni
héldu með Los Angeles Lakers,“
segir Jón Bjarni.
Lestækni og smárökhugsun
Þau Steinunn og Kristján þver-
taka fyrir að hafa vísvitandi ýtt lög-
fræðinni að sonunum. Lögfræðin
hafi einfaldlega verið þeirra val og
þau séu í reynd ekkert ósátt við
það.
Lengi vel stefndu strákarnir hver
í sína áttina því á meðan hugur
Stefáns Karls var við lögfræðina,
ætlaði Jón Bjarni sér að verða
læknir og Páll stefndi á líffræði.
„En við snerumst báðir á loka-
sprettinum,“ segir Jón og Páll bæt-
ir við: „Okkur gengur vel og erum
sáttir við okkar val. Erfiðast við
lögfræðina er að ná tökum á les-
tækninni og kunna að nota hjálp-
argögnin. Allur lesturinn vex mörg-
um laganemanum í augum og
margir falla í þá gryfju að ætla sér
að leggja allt á minnið. Þetta er á
hinn bóginn spurning um tækni og
smárökhugsun, kannski ekki ósvip-
að skáklistinni,“ segir Páll og Stef-
án botnar ræðuna með því að segja
að erfiðasti hjallinn við lagadeildina
hafi í sínum huga verið einbeittur
vilji til að halda sér frá hinu öfluga
félagslífi sem þar sé stundað.
Að mati bræðranna er nauðsyn-
legt að hafa gaman af því sem menn
taka sér fyrir hendur því árangur
náist ekki öðruvísi. Í því ljósi ákvað
Stefán Karl að sameina nám og
áhugamál og fór m.a. til Danmerk-
ur til að nema íþróttalögfræði, sem
er tiltöluleg ný og óskilgreind
fræðigrein en lokaritgerð hans
fjallaði um lyfjamál í íþróttum.
En þegar maður hefur svona
brennandi áhuga á lögfræði er þá
ekki gott að geta leitað í smiðju for-
eldranna? „Auðvitað er það kostur
að hafa smáforskot í því að eiga
mömmu og pabba sem hafa bæði
þekkingu og reynslu í greininni. Við
fáum stjórnsýsluréttinn í gegnum
mömmu og refsiréttinn í gegnum
pabba á mannamáli þegar kenn-
ararnir eru farnir að flækja fræðin
um of. Svo er mamma fín í að þýða
dönsku, en sú var tíðin að lögfræðin
var öll á dönsku og enn eimir smá-
vegis eftir af því,“ segir Páll.
Tónlistarnám og skákáhugi
Fyrir utan það sem fram hefur
komið hafa bræðurnir allir lært á
hljóðfæri í nokkuð mörg ár og gætu
því stofnað hljómsveit ef svo bæri
undir, því Stefán Karl og Jón
Bjarni lærðu á píanó, Páll á gítar og
Gunnar á trompet. Tónleikar voru á
heimilinu í fjöldamörg ár öll gaml-
árskvöld við miklar vinsældir. Auk
þess ríkir þónokkur skákáhugi á
heimilinu þar sem að húsbóndinn er
formaður skákdeildar KR og þykir
ansi lunkinn skákmaður, einkum
eftir að hann uppgötvaði töfra
Netsins. „Ég hef þó passað upp á
það að kenna strákunum ekkert
nema mannganginn. Maður verður
jú að hafa eitthvað fyrir sjálfan
sig,“ segir Kristján að lokum.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Fjölskyldan Hjónin Kristján Stefánsson og Steinunn M. Lárusdóttir kynntust í lögfræðideild HÍ og synirnir Páll, Gunnar, Jón Bjarni og Stefán Karl hyggjast allir að feta í fótspor þeirra.
Samrýndir Bræðurnir Páll, Stefán Karl, Gunnar og Jón Bjarni kúra sig yf-
ir lögfræðiskruddurnar og hjálpast stundum að við lærdóminn.
Hjónin Steinunn M. Lárusdóttir og Kristján Stef-
ánsson eiga fjóra syni, sem allir stefna að því að feta í
fótspor foreldranna og gerast lögfræðingar. Jóhanna
Ingvarsdóttir brá sér í heimsókn í Vesturbæinn til að
forvitnast um hvort umræðuefni fjölskyldumeðlima
snerist um eitthvað annað en lögfræði á heimilinu.
„Mamma kemur
okkur sífellt á
óvart með sinni
alkunnu visku um
menn og málefni í
ensku deildinni."
Lögfræðifjölskyldan í Vesturbænum