Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 38

Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Á NORÐURLÖNDUM hefur tek- ist að búa til samfélög sem tryggja góða grunnþjónustu jafnframt því að stuðla að öflugu efnahagslífi og fram- taki einstaklinga í atvinnulífinu. Ég tel það víst að flestir Íslendingar vilji búa í slíku samfélagi og það er ein- mitt það sem við Vinstri græn ætlum okkur að hlúa að á komandi árum. Að mínu mati vilja fleiri Íslend- ingar frekar trygga grunnþjónustu en einkavæðingu sem eykur gjald- töku og mismunar í þjónustu sinni. Það er blekking að halda að ótak- mörkuð einkavæðing færi okkur meiri peninga í vasann. Í reynd gerir hún þjónustuna oft dýrari og órétt- látari. Við þurfum öll að átta okkur á því að skattpeningar okkar fara ekki í ekki neitt, heldur eru þeir nýttir til þess að reka þá samfélagslegu þjón- ustu sem okkur stendur meðal ann- ars til boða í mennta-, heilbrigðis- og samgöngukerfinu. Færum skattbyrðina af þeim verst settu Vissulega mun launaseðillinn líta öðruvísi út ef við lækkum skatta, en meira fer á endanum úr vasanum því eins og dæmin sýna verður þjón- ustan dýrari. Kannski ættum við að tala um aukna gjaldtöku í heilbrigðis- og menntakerfinu sem einskonar skattlagningu á þá sem nýta sér þá þjónustu sem þar er að finna. Ofan á þetta bætist svo að þótt skattalækkanir þessarar rík- isstjórnar hafa vissulega komið sér vel fyrir þá ríkustu í samfélaginu, þá hefur skattbyrðin aukist á 90% þjóð- arinnar. Okkur í VG hugnast ekki slík skattastefna. Við viljum frekar færa skattbyrðina af þeim sem eru með lægstu launin, af þeim sem hafa minnst til að bíta og brenna í samfélaginu. Frumkvæði og stöðugleiki Vinstri græn eru ekki með á sinni stefnuskrá að ráðast í ríkisfram- kvæmdir eins og stór- iðjustefnan gengur út á, heldur treystum við á frumkvæði fólksins. Við viljum skapa möguleika til að frumkvæði fólks fái að njóta sín í atvinnulíf- inu. Ein leið til þess að svo verði er að efla Nýsköpunarsjóð og sjá þannig til þess að góðar hugmyndir fái notið sín, jafnt á landsbyggðinni sem á höf- uðborgarsvæðinu. Við sem erum vinstri græn viljum að fólk geti gengið að öflugri grunn- þjónustu ásamt því að koma á stöð- ugleika í hagkerfinu og hvetja til fjöl- breytni í atvinnulífinu. Við viljum ekki að stjórnvöld ákveði hver at- vinnuuppbyggingin eigi að vera á hverjum stað, heldur viljum við skapa litlum og meðalstórum fyr- irtækjum góðan grunn til að vaxa og dafna. Þannig tryggjum við bæði fjöl- breytni og stöðugleika í efnahagslífi þjóðarinnar. Fjölbreytt atvinnustefna af þessu tagi er líka til þess fallin að auka stöðugleika í atvinnu- og efnahagslíf- inu. Stóriðjustefna síðustu ára hefur vald- ið mikilli þenslu sem meðal annars eykur lánsbyrði okkar allra upp úr öllu valdi. Það kemur ekki aðeins nið- ur á fyrirtækjum landsins, heldur líka venjulegu fólki sem til dæmis hefur tekið há húsnæðislán. Þetta er ein af orsökum þess að skuldir heimilanna hafa aukist úr 80% af ráðstöfunartekjum í 200% á fimmtán árum. Þjóðaratkvæði um stærstu málin Okkur Vinstri grænum finnst líka að fólkið í landinu eigi að hafa sitt að segja um það hvort ráðist er í stór- framkvæmdir á borð við stórar vatnsfallsvirkjanir hálendinu sem setja hagkerfið úr jafnvægi eins og raun ber vitni. Því hefði verið sjálf- sagt að fólkið í landinu fengi að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslu um svo stórt og umdeilt mál. Slíkt væri í anda okk- ar Vinstri grænna og í anda raun- verulegs lýðræðis. Þingmenn Vinstri grænna hafa sýnt í verki áherslu okkar á raunverulegt lýðræði með því að leggja fram þingsályktun- artillögu um að þjóðin fái að kjósa um framtíð hálendisins norðan Vatnajök- uls. Hvers vegna hefði þjóðin ekki átt að hafa úrslitaáhrif á það hvort ráðist verði í stærstu framkvæmd Íslands- sögunnar? Skiptum út í stjórnarráðinu Pólitíkin er margslungnari en bara hægri og vinstri. Ríkisframkvæmdir stjórnarflokkanna í virkjunarmálum eiga mun meira skylt við miðstýring- aráráttu gömlu Sovétríkjanna en vestræna lýðræðishefð. Vinstrihreyf- ingin – grænt framboð leggur hins vegar bæði áherslu á að velferð fólks- ins í landinu sé tryggð með góðri grunnþjónustu, stuðningi við einka- framtakið og að auka möguleika þeirra til að taka lýðræðislegar ákvarðanir um framtíð sína. VG vill lýðræði, stöðugleika og góða grunnþjónustu Andrea Ólafsdóttir fjallar um stefnumál Vinstri grænna » Það eru grundvall-arréttindi fólks í lýðræðissamfélagi að koma á skilvirkum þjóð- aratkvæðagreiðslum um stærstu mál og að rekin sé góð grunnþjónusta. Andrea Ólafsdóttir Höfundur skipar 5. sæti á lista Vinstri grænna í Suðvesturkjördæmi. ÞAÐ ER gleðiefni fyrir grunn- skólakennara að Launanefnd sveit- arfélaga (LN) óski eftir faglegum vinnubrögðum. Það var mál til komið. Þessi viðhorfsbreyting launanefndar sveitarfélaganna er til komin vegna þrotlausrar vinnu grunnskólakennara síðustu ár. Í hartnær tvö ár hefur forysta Félags grunnskólakennara (FG) haft frumkvæði að viðræðum um málefni grunnskólans við sveit- arstjórnarmenn, borgarstjóra, bæj- ar- og sveitarstjóra, bæði formlega og óformlega. Á þeim fundum hef- ur m.a. verið farið yfir áhyggjur okkar af því hvert stefndi í sam- skiptum sveitarfélaga og grunn- skólakennara. Því miður voru þetta ekki þarflausar áhyggjur. Í kjölfar verkfalls árið 2004 kom fram hjá öllum ráðamönnum þjóð- arinnar að menn yrðu að læra af þeim mistökum sem gerð voru í kjaradeilu haustið 2004 og að sátt yrði að nást um grunnskólann. Menntasvið Reykjavíkur (þá Fræðsluráð) lét gera úttekt á ferli kjaraviðræðnanna og var meðal helstu niðurstaðna að auka yrði samstarf aðila og efla trúnað á samningstímanum. Enginn sveit- arstjórnarmaður haft samband við félagið að fyrra bragði vegna þess- ara mála. Á aðalfundi Félags grunnskóla- kennara í febrúar 2005 var kosin ný stjórn og ný samninganefnd. Þessir aðilar ásamt svæða- formönnum FG (10 aðilar) og skólamálanefnd FG (7 aðilar), fóru í ofan í kjölinn og grandskoðuðu aðdraganda verkfalls og átökin sem því fylgdu. Þessi forystuhópur Félags grunnskólakennara einsetti sér strax að temja sér fagleg og markviss vinnubrögð. Í því skyni hefur félagið m.a. sent samn- inganefnd sína á námskeið í samn- ingatækni og hóf strax vinnu vegna væntanlegra kjaraviðræðna. Ekki er mér kunnugt um hvern- ig undirbúningi LN er háttað, en hitt er víst að þar standa að mestu leyti sömu menn í brúnni og í öll- um viðræðum við grunnskólakenn- ara frá árinu 2001! Er ekki komin tími til að skipta um áhöfn? Tímasett aðgerðaáætlun Sviðstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga og fram- kvæmdastjóri LN hefur sett fram hugmyndir um aðgerðaáætlun sem skipt er í viðfangsefni sem lúta að faglegri umfjöllun, rannsókn- arvinnu og kjara- viðræðum. Þetta er að mörgu leyti góð og skynsamleg áætlun og við fyrstu sýn er ekk- ert sem mælir á móti því að kennarar helli sér í þá vinnu sem þar er lýst, þegar þar að kemur. Það er fagnaðarefni að LN ætli sér á markvissan hátt að stefna að launajöfnun grunn- skólakennara við aðr- ar háskólamenntaðar stéttir. Þetta veit á gott. Skólamálanefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga sendi frá sér ályktun hinn 23. febrúar, þar sem hún skorar á LN, FG og SÍ að hefja þessa undirbúningsvinnu. Enn er ástæða til að gleðjast yfir áhuga sambandsins. Skóla- málanefndin bauð undirrituðum á fund fyrir jól og voru málin rædd. Ekki var annað að heyra en aðilar væru sammála um mikilvægi þess að hefja samstarf og samvinnu um málefni grunnskólans. Uppfylla þarf ákvæði gildandi kjarasamnings Ég geri ekki ráð fyrir að nokkr- um manni detti í hug að hægt sé að fara fram á það við grunnskóla- kennara að þeir hefji þessa vinnu á meðan sveitarfélögin geta ekki uppfyllt núverandi kjarasamning. Það þætti ekki góð latína á bygg- ingarstað að byrja á þakinu og enda á kjallaranum! Þetta verður að vera í réttri röð. Eins og alþjóð veit, þá er endur- skoðunarákvæði í kjarasamningi LN og KÍ vegna grunnskólans. Þar segir: Aðilar skulu taka upp viðræður fyrir 1. september 2006 og meta hvort breytingar á skóla- kerfinu eða almenn efnahags- og kjaraþróun gefi tilefni til við- bragða og ákveða þær ráðstafanir sem þeir verða sammála um. LN hefur boðið kennurum 0,75% hækkun launa til að mæta efna- hags- og kjaraþróun frá nóvember ’04 til september ’06. Það sér hver maður að þetta mætir ekki á nokk- urn hátt þróun efnahags- og kjara- mála á þessu tímabili. Hafa ber í huga, að þrátt fyrir stórkarlalegar yfirlýs- ingar af hálfu LN um tugprósentna hækkun launa kennara, er það nú samt svo að þeir eru lægst launaðir allra uppeldis- og menntastétta á Ís- landi í dag. Étið það sem úti frýs? Í Morgunblaðinu 23. febrúar skrifar framkvæmdastjóri LN grein. Þar segir hann: ,,Ef forysta KÍ vill ekki taka við þeim kauphækkunum sem boðnar hafa verið …“ Þessi setningahluti segir allt sem segja þarf um viðhorf LN til grunnskólakenn- ara. Samkvæmt kjara- samningnum eiga að- ilar að grípa til þeirra aðgerða sem þeir verða sammála um. Það sem fram kemur hjá framkvæmdastjór- anum hér að ofan lýsir nú ekki miklum samningsvilja eða hvað? Fram hefur komið að forysta grunnskólakennara telur eðlilegt að grunnlaun kennara verði hækk- uð um 6–8% til að mæta efnahags- og kjaraþróun. Þetta gæti kostað sveitarfélögin allt að einum og hálfum milljarði. Kennurum er ljóst að þetta eru miklir peningar, enda eru kennarar og skólastjórn- endur um 5.000 talsins. 8% hækk- un á meðalgrunnlaun grunnskóla- kennara yrði um 19.500 kr. á mánuði. Ég skora á sveitarfélögin, sveit- arstjórnarmenn og LN, að hætta þessum þvergirðingshætti og koma nú á sanngjarnan hátt til móts við kennara svo hefja megi nýjan kafla í samskiptum þeirra og sveitarfélaganna og horfa til fram- tíðar. Boltinn er hjá ykkur. Grunnskólakennarar hafa beðið um fagleg vinnubrögð Ólafur Loftsson fjallar um kjaramál kennara Ólafur Loftsson » Það er gleði-efni fyrir grunnskóla- kennara að Launanefnd sveitarfélaga (LN) óski eftir faglegum vinnu- brögðum. Það var mál til komið. Höfundur er stoltur kennari og fagmaður á sínu sviði með þriggja ára háskólamenntun og er formaður Félags grunnskólakennara. ÞEGAR spurt er að því hvað við teljum vera mikilvægast í lífinu er svar okkar allra nær undantekning- arlaust það sama: Það eru börnin, fjölskyldan og heilsan – oftast í þess- ari röð. Öll viljum við að börnin okkar hafi það sem allra best og öll viljum við eyða meiri tíma með þeim en við gerum. Eða hvað? Nýleg könnun leiðir í ljós að þrír af hverjum fjórum Íslendinga telja það bæði sjálfsagt og nauðsynlegt að báðir foreldrar vinni utan heimilis, fjarri börn- unum. Reyndar er það svo að þeim Íslend- ingum sem eru á þess- ari skoðun hefur fjölgað úr 60% í 75% á örfáum árum. Á Íslandi er at- vinnuþátttaka beggja kynja sú mesta í Evr- ópu en við eignumst líka flest börn af öllum þjóðum álfunnar. Reyndar segjumst við flest hver finna fyrir því að heimilið mæti oftar afgangi en vinnan okk- ar, flest höfum við dálít- ið samviskubit út af þessu og konur víst meira en karlar. En hvað verður þá um börnin? Skóladagur barna yngri en tveggja ára hefur lengst um helming á síðustu sjö árum og þrisvar sinnum fleiri ung börn dvöldu átta til níu tíma á dag í leikskólanum sínum árið 2005 en árið 1998. Sama þróun hefur átt sér stað hjá börnum á aldrinum þriggja til fimm ára: fjöldi þeirra sem dvelja 9 tíma á dag í leikskóla tvöfaldaðist á árunum 1998–2005. Lengd skóla- dagsins er því í fullu samræmi við vilja þjóðarinnar til að vinna utan heimilis vegna þess að eitthvað verð- ur að gera við börnin á meðan við full- orðna fólkið erum í vinnunni. Hvað viljum við þá? Hvert er þá raunverulegt svar við því hvað við teljum vera mikilvægast í lífinu? Eru það börnin okkar sem sitja á skólabekk í níu tíma á dag svo við getum fullnægt þörfum okkar eða finnst okkur við sjálf kannski eftir alltsaman vera mikilvægari en börn- in, fjölskyldan og heilsan? Málið er auðvitað dálítið flóknara en þetta og ekki rétt að alhæfa í þessu frekar en mörgu öðru. Margir for- eldrar hafa hreinlega ekki um annað að velja en að koma börnunum sínum í leikskóla daglangt eigi þau að geta framfleytt þeim. Þetta á til dæmis við um einstæða foreldra, láglaunafólk og námsmenn svo dæmi séu tekin. Margir foreldrar taka út kvalir fyrir að vera í slíkri aðstöðu með börnin sín á meðan aðrir hafa um það val. Úr þessu má samt sem áður lesa ákveðnar þjóðfélagslegar breyt- ingar sem meðal annars má rekja til breyttra at- vinnuhátta, aukins vinnuálags og kröf- unnar um aukin ytri lífsgæði. Þetta eru af- leiðingar þeirrar efn- ishyggju sem tröllríður íslensku samfélagi, læt- ur engan ósnortinn og kemur verst niður á börnunum. Samt sem áður teljum við okkur trú um að það séu ein- mitt börnin sem eru mikilvægust í lífinu, en ekki vinnan, húsið eða bíllinn. Tími til breytinga Það er kominn tími til að breyta forgangsröð- uninni, stokka upp og setja í rétta röð það sem við teljum vera mikilvægast í lífinu – og haga okkur síðan sam- kvæmt því. Slíkar breytingar gerast ekki með tímabundnu átaki eða áhlaupi heldur með breyttum áherslum í samfélaginu öllu þar sem manngildið og samhjálpin verða sett ofar efnishyggjunni og einstaklings- hyggjunni. Vinstrihreyfingin – grænt framboð hefur markað sér sérstöðu meðal ís- lenskra stjórnmálaflokka með því að móta markvissa stefnu í málefnum barna. Við teljum að gera þurfi breyt- ingar til að samfélagið verði ekki bara fyrir okkur fullorðna fólkið, heldur líka fyrir börnin. Til að svo verði þurf- um við fyrst að viðurkenna að bernskan hefur sjálfstætt gildi og að börnin hafi rétt á að hafa áhrif á ákvarðanir sem varða þeirra eigið líf. Svo þurfum við að passa upp á að ekkert barn líði fyrir fátækt, fötlun eða mismunun á öðrum grundvelli. Í þannig samfélagi viljum við Vinstri græn að börnin okkar alist upp. Forgangsröðum í þágu barnanna Björn Valur Gíslason skrifar um fjölskyldustefnu VG » Þetta eru af-leiðingar þeirrar efnis- hyggju sem tröllríður ís- lensku sam- félagi... Björn Valur Gíslason Höfundur skipar þriðja sæti á lista Vinstri grænna í NA-kjördæmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.