Morgunblaðið - 02.03.2007, Síða 30
matur
30 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Til eru foreldrar sem vita fáttskemmtilegra en að skipu-leggja og halda barna-fmæli, (jú, jú, þeir eru til)
þessir sem sauma búninga fyrir alla
gestina og ákveða þema með margra
mánaða fyrirvara og skylda jafnvel
alla gesti til að klæða sig í þeim
anda. Þessir sem eru með alla leik-
ina á hreinu og halda uppi skemmti-
atriðum. En það eru þó fleiri sem
kvíða því alltaf örlítið að halda af-
mælið. Þetta þarf jú að heppnast vel
svo litli anginn verði kátur og
ánægður með „daginn sinn“.
Mig hefur, eins og marga aðra, oft
dreymt um að verða afmælasnill-
ingur. Hef m.a. af miklum áhuga les-
ið bækur um málið, hvernig maður
getur auðveldlega saumað sjóræn-
ingaskikkjur úr fóðurefni eða Hawa-
ii-pils út tjulli og svo framvegis. En
einhvern veginn höfum við alltaf
endað með eitthvað auðveldara þeg-
ar á hólminn er komið. Þetta er í
sjálfu sér ekki flóknara en maður vill
og mín lína er núna; eitt þema að vali
barnsins sem verður eins áberandi í
veislunni og tími vinnst til. Allar
veitingar og skreytingar eru
ákveðnar með afmælisbarninu um
leið og það hefur aldur og þroska til.
Leikir eru til staðar ef það passar og
truflar ekki leik barnanna.
Ef veitingarnar eru góðar eru allir
glaðir og það er fleira gott en pítsu-
veislur.
Heitt fyllt brauð
fyrir 8
2 frosin hálfbökuð baguette-brauð
½ dós létt smurostur með villi-
sveppabragði
½ d matargerðarrjómi
100 g skinka
1 dl maísbaunir
1 hvítlaukgeiri
2 msk. steinselja, smátt söxuð
Hrærið saman smurostinum og
matargerðarrjómanum með mat-
skeið. Þetta þarf ekkert endilega að
verða alveg eins og sósa, bara svona
nokkurn veginn. Skerið skinkuna í
litla bita og setjið út í ásamt maís, ég
nota alltaf frosinn maís og þíði í ör-
bylgjuofninum því mér finnst hann
mun betri en niðursoðinn en það má
auðvitað líka nota hann. Setjið hvít-
lauk og steinselju saman við. Skerið
brauðin eftir endilöngu eins og þau
væru pylsubrauð, þ.e. ekki í gegn.
Smyrjið sveppakreminu inn í brauð-
in og setjið þau inn í álpappír. Bakið
við 180°C í u.þ.b. 15 mín. eða þar til
fyllingin er bráðin inn í og brauðið
aðeins byrjað að brúnast að utan.
Skerið í sneiðar og berið fram strax.
Prakkara bollur
u.þ.b. 15 bollur
1 dl heitt vatn
1 1⁄2 dl mjólk
2 1⁄2 tsk. þurrger, (eða 1 bréf)
1⁄4 tsk. salt
1 tsk. hunang
4 dl hveiti
2 dl grófmalað spelt
2 msk. olía
birki- eða sesamfræ til að setja ofan á
1 egg til að pensla bollurnar með
Setjið heitt vatn og mjólk í skál og
látið standa þar til það er u.þ.b. 37°C
heitt. Blandið þá geri út í og salti,
hunangi, hveiti og speltmjöli, hrærið
saman og setjið olíuna saman við.
Hnoðið í samfellt deig og látið lyfta
sér í 20 mínútur. Breiðið viskustykki
yfir á meðan. Hnoðið deigið að nýju
og mótið að vild, hér er það ímynd-
unaraflið sem ræður för. Þeytið egg-
ið með gaffli og penslið yfir sköp-
unarverkin. Látið brauðið lyfta sér í
30 mínútur. Bakið brauðið neðst í
ofni við 220–225°C í 20–30 mín., boll-
ur þurfa styttri tíma en stór brauð.
Berið fram með áleggi að eigin
vali eftir aldri og fjölda gesta.
Afmæliskakan
ein kaka fyrr u.þ.b. 10
2 egg
400 g sykur
200 g hveiti
200 g heilhveiti
2 tsk. matarsódi
2 tsk. lyftiduft
4 msk. kakó
1 msk. vanilludropar
5 dl súrmjólk
2 dl olía
Krem
200 g sykur
1¼ dl vatn
Prakkarabollur Þær eru hollar en líka svakalega góðar. Ljúffengt Heitt fyllt brauð er alltaf vinsælt í afmælisveislum.
Fjölbreyttur fögnuður
Allir sem eiga börn þurfa
og vilja einhvern tímann
halda afmælisboð fyrir
barnið sitt þar sem önnur
börn eru aðalgestirnir og
fullorðnir fá í mesta lagi
að vera aðeins með.
Heiða Björg Hilmisdóttir
veit vel hvers konar
veisluréttir gefast vel við
slík tækifæri.
Afmæli Það er ekki amalegt að halda upp á afmælið sitt með svona kræsingar eru á borðum.
Sætt Marenstertan magnaða er freistandi.
Litríkt Marglitar múffur vekja aðdáun yngstu barnanna.
Ljósmynd/Jón Svavarsson