Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 02.03.2007, Qupperneq 31
4 eggjahvítur 1 msk. síróp 1 tsk. vanilludropar Þeytið saman egg og sykur og hellið súrmjólk og olíu saman við. Blandið öllu öðru saman við og hrærið eins lítið og hægt er. Því minna sem er hrært því betri verður kakan. Hellið í form að vild og bakið við 180°C í 20–30 mín. eða þar til kakan er bökuð í gegn. Látið kökuna kólna alveg áður en hún er skreytt því annars bráðnar kremið. Þegar gera á kremið er best að byrja á að setja sykur og vatn í pott og sjóða saman þar til fer að þykkna og hitastigið á að vera 120°C. Þetta tekur stutta stund og því er vissara að fylgjast vel með og hræra í annað slagið. Stífþeytið eggjahvíturnar í hrærivél og haldið áfram að þeyta á meðan þið hellið sykurleginum var- lega saman við hvíturnar. Setjið sír- óp og vanilludropa saman við og þeytið saman þar til kremið fer að kólna. Setjið kremið þá á kökuna. Þá er komið að því að skreyta og hér var búin til fiskakaka. Skúffu- kaka skorin út eins og fiskur og barnalistamaðurinn býr til augu og munn. Svo voru teknar fingradúkk- ur og sogröri stungið í og þeim því næst stungið í kökuna auk þess sem ein slík var sett í hvert glas. Gest- irnir gátu síðan dundað sér við að leika sér með fiskana og allir fengu einn fisk með sér heim. Ódýrt, ein- falt og heppnaðist bara alveg ágæt- lega. Ef maður vill má sleppa því að gera frosting krem og gera einfald- ara krem eða jafnvel kaupa tilbúið krem. Þetta sæta krem er þó mjög vinsælt hjá börnum. Undralands-eplakaka 200 g heilhveiti 100 g hveiti 2 tsk. lyftiduft 2 tsk. kanill ½ dl kakó 1¾ dl matarolía 1 dl eplamauk 2 egg 1 dl agave síróp 140 g epli, rifið fínt ½ dl valhnetur (má sleppa) flórsykur Hrærið saman heilhveiti, hveiti, lyftidufti, kanil og kakó. Hrærið saman í annarri skál matarolíu, epla- mauki, eggjum og sírópi. Blandið þessu tvennu saman og setjið fínt rifið epli út í. Setjið í eitt stórt hring- laga form eða tvö lítil og bakið við 200°C í u.þ.b. 30 mínútur eða þar til kakan er bökuð í gegn. Hún er e.t.v. svolítið blaut. Setjið á myndarlegt fat, stráið flórsykri yfir og skreytið með ferskum berjum eða nokkrum litríkum kúlum. Þessi kaka inniheld- ur enga mjólk eða mjólkurafurðir og frekar lítinn sykur svo hún hentar mörgum sem eru á sérfæði. Marenstertan magnaða fyrir 10 Botninn 4 eggjahvítur 220 g púðursykur 50 g möndluflögur 80 g kornflögur Fylling 1½ dl hinber, fersk eða frosin 4 dl rjómi, þeyttur Ofan á 1 dl rjómi, þeyttur 1 granat epli 2–3 msk. fljótandi hunang Fullt af berjum eða fallegum ávöxt- um og e.t.v. litlar marenskökur eða súkkulaðikossar Stífþeytið eggjahvíturnar, bland- ið púðursykrinum saman við og þeytið þar til sykurinn er upp- leystur. Hrærið möndlum og korn- flögum út í og smyrjið deiginu á bökunarplötu í hringa eða ferninga. Bakið við 150°C. í 40 mínútur. Látið kólna. Setjið annan botninn á fat og dreifð hindberjunum yfir botninn. Þeytið allan rjómann og setjið mest af honum á milli botnanna en geym- ið ca 1⁄5 til að setja ofan á kökuna. Setjið botninn ofan á, smyrjið rjóm- anum yfir og stingið berjum, ávöxt- um, súkkulaðimolum, mar- enstoppum, sykurpúðum eða hverju sem vill ofan á. Skerið granatepli í tvennt og skafið innihaldið út með skeið. Hrærið saman við fljótandi villihunang og dreifið yfir alla kök- una, það er bæði flott og virkilega gott. Þessi kaka er góð afmæliskaka í boð þar sem eru bæði börn og full- orðnir. Marglitar múffur Það er gaman að nota matarlit til að kenna börnum um liti og hvernig hægt er að blanda þá. Það að blár og gulur saman gefi grænt krem eru auðvitað smátöfrar a.m.k. þegar maður er 5 ára. Það má nota hvaða múffuuppskrift sem er og þess vegna kaupa muffins og tilbúið krem ef tíminn er naumur. Aðal- málið hér er að skreyta. Kaupa gúmmínammi og skraut bara af því að það er fallegt eða jafnvel einmitt af því að það er furðulegt og búa til allavega fígúrur eða fínar múffur úr því. Þetta er tækifærið til að skreyta kökur með tanngóm út gúmmíi, svo dæmi sé tekið! Góða skemmtun. 8–10 stk. Múffur 2 egg 2 dl sykur 1 dl appelsínusafi 0,8 dl olía 3 dl hveiti 2 tsk. lyftiduft 1 tsk. appelsínuþykkni Krem 200 g smjör 230 g flórsykur 1 egg 2 tsk. vanilludropar matarlitir Þeytið egg og sykur og hrærið öllu öðru saman við. Setjið í múffu- form og bakið við 180°C í u.þ.b. 15 mínútur eða þar til múffurnar hafa tekið smálit. Best er að nota stór pappírsmúffuform og raða þeim í þar til gert bökunarform. Þessi skammtur af kremi er frek- ar ríflegur, en ef maður ætlar að fara að blanda liti er hætt við að mikið fari til spillis. Því fleiri litir sem lukkast því skrautlegri og flott- ari verða kökurnar. Svo er hægt að forma maríubjöllur, kóngulær, kalla og konur, blóm og sól o.s.frv. Epli Undralands-eplakaka með valhnetum og agave-sírópi. MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 31 www.leikhusid.is sími 551 1200 Þjóðleikhúsið fyrir alla! PATREKUR 1,5 Sjáið Rúnar Frey, Jóa og Sigga fara á kostum! LEG Ímyndunarveikin eða Þögn Molières sýningar 22/3 og 23/3 Mögnuð leiksýning frá Frakklandi FRANSKT VOR Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU PÉTUR OG ÚLFURINN Allt að verða uppselt! Takmarkaður sýningafjöldi! Sýningar í Barbican leikhúsinu 28/2–10/3 PÉTUR GAUTUR SLÆR Í GEGN Í LONDON! Þjóðleikhúsið í útrás Uppselt á allar forsýningar! Tryggið ykkur miða! Frábær fjölskyldusýning! SITJI GUÐS ENGLAR Sýning sunnudag kl 14.00  Hvers vegna ekki að bjóða í matarboð? Burritos, steiktan kjúkling, kjöt eða annað sem flestum börnum líkar. Dúka upp fínt og hafa litríkt og skrautlegt meðlæti.  Það þurfa ekki að vera margar tegundir í boði. Tvær „sætar“ kökur eða múffur er meira en nóg. Svo er brauðmeti, grænmeti, ávextir og popp allt- af vinsælt.  Vöfflur og pönnukökur er íslenskt og góðgæti sem er sívinsælt að bjóða upp á.  Það á alltaf við að skera niður litríkt grænmeti og raða á fat eða setja í skálar. Það kallar á að litlir matgæðingar skelli sér í grænmetisát sem er sérlega gott mótvægi við sætabrauðið.  Það er óþarfi að baka kökur með miklum sykri og beinlínis ekki ráðlegt fyrir afmæli þar sem mikið er af litlum börnum. Betra er að velja upp- skriftir þar sem sykurinn er í lágmarki eða hafa bara eina virkilega sæta köku og annað frekar ósætt.  Að baka eða kaupa bollur er alltaf vinsælt. Álegg sem börnum fellur í geð er; skinka, pitsusósa, paprika, tómatar, gúrkur, ostur, gotta smurost- ur, egg, kavíar, kæfa, o.s.frv.  Piparkökumótin eru frábær ef mann vantar hugmyndir því þar koma fígúrurnar til manns og það þarf bara að skreyta. Mótin má nota til að má skera út brauð, ost, kökur o.fl. sem síðan er skreytt.  Ef til stendur að bjóða fullorðnum að fá sér hressingu í afmælinu klikkar aldrei að bjóða upp á osta. Velja nokkra góða osta, skemmtilega pylsu, sultu, grænmeti og brauð. Nokkrar hugmyndir fyrir afmæli Barbíköku eru auðvelt að baka. Annaðhvort má raða upp nokkrum litlum svamptertubotnum með kremi á milli og skera til þannig að það líkist standandi pilsi eða baka eina háa formköku. Svo er alveg hreinni barbí- dúkku stungi í miðjuna og gott bleikt krem sett á kökuna. (Tilvalið er að nota hálfa barbí sem hefur brotnað, bara muna að þvo hana mjög vel og þurrka). Snjókarl, pókemon, barbapabba og fleiri sporöskjulaga verur má gera með því að baka tvo stóra hringi og einn lítill. Raða saman og skera af kök- unum þar til þær eru flottar saman. Setja á krem í réttum lit og skreyta. Fótbolta er hægt að gera með ýmsu móti til dæmis nota hvítt krem og svartan lakkrís á kringlótta köku. Sprengjuköku er hægt að gera með því að nota stjörnuljós eða inniblys sem skraut. Slöngu er hægt að gera með að baka tvær hring formkökur og skera í helminga og raða saman sikk sakk. Nokkrar afmæliskökuhugmyndir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.